Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1999, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1999, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1999 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON Aöstoóarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverö á mánuöi 1900 kr. m. vsk. Lausasöluverð 170 kr. m. vsk., Helgarblað 230 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og i gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viömælendum fyrir viðtöl við þá eöa fyrir myndbirtingar af þeim. Dreift eignarhald og verðmæti Hugmyndir Davíðs Oddssonar forsætisráðherra um að selja 51% hlut ríkisins í Fjárfestingarbanka atvinnu- lífsins í einu lagi eru langt í frá fráleitar. Rökin sem sett hafa verið fram vega hins vegar ekki þungt. Þegar hafist var handa við sölu á 49% hlut ríkisins í Fjárfestingarbankanum á liðnu ári mátti öllum vera ljóst að hugmyndir um dreifða eignaraðild og hámarks- verð á hlutabréfunum færu ekki saman. Fjárfestir er ekki tilbúinn að greiða hlutfallslega jafnhátt verð fyrir fyrir lítinn áhrifalausan hlut og fyrir stóran ráðandi hlut. Með litlum hlut verður fjárfestirinn að treysta á stjórnendur til að gæta fjárfestingarinnar. Komist fjár- festir hins vegar yfir ráðandi hlut getur hann haft áhrif á stefnu og störf fyrirtækisins og haft þannig bein áhrif á mögulega ávöxtun fjárfestingarinnar. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hefur haft það að markmiði að draga ríkið út úr fjár- málafyrirtækjum og við einkavæðinguna hefur verið stefnt að dreifðri eignaðaraðild. Eftir að eignarhalds- félagið Orca S.A. keypti hlut sparisjóðanna og Kaup- þings í Fjárfestingarbankanum hefur forsætisráð- herra haldið því fram að til greina komi að selja 51% hlut ríkisins í einu lagi. Forsætisráðherra heldur því fram að með kaupunum hafi stefna ríkisstjórnarinnar um dreifða eignaraðild verið eyðilögð. Til að vernda verðmæti hlutar ríkisins sé því best að selja hann í einu lagi. Hér verður það látið liggja á milli hluta hvort kaup Orca S.A. á hlutabréfunum hafi eyðilagt stefnu ríkis- stjórnarinnar í einkavæðingu fjármálakerfisins, þó vert sé að hafa í huga að vart getur verið mikill mun- ur á eignarhaldi Orca og sparisjóðanna og Kaupþings. En það er sjálfsblekking að ætla að hugmyndir um dreifða eignaraðild standi um aldur og ævi. Fyrr eða síðar mun eignarhald á hlutafélögum á hlutabréfa- markaði þéttast - það myndast ákveðinn kjarni fjár- festa sem tekur að sér leiðtogahlutverk. Við því er ekk- ert að segja og raunar bendir flest til að það sé æski- legt, jafnt fyrir almenna hluthafa sem fyrirtækið sjálft. Rómantískar hugmyndir um dreift eignarhald eru hins vegar um margt skynsamar þegar fyrstu skrefin í einkavæðingu eru tekin. Rökin fyrir því að selja það sem eftir stendur af hlut ríkisins í Fjárfestingarbankanum í einu lagi eru jafn- gild nú og þau voru á síðasta ári þegar hafist var handa við einkavæðinguna. Hafi það verið markmið að há- marka verðmæti hlutabréfanna var engin skynsemi í því að stefna að dreifðri eignaraðild. Það er einfaldlega ekki hægt að tryggja dreifða eign- araðild og jafnframt hámarka það verð sem ríkið fær fyrir hlutabréfin í Fjárfestingarbankanum. Þetta tvennt getur aldrei farið saman. Hafi ríkið ætlað sér að ná fram dreifðri eignaraðild í upphafi var um leið búið að taka þá ákvörðun að sætta sig við lægra verð fyrir hlutabréfin. Sú ofuráhersla sem ríkisstjómin hefur lagt á dreifða eignaraðild hefur villt mönnum sýn á það sem mestu skiptir. Markmiðið á og verður að vera að losa hið op- inbera út úr rekstri sem það á ekkert með að hafa með höndum - ekki síst þegar sá rekstur er í beinni eða óbeinni samkeppni við einkaaðila. Dreifð eignaraðild getur verið markmið til skamms tíma en gengur ekki upp þegar litið er til framtíðar. Óli Björn Kárason Greinarhöfundur segir að hugsanlega geri menn sér ekki almennt grein fyrir því hve ör þróun er innan stóru sjúkrahúsanna þar sem stöðugt er gripið til nýrra aðferða og tækni. - Landspítalinn fær nýtt hjartatæki. Beinmergsflutning- ur á Landspítala hæfi beinmergsflutn- inga þar sem um er að ræða að notast við eig- in beinmerg. Formaður nefndarinnar var Ás- geir Haraldsson, pró- fessor 1 barnalækning- um og forstöðulæknir Barnaspítala Hrings- ins. Tvær aðrar tegund- ir beinmergsflutnings eru til, flutningur bein- mergs frá ættingja og flutningur frá óskyld- um aðila sem hefur sama vefjaflokk. Ekki er mælt með að taka upp beinmergsflutning við þessar tvær seinni aðstæður. Gera má ráð fyrir að í „17/ þess að halda okkar heil- brigöisþjónustu í fremstu röð verðum við að fylgjast með, halda þróuninni vakandi, gæta eldsins. Þar er mikilvægt að gera sjúkrahúsunum fært að grípa til nýrrar tækni.“ Kiallarinn Guðmundur G. Þórarinsson verkfræðingur Nú er unnið að því að hefja bein- mergsflutninga á Landspítala innan skamms. Hér er um mjög mikilvægt skref í þjónustu sjúkrahússins að ræða. í fyrsta lagi má gera ráð fyrir að beinmergsflutninga megi gera hérlendis fyrir svipaðan kostnað og erlendis ef ekki minni. í öðru lagi er um að ræða mikið hag- ræði fyrir sjúklinga sem þurfa á þessari þjónustu að halda. f stað þess að fara á sjúkrahús í fram- andi umhverfi með tilheyrandi ferða- kostnaði verður unnt að fá bót hér heima. í þriðja lagi er mikilvægt fyrir íslensku heilbrigðis- þjónustuna að sækja fram, þróa starfsemina, bæta við nýjum þáttum. Allt eflir þetta heil- brigðisþjónustu okkar til langframa og eykur ör- yggi þjóðarinnar. Notast við eigin beinmerg Fyrir tveim árum skilaði undir- búningsnefnd áliti þar sem hún mælti með því að Landspítalinn framtíðinni þurfl 10-15 íslending- ar á beinmergsflutningi eða stofn- frumugjafar með eigin frumum að halda. Árið 1996 t.d. fóru 16 íslend- ingar utan í þessum erindagjörð- um í samtals 23 ferðir. Heildar- kostnaður Tryggingastofnunar ríkisins getur numið um 60 m.kr. á ári. Stofnkostnaður við að taka upp þessa aðgerð hérlendis er vart meiri en ca 25 m.kr. Margt bendir til að stofnfrumu- ígræðslu muni í framtíðinni verða beitt í baráttunni gegn fleiri sjúk- dómum en hvítblæði, t.d. gegn fleiri tegundum krabbameins. fs- lendingar hafa á undanfórnum árum leitað t.d. til Englands, Hollands, Svíþjóðar, Noregs og Bandaríkjanna vegna þessarar að- gerðar. Þróun læknisfræðinnar á íslandi Oft er rætt um að heilbrigðis- þjónustunni sé þröngur stakkur skorinn fjárhagslega. íslendingar geta þó borið höfuðið hátt þegar rætt er um gæði á þessu svið. Til þess að halda okkar heilbrigðis- þjónustu í fremstu röð verðum við að fylgjast með, halda þróuninni vakandi, gæta eldsins. Þar er mik- ilvægt að gera sjúkrahúsunum fært að grípa til nýrrar tækni. Þessi tækni hefur verið í notk- un í 30 ár en með stöðugt betri ár- angri og nú er svo komið að fjöldi þeirra sem þurfa á þessari þjón- ustu að halda er slíkur að einnig er fjárhagslega hagkvæmt að hefja þessar iækningaaðgerðir hér á landi. Ef til vill gera menn sér ekki almennt grein fyrir því hve ör þróun er innan stóru sjúkra- húsanna þar sem stöðugt er gripið til nýrra aðferða og tækni. Hér er aðeins drepið á eitt atriði. Guðmundur G. Þórarinsson Skoðanir annarra Engin sátt um Reykjavíkurflugvöll „Stjómvaldsákvarðanir um breytt deiliskipulag af flugvellinum eða endurbætur á flugbrautum tryggja enga sátt um flugvöllinn eins og samgönguyfirvöld virðast gera sér vonir um ... Það er hvorki við hæfi að æðsti ráðamaður samgöngumála tali með slíkum hætti né heldur að hann geri sér það að leik að búa til pólitískan gambít úr máli sem varðar borgarbúa og raunar landsmenn alla jafn miklu og framtíð flug- vallarins." Ingibjörg Sólrún Gísladóttir í yfirlýsingu sinni í Mbl. 24. ágúst. Sparisjóðir mynda uppnám „Þegar sparisjóðirnir tóku ákvörðun um að selja hlutabréfaeign sína í Fjárfestingarbanka atvinnulífs- ins hf. til Orca SA hleyptu þeir einkavæðingar- áformum ríkisstjórnarinnar í uppnám. Það var yfir- lýst stefna ríkisstjórnarinnar að tryggja dreifða eign- araðild að ríkisbönkunum við einkavæðingu þeirra ... Eftir sölu sparisjóðanna á hlutabréfunum til eins aðila, Orca SA, var ljóst að ríkisstjórnin var komin í mjög erfiða aðstöðu. Sala þeirra hlutabréfa í dreifðri sölu, sem enn eru í eigu ríkisins, var og er í raun ákvörðun um að Orca-hópurinn verði ráðandi aðili í FBA ... Ákvörðun sparisjóðanna um að selja sinn hlut til Orca SA jafngilti því ákvörðun um að verðfella þann hlut ríkisins, sem eftir stendur, yrði hann seldur í dreifðri sölu.“ Úr forystugrein Mbl. 24. ágúst. Rjúpnastofninn styrkist „Það á ekkert að friða rjúpuna, enda er nóg af henni. Ég bendi til dæmis á árið í fyrra, þá voru mjög slæm veðurskilyrði til veiða og því veiddist afar lítið. Það styrkir aftur stofninn í ár. Einnig heyri ég það á veiðimönnum sem hingað koma í búð- ina til mín að þeim finnist vera nóg af rjúpu á þeim svæðum hér á Norðurlandi sem helst og mest er sótt á, en þau eru einkum í Þingeyjarsýslunum." Páll Pálsson, kaupmaður á Akureyri, í Degi 24. ágúst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.