Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1999, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1999, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 3. ÁGÚST 1999 DV Myndasögur | Faröu .á framlínuna og farðu inn á spítalann og athugaðu Hvemig á ég aðkomast inn? Einfalt! Dulbúðu þig Ekki sem verst... naest getur þú notað tennisfötin 41 X Veiðivon Beðið fyrir betri veiði. Vatnsdalsá: Sá stærsti 24 pund - miklu stærri fiskar í ánni „Við erum komnir með yfir 300 laxa, sá stærsti er 24 pund, en við höf- um séð miklu stærri fiska en þeir fást ekki til að taka, enn þá,“ sagði Pétur Pétursson í veiðihúsinu Flóðvangi við Vatnsdalsá í gærdag. Erlendir veiðimenn hafa verið við veiðar í ánni síðustu daga. „Sá stærsti var 24 pund og 107 sentí- metrar og var sleppt aftur í ána. Þeir eru vænir í Hnausastrengnum, sumir hverjir, en eru kannski ekki brjálaðir að taka hjá veiöimönnum," sagði Pét- ur í lokin. Góð bleikjuveiði hefur verið i Gufu- dalsá og Skálmardalsá. Gengur vel í Hrútafjarðará Veiðin hefur gengið vel í Hrúta- fjarðará og Síká, að sögn Sverris Her- mannssonar leigutaka, og eru komnir yfir 100 laxar á land. Þessa dagana eru Spánverjar í ánni og hefur þeim geng- ið ágætlega. Þegar áin var opnuð í byijun júlí voru komnir laxar á marga veiðistaði hennar og veiðimenn sem voru fyrir fáum dögum í Síká sáu 40-50 laxa þar. Bleikjuveiðin hefur verið fín líka. Þetta er bæði eins og tveggja ára lax sem veiðist. Er þessum mönnum alveg sama? Veiðimenn sem hafa lagt leið sína á hverju sumri til veiða á Hvitár- og Ölf- usársvæðinu eru búnir að fá nóg. Fal- legar veiðiár eru fisklausar vegna hlaupsins í Hagavatni og laxinn kemst ekki leiðar sinnar. Þetta gerist á með- an bændur, sem stunda netaveiði og leggja ekkert í púkkið, mokveiða lax í Ölfusánni dag eftir dag. Þessi netaveiði hefur áhrif á næsta ári og þar næsta og jafnvel lengra fram í tímann. Laxinn sem er að ganga í laxveiði- árnar er tekinn í net fyrir neðan Sel- foss vegna þess að hann kemst ekki lengra enda sér hann lítið sem ekkert fyrir litnum á ánni. Þessi gegndar- lausi veiðiskapur gengur auðvitað ekki lengur og hefði átt að stoppa hann fyrir löngu. Þess vegna hafa veiðimenn útbúið áskorun til Guðna Ágústssonar sem á ^ ættaður er af bökkum Stóru-Laxár í Hreppum. Á svæði eitt og tvö hefur ekki veiðst lax í heilan mánuð og það er aðeins búið að skrifa 3 laxa í bók- ina. Þetta er eins og auðn, blaðsíðan i veiðibókinni, sagði veiðimaður sem þar fyrir nokkrum dögum. í þessari áskorun er farið fram á að gert verði eitthvað í málinu strax, netaveiðar séu að gera út af við svæð- ið og ekki verði hægt að stunda stangaveiði á svæðinu næstu árin verði ekki gert eitthvað núna. Undir þessa áskorun er hægt að skrifa í veiðibúðum en tíminn líður og það hefði þurft að vera búið að gera eitt- hvað. Laxar lenda í netum netaveiði- bænda á hverjum degi og það gengur ekki til lengdar. Þess vegna verður A ráðherra að gera eitthvað í málinu. Svo er líka spurning með þessa neta- veiðibændur. Er þessum mönnum al- gerlega sama um stangaveiði á svæð- inu í framtíðinni? Þeir eiga ekkert í þessum laxi sem lendir í netum þeirra. Hvað hafa þeir sleppt mörgum seið- um? GURSKASSAR Á allar gerðir bíla. ** Verð frá aðeins kr. 19.900,- Gísy JÓNSSON ehf 14, 112 Reykjavík, sími 587 6644 iuAurnatium. Toyota-salurlnn i Njarðvik, aimi 421 4888 Eyrarbakki Nýr umboðsmaður Sigurrós Guðmundsdóttir, Götuhúsum, sími 483 - 1543

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.