Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1999, Side 8
8
FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1999
Útlönd
Stuttar fréttir i>v
Páfagaröur fordæmir fjöldamorð á Austur-Tímor:
Þúsundir drepnar
á síðustu dögum
Skýrslu Pattens
um N-írland mis-
jafnlega tekið
Skýrsla um framtíðarskipan
breska lögregluliðsins á Norður-ír-
landi (RUC),
sem lengi hefur
verið beðið eft-
ir, fékk blendn-
ar viðtökur
þegar hún var
loks gerð opin-
ber í gær. Til-
laga skýrslu-
höfundarins, Chris Pattens, fyrr-
um landstjóra i Hong Kong, um að
fulltrúar kaþólska minnihlutans
fái fleiri fulltrúa í RUC mætti þeg-
ar í stað andstöðu innan beggja
hópa. Nú eru 92 prósent liðsmanna
RUC mótmælendatrúar en 42 pró-
sent íbúa Norður-írlands eru
kaþólskir.
Talbott ánægður
eftir vopnavið-
ræður í Moskvu
Strobe Talbott, aðstoðarutanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, hélt
áleiðis frá
Moskvu í gær
eftir viðræður
um fækkun í
kjamorkuvopna-
búri ríkjanna.
Ráðherrann lýsti
yfir ánægju
sinni með gang
viðræðnanna. Heimildarmaður i
bandaríska sendiráðinu sagði
Reuters-fréttastofunni að á fundum
Talbotts hefði verið lagður grunn-
ur aö fundi Clintons Bandaríkja-
forseta og Pútíns, forsætisráðherra
Rússlands, í Auckland á Nýja-Sjá-
landi þar sem leiðtogar Asíu- og
Kyrrahafsríkja þinga.
Sívaxandi reiði gætir í garð
Indónesíu á alþjóðavettvangi vegna
fjöldamorðanna á Austur-Tímor
undanfama daga. Páfagarður for-
dæmdi blóðbaðiö í gær og kallaði
það þjóðarmorð og hvatti Samein-
uðu þjóðimar til að senda friðar-
gæslusveitir.
José Ramos-Horta, mannréttinda-
frömuður og friðarverðlaunahafi
Nóbels, sagði í gær að nokkur þús-
und Austur-Tímorar hefðu verið
drepnir síðustu daga.
Bandaríkin hafa slitið allri hem-
aðarsamvinnu við Indónesíu og spá
því að ef ofbeldisverkin verði ekki
stöðvuð á Austur-Tímor muni það
hafa alvarlegar afleiðingar fyrir
efnahagslíf Indónesíu.
„Það vill enginn fjárfesta í
Indónesíu ef þeir leyfa þessu að
halda áfram,“ sagði Clinton á leið
sinni til Nýja-Sjálands. Þar mun
hann sitja leiðtogafúnd Asíu- og
Kyrrahafsríkja. Málefni Austur-
Tímor verða mönnum þar ofarlega í
sinni.
Bretland, Ástralía og Nýja-Sjá-
land ætla að endurskoða vamar-
samstarf sitt við Indónesíu. Þá hafa
áströlsk verkalýðsfélög stöðvað út-
flutning á miklu magni hveitis til
Indónesíu.
B.J. Habibie Indónesíuforseti rauf
þriggja daga þögn sina um vargöld-
ina á Austur-Tímor í morgun og
veittist að ótilgreindum hópi ákveð-
inna manna sem hann sagði vera að
rjúfa einingu þjóðarinnar. Stjóm-
málaskýrendur bentu á að sam-
skipti Habibies og hersins hafi ver-
ið mjög stirð að undanfömu þar
sem herforingjamir sé ekki mjög
hrifnir af þeirri fyrirætlan forsetans
að veita Austur-Tímor sjálfstæði.
Franskur læknir sem var í Dili,
höfuðborg Austm--Timor, sagði
fréttamanni Reuters að flestir
þeirra sem féllu í berserksgangi
andstæðinga sjálfstæðis heföu verið
látnir deyja drottni sínum þar sem
þeir lágu á götum úti.
Sjónvarpsmyndir teknar í Dili í
gær sýna að borgin er rústir einar.
Samstarf í olíumálum
Ráðamenn í Þórshöfn í Fær-
eyjum og Aberdeen á Skotlandi
hafa undirritað samstarf á sviði
oliuvinnslu og skyldra málefna.
Prins hittir forseta
Friðrik krónprins af Danmörku
heimsótti Jacques Chirac Frakk-
landsforseta í Élysée-höll í París í
gær. Friðrik hefur starfað í
danska sendiráðinu í París um
nokkurt skeiö en er nú á forum
þaðan. Prinsinn heldur brátt til
Grænlands að taka þátt i undir-
búningi 3500 kílómetra langrar
sleðaferðar um norðlægar slóðir.
E.coli faraldur
Nær 500 manns hafa sýkst af
E.coli bakteríu í New York. Eitt
bam hefur látist af völdum sýk-
ingarinnar sem kom upp á útihá-
tíð i New York-riki. Talið er að
vatnsmengun hafi valdið sýking-
unni.
95 lík fundin í Aþenu
Snemma í morgun var tala
fórnarlamba jarðskjálftans í
Aþenu komin upp í 95. í nótt
fundu björgunarmenn aðeins lát-
ið fólk í rústunum.
Gore fær keppinaut
Al'Gore, varaforseti Bandaríkj-
anna, þarf nú að berjast fyrir út-
nefningu sem forsetaefni
demókrata. Nú
hefur Bill
Bradley, fýrrver-
andi öldunga-
deildarþingmað-
ur, tilkynnt
formlega að
hann ætli í
framboð.
Bradley leggur
áherslu á að hann eigi góð sam-
skipti við minnihlutahópa, eink-
um blökkumenn. Hann vill vinna
að því að draga úr spennu milli
kynþátta.
Þessi kona frá Austur-Tímor og barnið hennar komust til borgarinnar Darwin
f Ástralíu í morgun. Hún var starfsmaður SÞ í heimalandi sínu.
Nauðsynlegt er að
bera á nýja palla og
tréverk fyiir veturiim
Aðra palla þarf að
bera á árlega.
Viðarvörn í rétta litnum
Við blöndum rétta litinn á pallinn þinn
.785 kr.
35% afsláttur
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Anwar Ibrahim
byrlað eitur
Lögmenn Anwars Ibrahims, fyrr-
verandi aðstoðcuforsætisráðherra
Malasíu, fullyrða að honum hafi
verið byrlað eitur. Hefur Anwar
verið fluttur á sjúkrahús. Var hlé
gert á réttarhöldunum yflr Anwar í
hæstarétti þegar verjendur hans til-
kynntu að rannsókn framkvæmd í
Ástralíu hefði leitt í ljós að leifar af
arseniki hefðu fundist í þvagi hans.
Anwar var rekinn úr embætti í
september I fyrra. Síðar í mánuðin-
um var handtekinn og hann sakað-
ur um spillingu og samkynhneigð. í
apríl síðastliðnum var hann dæmd-
ur í sex ára fangelsi.
Ritari Anwars og fósturbróðir
héldu því báðir fram við yfírheyrslu
að Anwar hefði flekað þá. Síðar
sögðu þeir lögregluna hafa þvingað
þá til að játa.
Eiginkona Anwars, Wan Azizah,
kveðst óttast um líf hans. Hún segir
fjölskyldu hans hafa í leyni smyglað
þvagprufu út úr fangelsinu í síðast-
liðnum mánuði og sent hana til Mel-
bourne í Ástralíu.
Saksóknarinn gaf í skyn að fjöl-
skylda Anwars hefði sjálf byrlað
honum eitur. Kvaðst saksóknarinn
hafa séð Anwar snæða mat sem
honum hefði verið færður að utan.
Hann hefði einnig brotið reglur með
því að umgangast aðra fanga.
Anwar barði þá í borðið og sagði:
„Ég er að segja frá því að eitrað hafi
verið fyrir mig og þá talar saksókn-
arinn um fangelsisreglur."
Anwar á leið í hæstarétt í sumar.
Símamynd Reuter