Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1999, Blaðsíða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 1999
Spurningin
Hvað ætlar þú að gera
í sumarfríinu?
Andri Gunnarsson nemi: Vinna
og drekka.
Elvar Öm Unnþórsson nemi: Ég
ætla mér að keyra víða í sumar.
Sirrý, afgreiðslumanneskja:
Vinna. Ég tek mér ekkert sumarfrí.
Krisján Bjamason tölvuteiknari:
Ég ætla að vinna í allt sumar. Fæ
ekkert frí.
Anne kennari: Vinna í Hró-
arskeldu.
Anna Jóna Halldórsdóttir hús-
móðir: Ég verð heima allt sumarið.
Lesendur
Tannfyllingar í
falskar tennur
- og hagsmunabarátta lækna
„Tilkoma gagnagrunns á heilbrigðissviði mun geta gefið heilbrigðisyfirvöld-
um nauðsynlega yfirsýn til ákvarðanatöku, þar sem stuðst er við raunveru-
legar tölulegar upplýsingar um afköst og árangur í þjónustu við heilsufar
landsmanna," segir m.a. í bréfinu.
Guðrún María Óskarsdóttir
skrifar:
Af almannafé til ríkisrekstursins
telst heilbrigðiskerfið vera útgjalda-
frekasti málaflokkurinn. íslending-
ar hafa eytt 700 milljónum króna i
geðdeyfðarlyfið Prozac, án sýnilegs
árangurs enn sem komið er, a.m.k.
að því er varðar innlagnir á því
sviði. Þar kann að vera um að
kenna handavinnu Tryggingastofn-
unar við endurskoðun lyfseðla, en
stofnunin hefur t.d. viðurkennt (eða
forstjóri henanr) að hafa óvart end-
urgreitt kostnað af tannfyllingum
þar sem viðkomandi hafði þó falsk-
ar tennur. Nokkuð sérkennilegt og
segir meira en mörg orð um hið
óskilvirka kerfi.
Dæmið endurspeglar klaufaskap
kerfisins til eftirlits með eigin verk-
um á kostnað skattborgaranna.
Hagsmunabarátta lækna og fleiri
stétta innan hins íslenska ríkiskerf-
is er hins vegar með ólíkindum, og
í raun dæmi um hve óheilbrigð þró-
un getur átt sér stað í gagnrýnis-
lausu ríkiskerfi, þar sem hægri
höndin á að standa skil á þjónust-
unni og vinstri höndin að hafa eftir-
lit með gæðum hennar.
Eðlilega er útkoman í samræmi
við skipulagið og það atriði hafa
menn einmitt verið að vakna til vit-
undar um undanfarin ár. Tilkoma
gagnagrunns á heilbrigðissviði mun
geta gefið heilbrigðisyflrvöldum
nauðsynlega yfirsýn til ákvarðana-
töku, þar sem stuöst er við raun-
verulegar tölulegar upplýsingar um
afköst og árangur í þjónustu við
heilsufar landsmanna.
Það er ekki sérkennilegt að
Læknafélag íslands skyldi mótmæla
því ákvæði í lögum um réttindi
sjúklinga að sjúkraskýrslur um þá
sjálfa væru þeirra eigin eign, en
ekki lækna og stofnana, en lögin
voru samþykkt 17. maí 1997 um
miðja nótt, síðasta dag þingsins þá.
Til heilla fyrir þá er lög þessi
samþykktu var niðurstaðan sú að
„lækni og öðrum þeim er færa
sjúkraskrá sé skylt að sýna hana
sjúklingi eða umboðsmanni hans, í
heild eða að hluta, og afhenda þeim
afrit skrárinnar sé þess óskað.“ -
Þessu ákvæði mótmælti Læknafé-
lagið og mjög svo forvitnilegt væri
að vita hvort hinir sömu menn
væru enn sömu skoðunar, í ljósi
umræðu um tilkomu gagnagrunns á
heilbrigðissviði. - íslenskir sjúk-
lingar eru nefnilega jafnframt skatt-
greiðendur, sem hljóta að gera
kröfu til þess að forgangsröðun fjár-
muna lúti grundvallarlögmálum
mannlegrar skynsemi, að meðtekn-
um faglegum forsendum fagmanna,
sem hljóta a.m.k. að vera þær að all-
ir landsmenn fái notið grunnþjón-
ustu í heilbrigðismálum.
Dræsur á „dansstöðunum“
Guðrún Gunnarsdóttir skrifar:
Það er náttúrlega orðið yfirþyrm-
andi hvemig tekið er á máli eitur-
efnainnflytjenda, smyglara og ann-
arra skemmdarvarga þjóðfélagsins
sem ganga hér svo að segja óáreitt-
ir. Ég er auðvitað að tala um inn-
flutning á hvers konar dópi og eit-
urlyfjum sem virðast vera seld
frjálsri sölu nánast hvar sem er.
Svokallaðir „dansstaðir", þar sem
stelpur, sem ég kalla nú einfaldlega
„dræsur" (og það útjaskaðar að mér
sýnist) eru á boðstólum fyrir karl-
peninginn að horfa á gegn gjaldi,
hafa verið i sviðsljósinu hvað varð-
ar meinta sölu á dópi. Hefur það
gengið svo langt að sjálft lögreglu-
embættið í Reykjavík hefur verið
tengt einum þessara staða. Erum
við íslendingar búnir að missa tök-
in á þessu máli?
Nú síðast í dag (fostudag, 14.5.)
segir frá þvi i útvarpsfréttum að
hollensk kona, sem tekin var með
eiturlyf við komu til landsins, sé
ein af þessum „finu dömum“ úr
súludansinum á nektarbúllunum í
Reykjavík eða á Akureyri. Heldur
löggæslan að þessi stelpa hafi verið
sér ómeðvitandi um að hér var
markaður fyrir dóp? Eða fyrir
hvern var hún „burðardýr"? Ég
skora á stjórnvöld að hefja nú
harkalega gagnsókn á nektarbúllur
og dópsala hér á landi.
Sama tíma hér og í
nágrannalöndum
Ársæll skrifar:
Við þóttum víst með ein-
dæmum einkennilegir, íslend-
ingar, hér á árum áður, þegar
við vorum ýmist að flýta
klukkunni eða seinka eftir því
hvort hér var sumar eða vetur.
Við hættum þessu fyrir
nokkrum árum en þá tóku aðr-
ar Vestur-Evrópuþjóðir þenn-
an sið upp hjá sér og halda hon-
um enn. Líklega erum við ís-
lendingar eina þjóðin í vestur-
hluta Evrópu sem ekki flýtum
klukkunni og færum hana með því
á sumartíma.
ÍUÍ^flfiMíiM þjónusta
allan sólarhringinn
- eða hringið i sima
VL ííéSO 5000
kl. 14 og 16
Þetta er orðinn agnúi fyrir okkur
í dag vegna viðskipta við þessi lönd.
Einnig er þetta hvimleitt fyrir okk-
ur sem ferðumst til Evrópuland-
anna að þurfa sífellt að breyta
klukkunni um leið og komið er til
viðkomandi lands og breyta aftrn-
við heimkomu. Þetta er líka villandi
fyrir fólk hér sem notfærir sér sjón-
varpssendingar frá Evrópu með
móttöku frá gervihnöttum, því mað-
ur gleymir gjarnan að hér munar
einni klukkustund og dagskráin
riðlast hjá okkur við það, sé maður
ekki þvi árvökulli með timann. Hér
á landi skiptir ekki miklu máli þótt
við breytum klukkunni á sumrin að
því er varðar birtu, þvi hér er bjart
meira og minna cillan sólarhring-
inn. Sama gildir á veturna því
skammdegið er hvort eð er það mik-
ið að litlu munar hvort birtir kl. 9,
10 eða jafnvel 11 á morgnana. Vetur-
inn er eitt skammdegi hvort eð er.
Það munar okkur hins vegar
miklu að geta notið samræmds tíma
við aðrar nágrannaþjóðir og þurfa
ekki að binda sig við breytingar hjá
öðrum. Því ættum við að gera það
sama og þær og breyta okkar
klukku. Ég bið um sama tíma hér
og í nágrannalöndunum, takk.
I>V
Engar seinni
kvöldfréttir
Adolf hringdi:
Mér finnst þetta brölt sjónvarps-
stöðvanna beggja um áhorf lands-
manna á fréttatímana vera hjákátlegt.
Allir eru dauðþreyttir á þessum fyrri
fréttatímum svona ofan í hvor öðrum
og væri annarri hvorri stöðinni nær
að koma með einn alvöru fréttatíma
kl. 22 eða kl. 21 og sleppa þá þessum
síðari fréttatímum sem eru hvort eð
er ekki neitt neitt. Sl. miðvikudags-
kvöld voru t.d. engar seinni fréttir á
Stöð 2 og var þó enginn hátíðisdagur
þann daginn. Seinni fréttir eru aðeins
4 kvöld vikunnar og það er klén þjón-
usta. Sleppið því svonefndum síðari
fréttum og komið með einn góðan
fréttatíma kl. 22. Sú stöð hefur mik-
inn vinning með því móti.
Frestun stjórnar-
myndunar
- sparnaður fyrir þjóðarbúið
Reynir skrifar:
Því lengur sem dregst aö mynda
ríkisstjóm því meiri sparnaður fyrir
þjóðfélagið. Margar stofnanir og
ráðuneyti draga að afgreiða mál og
gefa út reglugerðir þar til ný ríkis-
stjóm hefur verið mynduð og þar
með hægir á framkvæmdum á ýms-
um sviðum, innflutningur dregst
saman og nýjar fjárfrekar ákvarðanir
dragast á langinn. Útflutningur held-
ur þó sínu striki. Það er því einungis
sparnaður að því að stjómarmyndun
dragist á langinn. Nógur verður
handagangurinn í öskjunni þegar
losnar um stífluna. Góð er þvi hver
vikan sem liður í kyrrstöðunni.
Ný flugbraut ógn-
ar örygginu
Haraldur hringdi:
Ekkert vit er í tillögu Flugráðs um
nýja flugbraut fyrir æfingaflug (lend-
ingar og flugtök) fjarri aðalstjórn
flugsins á Reykjavíkurflugvelli. Jafn-
vel þótt ekki sé nema nokkra kíló-
metra frá vellinum. Það er einmitt
nauðsyn fyrir æfinga- og kennsluflug
að vera sem næst öryggistækjum,
þ.m.t. slökkviliði o.fl. Ný flugbraut
yrði því bæði dýr og ógnaði öryggi
við kennsluflug. Aðeins ein lausn er
fyrir hendi í þessu flugvallarmáli.
Allt flug tíl Keflavíkur, innanlands-
flug sem annað. Þar er öryggið og þar
er nægt svigrúm, því Keflavíkurflug-
völlur er mjög vannýttur.
Rausnarlegur
þingmaður
Rúna hringdi:
Mér finnst þingmaðurinn Pétur
Blöndal sýna öðram þingmönnum og
embættismönnum ríkisins sem búa við
hið dagpeningahvetjandi kerfi riksins
gott fordæmi með því að gefa stóran
hluta dagpeninga þeirra sem honum
eru svo rúmt skammtaðir til Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar. Annars er það
reyndar hreint hneyksli að ríkið skuli
greiða hótel og annan útlagðan kostnað
fyrir sendiboða sína á ferðalögum er-
lendis en greiða þeim það einnig í bein-
hörðum gjaldeyri. Þetta mál verður að
rannsaka og opna að fullu.
Berlínarvaðall
í RÚV
Ragnar Jónsson hringdi:
Óskaplega þykir mér leiðigjarn
þessi „BerlínarvaðaU“ er heyrist nú
æ oftar frá fréttaritara RÚV og í
aukaþáttum, t.d. Þjóðbraut í síðdegis-
útvarpinu. Þetta heyrist mér mest
megnis uppblásinn áróðm- um að-
gerðir NATO gegn einræðisherra
Serbíu og fréttir af meintum vaxandi
stuðningi þýskra þrýstihópa gegn
þessum aðgerðum. Berlínarkonan
sem ryður þessu frá sér virðist kapp-
kosta að koma sínum hugðarefnum á
framfæri því varla er á annað minnst
í Berlínarfréttum þessa dagana.
Minnir einna helst á „Berlínarfrétt-
ir“ á stríðsárunum þegar RÚV sagði
fréttir frá Berlin og Lundúnum sem
voru algjörlega gagnstæðar. Þetta
muna margir núlifandi íslendingar
enn. En það átta sig ekki allir á því
að nýr Hitler kann að leynast í
Belgrad þessa dagana.