Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1999, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1999, Blaðsíða 23
MÁNUDAGUR 17. MAÍ 1999 Fréttir Akureyrarbær: Hreyknir veiöimenn Þeir félagar Hörður Bjarkarson og Kári Björn Ólason byrjuöu veiði- sumarið af krafti á kjördag. Kári Björn setti í átta punda urriða í Þingvallavatni og tókst að koma honum á land eftir snarpa og erfiða viðureign. Þetta er að líkindum stærsti fiskurinn úr Þingvallavatni það sem af er sumri. Kór aldraðra til Egilsstaða Kór Félagsstarfs aldraðra í Reykjavík (KFAR) er í söngferðalagi á Egilsstöðum um helgina. Mun kórinn syngja fyrir íbúa á Héraði og nágrenni ásamt kórum aldraðra á Héraði. Lokatónleikarnir verða á söngskemmtun á sunnudaginn í Eg- ilsstaðakirkju kl. 15. Kór aldraðra er skipaður fjörutíu og átta mönn- um, konum og körlum, og er stjóm- andi kórsins Sigurbjörg Petra Hólm- grímsdóttir. Undirleikari er Am- hildur Valgarðsdóttir. Kór eldri borgara á Héraði mun syngja á móti Reykjavíkurkórnum. Stjórnandi hans er Kristján Gissurarson. Arsskýrsla bæjarins komin út DV, Akureyri: Arsskýrsla Akureyrarbæjar fyrir sl. ár er komin út. Hefðbundið efni er að finna í skýrslunni, auk margra litmynda úr fjölskrúöugu plöntulífi íslands. Skýrslan hefur að geyma yfirlit um starfsemi stofnana og deilda Ak- ureyrarbæjar á árinu 1998, auk reikninga sveitarfélagsins. Þá gefur að líta þær breytingar sem gerðar hafa verið á stjórnkerfi bæjarins og nýjar nafngiftir á hinum ýmsu svið- um. Við gerð þriggja síðustu árs- skýrslna hefur verið farin sú leið að velja myndefninu ákveðið þema. Að þessu sinni em það myndir af hin- um ýmsu plöntutegundum úr flóru íslands, sem teknar voru í Lysti- garðinum á Akureyri. Að venju var skýrslan unnin af fyrirtækjum á Akureyri, Ás- prent/PÓB annaðist umbrot, hönn- un og prentun en Fremri kynning- arþjónusta hafði mnsjón með texta- gerð og sá um prófarkalestur. Um- sjón með gerð skýrslunnar af hálfu Ákureyrarbæjar hafði Hermann Sigtryggsson. Skýrslan var prentuð í 6 þúsund eintökum og dreift á öll heimili bæjarins. -gk Kirkjubæjarklaustur: Sorpbrennsla við skólann DV, Suðurlandi: Á Kirkjubæjarklaustri hefur ný- lega verið settur upp sorpbrennslu- ofn við grunnskólann. Hann kemur til með að leysa af hólmi olíubrenn- ara sem hingað til hefur verið keyrður til að hita upp húsið og sundlaug sem þar er. Nú er verið að prufukeyra ofninn og þykir hann lofa nokkuð góðu sem af er. í hann er safnað msli af Klaustri og næsta nágrenni. Enn hefur ekki verið farið út í að safna rusli úr sveitunum í kring í brennsluofninn en að því er stefnt í framtíðinni. -NH Hilmar Gunnarsson brennslustjóri við ofninn. DV-mynd Njörður 1999 Arsfundur Ársfundur Sameinaða lífeyrissjóðsins 1999 verður haldinn mánudaginn 17. maí 1999 kl. 16.00 að Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38. Dagskrá Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins. 2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins. 3. Önnur mál löglega upp borin. Aðildarfélögum sjóðsins hefur verið send fundarboð og eru þau beðin að tilkynna skrifstofu sjóðsins fyrir 10. mai n.k. hverjir verða fulltrúar þeirra á fundinum. AlLir sjóðfélagar eiga rétt til setu á fundinum með tillögu og málfrelsi. TilLögur tiL breytinga á samþykktum Liggja frammi á skrifstofu sjóðsins d og geta þeir sjóðfélagar sem áhuga hafa á að kynna sér þær fyrir fundinn, 1 fengið þær á skrifstofu sjóðsins eða sendar í pósti. Einnig er hægt að I nálgast tiLLögurnar á veraldarvefnum. Slóð sjóðsins er www.lifeyrir.is * Reykjavík 21. apriL 1999 Stjórn Sameinaða Lífeyrissjóðsins. Suðurlandsbraut 30 • 108 Reykjavík • Sími: 510 5000 Fax: 510 5010 • Grænt númer: 800 6865 Heimasíða: lifeyrir.is • Netfang: mottaka@lifeyrir.is jdmeinaði lífeyrissjóðurinn BOSCH Hanclverkfæri fagmannsins! Þjónustumiðstöð í hjanta borgarinnar B R Æ Ð U R N I lógmúla 9 • Sími: 533 2800 • Fax: 533 2820 BOSCH verslunin aðkeyrsla frá Háaleitisbraut Söluaðilar: Vélaverkstæöiö Víkingur, Egilsstöðum.Vélar og þjónusta, Akureyri. Vélsmiöja Hornafjarðar, Hornafirði. Hegri, Sauöárkróki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.