Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1999, Side 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999
Neytendur
Húsráð
Það er e.t.v. ekki ástæða til að
fleygja strax gömlum eldhús-
tækjum eða pottum og pönnum
þótt útlit þeirra sé ekki lengur
sem áður.
Flikkað upp á gömlu
brauðristina
Til að losna við gulu slikjuna
á hvítum eldhústækjum skal
reyna eftirfarandi: Blandið sam-
an 1/2 bolla af bleikiefni, 1/4
bolla matarsóta og 4 bollum af
heitu vatni. Berið á með svampi
og látið bíða í tíu mínútur.
Skolið og þurrkið vel af. í stað-
inn fyrir bón má síðan fægja
tækin með sótthreinsunar-
spritti.
Annað ráð til aö losna við
gula slikju er að nota blöndu af
vatni og ammoníaki á tækin ef
mikiö liggur á.
Ef engin hreinsiefni eru til
staðar má einfaldlega nota sóda-
vatn. Það hreinsar og fægir um
leið.
Blandarinn
Ef blandarinn er orðinn gam-
all og lúinn og lyktar e.t.v. illa
er ráð að fylla hann með heitu
vatni og setja nokkra dropa af
uppþvottalegi út í. Setjið lokið
síðan á og látið blandarann
ganga í nokkrar sekúndur.
Skolið og látið þorna. Þar með
er gamli blandarinn orðinn eins
og nýsleginn túskildingur.
Brauðbretti
Gömul brauðbretti lykta oft
illa af lauki, hvítlauki eða fiski
og eru jafnvel orðin ónothæf af
þeim völdum. Þá er ráð að skera
sítrónu í tvennt og nudda brett-
iö meö henni.
Einnig er ráð að búa til
blöndu úr matarsóda og vatni og
bera á brettið og skola siðan vel
af þvi. Þá mun brettið losna við
lyktina og verða nothæft að
nýju.
Steikarpannan
Gamla steikarpannan verður
sem ný ef á hana er stráð þurru
þvottaefni á meðan hún er heit.
Setjið síðan raka
nannírs-
þurrku
yfir og bíðið
örlitla stund.
Það verður
auðvelt að ná
brunnum matar-
leifunum af pönnunni á eftir.
Svarta, steypta járnpann-
an
Hreinsið pönnuna að utan
með venjulegum ofnhreinsi. Lát-
ið bíða á í 2 klukkustundir.
Svarta bletti má fjarlægja með
ediki og vatni.
Eftir að pannan hefur verið
hreinsuð er gott að taka vax-
pappír og nudda hana að innan
meðan hún er heit. Það hindrar
ryðmyndun.
Eða þegar hún hefur verið
hreinsuð má nudda örlitlu af
matarolíu innan á hana til að
halda henni í lagí.
Vissirðu þetta? Ef þú eldar á
járnpönnu tekurðu járn úr
henni. Súpa sem soðin er í
nokkrar klukkustundir í járn-
potti hefur 30 sinnum meira
jáminnihald en súpa soðin í
annars konar potti.
Augnlinsur:
Rétt umhirða mikilvæg
Þrátt fyrir mikið úrval fallegra gleraugnaumgjarða vilja sumir frekar ganga með augnlinsur, t.d. þeir sem stunda
íþróttir.
Þrátt fyrir mikið úrval faUegra
gleraugnaumgjarða vilja sumir
frekar ganga með snertUinsur en
gleraugu. Ástæðurnar geta verið
margar, t.d. henta linsur að sjálf-
sögðu betur við aUa íþróttaiðkun
heldur en gleraugu. Sumar konur
vUja einnig nota linsur við hátíðleg
tækifæri frekar en gleraugun sem
notuð er dagsdaglega svo andlitið og
andlitsfórðunin njóti sín betur.
Hverjar sem ástæðurnar em þarf
að ýmsu að hyggja við notkun linsa.
Hér á eftir fara nokkur góð ráð og
svör við spumingum sem kunna að
vakna hjá þeim sem hyggjast kaupa
sér linsur.
Linsur við allra hæfi
FræðUega séð geta aUir notað
snertUinsur. Hægt er að fá linsur
við fjarsýni eða nærsýni í öllum
styrkleikum og fyrir allar augngerð-
ir. Lengi vel gat fólk sem notaði tví-
skipt gleraugu eða var haldið sjón-
skekkju ekki notað linsur en nú eru
komnar á markað linsur sem laga
sjónskekkju og tvískiptar linsur.
Þrátt fyrir að aUir geti fræðilega
séð notað linsur er ekki víst að svo
sé í reyndinni. Afar mikUvægt er að
táraframleiðsla augnanna sé góð því
linsurnar verða að hafa ákveðinn
raka til að fljóta vel á yfirborði aug-
ans. Þeir sem finna fyrir augn-
þurrki eða vinna þar sem andrúms-
loftið er óvenjulega þurrt eða ryk-
mettað gætu því átt í erfiðleikum
með að nota linsur.
Annað áríðandi atriði er að
linsurnar faUi rétt að auganu svo
auðvelt sé að venjast þeim.
Harðar og mjúkar linsur
Mjúkar linsur hafa rutt sér til
rúms á undafornum árum og nú
nota mun fleiri mjúkar linsur held-
ur en harðar. Kostir mjúku
linsanna eru m.a. þeir að auðveld-
ara er að venjast þeim og þær henta
betur við viss tækifæri, s.s. íþrótta-
iðkun. En ekki geta allir notað
mjúkar linsur. Harðar linsur henta
t.d. betur þeim sem hafa einhverja
óalgenga sjóngalla og óeðlUega sjón-
skekkju. Einn aðalkostur hörðu
linsanna er líka að þær endast mun
betur heldur en mjúku linsurnar.
Harðar linsur geta enst í aUt að
þrjú ár með réttri umhirðu. Til eru
nokkrar gerðir af mjúkum linsum
sem eiga að endast mislengi. Hægt
er að fá linsur sem endast í nokkra
mánuði, aðrar endast í einn mánuð
og eru þá þynnri en endingarbetri
linsurnar og síðan er hægt að fá
linsur þar sem hvert par endist
bara daglangt.
Aðlögun og hreinsun
Áður en linsurnar eru keyptar er
nauðsynlegt að láta mæla augað og
táraframleiðsluna hjá augnlækni.
Því næst eru settar prufulinsur í
augað tU að athuga hvort súrefni er
nægilegt í homhimnunni og hvort
linsan hefur góða viðloðun við aug-
að.
Það getur reynst vandaverk að
setja linsurnar í augun til að byrja
með en það kemst upp i vana. Mik-
Uvægt er að augun sé rök þegar
linsurnar eru settar í og fingumir
hreinir svo linsan festist við augað.
Eins og áður sagði á augað auð-
veldara með að aðlagast mjúku lins-
unum en þeim hörðu. Hörðu
linsumar geta virkað eins og að-
skotahlutir í auganu tU að byrja
með. Flestum þykir best að venjast
linsum smátt og smátt með því að
nota þær í stuttan tíma daglega.
Bæta má við klukkustund á dag og
hvíla augun þessi á milli. Ef
linsurnar venjast ekki borgar sig að
hafa samband við augnlækni.
Hreinlæti er afar mikilvægt í
meðhöndlun linsa. Við notkun
þeima safnast saman fita og eggja-
hvíta á þær. Ef hreinlæti skortir
geta myndast bakteríur sem skaða
augað. Linsurnar era þvegnar úr
þartilgerðum hreinsivökva.
Margir nota linsur alla daga árið
Þessi skemmtilegi kjúklingarétt-
ur er ættaður frá Ítalíu. Munið bara
nú sem og hingað til að gegnum-
sjóða kjúklinginn og gæta ýtrasta
hreinlætis.
Uppskrift
4 msk. ólifuolía
750 g kjúklingabitar
2 niðursneiddir laukar
3 pressuð hvitlauksrif
150 g smáir sveppir, skornir í
tvennt
1 dl rauðvín
1 msk. vínedik
lmsk. söxuð steinselja
2 msk. saxað nýtt basil
1 lárviðarlauf
1 stór dós niðursoðnir tómatar
1 dl kjúklingasoð
salt og svartur pipar
sykur á hnífsoddi.
Aðferð
1) Hitið oliuna í stórri pönnu og
raðið kjúklingabitunum á pönnuna
með skinnið niður.
2) Látið bitana brúnast í 3-4 mín-
útur á hvorri hlið. Takið kjúklinga-
bitana af pönnunni og haldið þeim
heitum, t.d. í ofni.
3) Setjið laukinn og hvítlaukinn
saman við olíuna og kjúklingasoðið
á pönnunni og látið krauma í 2-3
mínútur eða þar til þeir era orðnir
ljósbrúnir.
4) Bætið sveppunum við og hrær-
ið í á meðan þeir brúnast í u.þ.b.
um kring án þess að flnna til nokk-
urra óþæginda. Hins vegar er talið
ráðlegt að hvíla sig öðru hverju á
linsunum og nota gleraugu í stað-
eina mínútu.
5) Hellið vininu og edikinu á
pönnuna og látið snöggsjóða þar til
um helmingur vökvans hefur gufað
upp. Hrærið stanslaust í.
6) Bætið kryddjurtunum, lárvið-
arlaufinu og tómötunum saman við
og hrærið vel.
inn. Annars er hætt við að hom-
himna augans fái ekki nægt súrefni
og svokallaðar æðaflækjur myndist
í augunum. -GLM
7) Hrærið kjúklingasoðinu út í og
kryddið með salti, pipar og sykri.
8) Takið nú kjúklingabitana og
raðið þeim í sósuna. Setjið þétt lok
á pönnuna og látið krauma við hæg-
an hita í 1 klst. eða þar til kjúkling-
urinn er alveg meyr.
-GLM
Kjúklingur Cacciatore
Þessi skemmtilegi kjúklingaréttur er ættaður frá Ítalíu.