Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1999, Side 2
2
MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1999
Fréttir
Skattgreiðendur greiddu 350.000 krónur fyrir knattspymuferð þingmanna til Færeyja:
Hvern varðar um það?
- segir Árni Johnsen. Dvalarkostnaður greiddur af umdeildum starfskostnaði
„Af hverju spyrðu ekki formann
íþróttafélagsins, sem er Steingrímur
J.?“ var það fyrsta sem Vilhjálmur Eg-
Osson, alþingismaður og félagi í
íþróttafélagi Alþingis, sagði er hann
var spurður um tilgang og tilurð ferð-
ar sem tólf manna hópur þingmanna
og starfsmanna þingsins fóru í sumar
til Færeyja með leiguflugi á kostnað
skattgreiðenda að spila fótbolta við
færeyska lögþingsmenn. „Eða Áma
Johnsen?" bætti Vilhjálmur síðan við.
„Þetta var lið þingmanna og starfs-
manna Alþingis sem þama spilaði við
Færeyinga," sagði Steingrímur J. Sig-
fússon alþingismaður. „Þetta er sam-
bærilegt við það sem þekkt er hjá þjóð-
þingum víða annars staðar. Það em
t.d. ýmis mót og keppnir í gangi sem
við höfum nú ekki tekið þátt í. Þetta er
þó enginn formlegur félagsskapur þó
ég geti svo sem vel gengist við því að
vera fyrirliði."
- Er Alþingi þá að gera út knatt-
spymulið?
„Nei, við gerum þetta okkur sjálfúm
til ánægju. Við höfúm að vísu fengið
stuðning frá þinginu en það er flokkað
með því sem þingið leggur af mörkum
til líkamsræktar og slíkra hluta. Að
mestu leyti borgum við þetta þó sjálf-
ir.“
- Hvað með 350 þúsund króna kostn-
að vegna leiguflugs?
„Það passar að það vora greiddar
350 þúsund vegna leiguflugs og vélin
beið eftir okkur á meðan. Við vorum
því bara einn sólarhring. Það reyndist
vera ódýrara og taka styttri tíma en að
fara með áætlunarflugi. Það var búið
að samþykkja að komið yrði til móts
við okkur í slíku. Við borguðum sjálf-
ir kostnað við gistingu, uppihald og
ferðir til og frá flugvelli og búninga og
annað slíkt,“ sagði Steingrímur.
Þingið skyldi borga
Alþingi hefúr staðfest að greiddar
hafi verið 350 þúsund krónur vegna
leiguflugs fótboltakappanna.
Þyrla Gæslunnar:
Sjómaður féll
útbyrðis og tví-
fótbrotnaði
Landhelgisgæslunni barst
hjálparbeiðni snemma á sunnu-
dagsmorgun vegna sjómanns er
hafði fallið útbyrðis með þeim af-
leiðingum að hann fótbrotnaði á
báðum fótum. Slysið átti sér stað í
lögsögu Skotlands en togarinn er
skráður í Belize sem er ríki í Mið-
Ameríku.
Flugið tók tæpa sex tíma en
þyrlan fór af stað rúmlega ellefu í
gærmorgun og lenti á sjötta tím-
anum. Þyrlan tók eldsneyti í Vest-
mannaeyjum fyrir ferðina. Nim-
rodþota frá Skotlandi var þyrl-
unni til aðstoðar með því að fylgja
henni og gefa upplýsingar um veð-
ur. Flugið gekk vel og var farið
með sjómanninn á slysadeild
Landspítalans til að gera að sár-
um hans. -hól
Sandgerði:
Bíll valt hundrað
metra
Bifreið fór út af Sandgerðisvegi að-
faranótt sunnudags. Bifreiðin, sem
var á leiðinni frá Sandgerði, fór út af
veginum, valt nokkrar veltur og
stöðvaðist um 100 metra frá veginum.
Þrennt var í bílnum en enginn slasað-
ist alvarlega.
Vegfarandi sem kom að slysinu
hafði samband við Neyðarlínuna og
kom sjúkrabíil í framhaldi af því og
flutti fólkið á Heilbrigðisstofnun Suð-
urnesja. Lögreglan í Keflavík sagði
það hafa orðið fólkinu til happs að all-
ir voru í beltum og að líknarbelgir
blésust upp við höggið. Bifreiðin er
gjörónýt. -hól
Alþingismenn og starfsmenn Alþingis sjást hér á Reykjavíkurfiugvelli framan við leiguflugvél sem flutti þá til Fær-
eyja til að spila fótbolta við kollega sína þar. Leikurinn tapaðist, 5-6, þrátt fyrir að markvörður íslenska liðsins léki
með háf í upphafi leiks. Á myndinni eru m.a. alþingismennirnir Árni Johnsen, Kristinn H. Gunnarsson, Steingrímur
J. Sigfússon, Ingi Björn Albertsson, Lúðvík Bergvinsson, Tómas Ingi Olrich og Vilhjálmur Egilsson.
„Um er að ræða styrk sem veittur
var í því skyni að efla samskipti Ai-
þingis og Lögþings Færeyja," sagði í
svari rekstrar- og fjármálastjóra Al-
þingis við fyrirspum DV.
Alþingismenn fá fasta greiðslu til
viðbótar við þingfararkaupið, svokail-
aðan starfskostnað upp á 42.500 krónur
og geta þeir valið um að framvísa
reikningum og fá þá fulla greiðslu eða
fá upphæðina greidda beint. En þá er
dreginn af henni tekjuskattur.
„í rauninni héldum við að búið hafi
verið að semja um það að Alþingi borg-
aði alla vega fyrir flugið en það var
óljóst hvort hótelkostnaðurinn færi á
starfskostnað eða hvort þingið borgaði.
En ég hef ekki séð neitt uppgjör á því
ennþá. Ég sagði bara að ef þingið ekki
borgaði myndi ég setja þetta á starfs-
kostnað hjá mér. Við töldum að þama
væri Alþingi að sýna færeyska þing-
inu og Færeyingum ákveðið vinar-
bragð,“ sagði Vilhjálmur.
Hvern varðar um það?
Ámi Johnsen vildi alls ekki ræða
hver hefði greitt kostnað við leiguflug-
ið. „Blessaður, vertu ekki að hafa
áhyggjur af svoleiðis hlutum. Hvem
varðar um það hvað er borgað fyrir
það sem maður fer svona? Talaðu bara
við Steingrim. Ég gríp ekki fram fyrir
hendumar á forsetanum með neitt,
það era reglur í klúbbnum," sagði
hann.
DV-mynd Teitur
Ámi sagðist alls ekki hafa flogið i
hug að fá dvalarkostnað sinn í Færeyj-
um greiddan af starfskostnaði sinum
sem aiþingismaður. „Nei, en þetta er
góð hugmynd," sagði Ámi.
Steingrímur J. Sigfússon hlakkar til
að fara aftur í fótboltaferð til Færeyja.
„Færeyingar gerðu mikið með okkur,
það vora spilaðir þjóðsöngvar og allur
aðgangseyrir mörg hundmð áhorfenda
og aðrar tekjur runnu til Amnesty
Intemational. Við töpuðum leiknum
með 5 mörkum gegn 6 en við skorað-
um þó fleiri mörk. Það rötuðu bara
sum þeirra inn í okkar eigið mark.
Vonandi geta þeir svo heimsótt okkur
næsta vor, við erum þegar byijaðir að
æfa,“ sagði Steingrímur. -GAR/HKr.
Mýrdalur:
Farfuglaheimili
eyðilagðist í eldi
Frá Reynisbrekku, þar urðu miklar skemmdir í eldsvoða á laugardag.
DV-mynd Sigurður Hjálmarsson
DV.Vík:
Slökkviliðið í Vík í Mýrdal var
kallað út að farfuglaheimilinu Reyn-
isbrekku, rétt austan Víkur, um há-
degi á laugardag. „Það var hringt i
okkur frá neyðarlínunni kl 14.55 og
fyrstu slökkviliðsmenn vora komnir
þangað réttum 12 mínútum síðar. Þá
var þekjan bmnnin niður og þar var
lítið við ráðið,“ sagði Einar Hjörleifur
Ólafsson, siökkviliðsstjóri í Vík.
Efri hæð hússins á Reynisbrekku
var undir súð og hún er gjörónýt eft-
ir eldsvoðann. Neðri hæð hússins er
mikið skemmd af reyk og hita sem
sveið málningu á loftum og efri hluta
veggja. Þá eru miklar skemmdir af
vatni á neðri hæðinni. Eldsupptök
em ókunn en verið er að leita skýr-
inga. Nóttina áður en kviknaði í
sváfu ferðamenn i húsinu. Feðalang-
amir vom ekki heima þegar eldurinn
blossaði upp en allur farangur þeirra
varð eldinum að bráð.
Einar Hjörleifur sagði að slökkvi-
starf hefði gengið vel þrátt fyrir að
erfltt hefði verið að nálgast vatn á
brunastaðnum. „Við voram með 3000
lítra af vatni á slökkvibílnum, hjá
húsinu var 4000 lítra miðlunartankur
sem við nýttum og eftir stutta stund
komu bændur með aukavatn í
haugsugum tft okkar.“
Á Reynisbrekku hafa hjónin Reyn-
ir Ragnarsson og Etith Dam Ragnars-
son rekið farfuglaheimili um árabil.
Þau vom búin að endurnýja húsið
töluvert á undanförnum árum, þar á
meðal byggðu þau garðskála við það
til að nota sem matsal fyrir ferðafólk.
Að sögn Reynis em skemmdir á hús-
inu miklar, efri hæðin horfinn og
neðri hæðin stórskemmd eða ónýt. Á
þessari stundu er hann óviss um
hvort ráðist vemr í að gera það upp
að nýju.
-NH
Stuttar fréttir i>v
Fagnar hafnarleysi
Inga Jóna Þórð-
ardóttir, oddviti
Sjálfstæðisflokks-
ins í borgarstjóm,
fagnar niðurstöðu
erlendra ráðgjafa
þess efnis að ekki
sé þörf á höfn í
Eiösvík á Geldinganesi eins og gert er
ráð fyrir í aðalskipulagi. Hún vill að
Geldinganesið verði þegar tekið form-
lega undir íbúabyggð. Morgunblaðið
greindi frá.
Lést í bílslysi
Banaslys varð um sjöleytið á laug-
ardagsmorgun skammt frá Búðum á
Snæfellsnesi þegar flutningabiil með
festivagn aftan í valt. Talið er að mað-
urinn hafi látist samstundist. Maður-
inn hét Valtýr Magnús Helgason.
Hann var 26 ára gamail og iætur eftir
sig unnustu og eitt bam. Hann var úr
Stykkishóimi en búsettur í Reykja-
vík. Vísir.is greindi frá.
Sexsnjóflóö
Sex snjóflóð féllu í Súðavíkurhlið í
vikunni. Tvö flóðanna vom allstór og
má víst telja að illa hefði getað farið
ef bílar hefðu verið á ferðinni þegar
snjóflóðin féllu. Jafnan er gijót í
fyrstu snjóflóöunum sem falla á þess-
um slóðum á haustin. Mbl. sagði frá.
Langtímavextir lækki
Landsbanki íslands spáir því aö
langtímavextir hérlendis fari lækkandi
á næstu mánuðum. Stöð 2 greindi frá.
Gagnrýna Sjálfstæðisflokk
Sjálfstæðisflokkurinn var gagn-
rýndur á mörgum sviðum í umræð-
um á miðstjómarfundi Framsóknar-
flokksins á laugardag. Meðal annars
var rætt um byggðamál, skattamál,
fjölskyldumál og sölu ríkisins á lilutn-
um i FBA. Finnur Ingólfsson, varafor-
maður flokksins, sagði að á vettvangi
ríkisstjómar hefði ekki verið rætt um
dreifða eignaraðild
á eftirmarkaði og
lagasetningu í því
sambandi. Mbl.
greindi frá.
Brandari
Ari Skúlasaon,
framkvæmdastjóri
ASÍ, segir það brandara ef semja eigi
um kosningaloforð í stjómarsáttmál-
anum í næstu samningum. Það sé út
í hött ef kaupa eigi bamakort í kjara-
samningum. Ari segir bamakort ekki
uppi á borðinu þar. Afsláttur til
bamafjölskyldna í formi bamakorta
eða á annan veg sé hins vegar sameig-
inlegt mál ailra. Stöð 2 sagði frá.
Slasaðist á fingri
Erlendur verkamaður slasaðist á
fmgri þegar loka átti hann inni í
fangaklefa í Vestmannaeyjum á
fimmtudagskvöld. Maðurinn var
handtekinn á veitingastaðnum Lund-
anum þar sem hann var með háreysti
og hafði lent í áflogum við gesti stað-
arins.
Ánægður með Halldór
Bjöm Bjarna-
son menntamála-
ráðherra segir að
það sé ánægjulegt
að formaður
Framsóknar-
flokksins taki
undir þau sjónar-
mið að breyta
þurfi rekstrarfyrirkomulagi Ríkisút-
varpsins. Halldór Ásgrímsson ræddi
málefni þess á miðstjómarfundi fram-
sóknarflokksins á fóstudag. Sagði
hann að framsóknarmenn hefðu talið
að ekki kæmi tii greina að selja stofh-
unina en gera þyrfti ákveðnar grund-
vallarbreytingar á stjómskipuiagi
hennar og losa hana undan
flokkspólitísku stjómvaldi. Mbl.
greindi frá.
Ekki til íslands
ísland er á meðal þjóða sem mælt
er með að fólk ferðist ekki til um
næstu áramót. Landið er í hópi þeirra
þjóða sem ekki era taldar vera fylli-
lega tilbúnar til að takast á við 2000
vandann. Þetta kemur fram í netút-
gáfú Daily Telegraph. Formaður
nefndar um 2000 vandann á íslandi
telur þó að landsmenn standi ágæt-
lega. Sjónvarpið sagði frá.
-hdm