Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1999, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1999, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON Aðstoðarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiöir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. / gróðurhúsi ríkisvaidsins Ríkisvaldið verndar ekki íslenzk dagblöð með því að leggja steina í götu erlendra dagblaða. Það tollar ekki er- lend dagblöð og skammtar ekki innflutning þeirra eftir þeim dögum, sem innlend dagblöð koma ekki út. Það hef- ur engin afskipti af þessum frjálsa markaði. Ríkisvaldið verndar hins vegar íslenzkt grænmeti með því að leggja steina í götu erlends grænmetis. Það ofur- tollar erlent grænmeti og skammtar innflutning þess eft- ir árstíðum. Innlent grænmeti er ekki frjáls mark- aðsvara, heldur rikisrekin landbúnaðarafurð. AUir geta keypt erlend dagblöð eins og raunar erlend tímarit og erlendar bækur á sömu kjörum af hálfu ríkis- ins og innlend dagblöð, innlend tímarit og innlendar bækur. Dagblöð eru hluti af frjálsu markaðshagkerfi, þar sem neytandinn getur valið það, sem hann vUl. Verðlag dagblaða ræðst af markaði, þar sem dagblöð keppa innbyrðis og við erlend dagblöð, við aðra fjölmiðla á borð við útvarp og sjónvarp. Ef verðlag innlendra dag- blaða fer úr skorðum að mati notenda, geta þeir snúið sér í auknum mæli að öðrum fjölmiðlum. Verðlagi grænmetis er hins vegar fyrst og fremst stjómað af ríkisvaldinu, sem setur því ramma með ofur- toUum. Síðan tekur markaðsráðandi heUdsali við vald- inu og fyUir verðlagsrammann. Neytendur geta ekki snú- ið sér neitt annað með grænmetiskaup sín. Reynsla áranna og áratuganna sýnir, að notkun dag- blaða er mikU og jöfn hér á landi. Kaup og lestur á ís- lenzkum dagblöðum er með því mesta, sem gerist í heim- inum og hefur haldizt þannig um langan aldur. Verðlag dagblaða er því í markaðslegu jafnvægi. TU dæmis má nefna, að lestur DV hefur frá upphafi mælinga verið nokkurn veginn óbreytt hlutfaU af mann- fjölda. Sveiflan miUi lágmarks og hámarks hefur verið innan við 5%. Þetta sýnir markað, sem er í meira jafn- vægi en almennt gerist við frjálst verðlag. Reynslan sýnir hins vegar, að ríkisreksturinn, ofur- toUarnir og okurverðið á grænmeti hefur leitt tU mun minni neyzlu grænmetis hér á landi en í nokkru öðru landi, sem vitað er um. íslendingar eru hálfdrættingar á við siðmenntaðar þjóðir á þessu mikUvæga sviði. Grænmeti er helmingi minni þáttur í mataræði íslend- inga en hann ætti að vera að mati Alþjóðlegu heUbrigð- isstofnunarinnar í París. Það stafar auðvitað af því, að fólk sparar það. Verðlag grænmetis er ekki í markaðs- legu jafnvægi eins og verðlag dagblaðanna. Fyrr eða síðar springur blaðran, sem íslenzk garðyrkja lifir í. Fyrr eða síðar neyðist hún tU að búa við sama rekstrarumhverfi og íslenzk dagblöð og nánast öU önnur vara í landinu. Það endar með, að erlend ríki neita að kaupa af okkur fisk, ef við opnum ekki markaðinn. Það er óhoUt fyrir innlenda garðyrkju að lifa í gervi- heimi, sem getur opnast fyrir erlendum vindum, þegar hagsmunir utanríkisviðskipta knýja ríkisvaldið tU að hætta afskiptum af grænmetismarkaði, knýja það tU að leggja niður innflutningsskömmtun og ofurtoUa. Dagblöðin hafa hins vegar ekkert að óttast, því að þau hafa aUtaf lifað við opna glugga, þar sem erlendir vindar blása, rétt eins og meirihluti innlenda hagkerfisins. Þau hafa lagað sig að samkeppnisaðstæðum, meðan innlend garðyrkja felur sig í gróðurhúsi ríkisvaldsins. Almenningur veit, að markaðshagkerfið framleiðir velmegun. Fólk lætur ekki gabbast af áróðri þeirra, sem vUja fá að sofa áfram utan þessa hagkerfis. Jónas Kristjánsson „Til höfuðs Áma“ var fyr- irsögn með stríðsletri á for- síðu DV sl. föstudag. í fyrir- sögninni er vísað til þeirrar kenningar blaðamannsins að ef Hrannar B. Amarsson komi inn í borgarstjóm Reykjavíkur sé þeirri inn- komu stefnt til höfuðs Árna Þór Sigurðssyni. Á annarri síðu í blaðinu er málinu fylgt eftir með hálfsíðu „frétt“ þar sem ónafngreindir heimildar- menn eru bornir fyrir held- ur vafasömum fullyrðing- um. Eini nafngreindi heim- ildarmaðurinn er sú sem þetta skrifar og ekkert af því sem eftir mér er haft rennir nokkrum stoðum undir þær vangaveltur sem birtast á síðum blaðsins. Það vakti hins vegar athygli mína hversu rætin skrifin em í garð Árna Þórs Sig- urðssonar og annarra sem standa að Reykjavíkurlist- anum. Gíslataka Þegar lagt er mat á hlut- lægni og trúverðugleika frétta er mikilvægt að leggja sig eftir orðavali. Mun ég nú tilfæra nokkur dæmi um Árni Þór Sigurðsson, borgarfullrúi R-listans. - Verður síður en svo „utan garðs“ og gegnir mörgum trúnaðarstörfum fyrir Reykjavíkurlistann með mikilli prýði, segir m.a. í grein borgarstjóra. Til höfuðs Arna? síðustu kosningum. Hann kom inn á listann sem fulltrúi Alþýðu- bandalagsins. Miðað við þær hugmyndir um kosningabandalag sem lágu til grundvallar Reykja.vikurlistanum hefði Ámi Þór Sigurðs- son átt að koma inn sem varamaður Guð- rúnar Ágústsdóttur þeg- ar hún hvarf úr borgar- stjórn. Settur félags- málaráðherra úrskurð- aði hins vegar að Reykjavíkurlistinn telj- ist ekki kosningabanda- lag heldur stjómmála- samtök og váramenn taki sæti í borgarstjórn „ Reykjavíkurlistinn hefur ekki skipt sér af því þó að fólk hafi sagt sig úr flokkum eða flutt sig á milli þeirra svo lengi sem fullur trúnaður og heilindi ríkja í sam- starfinu. Þessi breidd og víðsýni hefur verið okkar gæfa og engin ástæða til að ætla að óreyndu að á því verði breyting. “ Kjallarinn Ingibjörg Sólrún Gisladóttir borgarstjóri orðnotkun í fyrr- nefndri „frétt“. Tal- að er um „brott- hlaupinn borgar- fulltrúa" þó að Árni Þór hafl marglýst því yfír að úrsögn sín úr Al- þýðubandalaginu hafi engin áhrif á störf sín í þágu Reykjavíkurlistans. Látið er að því liggja að hann ætli að taka félaga sina í Reykjavíkurlist- anum „í gíslingu". Ekki sé þó líklegt að verði af þeirri gíslatöku því sam- herjar hans í borg- arstjóminni eigi ýmissa kosta völ. Það þurfi ekki að kenna þeim klæk- ina. Ámi Þór verði „sleginn af‘, hon- um verði „hent fyr- ir borð“, hann verði „utan garðs“, „gerður útlægur" og hafður „á skil- orði“. Minna má nú gagn gera og óskilj- anlegt hvemig nokkur maður get- ur borið sitt barr eftir slíka meðferð! í réttri röð Eini flugufóturinn fyrir fyrr- nefndri frétt er þessi: Árni Þór var í 10. sæti á Reykjavíkurlistanum i í samræmi við röð á lista. Anna Geirsdóttir, sem var í 9. sæti á listanum, er fyrsti vara- borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans. Hún tekur því sæti í borgarstjóm þegar einhver aðalfulltrúi forfall- ast um lengri eða skemmri tíma. Þetta á við óháð því hvaða flokkur eða einstaklingur á hlut að máli. Þegar Hrannar óskaði eftir leyfi frá borgarstjóm tók hún hans sæti og ef hann kemur aftur til starfa tekur Anna sæti Guðrúnar Ágústsdóttur í borgarstjóm Reykjavíkur. Ámi Þór verður þá fyrsti varaborgarfulltrúi Reykja- víkurlistans og kemur inn í hvert sinn sem einhver forfallast. Þannig er rétt að málum staðið miðað við fyrrnefndan úrskurð og fráleitt að halda því fram að Árna sé „hent fyrir borð“ eða hann „sleginn af ‘ þó að aðrir, sem fram- ar eru á listanum, taki þau sæti sem þeim ber. Enn síður verður hann „utan garðs“ því eins og réttilega kemur fram 1 fyrmefndri DV „frétt“ gegnir Ámi mörgum trúnaðarstörfum fyrir Reykjavík- urlistann og gerir það meö mikilli prýöi. Flokkaflakk í nefndum og ráðum á vegum Reykjavíkurlistans starfar fólk sem tilheyrir þeim fjórum flokk- um og samtökum sem standa að Reykjavíkurlistanum sem og fólk sem er utan flokka eða félagar í Vinstri-grænum. Reykjavíkurlist- inn hefur ekki skipt sér af því þó að fólk hafi sagt sig úr flokkum eða flutt sig á milli þeirra svo lengi sem fullur trúnaður og heil- indi ríkja í samstarfinu. Þessi breidd og víðsýni hefur verið okk- ar gæfa og engin ástæða til að ætla að óreyndu að á því verði breyt- ing. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Skoðanir annarra Karlinn sextugi „Satt að segja er illa fariö með alla þá kosti sem sex-. tugur karl hefur áunnið sér. Hann er beinlínis búinn að hlaupa af sér hornin, er kannske búinn að skilja nokkrum sinnum, liggur áreiðanlega á einhverjum pen- ingum, nennir ekki að halda framhjá, gefur af sér sæmi- leg eftirlaun, ef hann fellur frá, situr ekki uppi með neina ómegð, nema þá barnabörn (sem þarf í mesta lagi að heimsækja á afmælisdögum), er hættur að feta sig upp mannvirðingarstigann, er oftast eigandi að skuld- lausri íbúð. Og svo er hægt að senda hann í endurhæf- ingu á líkamsræktarstöð, þó ekki væri til annars en að hafa frið fyrir honum heima við!... Þó er þetta kynslóð- in sem situr uppi með reynsluna." Ellert B. Schram í sunnudagsbl. Mbl. 17. okt. Búsetustýring með handafli „Að ætla sér að stýra búsetu fólks með handafli og fjár- austri er fásinna og hafa þær aðferðir fyrir löngu geng- ið sér til húðar ... Eina töframeðalið sem kann að duga er að reyna að draga úr því mikla aðdráttarafli sem þétt- býli Innnesja hefur á aðra landsmenn og að hætt verði að líta á Reykjavík sem einhvern allsherjarþjónustu- kjama, sem sjálfsagt er að sækja allar þarfir til. ísland hefur upp á margt annað að bjóða en það sem Reykjavík er fær um að veita ... Lokun Miðbæjarflugvallarins gæti verið góð byrjun á því að styrkja þjónustu og athafna- semi í öðrum byggðarlögum." Oddur Ólafsson i ritstjórnarspjalli Dags 17. okt. Peningana inni í landinu „Núverandi uppsveifla mun ekki vara endalaust. Lík- lega mun hægja á islensku efnahagslífi á næsta ári. Við- skiptahalli landsins er umtalsverður eða 33 milljarðar á síðasta ári og þess vegna er ekki aðeins nauðsynlegt að halda peningum inni í landinum heldur verður að tryggja umtalsvert innstreymi af fjármagni til þess aö standa straum af þessum halla ... Neikvæður viðskipta- jöfnuður er hins vegar þungur baggi til lengdar og dreg- ur úr trúverðugleika gengisins. Þess vegna eru það eng- in undur að nú þegar á þessu ári hafa fjórar vaxtahækk- anir átt sér stað, en vextir eru nú um 6% hærri hérlend- is en gerist erlendis ... Og hvert prósentustig rýrir kaup- mátt almennings sem er skuldum vafmn.“ Ásgeir Jónsson í Mbl. 17. okt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.