Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1999, Qupperneq 15
FIMMTUDAGUR 3. JUNI 1999
* #t*5lSÉl!£2
-2* 1
15
Hollur mat
ur ódýrari
Margt smátt getur gert eitt
stórt. Það sannast fullkom-
lega þegar neytendur venja
komu sína út í sjoppu á
hverjum degi í leit að
fæðu eða sælgæti.
Vinnandi karlar og kon-
ur og nemendur flykkjast út
í sjoppur og veitingastaði í
hádeginu, margir hverjir
alla 5 daga vinnuvikunn-
ar. Einhverjir hafa þó
fyrir því að smyrja sér
nesti áður en þeir fara
að heiman og spara með
því umtalsverðar fjár-
hæðir á ári hverju. En
það er líka
hægt að _
spara með
Skyndibitar
2.
Gosdrykkur í 0,5 I
Samloka í sjoppu
Tyggjó
Samtals
Pylsa í sjoppu
Súkkulaöi
Lítil kók í gleri
Samtals
plasti
120 kr.
210 kr.
50 kr.
380 kr.
Verö á ári
30.000 kr.
52.500 kr.
12.500 kr.
95.000 kr.
því að
kaupa hið
„rétta“ í búð-
unum og sjopp-
unum.
Epli
Kringla í bakaríi
Mjólk, 1/4 I
Samtals
20 kr.
40 kr.
20 kr.
80 kr.
120 kr.
80 kr.
80 kr.
280 kr.
Verö á ári
5.000 kr.
10.000 kr.
5.000 kr.
20.000 kr.
Verö á ári
30.000 kr.
20.000 kr.
30.000 kr.
80.000 kr.
Dæmi um máltíð
Það er líklega dýrasta
næringin að fara á veit-
ingastað í hádeginu. Mál-
tíðin kostar auðvitað mis-
mikið en oftast á bilinu
500-1200 krón-
ur og er
s í ð -
ara
verðið
miðað við fyrsta
flokks veitinga-
stað. Það er
sömuleiðis dýrt
að fara út í búð
eða sjoppu í hádeg-
inu og kaupa sér
bita. T.d. kostar
smurt brauð allt frá
200 krónum og getur
farið upp í 250 krón-
ur fyrir matarmikinn
bita. í dæmi, sem DV
lagði upp, kostar samloka í
sjoppu 210 krónur, hálfur lítri
af gosi í plastflösku 120 krónur
og einn pakki af venjulegu
tyggigúmmíi 50 krónur. Mál-
tíðin í hádeginu kostar sam-
tals 380 krónur. Ef miðað er
við að neytandi fari 5 daga vik-
unnar, alla vinnuvikuna í
sjoppuna, 50 vikur á ári af 52,
kostar snarlið 95.000 krónur á
ári. Gosdrykkurinn 30.000
krónur, samlokan 52.500 krón-
ur og tyggjópakkinn 12.500
krónur. Það er því góð summa
sem færi í vasa þess sem
sleppti þessum kostnaði og
bjargaði sér sjálfur með nesti
að heiman. Annað dæmi um
kostnaðarsama máltíð en mat-
arminni lítur svona út: Pylsa í
sjoppu kostar vun 120 krónrn-,
millistórt súkkulaðistykki 80
krónur og samtals kostar þetta
því 280 krónur eða 100 krónum
minna. Á ársgrundvelli er vun
80.000 króna útgjöld að ræða.
Pylsan kostaði 30.000 á ári
miðað við jafnmargar ferðir í
verslunina og áðan, súkkulað-
ið 20.000 krónur og lítil kók í
gleri 30.000 á ári. Þá væri
hægt að ímynda sér að ein-
.. staklingur með meðallaun
v ' væri allt að mánuð að
í vinna sér fyrir máltíðinni.
Holl máltíð
En það er líka hægt að
kaupa sér hollari mál-
tíð þótt einhverjir telji
hana ekki jafnmatar-
mikla. Ef keypt er
epli í verslun kostar
það um 20 krónur,
kringla í bakaríi
eða búð 40 krónur
og lítil ferna af
mjólk (1/4 1) kost-
ar run 20 krónur.
Samtals 80 krón-
ur. Það er því
langtum ódýrara
að fjárfesta í hoil-
ari mat. Samtals
kostar eplið á ári
5000 krónur,
kringlan 10.000
krónur og mjólkin
5000 krónur. Allt í
allt 20.000 krónur
eða 75.000 krón-
um ódýrara en
dýrara dæmið
að ofan. Það get-
ur sparað mikla
peninga að
ígrunda vandlega
hvað keypt er ef
nestið er keypt úti í
búð. Mötuneytin á
vinnustöðum bjóða
þó oft upp á góðar mál-
tíðir á lágu verði (stundum
niðurgreiddu) en mörg hver
eru ekkert ódýrari en næsta
búð. Það má ekki gleyma því
að það er alltaf ódýrast að
koma með nestið að heiman.
En það getur oft á tíðum verið
þægilegra að láta aðra um að
hafa fýrir því. Munurinn er
hins vegar mikill og mætti
nýta í sparnað með góðri
ávöxtun á ári hverju. En
kostnaðurinn getur líka verið
meiri. T.d. ef neytandinn fer
fleiri en eina og jafnvel fleiri
en tvær ferðir út í verslun á
hverjum degi. Þá er kostnaður-
inn kominn hátt á annað
hundrað þúsund árlega. En
þægindin eru augljós.
Sftrónusafi í dropatali
Þegar nota þarf sítrónusafa í litlu magni
er ráð að stinga grófri nál i sítrónuna og
kreista úr henni nokkra dropa. Gatið lok-
ast svo fljótlega. Einnig má nota sítrónu
sem aðeins er búið að skera af, án þess að
henda henni. Þá er best að pressa safann
úr henni og frysta í ísmola.
Ostur frystur
Auðvelt er að frysta ost sem er mátulega
gamall og sæmilega feitur. Osturinn er
skorinn í hæfilega
bita, vaflnn í ál
þynnu og sett-
ur í plast-
poka. Þá er
auðvelt að
finna hann
í frystiskápn-
um. Osturinn
geymist í 3-4 mánuði.
Smjör eða smjörlíki
Yfirleitt skiptir litlu hvers konar feiti er
notuð við bakstur. Smjörinu fylgir sér-
stakt bragð. Smjörlíkið er ódýrara. Þegar
bakað er bökudeig getur smjörlíki verið
betra. Nota má olíu í staðinn fyrir smjör
eða smjörlíki í brauð og mjúkar kökur.
Enn dl af olíu samsvarar 100 g af feiti.
Dósaopnun
Oft getur verið erfitt að ná lifrarkæfu
o.þ.h. úr dós í einu lagi. Þetta er hins veg-
ar auðleyst: ílátinu er hvolft þegar lokið
hefur verið skorið af því og gert lítið gat á
botninn. Er þá leikur einn aö ná innihald-
inu heilu og ósködduðu úr dósinni.
Is í mjólkurfernum
Ef ís er búinn til í heimahúsum er til-
valið aö nota mjólkurfernur undir hann.
ísblöndunni er hellt í hreina fernu og síð-
an er henni stungið í frystinn. Fernan er
tekin utan af ísnum þegar hann er borinn
á borð.
Laukur flysjaður
Það er óþarfi að tárast yfir lauk þegar
hann er flysjaður. Settu skuröarfjöl, hníf
og lauk í gegnsæjan plastpoka og hafðu
hendurnar inni í honum. Þá skerð þú
þann lauk sem þörf krefur án þess að fella
eitt einasta tár.
Þurrmjólk í bakstur
Auðvelt er að nota þurrmjólk og vatn í
bakstur í staðinn fyrir mjólk. Þá á að
blanda mjólkurduftinu saman við mjölið.
Ostaskorpan flysjuð
Ostaskorpa þarf ekki að vera til vand-
ræða en notaðu ekki hníf á hana heldur
ostskera eða kartöfluflysjara. Osturinn
ódrýgist síður og engin hætta er á að þú
meiðir þig.
Áleggsbakki
Þegar morgunverður er borinn fram eða
smurt nesti er óhagkvæmt að tína álegg
saman úr ýmsum áttum í kæliskápnum.
Hafðu það saman á bakka og breiddu yfir
það plast eða þynnu þegar þú ert búin(n)
að smyrja.
Eggið spring-
ur ekki
Ef smágat er gert á báða
enda eggsins gegnum
skurn og himnu, er engin
hætta að það springi í
suðunni. Notaðu gjarnan
títuprjón með glerhaus
eða eggjanál úr plasti.
Sumarskór í úrvali
(5
Tegund: 3365
Stærð: 37^1
Litir: Blútt og brúnt
.995
Tegund: Sopri
Stærð: 36^11
Litir: Brúnt og svart
Tegund: 7040
Stærð: 36-40
Utir: Svart og brúnt
oppskórinn
Veltusundi v/lngólfstorg Sími 552 1212