Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1999, Síða 7
FEVtMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1999
7
Fréttir
Hálfur Cadillac, sem prýtt hefur framhlið Hard Rock í Kringlunni, svífur hér yfir
byggingarverkamönnum á leið í klössun. Hann var farínn að ryðga og það þarf
að setja á hann nýjan stuðara. Þegar hann kemur af verkstæðinu verður hann
settur upp aftur en þá verður hann kominn inn í hús, eins og reyndar allt Hard
Rockið eftir að byggt hefur verið við Kringluna. Afturendinn á Cadillacnum hef-
ur alltaf verið innandyra og hefur ekkert ryðgað -EIR/DV-mynd S
SkagaQörður:
Fyrrum þingmaður
stjórnarformaður KS
DV, Skagafiröi:
Stefán Guðmundsson,
fyrrverandi alþingismaður,
hefur verið kjörinn formað-
ur stjórnar Kaupfélags Skag-
firðinga. Hann tekur við for-
mennsku í stjórninni af Stef-
áni Gestssyni sem ekki gaf
kost á sér til áframhaldandi
stjórnarsetu á aðalfundi fé-
Stefán Guðmunds-
son - nú stjórnar-
formaður KS.
lagsins fyrir skömmu.
Varaformaður stjórnar
KS er nú Bjarni Marons-
son og Guðrún Sighvats-
dóttir er ritari. Stefán Guð-
mundsson hefur setið í
stjórn KS um árabil og var
varaformaður stjórnarinn-
ar síðasta starfsár. -ÖÞ
Verösprengingin í miðbænum:
Tvö herbergi á
14,2 milljónir
Fasteignasalan Eignabær hefur
auglýst...afar fallega og rúmgóða 2ja
herb. glæsiíbúð í miðbænum" á 14,2
milljónir króna. Með þessari auglýs-
ingu þykir fasteignasölum að verð-
sprengingin á fasteignamarkaðnum í
mið- og vesturbæ Reykjavíkur sé að
ná hámarki. Samkvæmt sömu heim-
ildum hefði auglýst íbúð kostað um 10
milljónir fyrir tæpu ári.
„Þetta er íbúð sem ætti heima í
Hús og híbýli eða á forsíðu DV. Þarna
eru bestu græjur og gas í eldhúsi,
ljónabaðker, frístandandi vaskur á
baðherbergi og innréttingar úr kirsu-
berjaviði," sagði Steinbergur Finn-
bogason, fasteignasali hjá Eignamiðl-
un. „íbúðin er 108 fermetrar og vissu-
lega dýr. Mér reiknast til að fermetra-
verðið sé um 130 þúsund krónur. í
vesturbænum, Þingholtunum og Hlíð-
unum hefur fermetraverðið farið ört
hækkandi og er nú í kringum 100 þús-
und krónur, ef ekki meira. Við sjáum
ekki fyrir endann á þessari þróun,“
I þessu húsi við Laugaveginn kostar tveggja herbergja íbúð rúmar 14 milljónir.
sagði Steinbergur en gat ekki svarað
spurningunni hver markhópurinn
væri fyrir tveggja herbergja íbúð á
rúmar 14 milljónir. Umrædd íbúð
stendur við Laugaveginn og á henni
eru engar svalir. -EIR
því að ef ég get hlaupið km á 3.01
get ég það fjandakornið á 2.59.
Air Max karla. Air Max kvenna
þrískiptur TL loftpúði undir hæl og tábergi, BRS 1000 ytri sóh,
stöðugleikaplata undir il,léttur skór með hámarksdempun,
frábær aðlögun að fætinum,
leiðbeinandi smásöluverð
14.990 kr.
r International Triax Air Converge Triax kvenna
MX + loftpúði undir hæl og tábergi, BRS 1000 ytri sób,
stöðugleikaplata undir sóla.rpjög góð dempun og stöðugleiki,
leiðbeinandi smásöluverð
9.990 kr.
Air Rollin karla
loftpúöi í hæl, BRS 1000 jrtri sób,
mjúkur Phylon milbsób, léttur alhUða æfingaskór,
leiðbeinandi smáaöluverð
4.990 kr.
TL - air - 82% af
miðsóla er loft.
MX - Loftpúði í hæl
og tábergi.
Regrind - Ytri sóU
úr sterku endurunnu
giimmíi.
Air Mantra karla
loftpúði í hæl, nyúkur Phylon
milUsóU, stöðugleikaplata undir
sóla,léttur alhUða æfingaskór,
leiðbeinandi smásöluverð
5.990 kr.
BRS 1000 sérstyrktur
ytri sóU með mjög góðu
gripi.