Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1999, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1999, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1999 Útlönd Stuttar fréttir i>v Páfagaröur fordæmir fjöldamorð á Austur-Tímor: Þúsundir drepnar á síðustu dögum Skýrslu Pattens um N-írland mis- jafnlega tekið Skýrsla um framtíðarskipan breska lögregluliðsins á Norður-ír- landi (RUC), sem lengi hefur verið beðið eft- ir, fékk blendn- ar viðtökur þegar hún var loks gerð opin- ber í gær. Til- laga skýrslu- höfundarins, Chris Pattens, fyrr- um landstjóra i Hong Kong, um að fulltrúar kaþólska minnihlutans fái fleiri fulltrúa í RUC mætti þeg- ar í stað andstöðu innan beggja hópa. Nú eru 92 prósent liðsmanna RUC mótmælendatrúar en 42 pró- sent íbúa Norður-írlands eru kaþólskir. Talbott ánægður eftir vopnavið- ræður í Moskvu Strobe Talbott, aðstoðarutanrík- isráðherra Bandaríkjanna, hélt áleiðis frá Moskvu í gær eftir viðræður um fækkun í kjamorkuvopna- búri ríkjanna. Ráðherrann lýsti yfir ánægju sinni með gang viðræðnanna. Heimildarmaður i bandaríska sendiráðinu sagði Reuters-fréttastofunni að á fundum Talbotts hefði verið lagður grunn- ur aö fundi Clintons Bandaríkja- forseta og Pútíns, forsætisráðherra Rússlands, í Auckland á Nýja-Sjá- landi þar sem leiðtogar Asíu- og Kyrrahafsríkja þinga. Sívaxandi reiði gætir í garð Indónesíu á alþjóðavettvangi vegna fjöldamorðanna á Austur-Tímor undanfama daga. Páfagarður for- dæmdi blóðbaðiö í gær og kallaði það þjóðarmorð og hvatti Samein- uðu þjóðimar til að senda friðar- gæslusveitir. José Ramos-Horta, mannréttinda- frömuður og friðarverðlaunahafi Nóbels, sagði í gær að nokkur þús- und Austur-Tímorar hefðu verið drepnir síðustu daga. Bandaríkin hafa slitið allri hem- aðarsamvinnu við Indónesíu og spá því að ef ofbeldisverkin verði ekki stöðvuð á Austur-Tímor muni það hafa alvarlegar afleiðingar fyrir efnahagslíf Indónesíu. „Það vill enginn fjárfesta í Indónesíu ef þeir leyfa þessu að halda áfram,“ sagði Clinton á leið sinni til Nýja-Sjálands. Þar mun hann sitja leiðtogafúnd Asíu- og Kyrrahafsríkja. Málefni Austur- Tímor verða mönnum þar ofarlega í sinni. Bretland, Ástralía og Nýja-Sjá- land ætla að endurskoða vamar- samstarf sitt við Indónesíu. Þá hafa áströlsk verkalýðsfélög stöðvað út- flutning á miklu magni hveitis til Indónesíu. B.J. Habibie Indónesíuforseti rauf þriggja daga þögn sina um vargöld- ina á Austur-Tímor í morgun og veittist að ótilgreindum hópi ákveð- inna manna sem hann sagði vera að rjúfa einingu þjóðarinnar. Stjóm- málaskýrendur bentu á að sam- skipti Habibies og hersins hafi ver- ið mjög stirð að undanfömu þar sem herforingjamir sé ekki mjög hrifnir af þeirri fyrirætlan forsetans að veita Austur-Tímor sjálfstæði. Franskur læknir sem var í Dili, höfuðborg Austm--Timor, sagði fréttamanni Reuters að flestir þeirra sem féllu í berserksgangi andstæðinga sjálfstæðis heföu verið látnir deyja drottni sínum þar sem þeir lágu á götum úti. Sjónvarpsmyndir teknar í Dili í gær sýna að borgin er rústir einar. Samstarf í olíumálum Ráðamenn í Þórshöfn í Fær- eyjum og Aberdeen á Skotlandi hafa undirritað samstarf á sviði oliuvinnslu og skyldra málefna. Prins hittir forseta Friðrik krónprins af Danmörku heimsótti Jacques Chirac Frakk- landsforseta í Élysée-höll í París í gær. Friðrik hefur starfað í danska sendiráðinu í París um nokkurt skeiö en er nú á forum þaðan. Prinsinn heldur brátt til Grænlands að taka þátt i undir- búningi 3500 kílómetra langrar sleðaferðar um norðlægar slóðir. E.coli faraldur Nær 500 manns hafa sýkst af E.coli bakteríu í New York. Eitt bam hefur látist af völdum sýk- ingarinnar sem kom upp á útihá- tíð i New York-riki. Talið er að vatnsmengun hafi valdið sýking- unni. 95 lík fundin í Aþenu Snemma í morgun var tala fórnarlamba jarðskjálftans í Aþenu komin upp í 95. í nótt fundu björgunarmenn aðeins lát- ið fólk í rústunum. Gore fær keppinaut Al'Gore, varaforseti Bandaríkj- anna, þarf nú að berjast fyrir út- nefningu sem forsetaefni demókrata. Nú hefur Bill Bradley, fýrrver- andi öldunga- deildarþingmað- ur, tilkynnt formlega að hann ætli í framboð. Bradley leggur áherslu á að hann eigi góð sam- skipti við minnihlutahópa, eink- um blökkumenn. Hann vill vinna að því að draga úr spennu milli kynþátta. Þessi kona frá Austur-Tímor og barnið hennar komust til borgarinnar Darwin f Ástralíu í morgun. Hún var starfsmaður SÞ í heimalandi sínu. Nauðsynlegt er að bera á nýja palla og tréverk fyiir veturiim Aðra palla þarf að bera á árlega. Viðarvörn í rétta litnum Við blöndum rétta litinn á pallinn þinn .785 kr. 35% afsláttur HÚSASMIÐJAN Sími 525 3000 • www.husa.is Anwar Ibrahim byrlað eitur Lögmenn Anwars Ibrahims, fyrr- verandi aðstoðcuforsætisráðherra Malasíu, fullyrða að honum hafi verið byrlað eitur. Hefur Anwar verið fluttur á sjúkrahús. Var hlé gert á réttarhöldunum yflr Anwar í hæstarétti þegar verjendur hans til- kynntu að rannsókn framkvæmd í Ástralíu hefði leitt í ljós að leifar af arseniki hefðu fundist í þvagi hans. Anwar var rekinn úr embætti í september I fyrra. Síðar í mánuðin- um var handtekinn og hann sakað- ur um spillingu og samkynhneigð. í apríl síðastliðnum var hann dæmd- ur í sex ára fangelsi. Ritari Anwars og fósturbróðir héldu því báðir fram við yfírheyrslu að Anwar hefði flekað þá. Síðar sögðu þeir lögregluna hafa þvingað þá til að játa. Eiginkona Anwars, Wan Azizah, kveðst óttast um líf hans. Hún segir fjölskyldu hans hafa í leyni smyglað þvagprufu út úr fangelsinu í síðast- liðnum mánuði og sent hana til Mel- bourne í Ástralíu. Saksóknarinn gaf í skyn að fjöl- skylda Anwars hefði sjálf byrlað honum eitur. Kvaðst saksóknarinn hafa séð Anwar snæða mat sem honum hefði verið færður að utan. Hann hefði einnig brotið reglur með því að umgangast aðra fanga. Anwar barði þá í borðið og sagði: „Ég er að segja frá því að eitrað hafi verið fyrir mig og þá talar saksókn- arinn um fangelsisreglur." Anwar á leið í hæstarétt í sumar. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.