Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1999, Síða 30
34
FIMMTUDAGUR 4. MARS 1999
Afmæli
Lárus Hermannsson
Lárus Hermannsson, fyrrv. versl-
unarmaður, Hringbraut 99, Reykja-
vík, er áttatíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Lárus fæddist á Hofsósi og ólst
upp á Ysta-Mó í Fljótum. Hann gekk
í bama- og unglingaskóla í Haganes-
vík, stundaði síðan nám við Héraðs-
skólann að Laugarvatni 1933-34 og
við Samvinnuskólann í Reykjavík
frá 1937 þar sem hann lauk prófum
1938. Þá tók hann próf til sund-
kennslu en hann kenndi sund við
Barðslaug í Fljótum um skeið.
Lárus stundaði landbúnaðarstörf
á yngri áram hjá foreldrum sínum
að Ysta-Mó en flutti til Reykjavíkur
1940 þar sem hann vann í Breta-
vinnu en stundaði síðan verslunar-
störf, lengst af hjá KRON. Þá starf-
aði hann við Kaupfélag Ísafírðinga í
þrjú ár og Kaupfélag Flateyjar á
Breiðafirði í önnur þrjú ár. Auk
þess var hann lítillega til sjós, á
fiskiskipum og farskipi.
Lárus hóf síðan störf hjá Sam-
bandi íslenskra samvinnufélaga þar
sem hann starfaði síðustu starfsár-
in.
Á sínum yngri árum stundaði
Lárus frjálsar íþróttir, sund, hesta-
mennsku og skíðaferðir. Þá lagði
hann stund á taflmennsku og bridge
auk þess sem hann er prýðilegur
hagyrðingur. Lárus var formaður
Ungmennafélags Fljótamanna um
skeið.
Fjölskylda
Sonur Lárusar og Aðal-
heiðar Halldórsdóttur er
Sigurður, f. 10.4. 1944,
verslunarmaður, búsett-
ur í Njarðvík en sambýl-
iskona hans er Guðrún
Greipsdóttir og á hann
tvö börn, Elínu og Pétur,
frá fyrrv. hjónabandi með
Ólöfu Pétursdóttur.
Kona Lárusar var Mar-
ía G. Sófusdóttir, f. 15.8.
1926, frá Neskaupstað, en hún
stundaði lengst af hjúkrunarstörf.
Foreldrar hennar: Ólöf og Sófus
Gjörveraa, sjósóknari í Neskaup-
stað og víðar.
Synir Lárusar og Maríu eru Rún-
ar, f. 26.1. 1948, byggingameistari,
búsettur í Mosfellsbæ en kona hans
er Þórdís Lárusdóttir hárgreiðslu-
meistari og eiga þau tvær dætur,
Ástu og Maríu; Hermann, f. 2.9.
1949, garðyrkjumaður, búsettur í
Kópavogi; Ólafur, f. 11.8. 1955, versl-
unarmaður, búsettur í Reykjavík en
kona hans er Valgerður Reginsdótt-
ir sem starfar við hjúkrunarstörf og
eiga þau þrjár dætur, Elínu, Möllu
Rós og Láru Maríu.
Systkini Lárusar: Halldóra, f.
11.10. 1912, húsmóðir á Siglufirði og
ekkja eftir Friðrik Márusson; Níels,
f. 27.7. 1915, d. 1998, húsasmiður og
lengi umsjónarmaður hjá BSRB, var
búsettur í Reykjavík en kona hans
var Steinunn Jóhannsdóttir; Rann-
veig, f. 12.11.1916, nú látin, húsmóð-
ir á ísafirði en maður
hennar var Jón Jónsson,
tónlistarmaður frá
Hvanná, sem einnig er
látinn; Hrefna, f. 25.6.
1918, húsmóðir á Siglu-
firði en hennar maður
var Jónas Bjömsson sem
er látinn, vigtarmaður og
starfsmaður við Skatt-
stofuna á Siglufirði; Sæ-
mundur, f. 11.5. 1922,
lengst af sjúkrahúsráðs-
maður á Sauðárkróki og
tollvörður en kona hans er Ása
Helgadóttir; Haraldur, f. 22.4. 1923,
lengst af bóndi á Ysta-Mó og síðar
verslunarmaður hjá Kaupfélagi
Skagfirðinga á Sauðárkróki en kona
hans er Guðmunda Hermannsdótt-
ir; Georg, f. 24.3. 1925, búsettur á
Ysta-Mó í Fljótum; Björn, f. 16.6.
1928, fyrrv. tollstjóri í Reykjavík en
kona hans er Ragna Þorleifsdóttir.
Foreldrar Lárusar voru Hermann
Jónsson, f. 12.12. 1881, d. 30.9. 1974,
bóndi á Ysta-Mó og kaupfélagsstjóri
í Haganesvík í Fljótum, og k.h., Elín
Lárusdóttir, f. 27.2. 1890, d. 26.3.
1980, húsfreyja.
Ætt
Föðursystir Lárusar var Hólm-
fríður, móðir Péturs Bjarnasonar,
fyrrv. fræðslustjóra á ísafirði.
Hermann var sonur Jóns, verk-
stjóra á Bíldudal, Sigurðsson, b. á
Hóli í Bíldudal, bróður Guðrúnar,
langömmu Hjartar, fóður Jóhanns
stórmeistara og langömmu Sess-
elju, móður Magnúsar Hreggviðs-
sonar forstjóra. Sigurður var sonur
Jóns, b. í Ásgarði í Hvammssveit,
Brandssonar, bróður Guðlaugar,
langömmu Snorra skálds og Torfa
tollstjóra Hjartarsona. Móðir Jóns
var Guðrún Níelsdóttir, b. á Hamar-
landi 1 Reykhólahreppi, Klemens-
sonar, bróður Sveinbjamar, langafa
Finnbogu, ömmu Einars Benedikts-
sonar sendiherra. Móðir Hermanns
var Halldóra Magnúsdóttir, b. á
Felli í Tálknafirði, Gíslasonar, b. í
Feigsdal, Magnússonar, b. á Geirs-
eyri, Halldórssonar. Móðir Magnús-
ar á Geirseyri var Sigríður Ólafs-
dóttir, systir Hólmfríðar, ættmóður
Kollsvíkurættarinnar, langamma
Magdalenu, langömmu Magnúsar
Torfa Ólafssonar ráðherra.
Elín var dóttir Lárusar, útvegsb.
á Hofsósi, Ólafssonar. Móðir Lárus-
ar var Solveig Sigurðardóttir og Sig-
ríðar Jónsdóttur, b. á Hafgrímsstöð-
um, Guðmundssonar, Rafnssonar,
bróður Jóns, langafa Bjama, afa
Matthíasar Bjarnasonar, fyrrv.
ráðherra. Móðir Elinar var Margrét
Jónsdóttir, b. í Brekkukoti í Blöndu-
hlíð, bróður Gísla, langafa Jóns
Skaftasonar, fyrrv. sýslumanns í
Reykjavík, föður Helgu borgarrit-
ara. Jón var sonur Þorláks, b. á
Syðri-Brekkum, Finnbogasonar, b. á
Daufá, Þorkelssonar, bróður Unu,
ættmóður Svaðastaðaættar. Móðir
Margrétar var Málfríður Jónsdóttir,
b. í Dæli, Jónssonar, bróður Ingi-
bjargar, langömmu Þórarins, föður
Kristjáns Eldjáms forseta.
Lárus Hermannsson.
Til hamingju
með afmælið
4. mars
95 ára
Yngvi Kristjánsson,
Hrafhistu, Hafnarfirði.
80 ára
María Brynjólfsdóttir,
Grandavegi 47, Reykjavík.
Þórimn Andrésdóttir,
Stóra-Ási, Reykholti.
75 ára
Guðrún Vigfúsdóttir,
Bogahlíð 14, Reykjavík.
Jónsteinn Haraldsson,
Sæviðarsundi 28, Reykjavík.
70 ára
Bragi Bjömsson,
Hofi, Djúpavogi.
Jón Pétur Ragnarsson,
Brekkulæk 1, Reykjavík.
60 ára
Guðrún Lýðsdóttir,
Frostafold 6, Reykjavík.
Kolbrún Olgeirsdóttir,
Blikahólum 2, Reykjavík.
Kristín Þorgeirsdóttir,
Bjarmastíg 8, Akureyri.
Sveinn H. Jónsson,
Svarfaðarbraut 18, Dalvík.
Þóra Angantýsdóttir,
Ægisgötu 18, Akureyri.
Lilja Sveinsdóttir
Lilja Sveinsdóttir, hús-
móðir og fyrrv. skrifstofu-
maður, Kambastig 2, Sauð-
árkróki, er sjötug í dag.
Starfsferill
Lilja fæddist á Bjamar-
gili i Fljótum og ólst þar
upp. Hún var við nám í
Gagnfræðaskóla Siglu-
fiarðar 1944-47 og stund-
aði nám við Húsmæðra-
skólann á Löngumýri í
Skagafirði veturinn
1949-50.
Lilja vann almenn verslunar- og
skrifstofustörf hjá Samvinnufélagi
Fljótamanna i Haganesvik frá 1946 og
fram yfir 1950. Hún var búsett í Fljót-
um á árunum 1954-73 og var þá m.a.
ábúandi í Hólum í Holtshreppi
1964-73. Þá flutti hún til Sauðárkróks
þar sem hún stundaði skrifstofustörf
hjá Kaupfélagi Skagfirð-
inga til 1984. Eftir það var
Lilja farandverkakona á
ýmsum stöðum, m.a. víða
á Suðurlandi.
Fjölskylda
Fyrrv. sambýlismaður
Lilju var Baldur Bjöms-
son frá Stóru-Þverá í
Fljótum, f. 24.2. 1933,
smiður. Hann er sonur
Björns Stefánssonar, f.
8.8.1897, d. 12.5.1982, bónda á Stóru-
Þverá í Fljótum, og k.h., Karólínu
Sigríðar Kristjánsdóttur, f. 18.5.
1902, d. 28.7. 1951, ljósmóður.
Synir Lilju og Baldurs eru Karl
Líndal, vélsmiður í Grindavík;
Borgþór, vélstjóri í Grindavík,
kvæntur Sigrúnu Þórhallsdóttur og
era synir þeirra Stefán Bjöm og
Andri Fannar; Hermann Valgarð,
stýrimaður í Vestmannaeyjum, var
í sambúð með Aldísi Atladóttur og
er dóttir þeirra Elín Björk en sam-
býliskona hans nú er Kristín
Guðnadóttir.
Systkini Lilju eru Þuríður Ásdís,
húsfreyja á Brún í Biskupstungum;
Sigurbjörg, húsfreyja á Syðsta-Mó i
Fljótum; Guðmundur Sigurjón,
húsasmiður í Reykjavík; Trausti,
ferðabóndi á Bjarnargili í Fljótum.
Foreldrar Lilju voru Sveinn Hall-
dór Jónsson, f. 28.1. 1899, bóndi á
Bjamargili í Fljótum, og k.h., Guðrún
Sveinsdóttir, f. 13.9. 1909, húsfreyja.
Ætt
Sveinn Halldór var sonur Jóns, b.
á Reykjarhóli í Austur-Fljótum,
Hermannssonar, b. á Reykjarhóli,
Þorsteinssonar. Móðir Jóns var
Guðbjörg Margrét Þorkelsdóttir.
Móðir Sveins Halldórs var Vikt-
oría Lilja Sveinsdóttir, b. í Bjamar-
gili, Sveinssonar, b. i Höfn í Fljót-
um, Sveinssonar. Móðir Sveins í
Bjarnargili var Halldóra Torfa-
dóttir. Móðir Viktoríu LOju var
Guðný Halldórsdóttir, b. á Vatns-
enda í Héðinsfirði, Ingjaldssonar, og
Amfríðar Eyjólfsdóttur sem bæði
vora þingeyskra ætta.
Guðrún, móðir Lilju, var dóttir
Sveins, b. í Lundi í Stíflu, Steinsson-
ar, b. í Tungu í Stíflu, Jónssonar, b.
í Tungu, Guðmundssonar, hrepp-
stjóra á Hamri í Fljótum, Jónsson-
ar. Móðir Sveins var Guðrún
Sveinsdóttir, b. á Hring í Stíflu,
Jónssonar, b. á Hring, Jónssonar.
Móðir Guðrúnar var Sigurbjörg
Jóhannesdóttir, b. í Fljótum og síð-
ar að Vatnsenda í Ólafsfirði og
Sumarrósar Sigurðardóttur.
Lilja er að heiman í dag.
Lilja Sveinsdóttir.
Áskrifendur fá
a\\t mil// hi
aukaafslátt af
smáauglýsingum DV
Smáauglýsíngar
550 5000
50 ára
Anna Baldvina
Jóhannesdóttir,
Hrísum, Dalvík.
Amþór Flosi Þórðarson,
Selbraut 42, Seltjarnamesi.
Bjami Marinósson,
Skáney, Reykholti.
Gíslína Lóa Kristinsdóttir,
Kveldúlfsgötu 7, Borgarnesi.
Reynir Haraldsson,
Funafold 49, Reykjavík.
Sigurður Sigurðsson,
Fagrahjalla 14, Vopnafirði.
Steinunn Benediktsdóttir,
Freysnesi, Skaftafelli II,
Fagurhólsmýri.
40 ára
Aðalheiður Jónsdóttir,
Sauðá, Hvammstanga.
Bjargey Stefánsdóttir,
Hraunbæ 178, Reykjavík.
Guðbjörg Sólveig
Ólafsdóttir,
Suðurhólum 8, Reykjavík.
Hrönn Friðriksdóttir,
Hafnarstræti 7, Akureyri.
Inga Magnúsdóttir,
Gilsbakka 10, Neskaupstað.
Nanna Björk Filippusdóttir,
Álfaskeiði 90, Hafnarfirði.
Penkhae Phiubaikam,
Túngötu 22, Grindavík.
Pétur Sævarsson,
Tjamargötu 25 A, Keflavík.
Ragnar Ólafur
Guðmundsson,
Vallargötu 33, Þingeyri.
Stefán Gísli Finnbogason,
Rjúpufelli 2, Reykjavík.
Þorfinnur Guðnason,
Vegghömram 41, Reykjavík.