Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1999, Qupperneq 8
8
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1999
ELFA
R LEMMENS
HITABLÁSARAR
Fyrir verslanir - iönað - iagera
Fyrir heitt vatn.
Útlönd
Engin von um að fleiri finnist lifandi í húsarústunum:
Glímt við vanda
þeirra sem lifðu
Tyrknesk stjórnvöld hafa nú gefið
upp alla von um að fleiri finnist á
lífi í húsarústunum eftir jarðskjálft-
ann mikla í fyrri viku. Nærri átján
þúsund lík hafa þegar fundist. Nú á
að leggja allt kapp á að reyna að
koma þaki yfir höfuðið á þeim rúm-
lega tvö hundruð þúsund manns
sem misstu heimili sín í hamförun-
um.
Þúsundir Tyrkja hafast við í for-
ugum tjaldbúðum þar sem óánægja
með aðgerðaleysi stjómvalda
kraumar.
„Ríkið hefur slegið upp tjöldum.
Það er allt og sumt. Sjálfboðaliðar
sjá um að gera allt annað,“ sagði
hinn 25 ára gamli Haci Cakir. Þrjá-
tíu manna fjölskylda hans býr í sjö
tjöldum í bænum Gozlementepe.
Bulent Ecevit, forsætisráðherra
Tyrklands, sagði að eyðilegging á
fjarskiptabúnaði, vegum og brúm
Tyrknesk börn sem lifðu af skjálft-
ann leita sér að skóm við hæfi.
hefði tafið fyrir björgunarstarfinu
fyrstu tvo dagana eftir jarðskjálft-
ann. Úrhellisrigning á mánudag
gerði björgunarmönnum síðan
einnig erfitt fyrir.
„Þetta væri erfitt verkefni fyrir
hvaða land í heiminum sem er þeg-
ar fjarskipti truflast og samgöngur
raskast," sagði forsætisráðherrann í
viðtali við sjónvarpsstöðina CNN.
Ecevit sakaði fjölmiðla um að
hafa afbakað fréttir af jarðskjálftan-
um og björgunaraðgerðunum.
Stjómvöld létu loka einni sjón-
varpsstöð í gær vegna fréttaflutn-
ings hennar af skjálftanum. Stöðin,
sem var oft óvægin í garð stjóm-
valda, verður lokuð í eina viku.
Jarðskjálfti sem mældist 4,7 stig á
Richter fannst í tyrknesku höfuð-
borginni Ankara í gærkvöld. Engar
skemmdir urðu en fjöldi fólks þusti
út á götur borgarinnar.
Afköst 10 -150 kw
Öflugustu blásararnir á
markaðnum, búnir
miðflóttaaflviftum og
ryksíum.
Betri hitadreifing - minni
uppsetningarkostnaður,
lægri rekstrarkostnaður.
Hagstætt verð
MmM Farestveit & Co.hf.
Borgaitúni 28 g S62 2901 Qj; 562 2900
Engir Rússar
enn í Orahovac
Alþjóðlegir friðargæsluliðar
ætla að reyna enn á ný í dag að
koma rússneskum gæslusveitum
inn til bæjarins Orahovac í
Kosovo. Bandarísk stjórnvöld
hafa lýst stuðningi við Rússana
en íbúar Orahovac vilja ekki sjá
þá og hafa sett upp vegatálma.
$ SUZUKS
TILBOÐ
Chevrolet S-10, skr. 7/'91,
ek. 75 þús. km, ssk., 2 dyra.
Verð var 590 þús.
Nú aðeins 450 þús.
TILBOÐ
Ford Mondeo Ghia, skr.
1/'98, ek. 18 þús. km, bsk.,
4 dyra.
Verð var 1750 þús.
Nú aðeins 1590 þús.
Suzuki Baleno GLX, skr. 6/'96,
ek. 56 þús. km, ssk., 4 dyra.
Verð 990 þús.
Suzuki BalenoWG, skr. 1/'98, ek.
35 þús. km, ssk., 5 dyra.
Verð 1320 þús.
Suzuki Swift GLS, skr. 12/'98,
ek. 38 þús. km, bsk., 3 dyra.
Verð 810 þús.
Suzuki Swift GLX, skr. 6/'98, ek.
22 þús. km, bsk., 5 dyra.
Verð 870 þús.
Suzuki Vitara SE, skr. 8/'98, ek.
17 þús. km, bsk., 5 dyra.
Verð 1750 þús.
BMW 318IA, skr. 7/'96, ek. 51
þús. km, ssk., 4 dyra.
Verð 1990 þús.
Daihatsu Ferosa EL, skr. 7/'94,
ek. 70 þús. km, bsk., 3 dyra.
Verð 820 þús.
Ford Escort CLX, skr. 11/'95, ek.
43 þús. km, bsk., 3 dyra.
Verð 890 þús.
Suzuki Baleno GL, skr. 5/'96, ek.
43 þús. km, bsk., 4 dyra.
Verð 890 þús.
Hyundai Accent GSI, skr. 7/'97,
ek. 24 þús. km, bsk., 3 dyra.
Verð 790 þús.
Hyundai Elantra, skr. 11/‘93, ek.
99 þús. km, ssk., 4 dyra.
Verð 690 þús.
MMC Colt GLXI, skr. 3/'93, ek.
95 þús. km, ssk., 3 dyra.
Verð 730 þús.
MMC Lancer GLX, skr. 10/'96,
ek. 66 þús. km, bsk., 5 dyra.
Verð 1150 þús.
MMC Lancer GLX, skr. '91,
ek. 110 þús. km, bsk., 5 dyra.
Verð 490 þús.
Nissan Sunny WG, skr. 8/'91,
ek. 103 þús. km, bsk.
Verð 690 þús.
Opel Corsa, skr. 10/'97,
ek. 36 þús. km, bsk., 3 dyra.
Verð 880 þús.
Subaru Legacy WG, skr. 8/'92,
ek. 124 þús. km, bsk.
Verð 940 þús.
Toyota Corolla XL, skr. 6/'95,
ek. 85 þús. km, ssk., 5 dyra.
Verð 850 þús.
Einnig nokkrir bílar á gjafverði.
Kynntu þér málið!_____________
SUZUKIBILAR HK
Skeifunni 17 • Sími 568 5100
www.suzukibiiar.is
Bórís Jeltsín Rússlandsforseti faðmaði Jiang Zemin Kínaforseta að sér þeg-
ar þeir hittust á vinnufundi í Bisjket, höfuðborg Kýrgýstan, í morgun. Þar eru
einnig leiðtogar þriggja fyrrum Sovétlýðvelda í Asíu.
Skólp í
dýrafóðri
Nýtt hneyksli vegna mengaðs
dýrafóðurs er í uppsiglingu i Frakk-
landi. Þar hefur fóðurframleiðandi
blandað úrgangi úr hreinsibúnaði
fyrirtækis síns saman við fóður
handa kjúklingum og svínum. Sam-
kvæmt þýskum sjónvarpsþætti er
talið að fóðurframleiðandinn hafi
einnig blandað venjulegi skólpi við
fóðrið. Grunur leikur á að margir
aðrir fóöurframleiðendur í Frakk-
landi og Bretlandi hafi notað sömu
aðferð.
Ekki er ljóst hversu lengi sóða-
skapurinn hefur átt sér stað.
Franska iðnaðarráðuneytið hefur
staðfest að skolpi hafi verið blandað
saman við fóður í mörg ár. Yfirvöld
hafa nú lokað fyrrgreindu fyrirtæki.
Enn er ekki vitað hvort skólpið
hefur valdið skaða á fólki. Hætta er
þó talin á þvi þar sem hættulegar
bakteríur og eiturefni geta verið I
skólpinu.
Samkvæmt frétt blaðsins
Intemational Herald Tribune stöðv-
aði stór þýsk matvælaverslunar-
keðja sölu á frönsku svínakjöti síð-
astliðinn föstudag. Evrópusamband-
ið hefur einnig brugðist harkalega
við nýja fóðurhneykslinu. Hefur
sambandið ritað frönskum yfirvöld-
um áríðandi bréf og krafist skýr-
inga. „Séu upplýsingarnar sem við
höfum fengið sannar þýðir það
mikla hættu fyrir heilsu manna,"
sagði Thierry Daman, talsmaður
landbúnaðardeildar sambandsins.
Stuttar fréttir i>v
Ríkjasambandi ógnað
Edmund Joensen, fyrrum lög-
maður Færeyja, segir það skyldu
Færeyinga að standa vörð um
ríkjasambandið við Dani. Hann
segir að aldrei áður hafl því verið
jafnmikið ógnað og nú. Færeyska
landstjómin undirbýr nú aukið
sjálfstæði eyjanna.
Grænir elta Clinton
Umhverfisverndarsinnar í
Bandaríkjunum þrýsta nú mjög á
Bill Clinton for-
seta að banna
fyrir fullt og
allt alla vega-
lagningu í skóg-
lendi í ríkis-
eign. Græningj-
arnir láta flytja
áskoranir sínar
í auglýsingatíma útvarpsstöðva
vestra.
Efnavopn gegn Albönum
Eiturefnasérfræðingur Samein-
uðu þjóðanna segir rannsóknir
hafa leitt í Ijós að Serbar hafi
beitt efnavopnum gegn frelsisher
Kosvovo. Um 4 þúsund Albanar
eru taldar hafa skaðast af efna-
vopnunum.
Ræningi skotinn til bana
Sænska lögreglan skaut í gær
til bana ræningja og handtók ann-
an við pósthús í Jarna í Sviþjóð.
Robertson aölaður
George Robertson, varnarmála-
ráðherra Bretlands og verðanda
framkvæmda-
stjóri NATO,
hlaut titil lá-
varðar 1 gær.
Það þýðir að
Robertson fær
sæti í efri deild
þingsins og þar
með getur
Verkamanna-
flokkurinn flýtt aukakosningum
til neðri deildarinnar. Þær verða
nú haldnar í september í stað
október. Kosningamar verða
haldnar sama dag og Skoski þjóð-
emissinnaflokkurinn heldur árs-
fund sinn.
Eldflaugaárás
Fjöldi lést í eldflaugaárás í gær
í aðalstöðvum talebana í Afganist-
an. Æðsti leiðtogi talebana, Mo-
hammed Omar, slapp ómeiddur.
Ný tungumáladeila
Ný deila um hvaða tungumál
eigi að tala á fundum Evrópusam-
bandsins virtist í uppsiglingu í
gær þegar Spánverjar sögðust
mótfallnir þýsku.
Skotárás á N-írlandi
íri særðist á fæti í skotárás
vopnaðra sveita á N-írlandi síð-
astliðna nótt.
Verkfall í S-Afríku
Hundruð þúsunda opinberra
starfsmanna í S-Afríku efndu í
gær til verkfalls. Kröföus’t þeir
samningaviðræðna um launamál.
Gates gefur milljarða
Tölvukóngurinn Bill Gates ætl-
ar að lofa öðrum að njóta góðs af
auðæfum sín-
um. Hann hefur
gefið um 40
milljarða ís-
lenskra króna í
sjóð sem verja á
fé úr til heil-
brigðis- og
menntamála. í
sjóðnum eru nú yfir 1 þúsund
milljarðar íslenskra króna.
Njósnahneyksli
Umfang njósnahneykslisins i
Sviss jókst í gær er tveim háttsett-
um mönnum leyniþjónustunnar
var vikið úr starfi. Njósnaforing-
inn Regli er sakaður um að hafa
reynt að stofna leyniher.
Samþykkja friö
Skæruliðaleiðtogar í Kongó
segjast reiðubúnir að undirrita
friðarsamkomulag sem binda á
enda á 1 árs borgarastríð.