Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.1999, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 24. MARS 1999
Fréttir
Nýju kvikmyndalögin tekin að virka:
Þegar samist um gerö
tveggja erlendra mynda
- lögin eru lyftistöng fyrir hérlenda kvikmyndagerð, segir Friðrik Þór Friðriksson
Erlend kvikmyndafyrirtæki, ann-
að bandarískt en hitt franskt, hafa
samið við íslensku kvikmyndasam-
steypuna, fyrirtæki Friðriks Þórs
Friðrikssonar kvikmyndagerðar-
manns, um tökur á sitt hvorri kvik-
myndinni hér á landi á þessu ári.
Leikstjóri bandarísku myndarinnar
verður hinn kunni Hal Hartley, en
myndin verður einnig tekin upp í
Bandaríkjunum að hluta til.
Finnur Ingólfsson viðskiptciráð-
herra segir í samtali við DV að þess-
ir samningar séu til komnir í beinu
framhaldi af lagasetningu sem gerð
var skömmu fyrir þinghlé. Sam-
kvæmt þeim fá erlend kvikmynda-
fyrirtæki, sem taka myndir hér á
landi, endurgreitt úr ríkissjóði til-
tekið hlutfall af framleiðslukostnaði
sem til fellur við gerð kvikmynda
eða sjónvarpsefnis hér á landi. Með
framleiðslukostnaði er átt við allan
kostnað sem heimilt er að draga frá
tekjum af at-
vinnurekstri,
samkvæmt
ákvæðum laga
um tekjuskatt og
eignarskatt. Skil-
yrði er þó að
kostnaðurinn
falli til hér á
iandi og að Finnur Ingólfs-
greidd laun og son> iðnaðar-og
verktakagreiðsl- Vjðskjptarað.
ur séu sannan- pgrrg
lega skattlagðar
hér á landi.
“Ég er sannfærður um það að í al-
þjóðlegum skemmtiiðnaði, hvort
heldur sem er í tónlist eða kvik-
myndum, eigum við mjög mikla
sóknarmöguleika. Nú þegar búið er
að skapa samkeppnishæft rekstrar-
umhverfi á alþjóðlega vísu, þá eigum
við möguleika á því að laða hingað
til lands ffamleiðendur á þessu sviði.
Friðrik Þór Frið-
riksson kvik-
myndagerðar-
maður.
Þessar tvær
myndir sem
samningar hafa
nú náðst um eru
staðfesting á því.
Ég er sannfærður
um að fleiri koma
í kjölfariö," sagði
Finnur Ingólfsson
í samtali við DV.
Skrímsla-
mynd og
gamanmynd
Friðrik Þór Friðriksson sagði að
bandaríska myndin væri „skrímsla-
mynd“, en skrímslin sem í henni
munu koma við sögu eiga sér að ein-
hverju leyti fyrirmyndir í hérlendri
þjóðtrú. Hann vildi ekki greina nánar
frá efhi myndanna á þessu stigi, en
sagði að tökur hæfúst væntanlega
síðla sumars eða með haustinu á
þeirri bandarísku, en vonir stæðu til
að tökur á ffönsku myndinni gætu
hafist í sumar. Hún verður gaman-
mynd um fólk sem fer í sumarfrí til
íslands.
Friðrik sagði að skattalagabreyt-
ingin væri tvímælalaust nauðsynleg
til að laða hingað tO lands erlenda
kvikmyndagerðarmenn og gríðarleg
lyftistöng fyrir íslenska kvikmynda-
gerðarmenn. Báðar þessar tökur
væru verkefhi upp á samtals um 350
milljónir króna. Kvikmyndagerðar-
menn væru aimennt ánægðir með
lagabreytinguna að því undanteknu
að hún næði ekki til mynda sem
styrktar eru af Kvikmyndasjóði ís-
lands. „Ég sé ekki annað en að erlent
flármagn í samvinnu við Kvikmynda-
sjóð íslands ætti að vera jafn gott og
hreint og erlent fjármagn," sagði Frið-
rik Þór og kvaðst vænta þess að þessi
ágalli yrði sniðinn af nýju lögunum
síðar. -SÁ
Bláfjöll og Skálafell:
Þrennt slas-
aðist á
klukkutíma
Þrennt slasaðist á skíðasvæð-
um borgarinnar í gærkvöld. Á átt-
unda tímanum í gær var ellefu
ára strákur fluttur á slysadeild
eftir að hafa leikið sér á snjóbretti
í Bláfjöllum og fallið aftur fyrir
sig. Þá slasaðist starfsmaður
skíðasvæðisins í Bláfjöllum á
andliti og á fæti um svipað leyti
þegar hann var aö fara upp bratta
brekku og valt tvær veltur aftur
fyrir sig. Þriðja slysið varð svo í
Skálafelli þar sem rúmlega fertug-
ur maður datt á skíöum og hlaut
hann opið brot á vinstra læri. Öll
slysin áttu sér stað á áttunda tím-
anum í gærkvöld. -hb
Lögreglan í Reykjavík fór í eftirlitis-
ferð á skemmtistaðinn Spotlight við
Hverfisgötu og skoðaði bjórauglýs-
ingu utan á húsinu. Tilgangurinn
var að kanna hvort áfengisauglýs-
ingar utan á húsi staðarins brytu
gegn lögum. DV-mynd S
Frá fundinum í Engjaskóla, þar sem flestir þingmenn Reykvíkinga mættu til að svara spurningum íbúa. DV-mynd Teitur
L WSa
t? m
L 1
Þingmenn Reykjavíkur boðaðir á fund íbúa í Grafarvogi:
Skammið Dóra frænda
-sagði Pétur Blöndal um harða gagnrýni vegna 2 milljarða króna í vegafé
„Það er þýðingarlaust að skamma
okkur. Þetta minnir mig á kjör-
dæmapot. Þið eigið að fá Dóra
frænda hingað og skamma hann fyr-
ir að senda peninga um allt land,“
sagði Pétur Blöndal alþingismaður
á fundi íbúasamtaka Grafarvogs
með þingmönnum Reykjavíkur i
Engjaskóla í gærkvöld. Þessi orð
Péturs féllu vegna gagnrýni sem
kom fram vegna þess að ríkisstjóm-
in ákvað að láta tvo milljarða í nýtt
vegafé á landsbyggðinni, en skilja
eftir Reykjavikur- og Reykjaneskjör-
dæmi þrátt fyrir augljósar sam-
göngutruflanir í þéttbýlinu. Pétur
vísaði til þess að Halldór Blöndal
samgönguráðherra færi með for-
ræði samgöngumálanna. Ásta Ragn-
heiður Pétursdóttir, alþingismaður
i Samfylkingunni, fagnaði mjög orð-
um Péturs og hvatti eindregið til
þess að íbúar allir sem einn legðust
í að skamma samgönguráðherrann.
Hún lýsti því jafnframt yfír að hún
gæti hugsað sér að taka að sér emb-
ætti Halldórs að loknum kosning-
um, enda eini þingmaður Reykvík-
inga í samgöngunefnd Alþingis.
Fundurinn var fremur fámennur
og friðsæll, að undanskilinni gagn-
rýninni á ríkisstjómina fyrir að
svelta þéttbýlið á vegafé. Mikið var
rætt um vegabætur og ný Sunda-
braut var ofarlega í hugum fólks.
Fram kom í máli þingmanna að full-
ur vilji væri til að flýta þeirri fram-
kvæmd svo sem auðið væri. Geir H.
Haarde fjármálaráðherra lýsti því
yfir að samgöngubætur á svæðinu
væm nauðsynlegar, en mikið verk
væri fyrir höndum sem „yrði ekki
hrist fram úr erminni". Finnur Ing-
ólfsson, iðnaðarráðherra og Grafar-
vogsbúi, lagði áherslu á að sam-
göngubótum yrði hraðað svo sem
unnt væri, „enda óþolandi að vera á
leið til vinnu í umferðaröngþveitinu
korter í átta“.
Fram kom í máli Friðriks Han-
sen, formanns íbúasamtakanna, að
vilji væri til að fá svæði í eigu
Landssímans undir nýja íþróttamið-
stöð í hverfinu. Þá væri það ósk íbú-
anna aö fá nýja heilsugæslustöð,
enda sú gamla löngu sprungin. -rt
Stjórnarformaður Baugs um sameininguna:
Stæltari í samkeppninni
„Samkeppnin minnkar ekki við
þetta, það er alveg ljóst. Þeir verða
stæltari," sagði Óskar Magnússon,
stjómarformaður Baugs, um nýaf-
staðna sameiningu Nóatúns, 11-11
búðanna og Kaupfélags Ámesinga.
Óskar sagði að sameiningin hefði
ekki komið Baugsmönnum á óvart.
„Við emm búnir að horfa á þá vinna
saman um nokkurt skeið. Það er ekk-
ert óeðlilegt, eftir þá hagræð-
ingu sem þeir hafa séð okkur
ná, að þeir leiti eftir henni
líka.
Það er ekki við neinum
sérstökum viðbrögðum af
okkar hálfu að búast af þessu
tilefni. Þetta er framhald,
sem kemur okkur ekki á
óvart, á samstarfi sem búiö Óskar Magnússon.
er að vera í gangi. Allir sem
fylgjast með í þessum viðskipt-
um átta sig á því að þetta gat
verið í aðsigi."
Varðandi ábata neytenda af
stórum verslanakeðjum sagði
Óskar að þær yrðu áfram
reknar hver undir sínum for-
merkjum með sína verðstefnu.
Þær hefðu mikið sjálfstæði til
að berjast innbyrðis ef á þyrfti að
halda. „Við teljum að það sé lykillinn
að því að þessi rekstur þrífist. Ef
klippt er á þetta missir neytandinn
allan trúnað. Þá er verið að reka rýt-
inginn í eigið bak. Það er hægt að
gera hlutina miðlægt og spara á því.
En ef það leiðir til þess að sjálfstæðið
skerðist, þá sleppum við því frekar."
-JSS
Stuttar fréttir i>v
Slapp viö að borga
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
sýknað Fjárfestingarbanka atvinnu-
lífsins af 48 milljóna króna skaða- og
miskabótakröfu fyrrverandi starfs-
manns viðskiptastofu FBA. Starfs-
maðurinn hélt því fram að hann
hefði verið þvingaður til starfsloka
vegna meintra mistaka í starfi. Vís-
ir.is sagði frá.
Kristín framkvæmdastjóri
Borgarráð hef-
ur samþykkt að
ráða Kristínu
Einarsdóttur,
fyrrum alþingis-
konu Kvenna-
lista, fram-
kvæmdastjóra
miðborgarinnar.
Alls sóttu 17 um starfið.
Sótt í sóttkvína
Innflutningur á gæludýrum
vegna búferlaflutninga hefur aukist
svo mikið síðustu mánuðina að bið-
tími eftir því að koma hundum að í
einangrunarstöð gæludýra i Hrísey
er á skömmum tíma kominn upp í 9
mánuði og hjá köttunum er biðtím-
inn 6-7 mánuðir. Dagur sagði frá.
Veiðiheimildir
Norömenn fá alls um 11.500 tonna
veiðiheimildir á íslandsmiðum á
þessu ári. íslendingar geta átt von á
svipuðum aflaheimildum i Barents-
hafi. Ríkisútvarpið greindi ffá þessu.
Fundur íslendinga, Norðmanna og
Rússa vegna veiða í Barentshafi
stendur yfir þessa dagana.
Síminn seldur
í ræðu sinni á aðalfundi Lands-
símans hf. ítrekaði eini hluthafinn,
Halldór Blöndal samgönguráðherra,
þá skoðun sína að einkavæða ætti
fyrirtækið sem fyrst, kannski á
næsta ári.
Björn vill meira fé
Verkamanna-
sambandið und-
irbýr kjarasanm-
ingaviðræður og
formaðurinn,
Bjöm Grétar
Sveinsson, er
bjartsýnn á vera-
lega kaupmáttar-
aukningu enda margar aðrar stéttir
þegar búnar að taka forskot á sæluna.
Dagur sagði ffá.
Háskólinn kæröur
Spánverji, fyrrverandi lektor í
spænsku við Háskóla íslands sem var
sagt upp fyrir Qórum árum, hefur
höfðað mál gegn Háskólanum fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur. Hann telur
að sér hafi verið mismunað vegna
þjóðemis þegar honum var vikið úr
starfi og telur ráðningarsamning sinn
enn í fúllu gildi. Hann krefst 26 millj-
óna króna í skaöabætur ásamt drátt-
ai-vöxtum. RÚV sagði frá.
Skólastjórar sjúkir
„Athygli vekur hve margir hafa
leitað læknis vegna sjúkdóma sem
þeir telja að rekja megi til starfsins,"
segir í niðurstöðum könnunarinnar:
Hvemig er líðan skólastjómenda í
Reykjavik? sem gerð var á vegum
Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur.
Mikill kolmunni
Kolmunni mokveiðist suðvestur af
Hatton-Rockall-svæðinu og hafa sum
íslensku skipanna sem þar em verið
að hengilrífa, m.a. Jón Kjartansson
frá Eskifirði. Dagur sagði ffá.
Sameining VSÍ og VMS
Tillaga um sameiningu Vinnu-
veitendasambands íslands og Vinnu-
málasambandsins í einum nýjum
heildarsamtökum atvinnurekenda á
hausti komanda er nú til umijöllun-
ar í stjómum samtakanna. Morgun-
blaðið sagði frá.
Kristín efst
Kristín Hall-
dórsdóttir fyrr-
um alþingskona
Kvennalistans,
skipar efsta sæt-
iðá lista Vinstri-
hreyfingarinnar
- græns fram-
boðs í Reykja-
neskjördæmi. í öðm sæti er Sig-
tryggur Jónsson sálfræðingur og í
því þriðja Sigurbjöm Hjaltason
bóndi. -SÁ