Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1999, Side 23
FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1999
DV
Charlotte Nilsson
í söngbanni
Sænska söngkonan Charlotte
Nilsson, sem sigraöi i Evrópu-
söngvakeppninni, er komin með
hnúta á raddböndin og hefur því
veriö bannað að tala og syngja í
heila viku. Charlotte átti að
skemmta í Söderhamn í Svíþjóð í
þessari viku á sérstakri hátíð
danshijómsveita. Umboðsmenn
Charlotte höfðu ekki fyrir því að
láta skipuleggjendur hátíðarinnar
vita. Það var dagblað á staðnum
sem vildi fá viðtal við Charlotte
sem fyrst fékk fregnina um erflð-
leika söngkonunnar. Skipuleggj-
endur neyddust til að lækka
miðaverð á hátíöina þar sem ljóst
var að Charlotte yrði ekki með.
Whitney vissi
alltaf að hún væri
alveg sérstök
Söngstjaman Whitney Houston
segir í viðtali við blaðið Daily
News að hún hafi í upphafi ferils
síns vitað að hún væri alveg sér-
stök. Hún hafi því verið sjálfsör-
ugg og viss um eigið ágæti þegar
frægðin knúði dyra. „Ég vissi að
cillt myndi ganga vel,“ segir söng-
konan.
Eitt er það sem hefur valdiö
Whitney Houston heilabrotum.
Það er hvemig slúðurblöðin
virðast stundum vita meira um
það sem gerist í svefnherbergi
hennar en hún sjálf.
Naomi naut lífsins
á Sardiníu
Ofurfyrirsætan Naomi Camp-
bell, sem er 28 ára, tók sér frí frá
tískubransanum á dögunum til
þess að njóta sumars og sólar á
eynni Sardiniu í hlýju Miðjarðar-
hafinu. Með Naomi var unnusti
hennar, ítalinn Flavio Briatore
sem er þónokkuð eldri en hún
eða 49 ára. Hún hefur sennilega
ekki verið kappklædd í sumarhit-
anum og enn fáklæddari verður
hún í fyrsta tölublaði Playboy á
næsta ári. Þar situr hún fyrir
nakin og þykir það til marks um
að dagar hennar í fyrirsætu-
bransanmn séu brátt á enda.
Sviðsljós
Leonardo haslar sér nýjan völl:
Rekur hótel
fyrir elskendur
Hótelrekstur er nýjasta
ævintýri hjartaknúsar-
ans Leonardo DiCaprios
en sá mæti piltur lætur
sér ekki allt fyrir brjósti
brenna nú frekar en fyrri
daginn.
Hötelið, sem er við
Sunset Strip í Los Angel-
es, er hugsað sem athvarf
elskenda og þar er vel
hugað að þörfum þeirra.
Fint og frægt fólk á
þannig að geta notið alls hins besta
og munu herbergin sérútbúin til
rómantískra ástarleikja. Til að
mynda er að finna í hverju herbergi
ótölulegan fjölda kerta auk þess sem
fullorðinsmyndir kváðu ekki vera
langt undan. Hafi menn hugmynda-
flug umfram þetta má alltaf skokka
niður í gjafavöruverslunina sem sel-
ur ýmis hjálpartæki ást-
arlífsins.
„Þetta er frábært hótel.
Leonardo finnst einfald-
lega gaman að skemmta
sér og hvers vegna ekki
að leyfa öðrum að njóta
þess líka,“ sagði starfs-
maður hótelsins i samtali
við fjölmiðla.
Það kemur vart á óvart
að hótelið er komið í hóp
þeirra vinsælustu í Los
Angeles. Meðal gesta sem hafa dvalið
hjá Leonardo má nefna Matt Dillon
og Umu Thurman. Þær stöllur Jenni-
fer Lopez og Gloria Estefan koma víst
næstum daglega í sundlaug hótelsins
og þá varð leikkonan Cameron Diaz
svo hrifin af hótelinu að hún hætti
ekki fyrr en Leonardo fékkst til að
selja henni litinn hlut í því.
Tll í að kyssa konur
en bannar hvítlauk
Kvikmyndaleikkonan Sharon
Stone getur vel hugsað sér að kyssa
konu svo framarlega sem hún lykti
ekki af hvítlauk. Þetta skilyrði setti
hún fyrir þáttöku sinni í sjónvarps-
þáttaröðinni If these walls could
talk.
Þáttaröðin er skrifuð af Anne
Heche sem er sérfræðingur á svæð-
inu því hún býr með Ellen
DeGeneres. Anne Heche hefur hem-
il á afbrýðisemi sinni í þágu listar-
innar og reynir að láta sér fátt um
finnast þótt Ellen kyssi Sharon Sto-
ne ástríðufullum kossum.
En það er ekki bara hvítlaukur
sem er í banni hjá Sharon heldur
einnig grænn pipar og chili. Ellen
verður einnig að neita sér um blá-
ber því tennumar verða mislitar af
þeim. Að þessum skilyrðum upp-
fylltum er Sharon tO í tuskið.
9270-
5C%afsí
27
Sftnc 587 9699
MED 5 GESTASTJORNUM
FRÁ EISTLANDI
HATIt)ARSyNINb
FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
1100 kr. fyrir fullorðna
700 kr. fyrir börn
LAUG. 10/7+ SUN. 11/7 KL. 14.30
^ A HÁSKÓLABÍÓ ^
/ •
Miíasala opin fpa kl. 16.30-23.15 Slltll 530 1919
^ TaJrtu DV jjj sð þur í friið
Fáið DV sent í sumarbústaðinn:
Til þess aö fá DV til sín í fríinu þarf ekki annað
en að hringja í 550 5000 og tilkynna um dvalarstað
og þú færð DV sent sent sérpakkað og merkt á
sölustað nærri dvalarstað.
Sölustaðir sem þjónusta
áskrifendur í sumarbústöðum:
Árborg, Gnúpverjahreppi
Baula, Stafholtstungum, Borgarfirði
Bjarnarbúð, Brautarhóli
Bitinn, Reykholtsdal
Borg, Grímsnesi
Brú, Hrútafirði
Hlíðarlaug, Úthlíð, Biskupstungum
Hreðavatnsskáli
Laugarás, Biskupstungum
Minni-Borg, Grímsnesi
Reykjahlíð, Mývatnssveit
Shell, Egilsstöðum
Shellskálinn, Stokkseyri
Skaftárskáli, Klaustri
Staðarskáli, Hrútarfirði
Varmahlíð, Skagafirði
Veitingaskálinn, Víðihlíð
Verslunin Grund, Flúðum
Verslunin Hásel, Laugarvatni
Þrastarlundur
DV safnað og afhent við heimkomu
Áskrifendur sem fara að heiman í sumarfríinu
og verða í burtu í lengri eða skemmri tíma geta
fengið pakka af DV afhentan við heimkomu.
Það eina sem áskrifendur þurfa að gera er að
hringja í 550 5000 og tilkynna hvenær þeir verða
að heiman. Starfsfólk DV safnar blöðunum
saman á meðan og afhendir þau þegar
áskrifandinn kemur heim aftur.
v
k
r