Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1999, Síða 26
58
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1999
Afmæli
>
>
%
-i
Sonja Margrét Gránz
Sonja Margrét Gránz
saumakona, Grenilundi
5, Garðabæ, varð sextug
í gær, þann 24.8.
Starfsferill
Sonja fæddist og ólst
upp i Vestmannaeyjum.
Hún er gagnfræðingur
frá Gagnfræðaskóla
Vestmannaeyja. Hún
ólst upp í
foreldrahúsum til 17 ára
aldurs og fór þá til Reykjavíkur til
að starfa á Kleppsspítala um tíma.
Sneri síðan til heimabyggðar þar
sem hún stimdaði ýmis störf næstu
árin. Frá 20 ára aldri hefur Sonja
starfað sem húsmóðir á sínu stóra
heimili, alið upp sjö barna hóp auk
þess sem hún tók að sér yngstu
systkini sín um tíma eftir að móðir
þeirra lést á besta aldri. Sonja hefur
unnið ýmis störf með fram
heimilis- og uppeldisstörfum en
Sonja Margrét Gránz.
lengst af sem
saumakona.
Fjölskylda
Eiginmaður Sonju er
Hlöðver Pálsson, f. 15.4.
1938, húsa- og húsgagna-
smíðameistari. Foreldr-
ar hans voru Þórsteina
Jóhannsdóttir, húsmóð-
ir frá Brekku í Vest-
mannaeyjum, og Páll
Sigurgeir Jónasson,
skipstjóri frá Brekku á
Eskifirði. Þau eru bæði látin. Þau
bjuggu allan sinn búskap í Þing-
holti í Vestmannaeyjum.
Börn Sonju og Hlöðvers eru:
Ólafur Ómar, f. 28.11.1959, trésmið-
ur og umsjónarmaður, kona hans
er Sigríður Thorsteinson umsjón-
armaður, þau eru búsett á Flúðum;
Geir SigurpáLl, f. 3.1.1964, master í
byggingaverkfræði, kona hans er
Jóna Lind Sævarsdóttir nemi, þau
eru búsett í Árósum í Danmörku;
Ástþór, f. 20.3. 1966, matreiðslu-
meistari og nemi i rafvirkjun, kona
hans er Helga S. Guðmundsdóttir,
þjónustufulltrúi í Sparisjóði Hafn-
arfjarðar, þau eru búsett í Hafnar-
firði; Vignir Þröstur, f. 25.5. 1967,
unnusta hans er Lilja Björk Hauks-
dóttir nemi, þau eru búsett í Kópa-
vogi; Hlöðver, f. 16.3. 1972, nemi 1
vélaverkfræði, kona hans er Mar-
grét Perla Kolka Leifsdóttir nemi,
þau eru búsett í Álaborg í Dan-
mörku; Róbert Karl, f. 12. 10. 1978,
nemi, unnusta hans er Erla María
Árnadóttir nemi; Víóletta Ósk, f.
18.11.1979, nemi, unnusti hennar er
Sverrir Örn Gunnarsson nemi. Ró-
bert Karl og Víóletta búa enn þá í
foreldrahúsum. Alls eru bamabörn
Sonju og Hlöðvers tólf.
Systkini Sonju eru: Carl Ólafur,
f. 16.1. 1941, framkvæmdastjóri,
kona hans er Iðunn Guðmundsdótt-
ir kennari, þau búa í Rvík;
Víóletta, f. 12.9. 1945, ritari, maður
hennar er Eyþór Bollason vél-
smíðameistari, þau eru búsett i
Hafnarfirði; Róbert Helgi, f. 22.5.
1947, sölumaður, kona hans er Jó-
hanna Ingimundardóttir verslunar-
maður, þau eru búsett í Hafnar-
firði; Henrý Þór, f. 17.12. 1948,
tæknifræðingur, kona hans er Ingi-
björg Sigurðardóttir kennari, þau
eru búsett í Kópavogi; Hulda Ósk, f.
6.7. 1954, fulltrúi í Garðabæ, gift
Hannesi Gíslasyni fjármálastjóra,
þau era búsett í Garðabæ.
Foreldrar Sonju voru Ólafur
Adolf Granz, f. 4.3. 1912, d. 14.8.
1960, húsasmíðameistari, ólst upp í
foreldrahúsum í Vestmannaeyjum
og Ásta Ólafsdóttir Granz, f. 8.1.
1916, d. 23.4. 1967, húsmóðir, ólst
upp í foreldrahúsum á Skoravík á
Langanesi. Ásta og Ólafur bjuggu
lengst af í Jómsborg í
Vestmannaeyjum.
Sonja og Hlöðver munu taka á
móti vinum og vandamönnum á
heimili sinu laugardaginn 28. ágúst
nk. kl.17.00-22.00.
Kristján Þráinn Benediktsson
Kristján Þráinn Benediktsson
flugstjóri, Logafold 110, Reykjavík,
er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Kristján fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann lauk landsprófi
frá Hlíðardalsskóla árið 1966.
Stundaði flugnám hjá Flugsýn hf. og
var flugmaður hjá Vængjum hf.
1971. Flugmaður hjá Flug-
þjónustunni á Egilsstöðum
1971-1973 og hjá Flugfélagi Austur-
lands frá 1973-1975. Flug-maður hjá
Vængjum 1975-1979. Flugmaður hjá
Schreiner Airways (Holland) 1979 í
Fréttir
Nígeríu, Malasíu og Líbýu í 7 ár,
eða til júní 1988, er hann hóf störf
hjá Cargolux í Lúxemborg þar sem
hann starfar enn.
Fjölskylda
Þann 21.8. 1971 giftist Kristján
Þórdísi V. Bragadóttur, f. 27.7. 1947,
leikskólakennara og móttöku-
ritara. Foreldrar hennar eru Bragi
Magnússon, f. 14.1. 1917, lögreglu-
varðstjóri og Harða Guðmunds-
dóttir, f. 14.1. 1912, d. 13.3. 1976,
fulltrúi hjá Siglufjarðarbæ.
Böm Kristjáns og Þórdísar eru
Benedikt, f. 10.4. 1974, háskólanemi
og Harða, f. 6.4. 1978,
nemi í FB.
Systkini Kristjáns
sammæðra eru Svala
Pálsdóttir, f. 16.5. 1937,
búsett í Reykjavík;
Kristján Sævar Páls-
son, f. 28.8. 1940, bú-
settur í Kópavogi og
Benedikt Guðni Líndal,
f. 14.12. 1955, búsettur í
Borgarfirði.
Foreldrar Kristjáns
vora Benedikt Kristjánsson, f. 27.9.
1906, d. 11.2. 1952, skipstjóri og
Ingibjörg Líndal Þorsteinsdóttir, f.
17.1.1913, d. 28.2. 1999, húsmóðir og
verkakona. Þau bjuggu
í Reykjavík.
Benedikt er sonur
Kristjáns Ben. bónda í
Einholti í Mýram og
Jóhönnu Steinunnar
Sigurðardóttur hús-
freyju. Ingibjörg er
dóttir Þorsteins Líndal
Salómonssonar og
Guðnýjar Gísladóttur í
Stykkishólmi.
Kristján verður á
Grænlandi á afmælisdaginn.
Kristján Benediktsson.
Aðalfundur samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra:
Sveitarfélög á Norður-
landi eystra og Austur-
landi í formlegt samstarf
DV, Akureyri:
„Þetta var góður fundur, sá kraft-
mesti sem ég hef setið innan sam-
takanna, og það er mikill hugur í
mönnum um að standa saman en
vinna ekki hver í sínu horni,“ seg-
ir Pétur Þór Jónasson, fram-
kvæmdastjóri Eyþings, samtaka
sveitarfélaga á Norðurlandi eystra,
um aðalfund samtakanna sem hald-
inn var í Grímsey.
Pétur Þór segir samstöðu um það
að Eyþing einbeiti sér að hags-
munamálum sveitarfélaga á svæð-
inu i sem víðustum skilningi. „í
framhaldi eif þvi var samþykkt að
fara nú þegar í formlegt samstarf
við samtök sveitarfélaga á Austur-
landi út frá væntanlegum breyting-
um á kjördæmaskipan. Þetta sam-
starf hefur verið undirbúið og ætl-
unin er að menn fari að líta svæðið
sem eina heild, reyna að vera sam-
stiga í sínum aðgerðum og að virkja
þingmenn kjördæmanna í þessum
málum. Við viljum sem sagt vera á
undan en ekki á eftir þegar kjör-
dæmin sameinast. Það era í augna-
blikinu a.m.k. ekki uppi hugmynd-
ir um að sameina samtök sveitarfé-
laganna í kjördæmunum en þróa
samstarfið hægt og sígandi og
styðja eins og hægt er við þau verk-
efni sem verið er að vinna að í hinu
kjördæminu," segir Pétur Þór. Að-
alfundur samtaka sveitarfélaga á
Austurlandi verður háður í vik-
unni og er búist við sams konar
samþykkt þar og Eyþing samþykkti
um aukið samstarf samtakanna
tveggja.
Pétur Þór segir að á aðalfundin-
um hafi verið til umræðu „aðgerða-
áætlun fyrir Eyþing" . Þar sé raðað
upp fjölmörgum verkefnum sem
þinginu hafi reyndar verið ætlað að
raða upp í forgangsröð en tími
þingsins hafi reynst of knappur til
að það tækist að ljúka þeirri vinnu.
„Þetta fékk hins vegar mjög já-
kvæða umfjöllun og var vísað til
stjómar að vinna málið frekar og
fara jafnframt strax að vinna að
þeim verkefnum sem talin eru
brýnust," segir Pétur Þór. -gk
Mikið hefur verið fagfært við Aiþingishúsið undanfarin misseri og hafa með-
al annars nýir gluggar verið settir í húsið. Þá geta þingmenn hallað sér aft-
ur þegar þeim leiðast þlngstörfin og horft út um gluggann. Þessi stúlka var
í óðaönn að ganga frá gluggunum til þess að allt verði tilbúið þegar þing-
heimur hefur störf. DV-mynd Hilmar Þór
Tll hamingju með afmælið 25. ágúst
95 ára
Unnur Pálína Jónatansdóttir, Sólvallagötu 45, Reykjavík.
80 ára
Hrefna Sigurðardóttir, Borgarbraut 52, Borgarnesi.
75 ára
María P. Salters, Austurbrún 6, Reykjavik.
70 ára
Guðrún Kristjánsdóttir, Fannafold 129a, Reykjavík. Guiuiar J. Ásmundsson, Skúlagötu 62, Reykjavík. Lára Vigfúsdóttir, Sléttuvegi 11, Reykjavík.
60 ára
Ásthildur Salbergsdóttir, Selbrekku 21, Kópavogi. Guðrún Ágústa Sæmundsdóttir, Bólstaðarhlið 52, Reykjavík. Heiða Magnúsdóttir, Hafnarbraut 23, Dalvík. Ingvi Þór Þorkelsson, Lindarhvammi 3, Kópavogi. Sigrún Guðmundsdóttir, Safamýri 44, Reykjavík. Sveinn Sveinsson, Ljósalandi 18, Reykjavík.
50 ára
Anita Friða Oddsdóttir, Álfhólsvegi 66, Kópavogi. Einar Baldursson, Galtalind 26, Kópavogi. Elísabet Einarsdóttir, Hvassaleiti 87, Reykjavík. Gerður Torfadóttir, Ásvallagötu 63, Reykjavík. Jóhannes L. Blöndal, Drápuhlíð 20, Reykjavík. Sigurður Baldursson, Sléttu, Reyðarfirði. Sveinn Bjarnason, Hörgsholti 27, Hafnarfirði. Þórhalla Guðmmidsdóttir, Breiðvangi 16, Hafnarflrði.
40 ára
Ása Kristveig Þórðardóttir, Fjarðarstræti 4, ísafirði. Hans Hafsteinn Þorvaldsson, Köldukinn 2, Hafnarfirði. Joao Filipe Matias, Lækjarstíg 7, Dalvík. Ólafía Bjarnadóttir, Suðurbraut 24, Hafnarfirði. Sigurður Óskar Pétursson, Leiratanga 7, Mosfellsbæ. Þórir Haraldsson, Traðarbergi 15, Hafnarfírði.