Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1999, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1999, Síða 13
Christina Aguilera syngur eins og engill. Og ekki spiilir útlitiö fyrir. Fílar Korn í bílnum Her manna var fenginn til að hjálpa stelpunni á plötunni. Smellaframleiðendurnir Carl Sturken og Evan Rogers (N’Sync, Boyzone, Brand New Heavies) semja tvö lög, Travon Potts (hefur unnið með Madonnu) eitt og þannig koll af kolli. Tilboðum um að leika í bíómynd- um er einnig farið að rigna inn. Stelpan reynir þó að vera niðri á jörðinni og segir: „Núna er ég með fókusinn á söngnum og engu öðru. Ég hef beðið eftir þessu augnabliki allt mitt lif og ætla ekki að gera neina vitleysu." Kristína filar margt annað en R&B. Madonna, Janet Jackson og Mariah eru hetjurnar hennar en þegar hún er úti að aka finnst henni best að botna Korn eða Limp Bizkit í bílnum. Á diskótekinu fílar hún hins vegar Fatboy Slim best. Kristína er komin til að vera. Sjáiði bara til. Fyrsta plata Christinu Aguilera (samnefnd söngkonunni) fór beint í efsta sæti Billboard-listans í síðustu viku. Sjálfur Puff Daddy með glæ- nýja plötu þurfti að láta sér annað sætið nægja og Backstreet Boys lufs- uðust ofan í það þriðja. Þetta verður að teljast ágætisárangur því söngkon- an er bara 18 ára. Saga Kristínu er Hollywood- draumur sem varð að veruleika. Hún hefur sungið um alian heim við ýmis tækifæri því pabbi hennar er í hern- um og það kallar á ferðalög. Tólf ára fékk hún hlutverk í sjónvarpsþættin- um „New Mickey Mouse Club“, en þar hafa stjörnur eins og Britney Spears og J.C. og Justin úr N’Sync stigið sín fyrstu spor. Eftir tvö ár í þættinum fór stelpan enn á flakk, söng m.a. dúett með japönsku ofurstjömunni Keizo Na- kanishi og olli næstum óeirðum þeg- ar hún óð út í 10- þúsund manna áhorfendaskara á tónleikum í Rúm- eníu. og beint Tæki Britney í nefið Þegar söngkonan unga sneri til Bandaríkjanna var henni boðið að syngja lagið „Reflection" í Disney- myndinni Mulan. Það gerði hún og lagið dvaldi næstu vikurnar við topp- inn á vinsældalistanum. Nú hófst grimmur slagur hljóm- plötufyrirtækjanna sem vildu fá Kristínu á samning. RCA sigraöi og þegar fyrsta lagið, „Genie in a Bottle", skoppaði á toppinn var ljóst hvert stefndi: Kristína var orðin stór- * stjarna. Þetta staðfestir svo árangur stóru plötunnar endanlega. Tónlistin sem Kristína er að syngja er R&B og em Whitney Hou- ston, Mariah Carey og Diana Ross miklir áhrifavaldar. Margt er í góðu lagi á nýju plötunni, ferskara verður R&B-ið t.d. varla en lagið „Genie in a Bottle", en fulloft missir söngkonan stjórn á sér og fer að hljóma eins og Celine Dion á valíum (ef slíkt er mögulegt). Það verður þó ekki skafíð af henni að hún er frábær söngkona og þarf ekki einu sinni að miða við ungan aldur. Kristína tæki Britney í nefíð á hvaða hæfi- leikakeppni sem er. Enskt popp hefur getið af sér nokkra sérvitra snillinga í poppinu. Mark E Smith, leiðtogi The Fall, er einn slíkur; mannfælinn pervisinn kjaftaskur sem semur stormandi góða texta. Þegar Luke Haines var 15 ára var Mark E uppáhaldið, en þegar Luke var orðinn tvítugur var Robert Forster, aðalmaður ástr- alska bandsins The Go-Betweens, í uppáhaldi. Nú er Luke orðinn þrjátíu og tveggja og á eðlilega engan uppá- haldspoppara lengur, nema ef vera skyldi sjálfan sig. Luke ER hljóm- sveitin The Auteurs sem á dögunum gaf út sinn fjórða disk, „How I Lear- ned to Love the Bootboys". Leiðinlegt að túra Luke spilaði í ýmsum smábönd- um á síðasta áratug og The Servants var þeirra kunnast. The Auteurs stofnaði Luke 1992 og vakti athygli fyrir nýbylgjurokk sem margir báru saman við tónlist T-Rex og David Bowie á Ziggy Stardust-tímabilinu. Fyrsta platan kom út 1992, „New Wave“, og var tilnefnd til Mercury- verðlaunanna. Hljómsveitin túraði um Evrópu og Bandaríkin en Luke fannst leiðinlegt að túra og upp frá því hefur orðið æ sjaldgæfara að Luke komi fram á tónleikum. Þetta á eflaust sinn þátt í að The Auteurs hefur aldrei náð jafn miklum vin- sældum og með fyrstu plötunni. Ömurleg æska Fyrir utan að notast við Auteurs- nafnið hefur Luke gert tvær frá- bærar plötur undir öðrum nöfnum. Platan „Baader Meinhof ‘ með sam- nefndri „hljómsveit" inniheldur stórskemmtilegt en dapurt fönk- kammerkántrí með textum sem all- ir fjalla um þýska hryðjuverkahóp- inn Baader Meinhof. Þar fær mað- ur það á tilfinninguna að samtökin Fjórða plata The Auteurs var að koma út. Luke Haines er aðal- maðurinn í bandinu og heldur upptekn- um hætti: að spila sallafínt popp við myrka texta. hafí verið skipuð bitru fólki sem hefði líklega sleppt hryðjuverkun- um ef einhver hefði haft fyrir því að elska það í æsku. Á plötunni „England Made Me, sem Luke gerði i fyrra með söng- konu og kallaði verkefnið Black Box Recorder, er einnig fjallað um áhrif æskunnar á líf einstaklings- ins. Tónlistin er sallafínt kassagít- arpopp en textamir jafn dularfullir og lokkandi og bílslys. í lögum eins og „Child .Psychology" og „Ideal Home“ bregður Luke I ljósi á myrku hliðar ' daglegs lífs á Vestur- löndum og maður fær það á tilfinninguna að strákgreyið hafi átt J ömurlega æsku, sem hann reyndar þvertekur fyrir. Anti-nostalgía Sama skemmtilega svartnættið er allsráðandi á nýju Auteurs-plöt- unni. Þar tekur Luke nostalgíu-tii- hneigingu skemmtanabransans síð- ustu árin og skýtur hana í kaf. „Þessi plata er anti-nostalgía,“ seg- ir Luke. „Fyrir mér er hún eins og íkveikjusprengja á flóamarkaði. Maður getur ímyndað sér hvernig Danny Osmond-dúkkumar tætast í sundur. Ég er bara að benda á að það er fáránlegt að líta til baka með glýju i augunum. Ég hata það þeg- ar reynt er að endurlifa fortíðina sem einhverja dýrðartíma." Tónlistin á plötunni er sambland af gömlum straumum og þrýstnu poppi, en þrátt fyrir ógeð sitt á nostalgiunni getur Luke ekki neit- að því að af allri tónlist heldur hann mest upp á glysrokk-tímabil- ið, þegar menn eins og Gary Glitt- er réðu ríkjum. Eitt lagið á nýju plötunni hljómar einmitt alveg eins og Gary Glitter-lag. Nostalgía? Nei, ekki þegar text- inn er lesinn og það haft í huga að síðast þegar heyrðist af Gary / var verið að setja I hann í steininn fyr- '4 í ir að vera með barnaklám inni á | tölvunni sinni. Björk heidrar Joni Björk er ein af þeim stórstjörn- um sem taka þátt í safnplötu til heiðurs söngkonunni Joni Mitchell. Hinar stjörnurnar em m.a. Elvis Costello, Janet Jackson, Chaka Khan og Etta James. Stjörnurnar taka lög Joni, en ekki er vitað hvaða lag Björk ætlar að taka. Þessi „heiðurs- plata“ á að koma út í mars. Sjálf er Joni með stórt verkefni í gangi þvi hún ætlar að endur- gera tvær af sín- um frægustu plöt- um - „Both Sides Now“ og „A Case of You“ - með sin- fóníuhljómsveit. Líklegt er að hún frumflytji nýju útgáfurnar í vöggu óperunnar, í La Scala á Ítalíu. Nýtt líf fyrlr Foo Fighters Dave Grohl og félagar hans í Foo Fighters eru snúnir aftur úr árslöngu fríi með nýjan gítarleik- ara. Sá heitir Chris Shifflett og er gamalreyndur í pönkinu í Los Angeles, var áður í 22 Guns og No Use for a Name. „Við reyndum 35 manns í stöðuna og Chris var langbestur. Hann fellur eins og flís við rass í hópinn." Chris er ótrúlega glaður, enda hefur hann verið Foo Fighters-aðdáandi lengi. Þriðja Foo Fighters-platan, „There Is Nothing Left to Lose“, kemur út 2. nóvember. Mannlegur lelr frá Creed Gruggbandið Creed varð gífur- lega vinsælt með plötunni My Own Prison í fyrra. Nú era niður- dregnu rokkararnir tilbúnir með aðra plötu, „Human Clay“, og æst- ir aðdáendur þeirra geta hlustað á hana alla á Netinu áður en hún kemur út. Fyrstu smáskífunni, laginu „Higher", má hlaða niður á heimasíðu Creed (creednet.com), en hinum níu lögunum af plöt- unni er dreift um allt Netið. Sjálf platan kemur svo út eftir mánuð. í maí lýsti bassaleikarinn plöt- unni svona: „Við höfum nálgast dulrænan tón og það er afskekkt- ur þjóðflokkafílingur í gangi. Plat- an er ekki eins þung og inn í sig og fyrsta platan." Þá eru textarnir léttari á nýju plötunni sem kannski kemur til vegna þess að söngvarinn er nýorðinn faðir. 10. september 1999 f Ókus 13

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.