Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1999, Side 52
ÍnAB = 53J-075 ALVfiRU BÍQ! mpolby
===== = ===. STAFRÆMT
===T== = HLJOÐKERHI I LJ V
=..== =_= ÖLLUM SÖLUM! IQA
DprjMo r\rLiMki
Sími 551 9000
60
kvikmyndir
LAUGARDAGUR 3. JULI 1999
Sýnd kl.4.45,6.50,9 og 11.15.
Drew Barrymore
Davi
Hún hef
tol ^
f tsskuani...
fyrr en
Hásléttan:
A. A
Nutimavestri
Hásléttan (The Hi-Lo Country), sem Háskólabíó frumsýndi í gær, er byggð
á samnefndri skáldsögu eftir Max Evans sem er reyndur kúrekaskáld-
sagnahöfundur. Skrifaði hann meðal annars bókina Rounders en eftir
henni var gerð kvikmynd áriðl965 með þeim Glenn Ford og Henry Fonda í
aðalhlutverkum. The Hi-Lo Country hefur lengi verið á borðum kvik-
myndagerðarmanna og hún var eitt sinn nærri orðin til með Charlton
Heston og Lee Marvin í aðalhlutverkum og í leikstjórn Sam Peckinpah.
Nú er sagan loksins orðin að kvikmynd og er leikstjóri hennar breski
gæðaleikstjórinn Stephen Frears Handritshöfundur er Walton Green, sem
skrifaði handritið að meistarverki Pechinpahs, The Wild Bunch. Meðal
framleiðenda myndarinnar má nefna Martin Scorsese og er hann er sagð-
ur vera sá sem loks kom sögunni í gegnum nálarauga kvikmyndafyrir-
tækjanna og fékk hana gerða. The Hi-Lo Country hefur unnið til verðlauna
og meðal annars vann hún Silfurbjöminn á Berlínarhátíðinni og var til-
nefnd til Gullbjamarins.
í myndinni segir frá því þegar hermaðurinn Pete Calder (Billy Crudup)
kemur heim í Hi-Lo eftir að hafa gegnt herþjónustu i seinni heimsstyrj-
öldina. Hann er ráðvilltur ungur maður sem þarf á hjálp að halda til að
aðlagast lifi hins venjulega manns og hana fær hann frá Big Boy Matson
(Woody Harrelson) sem einnig er nýkominn heim úr stríðinu en er mun
reyndari í ólgusjó lífsins heldur Pete. Þeir ákveða að fara í bissness með
gömlum kúreka, Hoover Young (James Gammon). Við það lenda þeir í
útistöðum við Jim Ed Love (Sam Elliott) sem var heima í stríðinu og á
orðið hálfan bæinn. Þar á bæ er kona sem heillar alla karlmenn, Mona
Birk (Patricia Arquette), og er gift
helsta aðstoðarmanni Eds. Það
er ekki sökum að spyrja
að þeir félagar Pete og
Big Boy verða báðir
ástfangnir af
Monu, sem fell-
ur fyrir Big
Boy.
-HK
Patricia
Arquette
leikur
hina
kyn-
þokka-
fullu
Monu
Birk.
Samstarfsmenn og keppinautar um ástir Monu. Woody Harrelson og Billy
Crudup
Stephen Frears
Stephen Frears hefur frá byrjun níunda áratugarins veriö einn helsti leikstjóri
Breta og unnið jöfnum höndum í Hollywood og á heimaslóðum. The Hi-Lo
Country er þriðja kvikmyndin sem hann gerir vestanhafs. Stephen Frears komst
í heimspressuna þegar hann gerði hina margverðlaunuðu My Beautiful Laun-
drette árið 1985 og hann gulltryggði sig með Dangerous Liasons þremur árum sið-
ar, en sú kvikmynd varð ein mest sótta mynd ársins og tilnefnd til sex ósk-
arsverðlauna, meðal annars sem besta kvikmynd og fékk hún þrjá óskara. Þó
engin kvikmynda hans síðan hafi náð frægð Dangerous Liasons hefur hann gert
athyglisverðar kvikmyndir. Má þar nefna The Grifters, The Snapper, Mary Reilly
og The Van.
Stephen Frears ætlaði sér að verða lögfræðingur og hóf nám í lögfræði viö
Cambridge háskólann. Ekki lauk hann námi heldur sneri sér að leikhúsinu og
réðst til Royal Court Theatre þar sem hann var aðstoðarleikstjóri Lindsay And-
erson og leikstýrði Albert Finney áöur en hann sneri sér að sjónvarpi, en hann
starfaði i nokkur ár hjá BBC áður en hann hóf gerð kvikmynda. -HK
Nolte og Ivory endurnýja
kynnin
James Ivory hefur
gert nokkrar frábærar
kvikmyndir, þar á
meðal Room with a
View, Howard’s End
og Remains of the
Day. Jefferson in
Paris, sem hann
gerði fyrir fjórum
árum og ijallaði um kafla í lífi
Thomas Jeffersons, forseta Bandaríkjanna,
verður aldrei talin meðal hans bestu
mynda þótt ágæt sé. I henni lék Nick Nol-
te aðalhlutverkið og þó lítið hafi farið fyr-
ir Jefferson in Paris þá hafa Nolte og Ivory
tekið höndum saman um að gera The
Golden Bowl, eftir skáldsögu Henrys
James. Fjallar hún um ríkan ekkjumann
og dóttur hans sem gift er manni sem held-
ur viðstúlku sem faðirinn ætlar að giftast.
Auk Nick" Nolte leika í The Golden Bowl
Uma Thurman og Angelica Huston. Tökur
hefjast í Róm i ágúst.
Robert Duvall og áhugamái
Leikarinn og leikstjorinn RÓbert Duvall
hefur í mörg ár verið ákafur tangóaðdá-
andi og farið reglulega til Argentínu til að
bæta við kunnáttu sína. Duvall, sem hefur
verið að færa sig um set og sest fyrir aftan
kvikmyndavélina með góðum árangri (The
Apostle), hefur nú tilkynnt að næsta kvik-
mynd sem hann leikstýrir
verði Assasstnation
Tango og þar ætti að
hann að geta sameinað
áhugamálið og vinnuna.
Tökur munu fara fram í
New York' og Buenois
Aires snemma á næsta
ári. Áður en hann
sendir Tangóinn frá
sér verður frumsýnt
fótboltadramað (evr-
ópskur fótbolti) The Cup sem hann
framleiðir og leikur aðalhlutverkið í. í
Tangónum leikur Duvall leigumorðingja
sem fer til Argentínu að verki loknu og fær
mikinn áhuga á tangó.
Brad og Jennifer saman í bíó
Heitasta kærustuparið í Hollywood,
Brad Pitt og Jennifer Aniston, eru nú að
íhuga það í alvöru að leika saman í kvik-
mynd. Um er að ræða gamanmynd, Wak-
ing up in Reno. Ef af
þessu verður mun leik
stýra myndinni James
Gray sem gerði saka-
málamálamyndina
Little Odessa og The
Yard sem væntanleg
er. Það er Miramax
sem er að reyna að
koma þessu í fram-
kvæmd en bæði Pitt
og Aniston eru bók-
uö fram í tímann svo erfitt getur
verið að finna stað og stund fyrir tökur.
Waking up in Reno gerist á þjóðvegiun í
Bandaríkjunum og íjallar um tvö ung-
menni sem fara langa leið á trukki til að
geta tekið þátt í rallkeppni í Arkansas.
mmm
—— ■
* HÍO
SIMI
h 11 p: / w w vy „yo /^_t j o r n u b i o /
551 6500