Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1999, Blaðsíða 12
12
MÁNUDAGUR 17. MAÍ 1999
Spurmngin
Hver er uppáhalds sjón-
varpsþátturinn þinn?
Jón Árni Jónsson nemi: Andmann
í Ríkissjónvarpinu.
Rannveig Bjarnadóttir sjúkra-
þjálfi: Vinir á Stöö 2.
-------------------1
Kristín Bjarkadóttir nemi: Vinir,
þaö er þáttur sem ber af.
Þorvarður Ámason sérfræöing-
ur: Danska þáttarööin Leigubíla-
stöðin.
Leifur Bjömsson nemi: South
Park.
Hildigunnur Þórðardóttir banka-
ritari: Leigubilastöðin er besti þátt-
urinn.
Lesendur
I startholunum
fýrir olíuleit
Grænland
ísland
Færeyjar
Skotland
Senn verður þetta hafsvæði fullkannað með tilliti til olíuríkra setlaga og þá mun
olía streyma úr iðrum jarðar við Færeyjar og ísland, segir m.a. í bréfinu.
Björn Jónsson skrifar:
Það hefur lengi vakaö fyrir
frændum okkar Færeyingum að
láta fullkanna hvort þeir eigi auð-
lindir á hafsbotni líkt og nágrann-
ar þeirra í Skotlandi, olíuna. Full-
kannað er að setlög eru undir hafs-
botni á svæðinu milli Færeyja og
Skotlands í beinu framhaldi af set-
lögum þeim sem geyma olíu við
Bretlandsstrendur. Það sama er
raunar upp á teningnum hér við ís-
land, út af Norðausturlandi og lík-
legast á öllu svæðinu frá Skjálf-
andaflóa austur að Þistilfirði og
Bakkaflóa. - Senn verður þetta
svæði fullkannað með tilliti til ol-
íuríkra setlaga, og þá mun olía
streyma úr iðrum jarðar við Fær-
eyjar og ísland.
Nú hefur loks tekist samkomulag
milli Bretlands, Danmerkur og Fær-
eyja um svokallaða miðlínu milli
Færeyja og Skotlands, þar sem áður
var eins konar „grátt“ hafsvæði og
hart deilt um yfirráð á með tilliti til
olíuvinnslu. Og báðar þjóðimar
ætla sér þama stóran hlut. Olían er
enn og verður næstu áratugina
a.m.k. sá orkugjafi sem samgöngu-
tæki þarfnast, því ekkert er enn
komið í staðinn, þrátt fyrir miklar
væntingar.
Olíuleitarútboð em nú í undir-
búningi vegna olíuleitar við Færeyj-
ar, og ekkert annað fyrirsjáanlegt
en tilraunaboranir geti hafist innan
tveggja ára á svæðinu.
Og hvar stendur Island mitt í
þessum framkvæmdum? Ætla is-
lensk stjómvöld ekki að hafast að?
Ætla þau að sitja aögerðalaus þótt
einsýnt sé að útboð í samfloti við
Færeyinga til olíuleitar væri mjög
hagkvæmt fyrir okkur ef við viljum
á annað borð vita vissu okkar um
hvemig málin standa um olíumagn
við ísland. Telja verður ólíklegt að
nokkur stjómvöld vilji ekki a.m.k.
fylgjast grannt með hvemig næstu
nágrannaþjóð vegnar þegar svo
mikið er í húfi sem hugsanlegar ol-
iulindir svo að segja við bæjardym-
ar. En það er lítill fengur fyrir okk-
ur íslendinga að vita að nágranna-
þjóðin er farin að vinna olíu en hafa
einungis vitneskju um að hér em
setlög til staðar en vita ekki hvort
úr þeim er vinnanleg olía.
Þær greinar sem ég hef lesið, að-
cillega í DV, eftir sérfræðinga í jarð-
sögu, jarðfræði og orkuvinnslu,
einnig nokkra þingmenn sem bám
fram tillögu á Álþingi þess efnis að
ríkisstjórnin léti fullkanna þessi
mál, benda til þess að senn komist
hreyfing á málin hér, rétt eins og
hjá Færeyingum. - En verður ekki
að láta á þetta reyna, hvað sem líð-
ur mótmælum og landlægum úr-
töluröddum?
Stórsigur eða tap?
Hildur skrifar:
Ég sakna stórlega útskýringa fjöl-
miðlafólks á því hvenær i hinum al-
kunna samanburði í prósentum (%)
maður vinnur stórsigur eða tapar. -
Að kosningunum loknun er hamr-
að á stórsigri vinstri-grænna, með
rúm 9% atkvæðamagns, og framboð
Sverris Hermannssonar með sín
fáu prósent fær jákvæða umijöllun
að þessu leyti. En þegar Jóhanna
Sigurðardóttir fór af stað á sínum
tíma með Þjóðvaka og kom út með
rúmra 8% fylgi (að mig minnir) þá
var hún talin, af fjölmiðlum, algjör
„fallkandídat" með vonlausa stöðu.
Á því var hamrað i fjölmiðlum að
hún hefði tapað stórt.
Nú eiga blaðamenn varla nógu
stór orð til að lýsa glæsilegum stór-
sigri Steingríms J. Sigfússonar.
Hann sé eiginlega sigurvegari kosn-
inganna. Og þetta sýnist manni
hver éta upp eftir öðrum.
Er það hugsanlegt, fjölmiðlar
góðir og blaðamenn, að þið túlkið
þessar niðurstöður með þessum
hætti af því að Steingrímur J. er
karlmaður en Jóhanna Sigurðar-
dóttir er „bara kona“? - Fyrir mér
lítur það þannig út. Og allavega allt
þar til annað heyrist úr ykkar her-
búðum.
Látum það ekki henda okkur
Spennum ætíð börnin okkar. - Það eru foreldranir sem bera ábyrgð á börn-
um sínum.
Sigrún A. Þorsteinsdóttir, fulltr.
hjá Slysavarnafélagi íslands,
skrifar:
Fjölskyldan vaknaði þennan
fimmtudagsmorgun um sjöleytið,
eins og venjulega
er vinnudagur er
fram undan. Veðr-
ið var óvenju fal-
legt og sólin baðaði
sólargeislum inn
um gluggana enda
komið sumar.
Yngsti fjölskyldu-
meðlimin-inn var harðákveðinn í því
að nú ætti að fara i stuttbuxur á leik-
skólann og varð það raunin, og eftir
morgunmatinn dreif fjölskyidan sig
af stað út í góða veðriö.
Eins og svo oft áður þá voru þau
orðin of sein, og til að spara tíma
var sleppt að spenna beltin enda
líka svo stutt í leikskólann og ekki
[U^gí^f^1[P)Æ\ þjónusta
Lesendur geta sent mynd af
sér með bréfum sínum sem
birt verða á lesendasíðu
um þunga umferðargötu að fara.
Þegar bíllinn var settur í gang var
verið að spila lagið Nú er sumar, og
sá litli söng hástöfum með þar sem
hann stóð á milli sætanna. Foreldr-
unum var litið á hann um leið og
þau hrósuðu honum fyrir hvað
hann syngi nú vel.
í sömu andrá var bíl sveigt í veg
fyrir þau, faðirinn „negldi niður“
en það vildi ekki betur til en svo að
þau lentu í árekstri við bílinn. Þó
svo að þau hefðu verið í mesta lagi
á 50 km hraða flaug barnið fram í
rúðuna og út á götuna. Sú sjón sem
blasti við foreldrunum var ekki fög-
ur þar sem bamið þeirra lá allt
blóði drifið. - Ein fyrsta hugsun
þeirra var: Ef við hefðum spennt
barnið þá ...
Látum þessa hugsun ekki þurfa að
koma upp hjá okkur. Spennum ætíð
börnin okkar. Það eru foreldrarnir
sem bera ábyrgð á börnum sínum,
það eru þeir sem eiga að hafa vits-
munaþroskann til að vita hvað er
rétt og rangt í þessum efnum og
hverju réttur öryggisbúnaður barna
í bílum getur bjargað. Látum það
ekki koma fyrir okkur að þurfa að
sitja uppi með vanlíðan yfir því að
við spenntum ekki barnið okkar.
DV
Hnútukastið
í Davíð
Ingibjörg Larsen skrifar:
Nú er kosningabaráttan afstaðin,
en það sem einkenndi kosningabar-
áttu Samfylkingarinnar var
hnútukast í garð Davíðs Oddssonar
forsætisráðherra. - Sighvatur Björg-
vinsson og Margrét Frímannsdóttir
viðhöfðu sömu setningarnar sitt í
hvorum viðtalsþættinum. Á kosn-
inganóttina bætti svo Össur Skarp-
héðinsson um betur í viðtali í sjón-
varpi og sagði að Davíö hefði ekki
annað til málanna að leggja en aula-
fyndni.
Þeir voru
sigurvegarar
Sigurður Jóhannsson skrifar:
Ég hef um langt árabil verið mik-
ill DV-aðdáandi. Blaðið hefúr löng-
um gagnrýnt margt sem miður hef-
ur fariö og bent á leiðir til úrbóta.
Blaðið hefur verið óháð og frjáls-
lynt, ekki síst í ritstjórnartíð Ellerts
Schram. Enn tel ég mikinn feng að
DV, en sá er vinur er til vamms seg-
ir. - Fyrir nýafstaönar kosningar sá
ég ekki betur en DV tæki afstöðu
gegn Samfylkingunni og Frjálslynda
flokkmun (gem er minn flokkur) en
með Sjálfstæðisflokknum, og þó
einkum vinstri-grænum. Og sífellt
var klifað á væntanlegum sigri
Sjálfstæðisflokksins (og Davíðs). En
hver varð svo endanlegur ávinning-
ur D-listans? Einn þingmaður bætt-
ist við hjá sjálfstæðismönnum, en
frjálslyndir fengu tvö þingsæti í
kosningunum sem kunnugt er. Ég
tel útkomu hins nýja stjórnmálafls,
Samfylkingarinnar, furðu góða, 17
þingmenn, þótt hart væri að því
fólki sótt af stórveldunum: Davíð,
DV og Morgunblaðinu. Þegar upp
var staðið voru sigm-vegararnir þeir
Guðjón Amar Kristjánsson og
Sverrir Hermannsson.
Hræsnisfullir
nýliðar á þingi
Oddur hringdi:
í blaðinu Degi fyrr í sl. viku vora
fjórir nýir þingmenn spuröir hvort
þeir væra sáttir við úrskurð Kjara-
dóms mn launahækkanir tii æðstu
embættis- og alþingismanna. Þessu
svöruðu þau Þórunn Sveinbjamar-
dóttir, Ásta Möller, Sverrir Her-
mannsson og Kolbrún Halldórsdótt-
ir þannig að bæði mátti skilja á
þeim að þau væru allt að því
hneyksluð (að undanskilinni Ástu
Möller) og einnig þakklát fyrir
hækkunina. Sverrir sagðist lamað-
ur af undrun, Kolbrún varð ákaflega
hissa á aðgeröinni og tímasetning-
rmni og Þórunn sagði að úrskurður
Kjaradóms hefði komið sér í opna
skjöldu. Enginn þessara nýju þing-
manna mótmælti þó launahækkun-
inni. Ásta taldi hækkunina af hinu
góða, enda sjálf baráttumanneskja
fyrir bættum launum. Mér fannst
svör þeirra allra hins vegar vera
dæmalaust hræsnisfull.
Farðu út í sólina
Oddný hringdi:
Mér finnst stjóraendur þáttarins
Þjóðarsálin vera orðnir nokkuð víg-
reifir þegar þeir brúka sig gagnvart
þeim sem inn hringja. Oft og tíðum
eru þeir allt að dónalegir (síst þó
maður að nafni Leifur, hann er yfir-
leitt glaður í sinni og tekur flestum
vel). Sl. mánudag hringdi t.d. inn
maður sem gagnrýndi nýja útsend-
ingartíma RÚV á fréttum í útvarpi
og sjónvarpi. Stjórnandi virðist sí-
fellt taka málstað síns vinnuveit-
anda, hvað sem um er rætt. Einnig
þarna og þar kom að hann sagði við
viðmælanda sinn; „Farðu nú út í
sólina ..." Var víst meint þannig, að
innhringjandi skyldi kæla sig niöur
eða eitthvað í þá átt. Það er vand-
meðfarið að ræða við fólk í beinni
útsendingu. RÚV ætti að skikka sitt
fólk til að horfa á þýska þáttinn
„Domian" á þýsku sjónvarpsstöð-
inni WDR. Þar er kunnáttumaður
að verki sem tekur við símtölum í
beinni útsendingu. En Þjóðarsálin,
sá annars ágæti þáttur, hverfur víst
brátt, líkt og annað yfir sumartím-
ann, að mér skilst.