Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1999, Qupperneq 23
I
FÖSTUDAGUR 9. APRÍL 1999
Fréttir
Jón Tryggvi Helgason, sölustjóri ísmars hf., afhendir Magnúsi Guðmunds-
syni, forstjóra Landmælinga, tækin. DV-mynd Daníel
Gervitungl hjá Landmælingum:
Ný tækni sem mælir
upp á millímetra
DV, Akranesi:
Landmælingar islands hafa keypt
Trimple GPS landmælingartæki
ásamt hugbúnaði til úrvinnslu á
mæligögnunum og fengu tækin af-
hent 7. apríl. Um er að ræða tvö
Trimble 4000 tæki og eitt Trimble
4700 tæki. Búnaðurinn var keyptur
af fyrirtækinu ísmar hf. og fékkst á
mjög hagstæðu verði eða rúmlega
sex milljónir króna.
Með þessum tækjum og hugbún-
aði er hægt að fá niðurstöðu mæl-
inganna strax eftir að mælt er og
einnig til úrvinnslu að mælingum
loknum. Tækin nota gervitungl sem
ganga umhverfis jörðu I 20.000 km
hæð til að reikna staðsetningu sína.
Þetta er ein nákvæmasta tækni við
Landmælingar sem völ er á og er
hægt að mæla með nokkurra millí-
metra nákvæmni.
Þessi búnaður er algjör bylting
fyrir mælingadeild Landmælinga og
er hún nú i stakk búin til að leysa
flest landmælingaverkefhi stofnun-
arinnar á næstu árum. Helstu verk-
efni sem tækin verða notuð í er að
mæla inn gömul þríhyminganet í
samvinnu við nokkrar ríkisstofnan-
ir svo hægt verði að reikna þau yfir
í nýtt grunnstöðvamet landsins og
einnig verður unnið að eftirlits-
mælingum á grunnstöðvarnetinu.
Samkvæmt lögum um Landmæl-
ingar og kortagerð, sem sett vom
1997, er Landmælingum íslands ætl-
að að vera leiðandi á sviði landmæl-
inga hér á landi og því er mjög mik-
ilvægt að stofnunin búi yfir bestu
tækjum og þekkingu á því sviði. Að
þessu markmiði er nú unnið af
kappi og eru kaupin á GPS-hugbún-
aðinum mikilvægt skref í þá átt.
-DVÓ
Hvammstangi:
Konur gáfu hjartalínurita
DV, Hvammstanga:
Elín Ltndal, formaður
Kvennabandsins, afhenti
fyrir hönd kvenfélaganna í
Húnaþingi Heilbrigðistofn-
uninni á Hvammstanga ný-
verið gjöf, hjartalínurita
sem Lárus Þór Jónsson
læknir veitti móttöku. Fyrir
átti stofnunin einn slíkan en
hann var oröinn gamall og
slitinn.
Þessi nýi riti er miklu
fullkomnari og prentar allar
Elín Líndal, for-
maður Kvenna-
bandsins, af-
henti gjöfina.
DV-mynd GJ
12 línumar á meðan sá
gamli prentaði eina.
Tækið heitir Schiller og
er keypt frá Austurbakka
hf. sem sér einkum um inn-
flutning á ýmsum lækn-
ingatækjum.
Þess má geta að allflest
tækin í Heilbrigðisstofnun-
inni á Hvammstanga em
gjafir frá félögum á svæð-
inu og einstaklingum. Allt
vönduð tæki. Eftir afhend-
inguna var viðstöddum
boðið í kaffi. -GJÓH
Smábátahöfnin á Stöðvarfirði. DV-mynd Garðar
Stöövarfjörður:
Steinbíturinn gefur sig
DV, Stöðvarfirði:
Bátafiskirí hefur verið ágætt hér
að undanfórnu þegar hefur gefið á
sjó. Hafa línubátar verið að fá allt
upp í Sögur tonn af steinbít í róðri.
Þá hafa dragnótarbátar einnig feng-
ið ágætan afla, aðallega skarkola, en
einnig steinbít.
Enginn er enn þá farinn að leggja
net í Stöðvarfirði en ætla má að ein-
hverjir fari að huga að grásleppu-
netum sínum hvað líður. Þá hafa
stöðflrskir sjómenn verið að huga
að endumýjun báta sinna og er
fyrsti báturinn, Vikingur SU, ný-
lega kominn heim á ný eftir lagfær-
ingu. Það er hraðfiskibátur, um
fimm tonn að stærð.
-GH