Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1999, Page 2
2
LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999 V
| fréttir__________________________________
Bónus færöi skipverjum Odincovu matargjafir í gær:
Ég borgaði þeim milljón
- og veit ekki hvað þeir gerðu við hana, segir útgerðarmaðurinn
„Við erum mjög þakklátir fyrir
þessa sendingu frá Bónusi. Fólk hef-
ur komið hingað og gefið okkur mat
og einhverja aura,“ segir skipstjóri
Odincovu um matargjafir frá Bón-
usi. Neyðarkall skipverja sem mál-
að er á skipshliðarnar virðist hafa
borið árangur að því marki að nóg
verður að bíta og brenna næstu dag-
ana.
„Síðast fengum við borgað i októ-
ber en sumir fengu síðast borgað í
júní í fyrra. Þetta er mjög slæmt
ástand því við eigum ijölskyldur
sem við getum ekki fætt nema að fá
laun,“ segir skipstjóri Odincovu en
hann á inni ásamt öðrum skipverj-
um um 14 milljónir hjá rekstraraðil-
um skipsins.
„Auðvitað treystum við á íslensk
stjórnvöld því þetta er ekki þróun-
arríki. Hér eiga að gilda lög og regl-
ur sem gera ekki greinarmun á okk-
ur og íslendingum. Við viljum kom-
ast heim en við getum ekki farið
nema fá kaupið okkar greitt. Við
höfum ekki verið að vinna hér í eitt
ár í sjálfboðavinnu. Þetta er erfið
aðstaða sem við erum í en þetta var
okkar eina ráð til þess að vekja fólk
til umhugsunar um vanda okkar.
Við komum hingað og héldum að
það ætti að skipta um vél en þess í
stað höfum við hangið hérna svo til
Bónus að koma með vörur í Odincovu á fimm brettum til að gefa skipverjum.
kauplausir í nokkra mánuði og lítið
hægt að gera,“ segir skipstjórinn.
„Við höfum verið að vinna í því
að fá nýtt fjármagn inn í fyrirtækið
en það hefur ekki gengið nægilega
vel. Svona kringumstæður hjálpa
okkur auðvitað ekki. Meðan ástand-
ið er svona er lítið hægt að gera. Ég
borgaði þeim milljón á föstudaginn.
Ekki veit ég hvað þeir hafa gert við
hana,“ segir Sæmundur Árelíusson,
eigandi skipsins.
Aðspurður hvort skipverjarnir
hafi fengið milljón á föstudag segir
skipstjórinn: „Við fengum 650 þús-
und en við eigum samt inni miklu
meira.“ Aðspurður hvort réttlætan-
legt væri að láta Sjómannafélag
Reykjavíkur borga læknakostnað
þegar þeir ættu peninga vildi skip-
stjórinn ekkert tjá sig um. -EIS
Valdimar Jóhannesson:
Er Hrói hött-
ur án Skíris-
skógar
Héraðsdómur Reykjavíkur
vísaði í gær máli Valdimars Jó-
hannessonar gegn íslenska rík-
inu frá en Valdimar hafði farið
fram á að synjun Fiskistofu á að
úthluta honum aflahlutdeild
yrði lýst
ógild. „Þessi
stefna
byggðist í
grundvallar-
atriðum á
sömu hlut-
um og síð-
asta mál en
var vísað frá
vegna þess
Valdimar að málið var
Jóhannesson. ekki lagt
nógu skýrt fram. Dómurinn er
ekki óeðlilegur að mínu mati,“
sagði Valdimar í samtali við
DV. „Ég vil ekki líta fram hjá
hugtakanotkun í stefnunni
sjálfri og ég mun ekki áfrýja
þessu máli til Hæstaréttar," seg-
ir hann en telur að til greina
komi að stefna að nýju. „Ég er
örlítið svekktur en ég er líka
orðinn þreyttur. Það þurfa fleiri
að berjast fyrir þessu réttlætis-
máli þjóðfélagsins að afnema
kvótakerfið og mér líður oft eins
og Hróa hetti án Skírisskógar,"
sagði Valdimar.
-hb
Kínversku knattspyrnumennirnir í Weekend Club. Með þeim á myndinni eru Rúnar Már Sverrisson og Hallur Birgis-
son, sem einnig eru í félaginu, en þeir hafa báðir starfað í Kína. DV-mynd gk
Kínverjar á „Pollamóti"
DV, Akureyri:
Þeir ferðuðust alla leið frá Kína til
íslands, einungis til að taka þátt í
Pollamóti Þórs í knattspymu á Akui'-
eyri, sem hófst í gær. Kínverska lið-
ið, Weekend Club, er skipað Kinveij-
um sem starfa hjá vestrænum fyrir-
tækjum í Peking og spila knatt-
spymu um helgar eins og nefn félags-
ins gefur til kynna. Þeir kynntust ís-
lendingum sem hafa starfað í Peking
og þeir komu þeim í kynni við Polla-
mót Þórs sem er knattspymumót fyr-
h' polla sem eru 30 ára og eldri en
mótið er haldið árlega. Kínverjarnir
sögðu þetta mikið ferðalag, þeir
hefðu verið 25 klukkustundir í flugi á
leiðinni hingað, en þeir skemmtu sér
vel. Þó heyrðust þeir kvarta um
kulda, en á Akureyri var um 15 stiga
hiti í gær, en hitastigið í Peking þeg-
ar þeir lögðu upp í íslandsferðina var
rétt um 40 stig. -gk
Meersburg ásamt kafbátunum tveimur. Reykvíkingum býðst að skoða sig
um í skipinu og í kafbátunum á sunnudag, milli kl.13 og 16. DV-mynd S
Kafbátar í Reykja-
víkurhöfn
Þýskt herskip, Meersburg, lagðist
að í Reykjarvíkurhöfn í gær ásamt
tveimur kafbátum. Reykjavík er
þeirra síðasta stoppistöð á fimm mán-
aða siglingu. Skipin voru á æfingu í
Karíbahafinu og fyrir utan austur-
strönd Bandaríkjanna með banda-
ríska sjóhernum. Þaðan héldu þau tii
Halifax í Kanada og síðan hingað til
íslands. Héðan halda þau síðan heim
til Þýskalands á þriðjudaginn. í milli-
tíðinni ætla áhafnirnar að skoða
nokkrar af náttúruperlum íslands:
Þingvelli, GuUfoss og Geysi. Á sunnu-
daginn býðst Reykvikingum að skoða
sig um á skipinu og í kafbátunum.
Kafbátarnir eru báðir 25 ára gamlir,
með þeim elstu í þýska flotanum. Þeir
eru vægast sagt mjög þröngir, með
öllu er góiflötur fyrir 25 skipverja
hvors kafbáts einungis 35 fermetrar.
Sex ár eru liðin síðan þýskt herskip
kom síðast hingað til íslands en árið
1993 kom herskip ásamt þremur kaf-
bátum. Skipið og kafbátarnir liggja
við Faxagarð. -hvs
stuttar fréttir
Viljja svör í næstu viku
Stjórn íbúa-
samtakanna
Átaks á Þingeyri
beinir þeim ein-
; dregnu tiimæl-
um til ríkis-
stjórnarinnar að
hún beiti sér nú
þegar fyrir var-
anlegum aðgerðum til lausnar þeim
brýna vanda sem steðjar að Þingeyri
í atvinnumálum. Stjórnin mælist til
í þess að svör liggi fyrir eigi síðar en
í næstu viku varðandi fyrh'ætlanir
stjórnarinnai' í þessu máli. Vísir.is
greindi frá.
ITilnefnir konu
Bill Clinton Bandaríkjaforseti hef-
ur tilnefnt Barböru J. GrifFith í emb-
ætti sendiherra á íslandi. GrifFith er
starfsmaður efnahags- og viðskipta-
deildar utanrikisráðuneytis Banda-
ríkjanna. ÖldungadeOd bandai’íska
þingsins þarf að staðfesta tilnefn-
| ingu Bandaríkjaforseta. Vísir.is
Igreindi frá.
Sýknaðir af kröfum
I Félagsdómur hefúr sýknað VSÍ
vegna Flugfélags íslands hf. af kröf-
um flugmanna sem stefndu því fyrir
meint brot á kjarasamningi Félags
íslenskra atvinnuflugmanna og
Flugfélagsins. Flugmennimir telja
að brotið hafl verið á þeim þegar
Flugfélag íslands tók á leigu flugvél-
ar frá Flugleiðum hf. við upphaf
i rekstur flugfelagsins, með fúllri
áhöfn flugmanna sem eru starfs-
Imenn Flugleiða hf. Bylgjan sagði frá.
Misskilningur?
„Það gætir
misskilnings í
orðum Helga
Hjörvars, forseta
borgarstjómar,
um starfsemi og
| rekstur Lands-
simans," sagði
: Ólafur Stephen-
sen, forstöðumaður upplýsinga- og
1 kynningarmála. „í fyrsta lagi virðist
Helgi eiga við Breiðvarpið þegar
Ihann talar um breiðbandið og í öðru
lagi fer því fjarri að Landssiminn
hafi eytt milljörðum króna í breið-
bandið hvað þá Breiðvarpið." Vís-
ir.is greindi frá.
Útvarpshöfuð
Þorvaldur Gunnarsson, 27 ára
Eyrbekkingur og safnvörður, varð
hlutskarpastur í samkeppni um
útvarpsþáttagerð sem Bylgjan stóð
fyrir ásamt íslenskri erfðagrein-
ingu og Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins. Hugmynd hans ber
heitið Útvarpshöfuð. Vísir.is
greindi frá.
100 milljóna pokatré
Pokasjóður verslunarinnar út-
hlutaöi í gær 30 milljónum króna
til umhverfismála. Alls hefur sjóð-
urinn nú veitt 100 milljónir í slíka
styrki á Qómm árum. Til að und-
irstrika þann árangur hefúr stórt
grenitré við Kjarvalsstaði verið
skreytt með úttroðnum burðar-
pokum frá þeim verslunum sem
leggja fjármuni í sjóðinn ásamt
öðrum táknrænum merkingum.
Lengja gildistíma
Landssíminn hefur ákveðið að
lengja tímabundið gildistíma inn-
eignar GSM-notenda, sem keypt
hafa fyrirframgreidda áskrift, svo-
kallað Frelsi. Ástæðan er villa í
hugbúnaði frá Ericsson. Við-
skiptablaðið á Vísi.is sagði frá.
Besta markaösáætlunin
Þróunar-
verkefninu Út-
flutningsaukn-
j ing og hagvöxt-
ur, sem er 10
mánaða verk-
efni á vegum
Útflutningsráðs
íslands, ís-
J landsbanka, Nýsköpunarsjóðs og
: Samtaka iðnaðarins, lauk á mið-
vikudag. Jón Ásbergsson, fram-
kvæmdastjóri Útflutningsráðs, af-
henti verðlaun fyi'ir bestu við-
skipta- og markaðsáætlunina.
Verðlaunin féllu í skaut hugbún-
aðarfyrirtækinu Fakta ehf.
-AA