Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1999, Side 12
12
ég á mér draum
LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999 T>V
Helgi Björnsson, leikari og poppstjarna:
Prívat-þota og strandbar
„Ég á mér þann draum að veðrið
verði alltaf eins og það er í dag. Það
er trúlega hæpið að sá draumur
rætist hér á íslandi þannig að ég
held að það myndi henta mér ágæt-
lega að eiga prívat-þotu. Ef ég
myndi vakna upp í
rigningu og leiðinlegu
veðri gæti ég þá alltaf
stokkið upp í prívat-
jettið mitt og flogið til
Bahamas, í spilavíti í
Las Vegas, eyðimörk-
ina í Kalahari eða eitt-
hvert annað, eftir því
hvemig lægi á mér.“
Eitthvert annað
segirðu. Er enginn
ákveðinn staður sem
þú myndir vilja
heimsækja?
„Það er til fullt af
ákveðnum stöðum.
Það væri gaman að
geta skroppið til Sikil-
eyjar til dæmis eða
New York.“
Hefurðu gert eitt-
hvað til að láta
drauma þina rætast?
„Já, já, eitthvað hef-
ur maður nú gert.
Þegar ég var 10-11 ára
átti ég mér þann
draum að verða annað
hvort atvinnumaður í
knattspyrnu eða popp-
stjarna og sumir segja
mér að annar af þeim
draumum hafi ræst.
Svo áttum við lengi
þann draum aö flytja
til Ítalíu, konan mín
og ég, og við létum
hann rætast. Við flutt-
um til Flórens og bjuggum þar í ár.“
Ítalía draumalandið
Af hverju langaði ykkur til
þess að flytja til ítaliu?
„Ítalía er bara svo heillandi land.
ítalir hafa bæði skemmtilega menn-
ingu til að byggja á og svo virðist
vera í þessum þjóðarkarakter ein-
hver ástúð og vinalegheit sem eru
ekki eins áberandi annars staðar.
Þeir eru alltaf svo voðalega kátir og
bamslega glaðir í hjartanu. Síðan
eru náttúrulega óskaplega fallegar
borgir þama og margt annað sem
heillar."
Gætuð þið hugsað ykkur að
fara aftur?
Já, já. Við gerum það alveg öragg-
lega. Það er bara ekki búið að setja
dagsetninguna á það.
Finnst þér draumar þínir hafa
breyst eitthvað í gegnum tíðina.
Þú talaðir um að þú hefðir viljað
verða fótboltamaður eða söngv-
ari...?
„Sko, ég geri greinarmun á því að
vera söngvari og fótboltamaður eða
atvinnumaður í knattspyrnu og
poppstjama. Það er smá stigsmunur
á því. Annars... jújú; auðvitað hafa
draumarnir breyst. Nú er ég farinn
að ímynda mér hvemig ég vil hafa
þetta þegar ég fer að slaka á í vinn-
unni og hafa það náðugt. Þá myndi
ég vilja eiga strandbar einhvers
staðar sunnarlega á Ítalíu eða á lít-
illi eyju þar fyrir utan þar sem ég
gæti slakað á og horft á sólarupprás-
ina og sólarlagið."
Sólelskur málari
Þú ert sem sagt sóldýrkandi?
„Já, það er ekki spurning. Sólin
hefur svo skemmtileg áhrif á mann.
Maður slakar betur á, verður sensi-
tívari og opnari gagnvart bæði sjálf-
um sér og öðrum í kringum sig...
svo er líka skemmtilegra að elska í
sólinni."
Ef þú værir ekki leikari eða
poppstjarna, myndirðu þá vilja
gera eitthvað annað?
„Ég hugsa að ég myndi vilja vera
málari, annað hvort húsamálari eða
listmálari. Ég hef aldrei getað teikn-
að eða dregið neitt upp sjálfur og
hef alltaf öfundað þá sem hafa þenn-
an hæfileika. Ég held að það sé bæði
mjög róandi fyrir sálina að mála
fyrir utan það að þá fengi ég tæki-
færi til að skapa eitthvað. Það er al-
gert frumskilyrði fyrir mig til að ég
geti haldið lífi.“
Ef Helgi væri ekki leikari eða poppstjarna myndi hann helst vilja vera málari.
0nm breytíngar
Myndimar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur er
að gáð kemur í ljós að á myndinni
til hægri hefur fimm atriðum ver-
ið breytt. Finnir þú þessi fimm at-
riði skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að tveimur
vikum liðnum birtum við nöfn
sigurvegaranna.
1. verðlaun:
Tasco 7x50 sjónauki frá
Sjónvarpsmiðstöðinni,
Síðumúla 2,
að verðmæti kr. 6.900.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti
kr. 1570, Sekur eftir Scott Turow og
Kólibrísúpan eftir David Parry og
Patrick Withrow.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagið með iausninni:
Finnur þú fimm
breytingar? 522
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
Rnnur þú fimm breytingar? 522
Ég hafði annað í huga þegar þú talaðir um „lítið
einbýlishús"!
Nafn:
Heimili:
Vinningshafar fyrir getraun
númer 520 eru:
1. verðlaun:
Anna Friðriksdóttir,
Torfufelli 35.
109 Reykjavík.
2. Verðlaun:
Erlendur Franklínsson,
Grýtubakka 16.
109 Reykjavík.
METSÖLUBÆKUR
BRETLAND
SKÁLDSÖGUR - KIUUR:
1. Stephen King: Bag Of Bones.
2. Patricia Cornwell: Point Of Origin.
3. Maeve Binchy: Tara Road.
4. Minette Walters: The Breaker.
5. Jeffrey Archer: The Eleventh
Commandment.
6. Dean Koontz: Seize The Night.
7. Nick Hornby: About a Boy.
8. Patricia Scanlan: City Woman.
9. Tom Clancy & Steve Pieczenik; Net
Force: Hidden Agendas.
10. John Irvlng: A Widow for One Year.
RIT ALM. EÐLIS - KIUUR:
1. Antony Beevor: Stalingrad.
2. Chris Stewart: Driving Over Lemons.
3. Amanda Foreman: Georgiana: Duchess o
Devonshire.
4. Richard Branson: Losing My Virginity.
5. Simon Winchester: The Surgeon of
Crowthorne.
6. Bill Bryson: Notes from a Small Island.
7. John O'Farrell: Things Can Only Get
Better.
8. Sean O'Callaghan: The Informer.
9. John Gray: Men Are from Mars, Women
Are from Venus.
10. Shawn Levy: Rat Pack Confidential.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. Thomas Harris: Hannibal.
2. Wilbur Smith: Monsoon.
3. Terry Brooks: Star Wars Episode 1: The
Phantom Menace.
4. Jilly Cooper: 1 Score!
5. Kathy Reichs: Death du Jour.
6. James Herbert: Others.
INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS:
1. David McNab & James Younger: The
Planets.
2. David West Reynolds: Star Wars Episode
1: The Visual Dictionary.
3. Lenny McLean: The Guv'nor.
4. Terry Pratchett et al: The Science of
Discworld.
5. Roy Shaw: Pretty Boy.
6. Peter Mayle: Encore Provence.
(Byggt á The Sunday Times)
BANDARÍKIN
SKÁLDSÖGUR - KIUUR:
1. Anita Shreve: The Pilot’s Wife.
2. Arthur Golden: Memoirs of a Geisha.
3. Clive Cussler & Paul Kemprecos:
Serpent: The NUMA Files.
4. Bernhard Schllnk: The Reader.
5. Wally Lamb: I Know This Much Is True.
6. Helen Fielding: Bridget Jones’ Diary.
7. John Irving: A Widow for One Year.
8. Judy Blume: Summer Sisters.
9. Rebecca Wells: Divine Secret of the Ya-Yí
Sisterhood.
10. Alice McDermott: Charming Billy.
RIT ALM. EÐLIS - KIUUR:
1. Frank McCourt: Angelas Ashes.
2. James P. Comer & Alvin E. Poussalnt: Dr
Atkins New Diet Revolution.
3. Jared Diamond: Guns, Germs and Steel.
4. William Pollack: Real Boys.
5. Adellne Yen Mah: Falling Leaves.
6. Ron Whlte: How Computers Work.
7. lynla Vanzant: One Day My Soul Just
Opened up.
8. Richard Carlson: Don’t Sweat the Small
Stuff...
9. Jack Canfleld ofl.: Chicken Soup for the
Golfer's Soul.
10. The Onion: Our Dumb Century.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. Janet Fltch: White Oleander.
2. Terry Brooks: Episode One: The Phantom
Menace.
3. John Sandford: Certain Prey.
4. David Guterson: East of The Mountains.
5. John Grlsham: The Testament.
INNBUNDIN RITALM.EÐUS:
1. Monty Roberts: Shy Boy: The Horse That
Came in From the Wild.
2. Tom Brokaw: The Greatest Generation.
3. Mitch Albom: Tuesdays With Morrie.
4. Thomas L. Friedman: The Lexus and the
Olive Tree.
5. Bill Gertz: Betrayal: How the Clinton
Administration Undermined American
Security.
(Byggt á The Washington Post)