Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1999, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1999, Side 7
FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1999 7 DV Fréttir Stórfyrirtæki við Hlemm gera atlögu að Keisaranum og vilja kaupa: Valtari gengur aftur á Hnjóti - tæki sem flestir töldu endanlega glatað var bjargað Egill Ólafsson við valtarann úr Vatnsmýrinni sem flestir töldu löngu glataðan. Ljósmynd Rögnvaldur Bjarnason Á flugminjasafninu að Hnjóti í Örlygshöfn er nú verið að koma fyrir stór- merkilegum grip úr flug- sögu íslendinga. Þar er um að ræða valtara sem notaður var við gerð Reykjavíkurflugvallar og liklega eiriu vinnuvélina sem varðveist hefur frá þessari ffamkvæmd. Það sem er kannski merkileg- ast við þetta er að ekki var annað vitað en flug- málayfirvöld hefðu sett valtarann í brotajárn og látið bræða hann upp árið 1983. Má þvi segja að flugsöguá- hugamenn geti nú orðið vitni að aft- urgöngu gamla valtarans úr Vatns- mýrinni. Valtarinn sem hér um ræðir var fluttur inn af breska hernum sem not- aði hann við gerð Reykjavíkurflug- vallar. Hann er um sex tonn, af gerð- inni Austin Avelin og framleiddur í Bretlandi árið 1936. Það var frændi Egils Ólafssonar, safnvarðar á Hnjóti, Gunnar Pétursson, sem tók eftir gripnum er farið var með valtarann í stálbræðsluna sem þá var nýstandsett í hrauninu sunnan við Hafnaríjörð. „Það var hrein tilviljun að ég sá valtarann þama í haugnum. Ég falað- ist eftir honum og bauð forstjóra fyr- irtækisins skipti á valtaranum og jafnþyng hans í brotamálmi. Gengið var að þessu og ég geymdi valtarann síðan í skúr í 16 eða 17 ár hér uppi í Mosfellssveit. Valtarinn, sem var dí- silknúinn, er með liggjandi sílinder og kveikt var á glóðarhaus í vélinni með sígarettu til að auðvelda gang- setaingu. Ég hef nú gefið Agli valtarann og það fylgir honum gjafabréf þar sem skýrt er tekið fram að valtarinn fari ekki á neitt annað safn en að Hnjóti," sagði Gunnar Pétursson. „Valtarinn er kominn til þess að vera hér á Hnjóti og héðan verður honum ekki ráðstafað," segir Egill Ólafsson safnvörður. „Valtarinn er nú í mjög þokkalegu ástandi og því hinn veglegasti sýningargripur. Ef Gunnar hefði ekki bjargað honum á sínum tíma þá væri hann ekki til í dag.“ Segir Egill vel við hæfi að draga þennan valtara fram í dagsljós- ið nú, 80 árum eftir stofnun Flugfé- lags Islandsl919 og fyrsta flug þess 3. september 1919, sem markaði upphaf atvinnuflugs á íslandi. -HKr. Skelfilegt ef kúnnarn- ir lenda á vergangi - segir barþjónninn „Stórfyrirtæki hér í götunni hafa verið í samningum við eiganda Keisarann um kaup á staðnum í þeim tilgangi að leggja veitingastað- inn niður. Þeir hafa beitt lands- þekktum lögmanni fyrir sig og enn er verið að þrátta um verð,“ sagði Gústaf Bergmann harþjónn á veit- ingastaðnum Keisaranum við Hlemm og staðgengill Margeirs Margeirssonar, eiganda staðarins. „Margeir hafnaði síðasta tUboði þeirra og fór tU Taílands og þá báðu þessir aðUar um umhugsunarfrest þar tU hann sneri aftur heim. Þeir ætla sér staðinn og að leggja hann niður,“ sagði Gústaf Bergmann. Það eru íslandsbanki við Hlemm, Tryggingastofnun ríkisins og verslun 11-11 við hlið Keisarans sem eru í far- arbroddi þeirra aðUa sem reyna nú tU hins ítrasta að ná yfirráðum á hús- næði því sem hýsir veitingastaðinn og er í eigu Margeirs Margeirssonar: „Ég get staðfest að þessir aðilar hafa lagst á eitt í baráttunni gegn Keisaranum og reyndar fleiri að auki. Ætli megi ekki segja að aUir verslunareigendur á þessum hluta Laugavegarins séu samstiga i þessu máli og vilji leggja sitt af mörkum tU að losna við Keisarann," sagði Sigurjón Gunnlaugsson verslunar- stjóri í 11-11 við Hlemm. „Einhvers staðar verða þessir menn að vera en ég vU ekki hafa þá hér við hliðina á mér og það sama gUdir líklega um aðra sem hér reyna að stunda við- skipti," sagði verslunarstjórinn. Gústaf Bergmann, barþjóni og staðgengli eiganda Keisarans, líst hins vegar ekki á blikuna: „Þetta er skelfilegt og mér líst ekki á höfuð- borgina ef viðskiptavinir okkar lenda á vergangi. Hér eru þessir meintu vandræðamenn aUir á ein- um stað og við reynum að halda þeim hér inni eins lengi og hægt er. Þeir eru ekki tU vandræða á meðan og hér er hægt að ganga að þeim öU- um á einum stað. Glæpir í Reykja- vík eiga eftir að stóraukast ef Keis- arinn verður lagður niður. Því get ég lofað,“ sagði Gústaf Bergmann. Hlutaðeigendur bíða þess nú að Margeir Margeirsson, eigandi Keis- arans, snúi heim frá TaUandi og gera honum þá tUboð í Keisarann sem hann getur ekki hafnað. -EIR Margeir Margeirsson i Keisaranum situr í Taílandi og bíður eftir tilboði sem ekki er hægt að hafna. DV-mynd ÞÖK. Góðar fréttir 27,8% ^1,0/0 Hlutabréfasjóðurinn hf, Nafnavöxtun sl. 5 ar! Hefur þú áhuga? Komdu viðí dag! Áhættudreifing á einum stað • Sjóðurinn fjárfestir í helstu fyrirtækjum landsins en einnig í skuldabréfum og erlendum hlutabréfum. • Sjóðurinn er á meðal þeirra fyrirtækja á Islandi sem greitt hafa hluthöfum sínum hæst hlutfall tekna í arð og hefur skilað hæstu ávöxtun hlutabréfasjóða sl. 5 ár. • Fjöldi hluthafa er yfir 8.000. • Hlutabréfasjóðurinn hf. er fyrir þá sem vilja fjárfesta til langs tíma I innlendum og erlendum hlutabréfum til að fá góða ávöxtun og njóta skattafsláttar. Ávöxtun í fortíð er ekki vísbending um ávöxtun í framtíð. VÍB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími 560 8900. Myndsendir: 560-8910.Vefifang: www.vib.is Fiat Marea Weekend 8/97 Ek.34.þús. 5d. 5g. ABS, 2 loftpúðar, rafm.rúður o.fl. Verðkr.1.250.000 Fiat Bravo Abarth3/98 Ek.32.þús.. 5g. ABS, geislasp, samlæs, loftpúðar, 17”álfelgur Verð kr. 1.490.000 ÚRVALS NOTAÐIR BÍLAR FYRIR ALLA Opið virka daga kl. 8-18 laugardaga kl. 13 - 17 Istraktor Nissan Sunny St 1.6 4X4 4/91 Ek. 126.þús. 5d. 5g. Rafm.rúður, fjarst.samlæs. Verð kr. 540.000 Opel Astra St. 1.6GL 5/97 Ek.44. þús. 5d. 5g. Dráttarbeisli. Verð kr. 1.020.000 Nissan Micra1.3 GX5/97 Ek.63. Þús. 3d. 5g. Geislaspilari, vetrardekk Verð kr. 730.000 Suzuki Baleno 1.6 GLX12/97 Ek.49. Þús. 4d. 5g ABS, loftpúðar, álfelgur, rafm.rúður Verð kr. 1.050.000 Smiðsbúð 2 • Garðabæ • Sími 5 400 800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.