Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.1999, Page 2
2
MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1999
Fréttir
Heitt í kolum á Þingeyri:
Sóðalegt leynimakk
- segir Ragnheiður Ólafsdóttir - hennar eigin harmleikur, segir Halldór Halldórsson bæjarstjóri
Síðdegis í gær var haldinn hita-
fundur á Þingeyri sem íbúasamtökin
á svæðinu boðuðu til. Var fundurinn
fiölmennur og mættu til hans for-
svarsmenn íbúasamtakanna, hæjar-
stjómar ísaQarðarbæjar, þingmenn
kjördæmisins og forsvarsmenn hins
nýstofnaða fiskvinnslufyrirtækis
Fjölnis á Þingeyri. Undir lok fundar-
ins las formaður íbúasamtakanna,
Ragnheiður Ólafsdóttir, forráða-
mönnum bæjarfélagsins og öllum
þingmönnum kjördæmisins pistil-
inn, að undanskOdum Guðjóni Am-
ari Kristjánssyni. I lok ræðunnar
sagði Ragnheiður síðan af sér for-
mennskunni og sleit fundi.
„Mín skoðun á þessum mönnum
er að bæjarstjómin i heild sinni og
bæjarstjóri ísaQarðarbæjar ættu að
segja af sér nú þegar. Þeir eru búnir
að vinna spellvirki á þessu bæjarfé-
lagi, bæði afturábak og áffam. Það er
búið að vinna þvílíka undirróðurs-
starfsemi að öllu sem viðkemur at-
Stóra fikniefnamálið:
Mesta magn
haldlagðra
fíkniefna til
þessa
Fíkniefnamálið sem upp kom i
vikunni er það stærsta sem ís-
lenska lögreglan hefur komist i
tæri við til þessa. Lögregla og toll-
verðir komust á slóðina sl. mið-
vikudag þegar gerð var leit í tyrk-
neska leiguskipinu Sayinur Yar-
dimci sem lá í Sundahöfn. Við leit-
ina fundust sjö kg af hassi og lítil-
ræði af marijuana. í framhaldi af
því gerði lögreglan húsleit í
nokkram húsum í Reykjavík en
þar gerði hún upptæk um 18 kg af
hassi til viðbótar, um 6000 e-töflur,
4 kg af amfetamíni og tæpt kíló af
kókaini. Auk þess lagði lögreglan
hald á þrjár bifreiðir, tölvubúnað,
skotvopn og eina milljón króna í
peningum í húsleitum sínum.
Til samanburðar má nefna að
iögreglan lagði hald á um 15 kíló af
hassi allt árið í fyrra. Söluverð-
mæti efnanna er talið vera á annað
hundrað miiljónir króna. Fimm
manns voru handteknir vegna
málsins og hafa fjórir þeirra verið
hnepptir í varðhald. Rannsókn er í
fullum gangi. -HG
vinnumálum á
Þingeyri og allt
unnið í leyni-
makki og á bak
við tjöldin - sóða-
legu leynimakki,"
sagði Ragnheiður
Ólafsdóttir í sam-
tali við DV.
Ragnheiður
ásakaði forsvars-
menn bæjarfé-
lagsins á fundinum fyrir að sitja báð-
um megin borðs varðandi úthlutun
byggðakvótans í hendur eins útgerð-
arfélags sem bæjarfulltrúarnir eru
síðan sjálflr hluthafar í. Þetta segir
Ragnheiður gert á sama tíma og bæj-
arstjóm ræði ekki við aðra aðila og
leiti heldur ekki leiða til að hjálpa
þeim fyrirtækjum sem vora starf-
andi fyrir.
„Sléttanesið fór héðan frá bryggju
klukkan fimm á laugardag í siðasta
sinn. Fyrir mig var það aftökustund.
Þeir komu beint úr Barentshafmu til
að henda dótinu sínu í land og sigldu
svo skipinu suður til Reykjavíkur.
Halldór Halldórsson bæjarstjóri kom
hingað heim til min í vor og handsal-
aði mér loforði um að Sléttanesið og
kvótinn mundu aldrei fara út úr kjör-
dæminu," sagði Ragnheiður Ólafs-
dótth'.
Það er ósatt,
segir bæjar-
stjóri
„Þarna segir
Ragnheiður
hreinlega ósatt,“
segir Halldór
Halldórsson, „Við
gerðum okkur
bæði grein fyrir
því að ég hafði að-
eins um eitt at-
kvæði að segja. Hins vegar sagði ég
við hana að ég myndi gera allt sem í
mínu valdi stæði til þess að koma í
veg fyrir að af þessu yrði. Ég tel að
Ragnheiður hafi misnotað aðstöðu
sína á fundinum. Hún lét kjósa sjálfa
sig sem fundarstjóra og sleit síðan
fundi eftir að vera búin að ata fólk
miklum auri. Mér fannst ég verða
þarna vitni að hennar eigin mann-
lega harmleik. Það sem hún sagði
þarna er ekki svaravert, svona mál-
flutningur dæmir sig algjörlega sjálf-
ur,“ sagði Halldór Halldórsson, bæj-
arstjóri ísafjarðarbæjar.
Ragnheiður ásakaði einnig þing-
menn Vestfirðinga á fundinum fyrir
linkind og benti á að fyrsti þingmað-
ur kjördæmisins, Einar Kristinn
Guðfinnsson, hefði aldrei kallað sam-
an fund þingmanna til að fjalla um
atvinnumál svæðisins í heild sinni.
Eg vísa öllum
dylgjum til
föðurhúsanna
„Ég held að
það sé ekki hægt
að fara niður á
það lága plan
sem Ragnheiður
Ólafsdóttir tíðkar
í þessum umræð-
um,“ sagði Einar
Kristinn Guð-
finnsson, fyrsti þingmaður Vestfirð-
inga. „Ég vísa öllum hennar dylgj-
um og áburði til föðurhúsanna. Hún
var með miklar svívirðingar í allar
áttir, gagnvart nafngreindum ein-
staklingum, bæjarstjóm og öllum
þeim sem hún gat látið sér til hugar
koma. Þetta eru dylgjur sem ekki
eru svara verðar. Það er ekki rétt að
þingmenn hafi ekki setið formlega
fundi um atvinnumál á Þingeyri og
almennt á Vestfjörðum, við gerðum
það t.d. í vor. Síðan höfum við ótal
sinnum rætt þessi mál óformlega,
Ég veitti því eftirtekt að málflutn-
ingur Ragnheiðar átti litinn hljóm-
grunn á fundinum. Eftir að ég hafði
veitt henni maklega ádrepu í lok
fundarins komu til mín ótal Þing-
eyringar sem fundinn sátu og þökk-
uðu mér fyrir,“ sagði Einar K. Guð-
finnsson. -HKr.
Nýrri og glæsilegri Hríseyjarferju var hleypt af stokkunum í Stálsmiðjunni í Reykjavík klukkan sex síðdegis í gær.
Tveir farþegasalir eru í skipinu, með sætum fyrir 70 manns, og getur það borið 20 tonn af vörum. Hríseyingar geta
því farið að hlakka til stakkaskiptanna sem verða með nýju ferjunni en kostnaðurinn við smíði hennar var um 120
milljónir. DV-mynd S
Ragnheiður
Ólafsdóttir.
Halldór
Halldórsson.
Forsætisráðherra hefur áhyggjur af fákeppni í matvöruverslun:
Ekki verðbólgudraugur
- segir Jón Ásgeir Jóhannesson í Baugi hf.
„Allar tölur sýna að matvara
hækkar ekki neitt. Að kenna okkur
í Baugi um að við séum einhver
Tveir bílar eyði-
lögðust í eldi
DV, Suðurnesjum:
Eldur kom upp í bílskúr hússins að
Suðurgötu 23 í Keflavík eftir hádegi í
gær. Tveir bílar sem eigandi bílskúrs-
ins var að vinna við brunnu og eru
taldir ónýtir. Að sögn Jóns Guðlaugs-
sonar, varðstjóra slökkviliðsins, var
mikill eldur í bílskúrnum þegar að
var komið. Örn Högnason, eigandi bfl-
skúrsins, fékk snert af reykeitrun þeg-
ar hann reyndi að slökkva eldinn með
dufthandslökkvitæki. Líkur eru tald-
ar á að kviknað hafi í út frá rafsuðu-
tæki. -AG
verðbólgudraug-
ur er fráleitt og
alveg út í hött.
Bónus hefur í
áratug stuðlað að
því að stórlækka
verðbólguna í
landinu," sagði
Jón Ásgeir Jó-
hannesson, for-
stjóri Baugs hf., í
gærkvöld.
Davíð Oddsson
forsætisráðherra hefur áhyggjur af
fákeppni í matvöruverslun á ís-
landi. Hann sagði í gær að sam-
keppnin færi minnkandi og taldi
ráðherrann að rannsaka þyrfti þró-
un í greininni og að reglur yrðu
settar sem tryggðu eðlilega sam-
keppni milli matvörukaupmanna.
Jón Ásgeir er þessu ósammála.
„Matvara hefur hækkað helmingi
minna en almennt verðlag í landinu
Jón Ásgeir
Jóhannesson,
forstjóri Baugs.
frá því að Baugur
var stofnaður fyr-
ir ári. Það sem
vinnst með því
að auka inn-
kaupamagnið
eins og við höfum
gert miðar að því
að lækka verð til
viðskiptavina til
framtíðar," sagði
Jón Ásgeir. Hann
benti á að aldrei
áður hefði matvara verið auglýst
eins mikið og á þessu ári. Gífurleg
samkeppni væri á markaðnum.
Júlíus Jónsson, kaupmaður í
Nóatúni, stjórnarmaður í Kaupási,
sagði að það dyldist engum að mat-
vöruverð hækkaði ekki, nema þá
fyrir tilstuðlan ríkisins.
„Davíð Oddsson ætti að sjá til
þess að verndartollar á grænmeti
verði afnumdir. Framleiðendur hér
eru víggirtir í
verndun. Eigi
einhver karl svo-
lítið kínakál þá
verður það ekki
flutt inn nema
með ógnartollum
og kílóagjaldi.
Menn eiga oft að
líta sér nær,“
sagði Július.
Hann sagði að
ráðherrar ættu
að kanna betur fákeppnina í bensíni
og olíu sem væri stærra mál. Sam-
keppnin í matvöru væri slík að hún
gengi út i algerar öfgar. Síðasta
dæmið, kjúklingur á krónu, ætti að
sannfæra ráðherrana í þeim efnum.
Verðbólgan kæmi ekki frá matvöru-
kaupmönnum.
Ekki náðist í forsætisráðherra í
gærkvöld.
-JBP
Davíð Oddsson
forsætisráð-
herra.
Stuttar fréttir i>v
Dýrt að hlífa Eyjabökkum
Fljótsdalsvirkjun myndi kosta
tvöfalt meira ef miðlunarlón
virkjunarinnar yrði fært neðar í
árfarveginn og Eyjabökkum hlíft.
Það myndi líka minnka orkugetu
virkjunarinnar um 10-15% vegna
minni fallhæðar. Morgunblaðið
sagði frá.
Illa rekin sveitarfélög
Davíð Odds-
son forsætisráð-
herra segir
óskiljanlegt að
sveitarfélögin
séu rekin með
tapi á sama tíma
og ríkissjóður sé
rekinn með af-
gangi. Hann segir jafnframt að ef
Samfylkingin hefði komist til
valda i siðustu kosningum væri
verðbólgan orðin 50-60%. Sjón-
varpið sagði frá.
Lítil nýliðun
Nýliðun í þorskstofninum í
Barentshafi er minni en verið hef-
ur frá því á árunum 1987 til 1988
samkvæmt niðurstöðum seiða-
leiðangurs Norðmanna og Rússa.
Þetta mun að öllum líkindum
þýða að kvóti íslendinga í
Barentshafi muni falla niður í ár.
Mbl. greindi frá.
Rýðsveppur í bænum
Illræmdur ryðsveppur sem
ræðst á gljávíði hefur að undan-
förnmskotið upp kollinum á höf-
uöborgarsvæðinu. Hann getur
orðið ssvo skæður að runnarnir
drepist og hann hefur einnig
fundist á Suðurlandi. RÚV
greindi frá þessu.
Ómar fyrir útvarpsráð
Mörður Árna-
son útvarpsráðs-
maður segir
nauðsynlegt að
málefni Ómars
Ragnarssonar
verði tekin fyrir
hjá útvarpsráði
vegna ásakana
Austfirðinga um óvönduð vinnu-
brögð hans. Þannig sé hægt að
tryggja að gagnrýni af þessu tagi
dragi ekki dilk á eftir sér. Stöð 2
sagði frá þessu.
Vilja bætta stöðu
Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja, Bandalag háskólamanna og
Kennarasamband íslands vilja
bæta réttarstöðu trúnaðarmanna.
Samtökin telja að oft gjaldi trún-
aðarmenn þess að ganga erinda
samstarfsfólks síns. RÚV sagði
frá þessu.
íþróttirnar hollar
Þolpróf sýna að hjá leikskóla-
börnum sem fá viðbótaríþrótta-
kennslu lækkar hvíldarpúls.
Kennslan virðist einnig auka
sjálfstraust þeirra og félagslega
færni. Sjónvarpið sagði frá.
Vindmyllur á Suöurlandi
Tíu vindmyllur verða -settar
upp í Vestmannaeyjum og á milli
Stokkseyrar og Eyrarbakka til að
nýta vindorku til raforkufram-
leiðslu. Selfossveitur og Bæjar-
veitur Vestmannaeyja standa að
uppsetningu vindmyllanna. Sjón-
varpið sagði frá þessu.
Fjöldi
Að minnsta
kosti 200 blaða-
menn koma til
landsins vegna
ráðstefnunnar
Konur og lýð-
ræði um árþús-
undamót sem
haldin verður
innan skamms. Hillary Clinton og
Madeleine Albright munu verða
meðal ráðstefnugesta. Sjónvarpið
sagði frá.
Ók út af
Umferðarslys varð á Egilsstöð-
um um hálífiögurleytið aðfaranótt
sunnudags. Ökumaður missti
stjórn á bíl sínum og ók út af með
fjóra farþega sem voru i bílnum.
Ökumaður er grunaður um ölvun
en bæði ökumaðurinn og farþeg-
arnir sluppu ótrúlega vel miðað
við aðstæður. -KJA/HG