Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1999, Side 51
LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1999
#//í
Helena Rubinstein:
fæddist í Póllandi, byrjaði í Ástralíu, varð fræg í London, lagði París að fótum sár, lék á New York og sigraði heiminn
Helena Rubinstein var fyrst allra
til þess að opna snyrtistofu í byrjun
aldarinnar. Með framtakinu viidi hún
sameina húðfræði og snyrtingu og fór
sjáif að framleiða húðkrem en snyrti-
vöruframleiðendur um allan heim áttu
síðar eftir að feta i fótspor hennar.
Helena er sögð hafa verið kröfuhörð,
ástríðufull, ákveðin, forvitin, stjómsöm
og heillandi. Hún var einsæður per-
sónuleiki sem náði að virkja skarpa
greind sína í snyrtivöruiðnaðinum.
Hún var heilluð af öllum formum feg-
urðar - málverkum, hönnun og andlit-
um kvenna sem hún rannsakaði af
mikilli nákvæmni, rétt eins og menn
rannsaka málverk og gerði allt sem í
hennar valdi stóð til að gera þau enn
fallegri.
Elst átta systra
„Góð saga er alltaf betri en sannleik-
urinn,“ vora einkunnarorð Helenu og
síðan bætti hún við: „Maður á aldrei að
hugsa um fortíðina. Það þjónar engum
tilgangi. Það vill enginn muna sann-
leikann.“
Helena Rubinstein fæddist 25. des-
ember 1872 í Kraká í Póllandi, kyrrlátu
og trúhneigðu samfélagi, þar sem borg-
armúrarnir umkringdu einn elsta há-
skóla Evrópu og stúdentar lögðu stimd
á stærðfræði, klassísk fræði og guð-
fræði. Faðir hennar var safnari; safn-
aði antík og listaverkum; móðir henn-
ar var fyrirmynd annarra kvenna í
innsæi og mildi og mikill kærleikur
einkenndi flölskyldulíflð. Auk Helenu
voru sjö dætur, Pauline, Rosa, Regina,
Stella, Ceska, Manka og Ema.
Þrátt fyrir kærleikann heima fyrir
jdirgaf Helena fjölskyldu sína þegar
hún var tvítug og hélt í hitann og ryk-
ið í Ástralíu. Sagt er að ástæðan hafi
verið ástarsorg en líklega liggja mun
órómantískari ástæður að baki. „Það
var ekki auðvelt að vera gyðingur í
Austur-Evrópu á þessum tíma,“ sagði
Helena eitt sinn i viðtali, „við vorum
auðmjúkt fólk sem hafði ekkert alltof
mikið á milli handanna. Þar sem ég
var elsta dóttirin og enginn sonur á
heimilinu vissi ég að ég yrði að fmna
leið tO að hjálpa fjölskyldunni. Ástralía
var mín eina leið út. Ég varð að kom-
ast í burtu og finna mér lifsviðurværi."
Þar með tók Helena fyrsta skrefið til að
byggja upp veldi sitt, fyrirtæki sem
hún rak ásamt systrum sínum, sonum,
frænkum og frændum og keppinautur
hennar, Elizabeth Arden kallaði
„pólsku mafiuna".
Hjá fjárbónda í Ástralíu
Helena steig á land í Ástralíu
snemma árs 1892 og bjó hjá frænda sín-
um, Louis Silberfeld, sem var fiárbóndi
í afskekktum smábæ, Corelaine, hund-
rað kílómetra frá Melbourne. Sam-
bandið við frændann súmaði fljótlega
og stúlkunni leiddist. „Ég hataði Ástr-
álíu. Hún var helvíti. Hiti, örbirgð, Ijót-
leiki. Mér samdi ekki við ættingja
mína en ég var metnaðargjöm. Ég vildi
sýna heiminum og fjölskyldu minni
hvers ég væri rnegnug," sagði hún.
Hún bauðst því til að vinna fyrir gaml-
an lyfsala í þorpinu við að blanda
áburði hans og grasalyf. Hún lagðist f
lestur á lyfjafræðidoðrantinum
Pharmacopæe og varð gagntekin af
hinum græðandi formúlum sem áttu
eftir að ráða örlögum hennar. Þar sem
svo margar konur dáðust að fallegri
húð hennar og vildu prófa kraftaverka-
kremið hennar ákvað hún að selja
þeim það. Formúluna haíði hún fengið
hjá Lykusky-bræðrunum sem voru vin-
ir fjölskyldunnar í Póllandi og kremið
fékk heitið Valaze.
Árið 1902 ákvað Helena að opna
snyrtistofú í Melboume sem hún
nefndi Valaze og þar vann hún sjálf við
ráðgjöf, auk þess að meðhöndla kon-
umar sem til hennar leituðu. Þar með
hafði hún búið til nýja starfsstétt;
snyrtifræðinga. Þremur árum seinna
flutti Ceska systir hennar til Melbour-
ne til að starfa með henni og þær syst-
ur fóm fljótt að þéna milljónir á ári.
Konur i Sydney og Brisbane grátbáðu
um Valaze-snyrtistofur en Helena var
með efasemdir. Hún afhenti Cesku
stjómartauma fyrirtækisins og hélt til
Evrópu þar sem hún ferðaðist um
Austurríki og Þýskaland. Hún aðstoð-
aði og ráðfærði sig við fremstu húð-
fræðinga, líffræðinga og næringarfræð-
inga þess tíma vegna þess að hún vfidi
vita allt um húðina og þá kúnst að með-
höndla skemmdir og galla.
Drekkhlaðin skartgripum
Helena giftist blaðamanninum Ed-
ward Titus árið 1907 en hann hafði
skrifað grein um Valaze-áburðinn
hennar sem varð til þess að hún fékk
15.000 pantanir, ásamt ávísunum í
pósti. Dr. Lykusky kom hið snarasta
frá Póllandi og gekk til liðs við Hel-
enu. Helena og Titus fluttust til
London ásamt nýfæddum syni og
fljótlega bættist annar við. Þau opn-
uðu Valaze-snyrtistofu í Mayfair-
hverfinu og heldri konur borgarinn-
ar flykktust til hennar. Innan tíu ára
var Heléna Rubinstein orðin víðfræg
og vellauðug. Hún klæddi sig rík-
mannlega og var alltaf drekkhlaðin
skartgripum, greiddi glansandi svart
hárið aftur í þykkan hnút, málaði
varimar rauðar og dró línur í kring-
um tindrandi, dökk augun. Um þrí-
tugt var hún ægifögur, blíð en ákveð-
in, leiftrandi greind og hafði mikla
stjómunarhæfileika. Hún talaði
alltaf lágri, hikandi röddu sem gerði
hana svo ómótstæðilega í augum
karlmanna að þeir gátu ekki neitað
henni um neitt.
Helena varð fyrst allra til að flokka
húðtegundir í feita, normal og þurra
húð. Valaze-kremið þróaði hún yfir í
heila húðhirðulínu, með bæði dag- og
næturkremum.
Hún hafði sigrað London en það
nægði henni ekki. Hún var ákveðin í
að vinna fleiri lönd. „London er fal-
leg borg,“ sagði hún, „en allt byrjar í
París.“ Þangað flutti Helena árið
1912. Manca systir hennar tók við
fyrirtækinu í London. Hún varð rík i
Melboume, fræg í London en í París
kynntist hún listinni og umgekkst
menn eins og Proust, Renoir, Picasso
og Dalí. Hún stofnaði ýmsa sjóði til
að styrkja listamenn.
í fyrri heimsstyijöldinni flutti Hel-
Klæddi sig ríkmannlega og var drekkhlaðin skartgripum.
ena ásamt
fjölskyldu
sinni til
Bandaríkj-
anna. Þar
kynntist
hún kven-
réttinda-
konum, fór
í sam-
keppni við
Elizabeth
Arden og
Revlon og
lærði regl-
ur hins
kapítal-
íska hag-
kerfis um
leið og hún
kynnti sín-
ar eigin
reglur.
Hún opn-
aði snyrti-
stofur í
New York,
Chicago,
Boston og
San
Francisco.
Salvador Dalí málaði yfir tuttugu myndir af Helenu Rubinstein.
Einstakt viðskiptavit eða
slembilukka?
Auk skapandi innsæis virtist Helena
Rubinstein hafa einstakt nef fyrir við-
skiptum. Öllum til furðu seldi hún fyr-
irtæki sitt í Bandaríkjunum fyrir átta
milljónir dollara árið 1928, nokkrum
mánuðum fyrir Wall Street-hmnið sem
var upphaf kreppuáranna. Viðskipta-
jöfrar borgarinnar álitu hana vera ofur
glöggskyggna á framtíðina en hún
sagðist hafa selt fyrirtækið til að bjarga
hjónabandi sínu. Þau Edward vom
skilin að borði og sæng. Ári seinna
keypti hún fyrirtæki sitt aftur á tvær
milljónir dollara.
Ekki tókst henni að bjarga hjóna-
bandinu og skildi árið 1936. Tveimur
áram seinna giftist hún vellauðugum
prins, Atchill Gourielli, sem var forfall-
inn bridgespilari og hafði hún því næg-
an tíma tíl að sinna viðskiptaveldi
sínu.
Eftir seinni heimsstyrjöldina mátti
sjá litla, fjörlega konu taka neðanjarö-
arlestina í París á hveijum morgni á
leið til vinnu í verslun í Faubourg-
Saint-Honoré. Þetta var hin fyrrver-
andi Helena Rubinstein, nú Gourielli
prinsessa. Flestir f fjölskyldu hennar
hafði látið lífið í útrýmingarbúðum
nasista, Þjóðverjar höföu tekið eða
eyðilagt allar eignir hennar í Evrópu.
En þótt hún væri komin yfir sjötugt og
margmilljónari I Bandarikjunum var e*t
hún ákveðin í að byija aftur frá granni
í Evrópu. Hún hófst handa af sömu at-
orkunni og þegar hún var í Melboume.
Konumar í París, sem þurftu að kom-
ast af án fegranarlyfja í styrjöldinni,
vora fljótar að bregðast við. Fimm
árum síðar var Helena Rubinstein aft-
ur orðin stærsta nafnið í snyrtivörum í
Evrópu.
Einkaritari Helenu, Patrick O’Higg-
ins, sem hitti hana fyrst áttræða og
vann fyrir hana þar til hún lést, segir
hana þá hafa litið út fyrir að vera fer-
tug. „Hún vann alltaf af fúllum krafti,”
segir hann og þau ferðuðust saman um f
allan heim þar sem hún heimsótti fyr-
irtæki sem seldu vörur hennar og hélt
fyrirlestra.
Árið 1965, sem var dánarár Helenu
Rubinstein, var hún enn við stjómvöl-
inn á veldi sínu og starfaði af mikilli at-
orku. En hún gerði sér grein fyrh' því
að hún yrði ekki eilíf og sagði alltaf: ^
„Ég vil að fyrirtæki mitt haldi áfram að
starfa næstu þijú hundruð árin.“ -sús