Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1999, Page 10
10
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1999
Spurningin
Áttu þér átrúnaðargoð?
Fróði Jóhannesson hjólabretta-
töffari: „Já, líklega. Þaö er Keith
Flint úr Prodigy ... nei, annars: Pet-
er Smolek."
Daniel Páll Kjartansson hjóla-
brettagæi: „Ég virði Chad Muska
mikils. Hann er skeitari."
Guðjón Smári Guðmundsson:
„Átrúnaðargoðið mitt er Róbert
Tómasson. Af því að hann er ofboðs-
lega fmn náungi.“
Iben Höger, Dani: „Ég býst við að
ég ætti að nefna kærastann minn en
ég er ekki viss um að ég vilji það!“
Jóhann Gylfason: „Já, það er
Timothy Leary."
Bjarney Jóhannesdóttir: „Já.
Clint Eastwood. Hann er flottastur."
Lesendur
Níðingsverk gegn
kristnitökunni
- lítilsviröing við allt sem heilagt er
Þorleifur Kr. Guðlaugsson skrifar:
Nú hefur eitt mesta níðingsverk
gegn kristnitökunni á íslandi verið
unnið. Og það á þúsund ára afmæl-
inu, með því að koma fyrir merki
heiðinna við dyr Dómkirkju lands-
manna. Hvílík skömm og lítilsvirð-
ing við kristna trú! Virðist nú sem
ganga verði yfir merki heiðinna svo
að flytja megi heiðnina inn í kirkju
Krists. Maður hefði ekki trúað því
að svona nokkuð gæti gerst.
Þetta veldur því að ekki er hægt
að viðurkenna kirkjuna sem sitt trú-
félag. En boðskapur Jesú Krists er
og verður hinn sami þótt maður flýi
kirkjuna sína. Hann breytist ekki
þótt flóttamannahópur kljúfi sig frá
kristnum söfnuði, vegna níðings-
verka heiðingja sem ætla sér leyfist
með brögðum og slóttugheitum að
sundra kristnum söfnuðum.
Maður verður víst að taka undir
það að Satan er í þjónustu heiðingja,
og virkjar af fullum krafti þjóðfélag
eins og okkar. Þess sér glöggt merki í
ýmsum þjóðlífsþáttum, svo sem hjá
samkynhneigðum sem gera sér far
um að sundra boði guðs. Prestar vor-
ir ásamt kvikmyndaiðnaðinum gera
sér far um að brjóta þessi boð og kepp-
ast við að sýna sem mest af ómenn-
ingu og lítilsvirðingu við boðskap
kristninnar trúar og heilbrigt líferni.
Þessa skömm veröur að afmá. -
Mála verður með svörtu yfir heiðni-
markið við Dómkirkjuna til viðvör-
unar glötunar sálna sem nú mun
kunnugt að guðs þrenning er vegur-
inn til lífsins og uppskrift að lífi eft-
ir dauðann í þúsund ár. Máski væri
svarti bletturinn við kirkjudyr við-
vörun gegn Satan. En hvað vill ís-
lensk þjóð? Mitt mat er að hún sé
ekki fær um að halda hátíð í kristn-
um sið, með lítilsvirðingu við allt
sem heilagt er. Þetta er orðið mat
margra annarra íslendinga.
Ásatrú og heiðni ásamt tilheyr-
andi manndrápum, mannfyrirlitn-
ingu og stöðu manneskjunnar á
Sturlungaöld er liðin tíð, þótt svo
sem ekki skorti sumt af þessu í þjóð-
félaginu enn í dag.
Ásatrúin uppvakin, og nú við dyr Dómkirkjunnar. - Verða kristnir neyddir til að bera með sér heiðnina inn í kristin-
dóminn?
Helgi Hjörvar segir satt
Halldór Gunnarsson skrifar:
Ofboðslega getur trú manna á
sumum stjórnmálamönnum verið
mikil. Ég las t.d. lesendabréf Einars
Halldórssonar í DV sl. miðvikudag,
en þar segir hann: „Ég las nýlega í
DV stutt viðtal við núverandi forseta
borgarstjórnar, þar sem hann neit-
aði staðfastlega að athafnamaðurinn
Jón Ólafsson hefði nokkru sinni
styrkt R-listann fjárhagslega með
svo mikið sem einni krónu. Þetta
verður maður nú að telja sannleik-
anum samkvæmt. Það ætti því að
fara að linna þeim áburði sem marg-
nefndum Jóni hefur verið núið um
nasir, að hann hafi lagt fram svo og
svo mikið fé i kosningasjóði núver-
andi meirihluta borgarstjórnar
Reykjavíkur." - Þá vitum við það.
Ef Helgi Hjörvar segir að hlutirn-
ir séu svona, þá eru þeir svona og
ekkert öðruvísi. Ég vil minna menn
á að hafi verið gert grín að einhverj-
um stjórnmálamanni fyrir að þurfa
að éta yfirlýsingar ofan i sig, þá er
það Helgi Hjörvar. - Hver man ekki
eftir sjónvarpsfréttum þar sem spil-
að var viðtal við hann aftur og aftur
lofandi Reykvíkingum að lækka
gjöld á þá. Og búi ofannefndur Einar
í Reykjavík, þá hefur Helgi Hjörvar
hækkað öll gjöld sem hægt er að
hækka á Einar. En segi Helgi Einari
að sólin komi upp í vestri og setjist í
austri og gjöld hafi lækkað á Reyk-
víkinga, þá verður hann bara að
trúa því.
Mig minnir að á sínum tíma hafi
fjármálastjóri Stöðvar 2 og Jón
Ölafsson staðfest að auglýsinga-
skuldir R-listans hafi verið strikað-
ar út. Ég fullyrði ekki að svo hafi
verið, en enginn hefur neitað því,
mér vitanlega, nema Helgi Hjörvar.
- En hvað er svona óskaplegt við
það að þiggja fé frá nefndum Jóni?
Ég bara spyr.
Jarðskjálftar um víðan heim
- hvað myndum við gera?
Eyþór skrifar:
Nú er íslenskur björgunarhópur
enn staddur í Tyrklandi þegar þetta
er skrifað. Ég er sannarlega ekki á
móti því að við íslendingar sendum
liðstyrk til slikra hörmungarsvæða
sem nú eru orðin í Tyrklandi. Ég
verð þó að segja að mér finnst um-
mæli sem höfð hafa verið eftir ein-
hverjum talsmanni okkar hóps í
Tyrklandi, um að hópurinn vildi
helst halda áfram að leita að slösuö-
um undir rústunum, ekki við hæfi.
Það er vitað að ekki munu miklu
fleiri finnast lifandi undir rústum
þar í landi, og ráðamenn í Tyrk-
landi hafa aflýst frekari aðgerðum í
þessa átt. Erlendir björgunarmenn
taka það enda til greina og bjuggust
strax til brottfarar.
Ég er ekki viss um að við íslend-
ingar vitum svo gjörla hvað hér
myndi verða viö svipaöar voðaað-
Ég er ekki viss um að við íslendingar vitum svo gjörla hvað hér myndi verða
við svipaðar voðaaðstæður og nú sköpuðust í Tyrklandi, segir m.a. í bréfinu.
stæður og nú sköpuðust í Tyrk-
landi. Þar og víðast annars staðar er
þó herlið til reiðu og sem ávallt er
kallað til aðstoðar í þessum tilvik-
um. Við höfum ekkert álíka batterí,
ekki einu sinni heimavarnarlið. Ég
tel það skyldu yfirmanna Almanna-
varna að vera ávallt viðbúnir hvers
kyns áfollum, ekki síst stórum jarð-
skjálftum, sem eru ógnvænlegastir,
og að ekki sé sendur brott héðan í
einum hópi kjarninn í björgunar-
sveitum þeim sem við þó eigum,
ásamt æðsta yfirmanni Almanna-
varna á íslandi. Jarðskjálftar eru
víða um heim, og við vitum aldrei
hvenær svona ríður yfir hér. Og
hvað myndum við gera þá?
[Ug@lllftníP)Æt þjónusta
allan sólarhringinn
HHr\ H rU) H
V-JÍ) -JUÖ-J
Lesendur geta sent mynd af
sér með bréfum sínum sem
birt verða á lesendasíðu
I>V
Er hægt að
„vísitera
lavabreiður"?
Stefanía hringdi:
Mér er óskiljanlegt að íslenskt
menntafólk, og þ. á m. fólk sem
ábyrgt verður að teljast fyrir því að
íslenskan sé í fyrirrúmi í rituðu og
töluðu máli, skuli ekki herja á
gamlar dönskuklisjur sem óþarfi
ætti að vera að nota í dag. Ég tek
dæmi af heimsóknum biskups ís-
lands um landið þar sem hver íjöl-
miðillinn étur enn upp orðskrípið
„vísitasía" biskups. Hann er nú að
„vísistera" hin og þessi prestaköll.
Hvílíkur héra- og undirlægjuhátt-
ur! Og í útvarpsþætti nýlega kom
kona ein úr listageiranum með enn
eina upptugguna eftir öðrum
menntasnobbum og talaði um
„lavabreiðurnar" á íslandi. En i al-
vöru talað: Er hægt að „vísitera
lavabreiðumar" á hálendinu?
Tilvistarkreppa
Ríkisútvarpsins
S.P.Ó. skrifar:
Ég tek undir með menntamála-
ráðherra sem fullyrðir að Ríkisút-
varpið sé í tilvistarkreppu sem
eykst og eykst. Að sjálfsögðu er
þarna fyrst og fremst um að ræða
hina geysilegu óvinsælu nauðung-
aráskrift sem gildir bæði fyrir
hljóðvarp og sjónvarp á vegum rík-
isins. Ef nú aðeins annað þessara
fyrirbæra væri háð skylduáskrift,
og þá á ég að sjálfsögðu við hljóð-
varpið (ekki þó Rás 2), þá væri
andúðin mun minni, að mínu mati.
En að ríkisvaldið skuli enn á fjár-
lögum veita fjármuni til að halda
úti afþreyingu í formi sjónvarps,
sem er svo engin afþreying, það er
allsendis óverjandi. Ég segi þvi:
burt með Sjónvarpið úr nauðungar-
áskrift til að byrja með og sjáum
svo hvað setur, sjáum hvort tilvist-
arkreppa hins opinbera fyrir hönd
RÚV minnkar ekki.
Ótrúlegt klúður
hjá SVR
Eiríkur skrifar:
Enn einu sinni hefur það sýnt
sig að SVR er illa rekið og nánast
stjómlaust fyrirtæki. Nýlega var
frétt í DV um það þegar tveim
manneskjum var meinað um far
með strætisvagni vegna þess að
önnur þeirra var fötluð. Fram kom
að vagnstjórum væri óheimilt að
flytja fatlaö fólk. Þegar blaðið
hringdi í staðgengO forstjóra SVR
fengust þau svör að þarna hefðu
orðið mistök og flytja hefði átt við-
komandi einstakling. Ég hringdi
lika eftir lestur fréttarinnar og fékk
þau svör að skýr fyrirmæli væru
frá yfirstjóm SVR um að fatlaðir
einstaklingar í hjólastólum væru
ekki fluttir með vögnunum. En
þrátt fyrir eftirgrennslan DV virð-
ist enn ekki fást úr því skorið'hvort
fötluðum sé heimilt að ferðast með
SVR. Greinilegt er að hjá yfirstjórn
SVR veit hægri höndin ekki hvað
sú vinstri gerir, og öfugt.
Þakkir til
Ragnars Fjalars
Reykvíkingur hringdi:
Mig langar til að þakka Ragnari
Fjalari Lámssyni presti fyrir ein-
staklega röggsamleg skrif í Mbl.
þann 20. ágúst sl. Greinin hét
„Ósóminn innsiglaður" og var
ádrepa á þá opinberu aðila sem eru
í þann veginn að festa Reykjavíkur-
flugvöll til framtíðar í Vatnsmýr-
inni. Það er með ólíkindum að ekki
skuli vera tekið af hörku á þessu
máli, eins og það er ógeðfellt að
ætla að endurbyggja Reykjavíkur-
flugvöll frá grunni við þær aðstæð-
ur sem höfuðborgin býr við í land-
leysi og knýjandi þörf fyrir að rétta
af miðöorgarkjarnann með bygging-
um, bæði fyrir íbúabyggð og fyrir-
tæki í Vatnsmýrinni. Undirskrifta-
söfnun gegn ósómanum er brýn
áður en hann verður innsiglaður
sem áframhaldandi dauðagildra og
lýti á þessum bletti í borginni.