Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1999, Síða 12
vikuna 9.9-16.9. 1999
NR. 340
Tom Jones hefur gefiö út plötuna
Reload þar sem ýmsir nýpopparar leggja
kempunni lið, t.d. Portishead, Robbie
Wiliams og Natalie Imbruglia. Lagið
sem Cardigans gerðu með þeim gamla
er gamalt Talking Heads-lag og þetta
kunna íslendingar vel að meta, senda
lagið beint upp í númer 9.
LAST KISS
Vikur á lista
.PEARL
JAM ©
MAMBO NO. 5
.LOUBEGA í
© COFFEE& TV
.BLUR
t
LATELY
.SKUNK ANANSIE
I
HANGIN' AROUND ................THE CARDIGANS f
WHEN YOU SAY NOTHING.
.RONAN KEATING !
BILLS, BILLS, BILLS . . . .
........DESTINY'S CHILD
KING OF MY CASTLE
.WAMDUE PROJECT |
BURNING DOWN...........TOM JONES & CARDIGANS *«r |
UNPRETTY
.TLC
t
11 HEYÞU
.SKÍTAMÓRALL (JJ ]|||
12 AROUND THE WORLD
.RED HOT CHILLI PEPPERS pn \
13 IF YOU HAD MY LOVE
.JENNIFER LOPEZ |
14 EVERYTHING IS EVERYTHING
.LAURYN HILL j
15 BAILAMOS
.ENRIQUE IGLESIAS j
\
16 BLUE (DA BA DEE)
.EIFFEL 65
17 2TIMES
.ANNLEE |
18 SO PURE
.ALANIS MORISSETTE 4-
19 JIVIN' ABOUT
.QUARASHI I
20 SUMMERSON
.TEXAS
% RENDEZ-VU
.BASEMENT JAXX 4-
(jy GEIMSKIPIÐ SÓL
■S.S.SÓL
HEY LEONARDO
.BLASSED UNION OF SOULS
t II
^ ÞAR SEM ALLT GRÆR . . . .ÚR LITLU HRYLLINGSB. |.
£ SOMEDAY WE’LL KNOW
.NEW RADICALS
fy THERE SHE GOES
.SIXPENCE NONE THE RICHER
%
MY LOVE IS YOUR LOVE . . . .WHITNEY HOUSTON I
(jy Ml CHICO LATINO
.GERI HALLIWELL
TELL ME IT’S REAL
.K-CI & JOJO
^ IF I LET YOU GO
.WESTLIFE
Qf SAGA
.LAND & SYNIR
.«7
FÆ ALDREI FRIÐ
.SÓLDÖGG 4-
% STEAL MY SUNSHINE
.LEN 4-
& SING IT BACK
.MOLOKO
I.
% FELL GOOD
.DJ JURGEN & ALICE DEEJAY 'pn
BETTER OF ALONE
.PHATS & SMALL
4
Qjf LARGER THAN LIFE . . .
.BACKSTREET BOYS m
& I FEEL LONELY
.SASHA í
^ SMOOTH
.SANATANA & ROB THOMAS
Qjf SOMMER OF OUR LIVES
.A1
íslenski listinn er samvinnuverkefni
Mónó og DV. Hringt er í 300 til 400
manns á aldrinum 14 til 35 ára, af
öllu landinu. Einnig getur fólk
hringt í síma 550 0044 og tekiö þátt í
vali listans. íslenski listinn er
frumíluttur á Mono á fimmtudags-
kvöldum kl. 20.00 og birtur á
hverjum föstudegi í Fókus. Listinn er
jafnframt endurfluttur á Bylgjunni á
hverjum laugardegi kl. 16.00. Listinn
er birtur, aö hluta, í textavarpi MTV
sjónvarpsstöövarinnar. íslenski
listinn tekur þátt í vali „World
Chart“ sem framleiddur er af Radio
Express í Los Angeles. Einnig hefur
hann áhrif á Evrópulistann sem
birtur er i tónlistarblaðinu Music &
Media sem er rekið af bandaríska
tónlistarblaöinu Billboard.
t 4
Nýtt á
listanum síöustu viku
Taktu þátt í vali
listans í síma
550 0044
síöustu viku
\
Hækkar sig frá Lækkar sig frá Stendur
í staö
If ókus
Yflrumsjón með skoöanakönnun: Halldóra Hauksdóttir - Framkvæmd könnunan Markaösdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó
Handrit, heimildaröflun og yfirumsjón með framleiöslu: ívar Guömundsson - Tæknistjórn og framleiösla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn
Steinsson Otsendingastjóm: Ásgeir Kolbeinsson, Jóhann Jóhannsson og Ragnar Páll ólafsson - Kynnir í útvarpi: ívar Guðmundsson
Öðlingspilturinn og ísiandsvinurinn hann Sting er tilbúinn með
nýja plötu, „Brand New Day“, sem kemur út 28. september.
Platan er tileinkuð ástinni og Sting er að leggja upp í
18 mánaða tónleikaför sem kostuð er af töívufyrirtæki.
sigrar
Gordon Sumner hefur verið
kallaður Sting lengi. Það byrjaði
allt út af þverröndóttri svart/gulri
peysu sem gaurinn gekk í þegar
hann var polli í Newcastle og hefur
svona líka loðað við hann siðan.
Pabbi hans var mjólkurbílstjóri en
mamman hárgreiðslukona. Hún
var líka klassískt menntaður pí-
anisti og Sting komst snemma á
bragðið með að hamra filabeinið.
Gítarinn og djassinn voru þó hans
ær og kýr og um miðjan áttunda
áratuginn flutti hann til London og
leitaði tækifæra. Hann kynntist
amerískum trommara sem tróð
rokki upp á djassgeggjarann. Sting
skipti yfir á bassa og þegar gítar-
leikari fannst varð tríóið Police til
árið 1977.
Reggae-rokk samsuða þeirra
varð strax vinsæl með laginu „Rox-
anne“, sem fjallaði um hressa
mellu. BBC bannaði lagið og því
varð það vinsælt á mettíma. Á
næstu árum komu fimm stórar
plötur og fullt af smellum, sá
stærsti árið 1983, „Every Breath
You Take“. Á hátindi frægðarinnar
ákvað Sting að viskubrunnur
Police væri tómur og hann leysti
bandið upp.
Raðfullnægingar
Sólóferill Stings hefur reynst
jafn happadrjúgur og árin með
Löggunni. Fyrsta platan, hin djass-
aða Dream of the Blue Turtles, fór
í platínu. Soul Cages frá ‘91, sem
fjallaði um foreldramissi (báðir for-
eldrar Stings höfðu dáið með stuttu
millibili) og Ten Summoner’s
Tales, frá ‘93, sýndu áður óséð
þroskamerki og báðar plötumar
höluðu in Grammy-verðlaun. Síð-
asta plata, Mercury Falling frá
1996, hélt áfram á þroskuðu nótirn-
um og Sting, sem þá var 45 ára,
söng á sinn auðþekkjanlega hátt
um öldrunarmál og eigin dauð-
leika. Sting hefur einnig annað
slagið komið vel út úr því að leika
í bíómyndum, hlutverk hans í
Who-myndinni Quadrophenia frá
1979 og í Lock, Stock and Two
Smoking Barrels (pabbinn á bam-
um) koma upp í hugann.
Þá hefur græningjastúss Stings
vakið athygli. Brasilískir regnskóg-
ar koma honum mikið við og mál-
efni Amnesty Intemational. Hann
Sting gerir öndunaræfingar í eldhúsinu. Skyldi þetta vera Ikea?
býr með konu, bömum og hundum
í villu fyrir utan London og hefur
upplýst í viðtölum að með tantra
hugleiðslu og sérstakri öndun geti
hann stundað kynlíf í allt að fimm
tíma og fengið raðfullnægingar
eins og kona.
Ekki að reyna að vera
rómantískur
En nú verður Stingurinn að
slappa af í sexinu því í tilefni af út-
komu Brand New Day er fyrirhug-
aðuð átján mánaða tónleikaferð
um heiminn og hefur konan hans
ömgglega nóg annað að gera en
flækjast með honum.
Hugsjónamaðurinn hefur gert
risa sponsorsamning viö Compaq-
tölvur fyrir pening sem fengi jcifn-
vel Einar Bárðarson til að blána.
í staðinn verður Sting „andlit fyrir-
tækisins út á við“, en Compaq hef-
ur verið að skíttapa í tölvubrans-
anum fyrir Dell-tölvum, þurfti m.a.
að segja 8000 manns upp á dögun-
um. Kannski mannvinurinn Sting
krefjist þess að fólkið verði ráðið
aftur.
Nýja platan er 10-laga og góðir
gestir kíkja við, t.d. James Taylor,
Stevie Wonder og Cheb Mami,
sem er einn af frægustu söngvur-
um Frakklands. Þar er allt eins og
það á að vera á Sting-plötu; mið-
aldra vandaður tónn umlykur
verkið og Sting bregður sér á milli
þjóðlagapopps, heimstónlistar og
skallapopps eins og glaður gormur.
Ástin er meginþema textanna.
„Kannski er ástin það eina sem lif-
ir að eilífu,“ segir söngvarinn og
útskýrir þetta aðeins betur: „Ég
held að ef þú misstir allt í lífinu -
heimili þitt, peningana þína, sjálfs-
virðinguna - þá myndi það ekki
skipta neinu máli eins lengi og þú
værir elskaður og værir í góðu ást-
arsambandi. „Ástin sigrar allt“ eru
skilaboðin sem ég er að senda út
með þessari plötu. Ég trúi þessu í
alvörunni, ég er ekki bara að reyna
að vera rómantískur."
plötudómur
Rammstein
- Live Aus Berlin ★ ★
flugel
Fyrir svona sirka aldarfjórðungi
kom stutt tímabil er upptökur af
tónleikum - kallaðar „læfþlötur" í
almennu tali - settu svip sinn á
poppheiminn. Þetta var þegar læf-
plötur með Peter Frampton og
Cheap Trick seldust í milljónavís.
Oftast er þó litið á læfplötuna sem
bónus, eitthvað fyrir þann sem á
allt en vill aðeins meira. Sjaldan
bætir læfplata einhverju við eða
sýnir nýja hliðar og í tilfelli nýju
Rammstein-læfplötunnar er þetta
raunin.
Þeir sem aldrei hafa heyrt í
Rammstein ættu að byrja á að
tékka á stúdíóplötunum tveim, sem
öll lögin á þessari tvöföldu 18-laga
útgáfu eru af. Hinir allra lengst
komnu geta legið nördalegir yfir
plötunni og spáð í það hvort gólið i
áhorfendum sem sprettur upp milli
laga sé í digital og eins geta þeir
notið þess að tímamæla hversu
mörgum sekúndum gítarsólóin eru
lengri en á Herzeleid og Sehnsucht.
Þýsku buffin eru nefnilega lítið að
djamma lögin til og því er innihald
plötunnar-bara gömlu lögin í ekk-
ert sérstaklega þéttu læfsándi,
a.m.k. ekki ef miðað er við hinn
svakalega þéttleika stúdíóplatn-
Til að njóta flugeldasýningar
er þó auðvitað best að vera á
staðnum og því verða loka-
orðin að vera: Rammstein til
Islands! Schnell! Schnell!
Þeir sem fíla Rammstein út frá
eðlilegum forsendum - að þetta er
gott og kraftmikið rokk flutt af
hallærislega útlítandi aukaleikur-
um úr Total Recall - ættu að bíða
eftir læfmyndbandinu sem von er
á. Tónleikar með Rammstein eru
nefnilega ekki mikið án sjónrænu
hliðarinnar. Eldhafið í sjóinu fær
kjálkana á reyndasta flugeldaskáta
til að síga og það er jú aðeins
skárra að sjá flugeldasýningu í
sjónvarpinu heldur en að heyra
hana í útvarpinu. Til að njóta flug-
eldasýningar er þó auðvitað best
að vera á staðnum og því verða
lokaorðin að vera: Rammstein til
íslands! Schnell! Schnell!
Gunnar Hjálmarsson
12
f Ó k U S 10. september 1999