Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1999, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1999
7
DV
Fréttir
Stórfyrirtæki við Hlemm gera atlögu að Keisaranum og vilja kaupa:
Valtari gengur
aftur á Hnjóti
- tæki sem flestir töldu endanlega glatað var bjargað
Egill Ólafsson við valtarann úr Vatnsmýrinni sem
flestir töldu löngu glataðan.
Ljósmynd Rögnvaldur Bjarnason
Á flugminjasafninu að
Hnjóti í Örlygshöfn er nú
verið að koma fyrir stór-
merkilegum grip úr flug-
sögu íslendinga. Þar er
um að ræða valtara sem
notaður var við gerð
Reykjavíkurflugvallar og
liklega eiriu vinnuvélina
sem varðveist hefur frá
þessari ffamkvæmd. Það
sem er kannski merkileg-
ast við þetta er að ekki
var annað vitað en flug-
málayfirvöld hefðu sett
valtarann í brotajárn og
látið bræða hann upp
árið 1983. Má þvi segja að flugsöguá-
hugamenn geti nú orðið vitni að aft-
urgöngu gamla valtarans úr Vatns-
mýrinni.
Valtarinn sem hér um ræðir var
fluttur inn af breska hernum sem not-
aði hann við gerð Reykjavíkurflug-
vallar. Hann er um sex tonn, af gerð-
inni Austin Avelin og framleiddur í
Bretlandi árið 1936. Það var frændi
Egils Ólafssonar, safnvarðar á Hnjóti,
Gunnar Pétursson, sem tók eftir
gripnum er farið var með valtarann í
stálbræðsluna sem þá var nýstandsett
í hrauninu sunnan við Hafnaríjörð.
„Það var hrein tilviljun að ég sá
valtarann þama í haugnum. Ég falað-
ist eftir honum og bauð forstjóra fyr-
irtækisins skipti á valtaranum og
jafnþyng hans í brotamálmi. Gengið
var að þessu og ég geymdi valtarann
síðan í skúr í 16 eða 17 ár hér uppi í
Mosfellssveit. Valtarinn, sem var dí-
silknúinn, er með liggjandi sílinder
og kveikt var á glóðarhaus í vélinni
með sígarettu til að auðvelda gang-
setaingu.
Ég hef nú gefið Agli valtarann og
það fylgir honum gjafabréf þar sem
skýrt er tekið fram að valtarinn fari
ekki á neitt annað safn en að Hnjóti,"
sagði Gunnar Pétursson.
„Valtarinn er kominn til þess að
vera hér á Hnjóti og héðan verður
honum ekki ráðstafað," segir Egill
Ólafsson safnvörður. „Valtarinn er
nú í mjög þokkalegu ástandi og því
hinn veglegasti sýningargripur. Ef
Gunnar hefði ekki bjargað honum á
sínum tíma þá væri hann ekki til í
dag.“ Segir Egill vel við hæfi að
draga þennan valtara fram í dagsljós-
ið nú, 80 árum eftir stofnun Flugfé-
lags Islandsl919 og fyrsta flug þess 3.
september 1919, sem markaði upphaf
atvinnuflugs á íslandi. -HKr.
Skelfilegt ef kúnnarn-
ir lenda á vergangi
- segir barþjónninn
„Stórfyrirtæki hér í götunni hafa
verið í samningum við eiganda
Keisarann um kaup á staðnum í
þeim tilgangi að leggja veitingastað-
inn niður. Þeir hafa beitt lands-
þekktum lögmanni fyrir sig og enn
er verið að þrátta um verð,“ sagði
Gústaf Bergmann harþjónn á veit-
ingastaðnum Keisaranum við
Hlemm og staðgengill Margeirs
Margeirssonar, eiganda staðarins.
„Margeir hafnaði síðasta tUboði
þeirra og fór tU Taílands og þá báðu
þessir aðUar um umhugsunarfrest
þar tU hann sneri aftur heim. Þeir
ætla sér staðinn og að leggja hann
niður,“ sagði Gústaf Bergmann.
Það eru íslandsbanki við Hlemm,
Tryggingastofnun ríkisins og verslun
11-11 við hlið Keisarans sem eru í far-
arbroddi þeirra aðUa sem reyna nú tU
hins ítrasta að ná yfirráðum á hús-
næði því sem hýsir veitingastaðinn
og er í eigu Margeirs Margeirssonar:
„Ég get staðfest að þessir aðilar
hafa lagst á eitt í baráttunni gegn
Keisaranum og reyndar fleiri að
auki. Ætli megi ekki segja að aUir
verslunareigendur á þessum hluta
Laugavegarins séu samstiga i þessu
máli og vilji leggja sitt af mörkum
tU að losna við Keisarann," sagði
Sigurjón Gunnlaugsson verslunar-
stjóri í 11-11 við Hlemm. „Einhvers
staðar verða þessir menn að vera en
ég vU ekki hafa þá hér við hliðina á
mér og það sama gUdir líklega um
aðra sem hér reyna að stunda við-
skipti," sagði verslunarstjórinn.
Gústaf Bergmann, barþjóni og
staðgengli eiganda Keisarans, líst
hins vegar ekki á blikuna: „Þetta er
skelfilegt og mér líst ekki á höfuð-
borgina ef viðskiptavinir okkar
lenda á vergangi. Hér eru þessir
meintu vandræðamenn aUir á ein-
um stað og við reynum að halda
þeim hér inni eins lengi og hægt er.
Þeir eru ekki tU vandræða á meðan
og hér er hægt að ganga að þeim öU-
um á einum stað. Glæpir í Reykja-
vík eiga eftir að stóraukast ef Keis-
arinn verður lagður niður. Því get
ég lofað,“ sagði Gústaf Bergmann.
Hlutaðeigendur bíða þess nú að
Margeir Margeirsson, eigandi Keis-
arans, snúi heim frá TaUandi og
gera honum þá tUboð í Keisarann
sem hann getur ekki hafnað. -EIR
Margeir Margeirsson i Keisaranum situr í Taílandi og bíður eftir tilboði sem
ekki er hægt að hafna. DV-mynd ÞÖK.
Góðar fréttir
27,8%
^1,0/0
Hlutabréfasjóðurinn hf,
Nafnavöxtun sl. 5 ar!
Hefur þú áhuga? Komdu viðí dag!
Áhættudreifing á einum stað
• Sjóðurinn fjárfestir í helstu fyrirtækjum landsins en einnig
í skuldabréfum og erlendum hlutabréfum.
• Sjóðurinn er á meðal þeirra fyrirtækja á Islandi sem greitt
hafa hluthöfum sínum hæst hlutfall tekna í arð og hefur
skilað hæstu ávöxtun hlutabréfasjóða sl. 5 ár.
• Fjöldi hluthafa er yfir 8.000.
• Hlutabréfasjóðurinn hf. er fyrir þá sem vilja fjárfesta til
langs tíma I innlendum og erlendum hlutabréfum til að
fá góða ávöxtun og njóta skattafsláttar.
Ávöxtun í fortíð er ekki vísbending um ávöxtun í framtíð.
VÍB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími 560 8900.
Myndsendir: 560-8910.Vefifang: www.vib.is
Fiat Marea Weekend 8/97
Ek.34.þús. 5d. 5g. ABS,
2 loftpúðar, rafm.rúður o.fl.
Verðkr.1.250.000
Fiat Bravo Abarth3/98
Ek.32.þús.. 5g. ABS, geislasp,
samlæs, loftpúðar, 17”álfelgur
Verð kr. 1.490.000
ÚRVALS NOTAÐIR BÍLAR FYRIR ALLA
Opið virka daga kl. 8-18 laugardaga kl. 13 - 17
Istraktor
Nissan Sunny St 1.6 4X4 4/91
Ek. 126.þús. 5d. 5g.
Rafm.rúður, fjarst.samlæs.
Verð kr. 540.000
Opel Astra St. 1.6GL 5/97
Ek.44. þús. 5d. 5g.
Dráttarbeisli.
Verð kr. 1.020.000
Nissan Micra1.3 GX5/97
Ek.63. Þús. 3d. 5g.
Geislaspilari, vetrardekk
Verð kr. 730.000
Suzuki Baleno 1.6 GLX12/97
Ek.49. Þús. 4d. 5g ABS,
loftpúðar, álfelgur, rafm.rúður
Verð kr. 1.050.000
Smiðsbúð 2 • Garðabæ • Sími 5 400 800