Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1999, Side 23
i>V LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999
fréttir
Verðbráfamiðlarinn Martin Frankel - mesti stórsvindlari sögunnar, er horfinn sporlaust:
Með 200 milljarða í farteskinu
Saga verðbréfamiðlarans Martins
Frankels, sem hvarf með um 250
milljarða í farteskinu í síðasta mán-
uði, er magnaðri en nokkur reyfari.
Svo virðist sem Martih Frankel sé
stórtækasti svindlari sögunnar
enda hefur engum öðrum tekist að
draga að sér jafnmikið fé og honum.
Ekki er víst að upp hefði komist
um hvarf Frankels í síðasta mánuði
ef brunabjöllur í lúxusvillu hans í
Greenwich í Connecticut hefðu ekki
klingt þann 5. maí sl. Þegar slökkvi-
lið kom að húsinu var það mann-
laust en inni logaði smáeldur. Ýmis-
legt varð til að vekja grunsemdir
lögreglu; svo sem álma í húsinu þar
sem komið hafði verið fyrir um
hundrað tölvum og fullkominni
skrifstofuaðstöðu. Þá fundust hálf-
brunnir minnismiðar með skrift
Frankels. Á þeim minnti Frankel
sig á hluti eins og peningaþvott,
hvernig best væri að koma pening-
um til ísraels og þar fram eftir göt-
unum.
Alríkislögreglan hefur nú tekið
yfir rannsókn málsins en svo virðist
sem Frankel hafi einkum svikið fé
út úr tryggingafélögum auk þess að
féfletta kaþólikka.
Snillingur á ferð
Það er ekki mikið vitað um Mart-
in Frankel. Hann hafði lag á því að
láta lítið á sér bera, einkum síðustu
árin, og engar myndir eru til af hon-
um utan ein frá því hann var í
menntaskóla.
Frankel er 44 ára, fæddur og upp-
alinn i bænum Toledo í Ohio-ríki.
Hann þótti snemma vel gefínn en
þrátt fyrir það lauk hann ekki við
framhaldsskóla. Hann fór síðar
fram á það við skólayfirvöld að ein-
kunnir og skjöl honum tengd yrðu
innsigluð.
Frankel efaðist
aidrei um eigið
ágæti og leit á sjáff- JgtíjP ■ '
an sig sem hrein- —-—
ræktaðan snilling. 1
eigin ferilskrá
grobbar hann sig til
dæmis af því að hafa
hfotið 194 stig á
gáfnaprófl auk þess
sem hann hafi fund-
ið upp aðferð til að
spá fyrir um hreyf-
ingar á verðbréfa-
markaði, sem sé 92
til 96% örugg. Hvað svo sem það
þýðir.
Latur til vinnu
Árið 1985 réði Frankel sig til
starfa hjá fyrirtækinu Dominick &
Dominick í Toledo. John Shculte,
sem var forstjóri fyrirtækisins,
vandar Frankel ekki kveðjumar. í
viðtali við The Washington Post
segist Schulte hafa frá upphafi ver-
ið efins um hæfni Frankels. Schulte
hafði rétt fyrir sér því Frankel var
ekki til mikils gagns á skrifstof-
unni. Hann gerði ekki handtak held-
ur gekk á milli manna og talaði dig-
urbarkalega um hvernig hann hefði
séð hitt og þetta fyrir á verðbréfa-
markaðnum en bara ekki nénnt að
fylgja því eftir. „Hann var auk þess
illa til fara og afar ósnyrtilegur í
allri umgengni," segir Schulte.
Eftir sex mánaða iðjuleysi var
Schulte nóg boðið og hann sagði
Frankel að taka pokann sinn og
hypja sig á brott. Schulte renndi
víst ekki í grun að þar með væri
hann búinn að tapa eigin-
konunni. Sonia kona hans
flutti skömmu seinna
ásamt börnum þeirra
tveimur til Frankels. Sam-
band þeirra stóð í fáein ár.
Illa lidinn af ná-
grönnum
Eftir brottreksturinn í
Toledo reyndi Frankel fyrir
sér hjá ýmsum verðbréfafyr-
irtækjum en var alltaf rek-
inn.
Talið er að í kringum 1990
hafi Frankel því ákveðið að
stofna eigið fyrirtæki. Ekki
mun hafa liðið á löngu áður
en bandaríska verðbréfaeftir-
litið hóf að finna ýmislegt at-
hugavert við starfsemi hans.
Hann átti yfir höfði sér kæru
vegna
misferlis
en tókst
að semja
sig frá
henni
með þvi
að lofa að
hætta
verð-
bréfavið-
skiptum.
Fallið var
frá
kænmni
en
Frankel
stóð ekki
við sinn
hluta lof-
orðsins.
Frá þeirri stundu hóf Frankel fyrir
alvöru að byggja risaveldi sitt upp
með svindli og klækjum. Hann kom
sér fyrir i lúxusvUlu í auðmanna-
hverfi í Greenwich
■, v í Connecticut, það-
an sem hann sinnti
viðskiptum næstu
árin.
fuijiii i gijT ■ *** fyrstu tíð
trettallOS ;s höfðu nágrannar
Frankels illan bifur
á honum. Þeim
þótti öryggisgæsla
við hús hans ganga
úr hófi fram auk
þess sem straumur
glæsivagna um lóð
hans fór í taugarnar á þeim. Þá
pirraði það marga að sjá Frankel
aldrei svo mikið sem bregða fyrir.
Lögreglu bárust margar kvartanir en
Frankel bar því jafiian við að vera
óforbetranlegur glaumgosi. Lögreglan
hafði á engu að byggja og Frankel hélt
uppteknum hætti.
Erlent
|irl[
Gjafir fyrir 7 milljónir
Við leit í húsi Frankels í síðasta
mánuði fundust ýmis kynlífsleikfong
og fjöldi klámmynda. Svo virðist sem
Frankel hafi átt vingott við margar
konur og kunnugir segja hann oftast
hafa kynnst þeim á Netinu eða í gegn-
um smáauglýsingar í dagblöðum.
Fyrir tveimur árum fannst ung
kona, Frances Burge, látin á heimili
Frankels. Lögregla úrskurðaði að hún
hefði framið sjálfsmorð og ekkert
fannst sem benti til að glæpur hefði
verið framinn. íyfirheyrslu vegna
málsins greindi Frankel frá því að
nokkrar konur byggju á heimili hans.
Þetta væru konur sem honum þætti
vænt úm. Auk þess virðist sem nokk-
ur fjöldi fólks hafi unnið fyrir Frankel
Ekkert hefur spurst til Martins Frankels
síðan þann 6. maí síðastliðinn.
Á myndinni til hliðar má sjá hinn
góðkunna sjónvarpsmann Walter Cronkite
í félagsskap Clintons forseta. Cronkite
flæktist í net Frankels.
á heimili hans.
Tveimur mánuðum fyrir
hvarfið eyddi Frankel umtals-
verðum fjárhæðum í gjafir
handa þessum vinkon-
um sinum. Reikningar
benda til þess að hann
hafi snarað fram rúm-
lega sjö milljónum í
skartgripi og fót handa
þeim.
Svíndlsögunnar
Bandaríska alríkis-
lögreglan telur að á sið-
ustu átta árum hafi
Frankel einkum féflett
tryggingafyrirtæki og
notað fjölda dulnefna til
að viUa um fyrir við-
skiptavinum. Talið er
víst að hann hafi náð að
minnsta kosti 300 miUj-
ónum dala frá ellefu
tryggingafélögum. Auk
þess að mergsjúga
tryggingafélög virðist
Frankel hafa gert sér far
um að svindla á kaþ-
ólikkum. Fyrir tveimur
árum átti hann til dæm-
is fund með kaþólska
prestinum Jacobs í New
York. Hann kynnti sem
David Rosse og sagðist
vera ríkur gyðingúr sem
vUdi láta gott af sér
leiða. Saman stofnuðu
þeir síðan sjóð kenndan
við Frans frá Assisi,
sem var ætlað að að-
stoða fátæk börn.
Frankel lét smáupphæð
af hendi rakna áður en
hann tæmdi sjóðinn síðan endanlega
og er talið að heUdarflárhæðin nemi
um tveimur miUjörðum dala. Áhuga
Frankels á kaþólsku kirkjunni rekja
menn til þess að með stuðningi henn-
ar gat hann opnað reikning í banka
Vatikansins. Þar er mönnum heitið
fulh-i bankaleynd og það var einmitt
það sem Frankel þurfti.
Þeir eru margir sem hafa lent í
svikaneti Frankels og þar á meðai er
hinn góðkunni sjónvarpsmaður, Walt-
er Cronkite, sem Frankel reyndi að
véla í stjórn mannúðarsjóðs. Frankel
vissi sem var að nafn Cronkites
myndi opna honum ýmsar dyr.
Cronkite hafnaði hins vegar tilboði
Frankels sem notaði nafn hans engu
að síður á pappírum. Cronkite, sem er
orðinn aldraður maður, segir málið
aUt hið furðulegasta og harmar það
helst að vera ekki fréttamaður lengur
svo hann geti fjallað um það.
Hringdi til lögreglu
Ekkert hefur spurst til Martins
Frankels síðan þann 6. maí síðastlið-
inn eða daginn eftir að eldur kom upp
í húsi hans. Þá hringdi hann í lög-
reglu og vildi fá að vita hvað hefði
komið fyrir í húsi sínu. Hann neitaði
að gefa upp dvalarstað sinn og þaðan
af síður sagðist hann hafa tök á að
koma til viðtals á lögreglustöðinni.
Síðan hefur ekkert spurst til
Frankels en eitt er víst að peninga-
skortur hrjáir hann ekki á flóttanum.
Reyndar hefur því verið haldið fram
að það sé nánast ógerningur að dyljast
með slíkar stjarnfræðilegar fiárhæðir
í farteskinu. Það á timinn eftir að
leiða í ljós.
Byggt á Jyllands-Posten, The
Washington Post, The Sunday
Times og Reuters.
@Leðii® t suwarverð
L >•
a McD Naid sf
McFLURRY sælaæt sís
Hreint lostætil McDonald’s
ísréttur eins og þeir gerast
bestir; ís með sælgætisívafi.
Þú getur valið þér tvær af
eftirtöldum bragðtegundum:
Mulið Smarties, mulið Crunch,
lakkrísbita, jarðarberja-,
súkkulaði- eða karamellusósu.
r %
5. %
ft
/V\
McDonalds
I ■ ■
Austurstræti 20
Suðurlandsbraut 56
aðeins
0 X
Veldu besta stuðningsmannaliðið
www.simi.is
^LANDSSÍMA
DEILDIN