Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1999, Page 15
MÁNUDAGUR 26. APRÍL 1999
15
Gjafir á kostnað
annarra
Umræður okkar
stjórnmálamannanna
einkennast æ meira
af því, að sumir setja
skoðanir sínar á upp-
boðsmarkað. Þetta er
gert á þann veg, að
einn segist ætla að
veija einum milljarði
í þágu einhvers mál-
efnis, síðan kemur sá
næsti og býður kjós-
endum tvo miUjarða,
þá nefnir hinn þriðji
þrjá milljarða króna
og svo koll af kolli.
Stundum dettur
manni í hug, að ein-
faldast væri fyrir
stjómendur umræðu-
þátta í sjónvarpi að
nefha málefni einhvers þrýstihóps-
ins og biðja þátttakendur að bjóða i
það með milljörðunum sínum.
Stjómmálaumræður era einfald-
aðar mjög með þessu talnaflóði,
þótt erfltt geti verið að fóta sig í
flauminum. Annars vegar er reynt
að höfða til þrýstihópa í því skyni
að nefna tölur þeim til hæfis, hins
vegar er farið ofan í saumana á
sérgreindum atriðum á þann hátt,
að enginn botnar neitt í neinu.
Dýr fylking
Hér hófst þessi talnaleikur fyrir
kosningarnar núna strax og fylk-
ing vinstrisinna setti fram stefnu-
skrá sína. Öllum var ljóst, að þar
var boðað eitthvað, sem kynni að
kosta ríkissjóð á bilinu 40 til 60
milljarða króna. Með öðram orð-
um var verið að leggja grunn að
opinberri óráðsíu og skattheimtu í
samræmi við hana. Við öllum
blasti, að hinn almenni launamað-
ur yrði rúinn inn að skinninu.
Fylkingin dró í land og boðaði
nýja stefnu, sem hún taldi kosta 34
milljarða króna, sé rétt munað.
Jafnframt var því
slegið fram í blekk-
ingarskyni af Jó-
hönnu Sigurðardótt-
ur, höfuðmálsvara op-
inherrar eyðslu, að
einhvers staðar leynd-
ust 100 milljarðar
króna í ríkiskassan-
um, kailaði hún á
Þjóðhagsstofnun til
vitnis um það.
Glötuð hagsæld
Fæstir yrðu varir
við hagsældina af því,
að ríkið færi að dreifa
þessum fjárhæðum út
og suður. Ástæðan
fyrir því er einfóld.
Þessir peningar vaxa
ekki á trjánum, jafnvel ekki þótt
vinstrifylkingin kæmist til valda.
Þeir eru einfaldlega ekki sóttir
annað en í vasa skattgreiðenda,
einstaklinga og fyrirtækja.
Fylkingin boðar skattahækkan-
ir í fimm liðum. Fyrirtækin eiga
að greiða hærra tryggingargjald,
mengunarskatta og veiðileyfa-
gjald. Einstaklingar eiga að greiða
40% fjármagnstekjuskatt og
hækka á skatta á hærri laun. Fyr-
irtækin hætta að geta greitt hærri
laun, atvinnuleysi vex og bótaþeg-
um fjölgar. Skuldabyrði heimil-
inna vex með hækkun vaxta
vegna fjármagnstekjuskattsins.
Niðurstaðan verður stöðnun og
síðan samdráttur.
Upphoðsmarkaður stjómmál-
anna er nefnilega
þess eðlis, að
þeir sem bjóða í
málefni þrýsti-
hópanna, eru
ekki að gera það
á eigin kostnað
heldur skatt-
greiðenda.
Eftir hörmulega
reynslu af óráðs-
íu einnar vinstri
stjórnar sótti
Sjálfstæðisflokkurinn fram undir
kjörorðinu: Varist vinstri slysin.
Þessi varnaðarorð eiga fúllt erindi
til kjósenda um þessar mundir.
Björn Bjarnason
„Uppboðsmarkaður stjórnmálanna er nefnilega þess eðlis, að þeir sem bjóða í málefni þrýstihópanna, eru ekki
að gera það á eigin kostnað heldur skattgreiðenda."
Kjallarinn
Björn Bjarnason
menntamálaráðherra
„Fylkingin boðar skattahækkanir í
fimm liðum. Fyrirtækin eiga að
greiða hærra tryggingargjald,
mengunarskatta og veiðileyfa-
gjald. Einstaklingar eiga að greiða
40% fjármagnstekjuskatt og
hækka á skatta á hærri laun.“
30 milljónir, nei takk,
1.000, já takk
Sextán þingmenn Framsóknar-
flokksins, sem nú lofar þúsund
milljónum króna í baráttuna gegn
fikniefnum, greiddu atkvæði gegn
því á Alþingi fyrir fjórum mánuð-
um að hækka framlag til Barna-
vemdarstofu um 30 milljónir
króna. Ef tillaga Sighvats Björg-
vinssonar, Margrétar Frímanns-
dóttur, Jóhönnu Sigurðardóttur og
Guðnýjar Guðbjörnsdóttur um
þetta 30 milljóna króna viðbótar-
framlag hefði verið samþykkt hefði
Alþingi a.m.k mætt aukinni fjár-
þörf Bamaverndarstofu sem varð
vegna ákvörðunar Alþingis um að
hækka sjálfræðisaldur i 18 ár.
Nú kemur Framsóknarflokkur-
inn og lætur eins og honum hafi
fundist tillaga Samfylkingarinnar
of hógvær. Þess vegna hafi þing-
menn flokksins sagt nei við 30
milljónum, þess vegna lofi Fram-
sóknarflokkurinn að setja eitt þús-
und milljónir í baráttuna gegn
fikinefnunum. En auðvitað er
þetta fádæma háttarlag framsókn-
armanna undir sömu formerkjum
og allt annað í þeirra kosningabar-
áttu: Fyrirgefningu syndanna.
Kosningastefnuskrá Framsóknar-
flokksins ætti að heita Fyrirgefn-
ing syndanna.
Ráðið en ekkert gert
Framsóknarmennirnir Páll Pét-
ursson og Ingibjörg Pálmadóttir
hafa ráðið ríkj-
um í félagsmála-
ráðuneytinu og
heilbrigðisráðu-
neytinu í fjögur
ár. Árið 1997
þurftu alvarlega
veik börn af
vímuefnaneyslu
að meðaltali að
bíða í 52 daga
eftir að komast í
meðferð á Stuðl-
um. í dag er
þessi biðtími 12
mánuðir. Þegar ríkisstjórn Fram-
sóknar og Sjálfstæðisflokks ákvað
að hækka sjálfræðisaldurinn í 18
ár var ekki gripið til neinna ráð-
stafana til að Barnavemdarstofa
gæti sinnt þeim hópi unglinga sem
hún átti nú að bera ábyrgð á.
í fjárlagafrumvarpi
þessa árs var fyrst
gert ráð fyrir 36,7
milljóna króna fram-
lagi til Barnavemd-
arstofú til að mæta
þörf fýrir „ný með-
ferðarúrræði vegna
hækkunar sjálfræðis-
aldurs." Meirihluti
fiárlaganefiidar lagði
svo til að framlagið
yrði 66,7 milljónir þó
Páll Pétursson félags-
málaráðherra viður-
kenndi að Bama-
vemdarstofa þyrfti
minnst 90 milljónir
króna til að mæta
auknum rekstar-
kostnaði vegna
hækkunar sjálfræðis-
aldurs.
Samfylkingin breytti rétt
Sighvatur, Margrét, Jóhanna og
Guðný fluttu breytingartillögu og
lögðu til að Barnaverndarstofa
fengi 96,7 milljónir króna til um-
ræddra verkefna á þessu ári. Þeg-
ar tillagan kom til afgreiðslu á Al-
þingi minnti Rannveig Guð-
mundsdóttir á að tveimur dögum
eftir umræður um „eiturlyfja-
vandann" hefði ríkisstjómin sam-
þykkt að setja 50 milljónir króna í
refafóður. Sú áminning og mál-
flutningur stjómar-
andstöðunnar al-
mennt dugði ekki til
og framsóknarmenn
tóku allir sem einn
þátt i að fella tillög-
una.
Þeir sem nú ætla að
setja 1.000 milljónir í
fíkniefnamálin en
sögðu að viðhöfðu
nafnakalli nei við 30
milljóna króna viðbót-
arframlagi til Barna-
verndarstofu eru:
Finnur Ingólfsson,
Guðmundur Bjarna-
son, Gunnlaugur M.
Sigmundsson, Guðni
Ágústsson, Hjálmar
Ámason, Ingibjörg
Pálmadóttir, Jón
Kristjánsson, Krist-
inn H. Gunnarsson, Magnús Stef-
ánsson, Páll Pétursson, Siv Frið-
leifsdóttir, Stefán Guðmundsson,
Valgerður Sverrisdóttir, ísólfur
Gylfi Pálmason, Ólafur Örn
Haraldsson og Jónas Hallgrímsson
sem sat á þingi sem varamaður
Halldórs Ásgrímssonar, formanns
Framsóknarflokksins. - Þess skal
getið að allir viðstaddir þingmenn
Sjálfstæðisflokksins sögðu líka nei
við þessari tillögu.
Heimir Már Pétursson
„Sextán þingmenn Framsóknar-
flokksins, sem nú lofar þúsund
milljónum króna í baráttuna gegn
fíkniefnum, greiddu atkvæði gegn
því á Alþingi fyrir fjórum mánuð-
um að hækka framlag til Barna-
verndarstofu um 30 milljónir
króna.“
Kjallarinn
Heimir Már
Pétursson
í 11. sæti Samfylkingar-
innar í Reykjavík
Með og
á móti
Manchester United í ensku
úrvalsdeildinni, bikarkeppn-
inni og Evrópubikarnum
Logi Ólafsson
knattspyrnuþjálf-
ari.
Yfirburðaliö
„Manchester United hefur alla
burði til að finna þrefalt í vor, í
ensku úrvalsdeildinni, bikarkeppn-
inni og Evrópukeppni meistara-
liða. United hefur á að skipa yfir-
burða góðu liði. Það hafa leikmenn
þess sýnt og
sannað í undan-
fórnum leikjum
þar sem sigur-
inn á Juventus í
Torino á Ítalíu
ber hæst. Þar
vann United
upp tveggja
marka forskot
ítalanna, sem
enginn heföi
trúað fyrir fram,
og sigraði, 3-2. Þetta sýnir hve
sterkt þetta lið er. En áframhald-
andi sigurganga byggist auðvitað á
því að lykilmenn haldist heilir. Nú
þegar hefur verið hoggið skarð í
liðið fyrir, þar sem fyrirliðinn Roy
Keane, sem spilað hefur mjög yel í
vetur, verður fjarri góðu ganmi i
úrslitaleik Evrópukeppninnar í
Barcelona. Hann tekur út leikbann
ásamt Paul Scholes. Þetta er ekki
síður alvarlegt fyrir þær sakir að
United er helst veikt fyrfr á miðj-
unni. Sókn og vöm er hins vegar
griðarsterk. Ef menn halda form-
inu á Arsenal ekki að vera nein
hindrun á leið liðsins til Englands-
meistaratitils eða Newcastle eða
Bayern Múnchen á leiðinni tO Eng-
lands- og Evrópubikara. Leikmenn
United þurfa einfaldlega að skila
inn öllum mögulegum stigum. Þeir
gera það og þurfa ekki að hafa
áhyggjur af Arsenal á meðan.“
Arsenal er
hindrun
„í febrúar í fyrra, þegar staða
Arsenal benti ekki til að liðið
hampaði meistaratitli, sagði ég að
sá hlær best sem síðast hlær. Nú,
það vita allir hvemig fór. Gengi
liða er auðvitað fallvalt en ég hygg
að eftir undan-
úrslitaleikinn
gegn Manchest-
er United á dög-
unum séu leik-
menn Arsenal
staðráðnir í að
klára dæmið í
úrvalsdeildinni.
Manchester
United er með
öflugt lið, en lið
Arsenal er einfaldlega öflugra.
Arsenal er komið á gott skrið eins
og úrslit síðustu leikja sýna og það
mun ekkert lið standast þeim snún-
ing. Leikmenn United eru undir
miklu álagi og eiga erfitt pógramm
fram undan, en það verða engir
aðrir leikir sem trufla þá. Og þó
þeir hafi f raun tvö lið til að klára
þrjár keppnir og séu með vel
spilandi liö þá munu þeir tapa stigi
gegn Liverpool og það mun einfald-
iega ráðast af markahlutfalli eftir
síðustu umferðina, 15. maí, hver
verður Englandsmeistari. Arsenal
mætir þá Astton Villa og mun
vinna þann leik, 3-0. Þar mun
kóngurinn Kanu leika stórt hlut-
verk. Þegar öhu er á botninn hvolft
er Arsenal aðalhindranin í vegi
United á leið til þriggja titla í vor.
Það er ekkert flóknara." -hlh
Kjartan Bjömsson
hárskeri.
Kjallarahöfundar
Athygli kjaOarahöfunda er vak-
in á því að ekki er tekið við grein-
um í blaðið nema þær berist á
stafrænu formi, þ.e. á tölvudiski
eða á Netinu. DV áskOur sér rétt
tO að birta aðsent efni á stafrænu
formi og í gagnabönkum.
Netfang ritstjómar er:
dvritst(S)fr.is