Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1999, Page 30
34
FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999
Afmæli____________________________
Guðmundur G. Brynjólfsson
Guðmundur Garðar Brynjólfsson,
fyrrv. bóndi að Hlöðutúni í Staf-
holtstungum í Borgarflrði, er átt-
ræður i dag.
Starfsferill
Guðmundur fæddist í Hlöðutúni
og ólst þar upp við öll almenn
sveitastörf. Hann gekk í skóla á
Hlöðutúnsholtinu, stundaði nám við
Bændaskólann á Hvanneyri og lauk
þaðan búfræðiprófl 1943.
Guðmundur vann við bú foreldra
sinna í Hlöðutúni, tók þar síðan við
búi af foreldrum sínum og var þar
bóndi um árabil.
Guðmundur var fjallkóngur
Tungnamanna um árabil og sat í
hreppsnefnd Stafholtstungna í tutt-
ugu og átta ár.
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist 5.5. 1961
Þorgerði Jónu Árnadóttur, f. 9.11.
1935, d. 21.6. 1990, húsfreyju. Hún
var dóttir Árna Magnúsar Andrés-
sonar og Þuríðar Guðmundsdóttur
en þau bjuggu á Hólmavík.
Börn Guðmundar og
Þorgerðar eru Brynjólfur
Guðmundsson, f. 8.2.
1962, bóndi í Hlöðutúni,
kvæntur Sæunni Elfu
Sverrisdóttur, f. 15.5.1961
og eiga þau synina Guð-
mund Garðar, Magnús og
Hauk; Þuriður Guð-
mundsdóttir, f. 3.6. 1964,
bóndi og húsfreyja að
Sámsstöðum í Hvítársíðu
en maður hennar er Ólaf-
ur Guðmundsson, f. 10.10.
1941 og eru böm þeirra
Guðmundur, Þorgerður, Daníel,
Ómar og Ámi.
Fóstursonur Guðmundar, sonur
Þorgerðar, var Ásgeir Pétursson, f.
28.4. 1960, d. 30.6. 1996 en kona hans
var Margrét Högna Magnúsdóttir, f.
13.6. 1960 og eru börn þeirra Þor-
gerður Jóna, Pétur Haukur og Reyn-
ir Tumi, búsett á Akranesi.
Systkini Guðmundar: Anna
Brynjólfsdóttir, f. 26.9. 1906, fyrrv.
húsfreyja og kennari á Gilsbakka í
Hvítársíðu, var gift Sigurði Snorra-
syni, f. 23.10.1894, d. 2.10.
1978; Margrét Brynjólfs-
dóttir, f. 15.6. 1908, d.
25.1. 1928; Jón Ásgeir
Brynjólfsson, f. 22.11.
1909, d. 11.7. 1981, sölu-
maður í Reykjavík,
kvæntur Kristinu Ólafs-
dóttir, f. 22.10. 1910, d.
25.5. 1993; Ragnheiður
Soffla Brynjólfsdóttir, f.
4.3. 1912, kennari í
Reykjavík, var gift Helga
H. Tómassyni, f. 25.9.
1896, d. 2.8. 1958; Guð-
brandur Gissur Brynjólfsson, f. 24.2.
1914, læknir í Chicago, en kona
hans er Sigrid Aina Brynjólfsson, f.
22.2. 1926; Ingibjörg Brynjólfsdóttir
f. 30.5. 1916, búsett i Reykjavík en
sambýlismaður hennar er Leifur
Steinarsson, f. 29.5. 1927.
Foreldrar Guðmundar voru
Brynjólfur Guðbrandsson, f. 18.9.
1875, d. 25.8. 1959, bóndi og kennari
í Hlöðutúni, og k.h., Jónina Guðrún
Jónsdóttir, f. 19.11.1875, d. 6.12.1961,
húsfreyja.
Ætt
Brynjólfur var bróðir Helga, fóð-
ur Sigurðar borgarfógeta, föður
Gísla Heimis yfírlæknis. Brynjólfur
var sonur Guðbrands, b. á Klafa-
stöðum í Skilmannahreppi Brynj-
ólfssonar, b. á Ytra-Hólmi á Akra-
nesi, bróður Amdísar, langömmu
Finnboga Rúts, föður Vigdísar Finn-
bogadóttur. Brynjólfur var sonur
Teits, vefara við Innréttingamar
Sveinssonar.
Móðir Brynjólfs var Margrét
Helgadóttir, b. í Stóra-Botni í Hval-
flrði, bróður Erlings, langafa Þór-
mundar, fóður Jónatans prófessors.
Helgi var sonur Erlings, b. á Stóra-
Botni Árnasonar,og Margrétar
Sveinsdóttur, pr. í Landþingum Vig-
fússonar, og Steinunnar Gisladótt-
ur, b. á Miðsandi SveinssonEir
Jónína Guðrún var dóttir Jóns, b.
á Fossi í Grímsnesi Þorsteinssonar,
og k.h., Önnu Guðmundsdóttur hús-
freyju.
Guðmundur verður heima á
afmælisdaginn.
Guðmundur Garðar
Brynjólfsson.
Vilhjálmur Grétar Pálsson
Vilhjálmur Grétar Pálsson skrif-
stofustjóri, Nesbakka 11, Neskaup-
stað, er fertugur í dag.
Starfsferill
, Vilhjálmur fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp fyrstu þrjú árin, að
Brekku í Mjóafirði til sjö ára aldurs
og síðan á Seyðisfirði.
Hann gekk i bamaskóla Seyðis-
flarðar, lauk landsprófi frá Eiðum
" 1974 og lauk stúdentsprófi frá ML
1979, og prófi í viðskiptafræði frá HÍ
1984.
Vilhjálmur stundaði sjómennsku
á sumrin með skóla frá sextán ára
aldri og til tuttugu og fimm ára ald-
urs en veturinn eftir stúdentspróf
var hann á skuttogaranum Gullveri
þar sem faðir hans var skipstjóri.
Vilhjálmur hóf störf við lánadeild
Alþýðubankans hf. vorið 1984, var
aðalbókari Alþýðubankans hf.
1985-88, var ráðinn sparisjóðsstjóri
Sparisjóðs Árskógsstrandar haustið
1988. Sparisjóður Árskógsstrandar,
Svarfdæla og Hríseyjar sameinuð-
ust 1993, og varð Vilhjálmur þá úti-
bússtjóri yfir afgreiðslunum í Hrís-
ey og Árskógsströnd til 1997.
Með starfinu í Sparisjóðnum á
Árskógsströnd, rak Vilhjálmur bók-
haldsstofuna Rún sf. ásamt Soffiu G.
Ragnarsdóttur. Þá sá hann um bók-
hald fyrir Árskógshrepp.
Vilhjálmur flutti til Neskaupstað-
ar 1997 og hóf þar störf sem skrif-
stofustjóri hjá Sparisjóði Norðfjarð-
ar.
Vilhjálmur sat í sóknarnefnd
Stærri-Árskógshrepps og situr í
sóknamefnd Norðfjarðarkirkju.
Fjölskylda
Eiginkona Vilhjáms er Soffia Sig-
ríður Sigbjömsdóttir, f. 17.11. 1958,
fiskiðnaðarmaður og sjúkraliði.
Hún er dóttir Sigbjörns Sigurðsson-
ar, bifreiðastjóra á Egilsstöðum, og
Þórlaugar Jónsdóttur, starfsmanns
hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands
á Egilsstöðum.
Böm Vilhjálms og Soffiu Sigríðar
era Páll Vilhjálmsson, f. 25.6. 1984,
nemi; Arna Vilhjálmsdóttir, f. 3.1.
1991, nemi.
Systkini Vilhjálms eru Valgerður
Pálsdóttir, f. 9.4.1961, matráðskona í
Reykjavík; Svanbjörg Pálsdóttir, f.
20.10. 1963, hjúkrunarforstjóri á
dvalarheimili aldraðra í
Hulduhlíð á Eskifirði;
Anna Margrét Pálsdóttir,
f. 20.5. 1969, hjúkmnar-
fræðingur í Reykjavík;
Jóhanna Pálsdóttir, f.
27.1. 1973, nemi í Inns-
bmck í Austurríki.
Foreldrar Vilhjálms
eru Páll Vilhjálmsson, f.
23.5. 1940, skipstjóri á
Seyðisfirði, og Kristín
Gissurardóttir, f. 17.4.
1938, húsmóðir.
Ætt
Páll er bróðir Hjálmars
fiskifræðings. Páll er sonur Vil-
hjálms, fyrrv. menntamálaráðherra
Hjálmarssonar, útvegsb. á Brekku
Vilhjálmssonar, b. I Brekku
Hjálmarssonar, hreppstjóra á
Brekku Hermannssonar, í Firði
Jónssonar pamfils. Móðir Hjálmars
hreppstjóra var Sigríður
Salómonsdóttir frá Vík í Lóni.
Móðir Vilhjálms var María frá
Jórvi í Breiðdal, dóttir Jóns
Jónssonar í Flögu í Breiðdal, og
Margrétar Jónsdóttur, frá Krossi
Jenssonar. Móðir
Hjálmars var Helga
Halldórsdóttir Hermanns
í Firði. Móðir Vilhjálms,
fyrrv. ráðherra var
Stefanía, systir Bjargar,
móður Árna, útvegsb. á
Hánefsstöðum, föður
Tómasar, fyrrv. seðla-
bankastjóra. Stefanía var
dóttir Sigurðar, b. á
Hánefsstöðum Stefáns-
sonar, og Sigríðar
Vilhjálmsdóttur, b. á
Brekku Vilhjálmssonar.
Móðir Páls er Margrét
Þorkelsdóttir, verkamanns á
Seyðisfirði Bjömssonar, og Helgu
Ólafsdóttur húsmóður.
Foreldrar Kristínar era Gissur
Ólafur Erlingsson löggiltur skjala-
þýðandi, fyrrv. umdæmisstjóri
Pósts og síma, og Margrét Mjallhvít
Linnet húsmóðir, seinni kona Giss-
urar er Valgerður Óskarsdóttir hús-
móðir.
Vilhjálmur Grétar
Pálsson.
Jón Sigurðsson
Jón Sigurðsson síma-
verkstjóri, Stóragerði 29,
Hvolsvelli, er fertugur í
dag.
Starfsferill
Jón fæddist í Hafnar-
firði og ólst þar upp í
foreldrahúsum.
Hann stundaði bama-
skólanám í Lækjarskóla,
* stundaði nám við Flens-
borgarskólann í Hafnar-
firði og síðan Iðnskólann
í Hafnarfirði. Jón lærði
síðan símsmíði við Póst-
skólanum og lauk pi
Jón Sigurðsson.
og síma- eyja og
ófi sem
símsmiður 1978.
Jón hefur starfað hjá
Pósti og síma, síðan
Landssímanum, frá 1976,
fyrst í Reykjavík og síðan
á Hvolsvelli frá 1982.
Jón hefur starfað mikið
með leikfélagi Rangæ-
inga á undanförnum ár-
um.
Jón og Þórunn fluttu á
Hvolsvöll 1982 og hafa átt
þar heima síðan að und-
anskildu árinu 1991 er
þau fluttu til Vestmanna-
ru þar búsett.
Fjölskylda
Kona Jóns frá 1982 er Þórann
Ólafsdóttir, f. 11.3. 1962, húsmóðir.
Hún er dóttir Ólafs Tryggvasonar,
bónda á Raufarfelli undir Eyjafjöll-
um, og k.h., Bóelar Guðmundsdótt-
ur húsfreyju sem er látin.
Systkini Jóns: Sverrir, f. 13.4.
1943, stýrimaður í Hafnarfirði;
Helgi, f. 23.5. 1945, rafvirki á Kefla-
víkurflugvelli, býr í Hafnarfirði;
Gylfi, f. 17.2. 1950, trésmíðameistari
í Hafnarfirði; Guðfinna, f. 24.11.
1953, skrifstofumaður, búsett á
Snorrastöðum; Jónína, f. 2.12. 1961,
hjúkrunarfræðingur í Reykjavík.
Foreldrar Jóns: Sigurður Ingvars-
son, f. 1.11. 1914, fyrrv. verkstjóri
hjá Pósti og síma, og k.h., María
Kristín Helgadóttir, f. 17.6. 1921, d.
11.12. 1964, húsmóðir.
Ætt
Sigurður er sonur Ingvars Sig-
urðssonar og Friðbjargar Einars-
dóttur.
María var dóttir Helga Bjarna-
sonar og Maríu Jónsdóttur.
Jón og Þórunn taka á móti ætt-
ingjum og vinum í félagsheimilinu
Hvoli á Hvolsvelli, laugardaginn
23.10. n.k.
mmmm
IBMREBÐÁBl
DV
Tll hamingju
með afmælið
21. október
75 ára
Andrés Jóhannsson,
Þrastarhólum 10, Reykjavik.
Hallgrimur Ólafsson,
Dalbraut 29, Akranesi.
70 ára
Birgir Sigurðsson
skipstjóri,
Blómsturvöllum 17,
Neskaupsstað.
Helga Þórisdóttir,
Skagabraut 26, Akranesi.
Jón B. Guðjónsson,
Urðarvegi 6, ísafii'ði.
Sigurður EmU Marinósson,
Hvassaleiti 141, Reykjavík.
50 ára
Ásdís Jensdóttir,
Löngumýri 34, Akureyri.
Guðfinnur Halldórsson,
Lækjargötu 4, Reykjavík.
Kristján Guðnason,
Rafstöðvarvegi 23, Reykjavík.
Ragna Jóhannsdóttir,
Háuhlíð 9, Sauðárkróki.
Sigurður Pálsson,
Rauðalæk 7, Reykjavík.
Þórunn Friðriksdóttir,
Smáratúni 16, Keflavík.
Örn Bragason,
Þverholti 32, Reykjavík.
40 ára
Axel Kristinsson,
Grandargerði 9, Reykjavík.
Elís Örn Hinz,
Þrastarlundi 13, Garðabæ.
Fjalar Vigfússon,
Munaðarhóli 6, Hellissandi.
Guðlaug Halla Birgisdóttir,
Kársnesbraut 88, Kópavogi.
Helena Bjarman,
Hvassaleiti 55, Reykjavík.
Hjörtur Hoffmann,
Suðurhólum 8, Reykjavík.
Jóhanna A Hartmannsdóttir,
Huldugili 74, Akureyri.
Jón Ingi Benediktsson,
Búlandi 13, Reykjavík.
Jón Ingi Sigurðsson,
Grenihlíð 7, Sauðárkróki.
Jón Jónasson,
Engihjalla 3, Kópavogi.
Jón Sigurðsson,
Stóragerði 29, Hvolsvelli.
Kristvin Jóhannes Sveinsson,
Eyjabakka 9, Reykjavik.
Magnea Þóra Erlingsdóttir,
Snorrabraut 35, Reykjavík.
Yupin Lumpa,
Bugðulæk 5, Reykjavík.