Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1999, Síða 20
20
LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 1999 JLJ"V
fréttaljós
Fávana og fámenn lögregla, útsöluverð á dópi og lokun meðferðarplássa í miðju góðæri:
Dópsalar glotta við getuleysinu
Lokun þriggja af átta vistunar-
plássum vegna fjárskorts á Stuðl-
um, þar sem fíkniefnaneytendur
undir sjálfræðisaldri eru vistaðir
neyðarvistun, hefur beint kastljós-
inu að ógnvænlegri stöðu fíkniefna-
mála hér á landi, hástemmdum
kosningaloforðum framsóknar-
manna upp á einn milljarð króna og
langvarandi máttleysi lögreglu
vegna skorts á bæði fé og mannafla.
Vegna mikils framboðs bjóðast
flkniefni á lægra verði en fyrr,
dópsalar stunda sína iðju framan
við nefið á lögreglunni og ekkert
bólar á milljarðinum. Á sama tíma
lengjast biðlistar á meðferðarstofn-
unum fyrir flkniefnaneytendur, sér-
staklega þá yngri.
Biðtími á Stuðium, þar sem neyð-
arvistun er barnavemdarúrræði og
heyrir undir félagsmálaráðuneytið,
er allt að eitt ár. Fjölgun á biðlistum
orsakast bæði af meiri og alvarlegri
fikniefnaneyslu unglinga undir
sjálfræðisaldri og eins vegna hækk-
unar sjálfræðisaldurs úr 16 í 18 ár.
Skjólstæðingar Stuðla eru eldri en
áður, sterkari og í harðari neyslu.
Dýrara að snúa við
Það þykir því eðlilega skjóta
skökku við að loka nær helmingi
plássanna í allt að tvo mánuði yfir
sumartímann. í viðtali við DV á
miðvikudag fullyrti 16 ára stúlka,
fyrrum flkniefnaþræll, að hún hefði
aldrei lifað svo langan biðtíma eftir
plássi á Stuðlum. Svo alvarlegt
hefði ástand hennar verið vegna
neyslu þegar hún var vistuð þar.
Sú spurning verður því áleitin, og
fyllilega réttmæt, hve margir ung-
lingar verði ekki aðeins fórnarlömb
neyslunnar sem slíkrar næstu miss-
eri heldur tregðu kerfisins til að
bregðast við vanda þeirra.
En hvað kostar að opna þessi
pláss aftur. Sólveig Ásgrimsdóttir,
forstöðumaður Stuðla, tjáði DV að
sumarið hefði þegar verið skipulagt
með tilliti til þessara lokana og þá
byggt á reynslu síðasta árs. Þá voru
sams konar lokanir uppi á teningn-
£f 200 tsltrn&k ungmenni vívru týnd í hriðarbyl á
fjollum fyndist «kki sa Islendingur sem ekkt vteri
fús aO teg&a alit t saiurnar ttl a6 bjarga þctm.
Framsókn
Framsóknorftokkurinn vill róðstafa
1.000 miiljónum króna til viSbótar
því som nú cr gcrt til baróttunnar
gegn fíknicfnum.
ASrir fiokkar lýsa yfir köldu stríSi
hver viS annan. Framióhnarmenn^
lýsa yfir stri'Si gegn ffkniefna-
vandanum.
Framsókn g
Vertu mcS!
f fknief num
FRAMSOKNARFLQKKURiNN
• il latum verltin tala!
Dönsku
jarðgerðarkassarnir
komnir aftur
Ræktaðu garðinn með
heimagerðum áburði
og dragðu um ieið úr
sorpmagni frá heimilinu
r/. .1 —•**\ '4
Dalbrekku 16, Kópavogi,
sími 564 4600
Humus kassinn er úr
endurunnu plasti og er einn
mest seldi jarðgerðarkassinn
I Danmörku
16 ára fyrrum fíkniefnaneytandi, sem var nær dauða en lífi í harðri neyslu,
auglýsir eftir efndum á loforðum stjórnmálamanna. DV-mynd Hilmar Þór
um. Sólveig sagði að úr þvi sem
komið væri væri dýrara að snúa við
núna, opna plássin og skipuleggja
allt upp á nýtt, en halda óbreyttum
kúrs. Væn sneið af milljarði kæmi
sér vel í þessari stöðu.
Ódýrara dóp
Vegna mikils framboðs á flkniefn-
um, í Evrópu og hér á landi, hefur
smásöluverð þeirra verið á niður-
leið. DV skýrði frá því í gær að
grammið af kókaíni væri komið nið-
ur í 7-8 þúsund krónur eftir að hafa
verið í 15 þúsund krónum og þar
yfir fyrir nokkrum misserum.
Grammið af hassi fæst á um 1500
krónur en magnafsláttur er í boði ef
keypt eru 10 grömm eða meira.
Svipaða sögu er að segja af öðrum
fikniefnum, framboðið er mikið og
verðið hefur tilhneigingu til að
lækka frekar en hækka.
Hassmoli týnist
Margir foreldrar haida því fram
að bamið þeirra geti ekki neytt
fikniefna, einfaldlega vegna þess að
það hafi ekki peninga til að standa
undir neyslunni. En þetta viðhorf er
blekkingar einar. Unglingar eru
sterkur þrýstihópur þegar kemur að
útgjöldum heimilisins. Ef tekin eru
saman útgjöld vegna reksturs ung-
lings á einum mánuði kemur niður-
staðan oftar en ekki á óvart. Því er
nærtækt að bera saman smásölu-
verð á grammi af hassi og verð ým-
issa dæmigerðra neysluvara ung-
linga. Og ekki má gleyma aðgeng-
inu, dópið berst hraðar en pitsan.
-. Grammið a£ hassi. kostar 150Ú
krónur. Ef fimm unglingar slá sam-
an í eitt gramm verður niðurstaðan
300 krónur fyrir hvem. Til saman-
burðar má nefna að það kostar víða
350-450 krónur að leigja mynd-
bandsspólu með nýrri bíómynd.
Bíómiðinn kostar um 600 krónur, og
fargjald fram og til baka í strætó
kostar nú 240 krónur. Pitsa og kók
getur kostað 1400 krónur, geisla-
Fréttaljós
diskur 2100 krónur og nýjar buxur
6.900 krónur. Kaup á hassmola af og
til geta auðveldlega týnst í þessari
neyslu.
Hæðast að getuleysi
Heimildir innan lögreglunnar tjá
DV að um 50 virkir fikniefnasalar
starfi á höfuðborgarsvæðinu. Vitað
er hvað þeir heita, hvar þeir búa og
hvernig þeir starfa. En sömu heim-
ildir og heimildir innan forvarna-
og félagsmálageirans eru sammála
um að þessir aðilar starfi nær óá-
reittir. Og smásalar, í sumum tilfell-
um þekktir krimmar, gangi
áhyggjulausir um göturnar með
hæðnisglott á vör og vasana fulla af
fikniefnum, vitandi að lögreglan er
. vanhúin,. vantar. peninga og. mann=
afla til að trufla iðju þeirra svo
nokkru nemur.
Áður hefur verið íjallaö um fjár-
skort og manneklu lögreglunnar
sem stjómvöld bera ábyrgð á. Ef slá
á neti um starfsemi fikniefnasala
kostar það mannafla og fé sem ekki
er fyrir hendi. Getuleysið er hróp-
andi - á milljarð.
í skjóli þessa getuleysis eru
einnig framin ofbeldisverk á þeim
sem skulda fyrir fíkniefni, jafnvel
fyrir opnum tjöldum. Og aðferðim-
ar eru eins og í bíómyndum. Þannig
mun ungur drengur hafa verið tek-
inn, ekið með hann út fyrir bæinn,
honum hent niður í holu og hótað
að hann yrði grafinn lifandi ef hann
borgaði ekki meinta fikniefnaskuld.
Eins segir frá dreng sem læstur var
í farangursgeymslu bíls og honum
ekið að stað þar sem átti að lemja
hann með kylfum. Það varð drengn-
um hins vegar til happs að hann
hafði GSM-síma á sér og gat gert
lögreglunni viðvart í tæka tíð.
En gróðavonin er óttanum yfir-
sterkari. Ef vel er haldið utan um
viðskiptin má græða væna fúlgu -
skattfrítt. Þegar ársvelta í fikniefna-
heiminum á íslandi kemur til um-
ræðu þykir einn milljarður ekki
merkileg tala.
Smákóngar slást
Af ofanrituðu er ljóst að þörfin
fyrir margumtalaðan milljarð fram-
sóknarmanna er æpandi. Ingibjörg
Pálmadóttir heilbrigðisráðherra
sagði DV á miðvikudag að milljarð-
urinn væri á leiðinni. Honum yrði
deilt út í samráði við sérfræðinga
og yrði að auki deilt niður á árin
fjögur á kjörtímabilinu. Aðspurðm'
um milljarðinn á beinni línu DV
fyrir kosningar sagði Halldór Ás-
grímsson, utanríkisráðherra og for-
maður Framsóknar:
„Við segjum í okkar stefnuskrá
að við viljum verja honum til for-
varna, meðferðarúrræða, til lög-
gæslu og tollgæslu. Við teljum það
hins vegar ekki mögulegt á þessu
stigi að skipta því nákvæmlega
heldur sé eðlilegt að þeir aðilar sem
þarna er um að ræða verði beðnir
að fara yfir það og koma með sínar
skoðanir á því. Við viljum líka auka
samsteirf við félagasamtök i landinu
og þær stofnanir sem vinna að þess-
um málaflokki."
Heimildarmaður DV, sem hefur
látið sig þessi mál mjög varða og
hefur langa reynslu af fíkniefnamál-
um, er fullur efasemda þegar kemur
að svari Halldórs.
„Þetta þýðir að allir smákóngarn-
ir í kerfinu byrja að bítast um sem
stærsta sneið af þessari frægu millj-
arðsköku. Þeir sem hafa sterkustu
lobbíistama fá náttúrlega mest. En
þar sem þetta er kosningaloforð
verður að gæta þess að sem flestir
fái eitthvað. Ef fáir fá mikið verða
einhverjir út undan og það er ekki
gott fyrir loforðapólitíkus. Þess
vegna er útlit fyrir að milljarðurinn
skiptist í svo marga litla parta, og
það á fjórum árum, að hans verði í
raun aldrei vart. En á meðan halda
fikniefnasalamir áfram og biðlist-
arnir styttast ekki. Við stöndum
frammi fyrir verkefni sem kostar
milljarða, ekki milljarð."
í hríðarbyl
f auglýsingum Framsóknarflokks-
ins fyrir kosningar, með Halldór Ás-
grímsson í broddi fylkingar, sagði:
„Ef 200 íslensk ungmenni væru týnd í
hriðarbyl á fjöllum fyndist ekki sá ís-
lendingur sem ekki væri fús að leggja
allt í sölurnar til að bjarga þeim.“
Ef marka má orð viðmælenda DV
er mikill Qöldi ungmenna þegar týnd-
ur í hríðarbyl fikniefnaneyslu, á göt-
unni i góðærinu. Og þeir sem eru á
leið til hjálpar eru fáir og illa búnir.
_____________________________-Hlh i