Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1999, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 28. APRÍL 1999
5
Fréttir
Davlð Oddsson:
Kemur okkur í
opna skjöldu
„Þetta mál kemur okkur
algerlega í opna skjöldu.
Við vorum að auka framlög
til lögreglunnar við fjár-
lagagerðina í október um
100 milljónir króna. Þá var
okkur í ríkisstjórninni sagt
að þetta yrði í fyrsta sinn
sem lögreglan yrði á slétt-
um sjó og með engan hala.
Nú á vordögum hefur hins
vegar komið fram að þrátt
fyrir þetta stóraukna framlag er
stór halli frá síðasta ári,“ sagði Dav-
íð Oddsson forsætisráðherra á
beinni línu DV í gærkvöld.
Davíð var þá að svara fyrirspum
um aðgerðir vegna þeirrar stöðu
sem komin er upp innan lögregl-
unnar í Reykjavík. Þar ríkir nú yf-
irvinnubann vegna mis-
munar á fjárveitingu til
embættisins og kostnaðar
hins vegar sem er eitt
hundrað milljón krónum
meiri.
„Ég get ekki kennt yfir-
vinnunni um hvemig fór.
Ég held að það hafi ekki
verið nægilega glöggar stað-
reyndir bomar fyrir ríkis-
tjómina í haust. Staðan nú
kemur ekki einungis sem köld gusa
framan í lögreglumenn heldur
einnig framan í okkur í ríkisstjórn-
inni. Það er afar erfitt að búa við
það, meðan ekki era fleiri við lög-
gæslustörf i dag, að yfirvinna
manna sé skorin niður með þessum
hætti,“ sagði Davíð.“ -hlh
Davíð Oddsson.
Umhverfisábyrgð
atvinnulífsins
Vátryggingafélag íslands stóð í gær
fyrir ráðstefhu um ábyrgð á umhverf-
inu í samráði við Swiss Reinsurance
Company, Ztirich. Ráðstefnan bar
heitið: Hvemig verður þitt fyrirtæki
ábyrgt fyrir umhverfmu?
í fréttatilkynningu segir: „Kröfur
um vemdun umhverfisins mrrnu stór-
aukast á komandi árum. Þær kröfur
munu hafa veruleg áhrif á rekstrar-
umhverfi fyrirtækja. Það era því
hagsmunir íslenskra fyrirtækja að
taka fullan þátt í mótun umhverfis-
stefnu til framtíðar. Sú ábyrgð sem
lögð verður á atvinnulífið þarf að vera
vel skilgreind svo áhættan sé öllum
ljós. Fyrirtæki, stór og smá, þurfa að
geta varast þessa áhættu með ýmsum
forvamaraðgerðum en þeim er ekki
síður nauðsynlegt að geta keypt vá-
tryggingar gegn þeirri ábyrgð sem
þau bera á umhverfmu. Lagaumhverf-
inu verður því að haga þannig að
þessi ábyrgð verði vátryggingarhæf,
ella er hætt við að hún geti orðið at-
vinnulifinu ofviða."
Á ráðstefhunni töluðu m.a. Guð-
mundur Bjamason umhverfisráð-
herra og dr. Jiirg Spiihler, þekktur
svissneskur sérfræðingur í umhverf-
ismálum og umhverfisábyrgð.
-hvs
Frá fundi lögreglumannanna í gærmorgun. DV-mynd S.
Lögreglulið Reykjavíkur í uppnámi vegna sparnaðar í kerfinu:
Loggulaun niöur
um 200 þúsund
„Við erum að mótmæla tekju-
skerðingu upp á 200 þúsund krónur
á ári, sem er bein afleiðing yfir-
vinnubanns hjá Lögreglustjóraemb-
ættinu,“ sagði Óskar Bjartmarz, for-
maður Lögreglufélags Reykjavíkur,
eftir fund lögreglumanna í húsa-
kynnum þeirra í Brautarholti í gær.
Um 100 reykvískir lögreglumenn
mættu á fundinn þegar mest var, en
hann stóð frá því klukkan 9 um
morguninn og fram yfir hádegi. „Á
næstu dögum munrnn við ræða mál-
in frekar og í framhaldi af því má
búast við frekari fundahöldum,"
sagði Óskar.
Óskar neitaði því að öryggi borg-
aranna hefði verið stefnt í hættu
fyrir hádegi í gær með þessum
hundrað manna fundi lögreglu-
manna sem gátu ekki sinnt eftirlits-
störfum á götum höfuðborgarinnar
á meðan:
„Við erum alltaf reiðubúnir þegar
útkall kemur, hvort sem við erum á
fundi eða ekki. Óánægjan með kjör-
in er bara svo megn að eitthvað verð-
ur að gera,“ sagði Óskar Bjartmarz.
Yfirvinnubann hjá Lögreglu-
stjóraembættinu í Reykjavík er til
komið vegna mismunar á fjárveit-
ingu til embættisins og kostnaðar
hins vegar. Embættið fékk fjárveit-
ingu upp á tæpan hálfan annan
milljarð í fyrra, en kostnaður var
hundrað milljón krónum meiri. Það
bil er nú verið að brúa með yfir-
vinnubanni, að sögn Sólmundar
Más Jónssonar, fjármálastjóra Lög-
reglustjóraembættisins. -EIR
llftllféi I
Kauptu þér 1.5 kq af A\ax
þvottaef ni og Jþú fœro
önnur 1.5 ka irKauobmtil
i qcH VtNN!
Kauptu þér túpu af Colgate
JÚNÍOR Súperstar og þú
fœrð aðra túpu í kaupbœti!
í Opið í dag frá 12.00ífil l8.30
0Mm