Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1999, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1999, Side 9
JLlV LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999 9 viðbrögð Tilfinningaflóð Kios í Háraðsdómi: Hafðu hemil á þár Sá stœlti blökkumaóur, Kio Alexander Briggs, fékk aö vita það á miðvikudag- inn aó hann mun ekki eyða nœstu sjö árum í fangelsi. Sýknudómur var þá kveó- inn upp í héraði í hinu um- talaða e-töflumáli. Skiljanlegt er að mönn- um létti við slík tíóindi og Kio var ekkert aö leyna fögnuði sínum. Þvert á móti lét hann öllum illum látum, ákallaói Frelsarann og hjúfraði sig upp að verj- anda sínum Helga Jóhann- essyni. Héraðsdómur er ekki staóur sterkra tilfmninga eins og sjá mátti af vió- brögóum viðstaddra í frétt- um Stöóvar tvö um kvöldiö. Kio æpir aftur og aftur: „Thank You Jesus“. Er við það að síga niður á gólf með spenntar greipar en Helgi lögmaður sér að við svo búið má ekki standa. Fögn- uðurinn hefur þeg- ar gengið of langt. „Get a grip“ segir lögmaðurinn hvað eftir annað, en það mun útleggjast „hafðu hemil á þér“. Kioerenn með hugann við Jesú og heyrir ekkert. Dómurinn lesinn upp. Maðurinn er sýkn saka. Lög- maðurinn Helgi er ánægður með dóminn og leyfir sér að brosa í kampinn, eins og sést ef grannt er skoðað. Kio brestur í grát, felur andlitið í höndum sér og gefur jafnframt frá sér feginsamlegar stunur. Kio man skyndilega að ekki ber einungis að þakka guði. Það var Helgi sem varðist ákæruvaldinu svo listilega og vann málið. Kio hefur stóran faðm og gerir sig líklegan til að umvefja velgjörða- mann sinn. Helga langar ekkert til þess. Hann er orðinn pirraður og ítrekar að Kio skuli reyna að hafa hemil á tilfinningum sínum. „Ekki er þetta nú við hæfi í sjálfum Héraðsdómi Reykjavíkur", má lesa úr svip Helga, en Kio hefur tekið hann þéttingsföstum tökum og lögmaðurinn á sér engrar undankomu auðið. Þá er líka eins gott að faðma bara á móti og klappa svolítið á bakið. Það róar að minnsta kosti börnin. „Skikkjan er öll krumpuð maður,“ hefði Helgi fulla ástæðu til að segja á þessu stigi en honum er umhugað um skjólstæðing sinn og því segir hann ekkert slíkt. Hann segir Kio enn og aftur að róa sig niður - og í þetta sinn hafa orðin áhrif. Hinn frjálsi maður hefur linað á tökunum. Baráttu lög- mannsins er lokið. 16 milljónir afgreiðslustaða um allan heim Gleðilegt sumar!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.