Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1999, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1999, Side 28
28 FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1999 X>‘V' onn Ummæli Sömu draumarnir „Mér finnst skrýtið að draumar manna í lok þessa árþús- unds séu þeir sömu og fyrir , 30-40 árum.“ Olafur Jóhann Ólafsson, for- stjóri og rithöf- undur, um stór- iðju íslendinga, í Morgunblaðinu. Forystan villir sýn „Málflutningur Framsóknar- forystunnar hefur byggst á því að villa um fyrir almenningi með þeim hætti að þeir sem vilji lögformlegt umhverfismat séu þar með á móti virkjunar- framkvæmdum, framþróun og landsbyggðinni." Ólafur M. Magnússon um- hverfissinni í Framsóknar- flokknum, í DV. Kunnuglegt stílbragð „Mér þykir ekki örgrannt um að í lærdóms- grein sinni beiti Össur (Skarphéð- insson) alkunnu stílbragði sínu að hverfa sem ugla upp í tré og predika það- an niður til lærisveina sinna.“ Hjálmar Árnason alþingis- maður, í Degi. Lyfjafræðing í uppvaskið „I versta falli ræð ég lyfja- fræðing í uppvaskið og læt hann standa undir nafninu." Guðvarður Gíslason veit- ingamaður sem vill opna veitingastað undir nafninu Apotek. Að vita allt um guð „Er hægt að vita allt um guð, taka próf í vit- neskjunni og fræð- unum sem lúta aö hans margvíslega anda og sköpun. Svo virðist vera. Ekki bara það, heldur er hægt að fá 10 í guð- fræði. En það getur líklega hvergi gerst nema á ís- landi." Guðbergur Bergsson rithöf- undur, í DV. k Urðum að vera brjálaðar „Við höfum unnið hérna með því að vera brjálaðar og vorum ákveðnar í að vera það í kvöld." Harpa Melsted, fyrirliði Hauka, eftir sigurleik í Eyjum gegn ÍBV, í DV. Þórarinn Eyfjörð, formaður Bandalags sjálfstæðra leikhúsa: Vöxturinn hefur orðið án þess að skerða hlut stóru leikhúsanna „Við erum að fara þá leið sem fær er fyrir okkur að Samkeppnis- stofnun kanni hvort opinberir aðil- ar séu að mismuna þeim sem starfa á leikhúsmarkaðinum með fram- lögum. Þetta tengist því að við höf- um í mörg ár átt í viðræðum við riki og borg þar sem við höfum bent á að nauðsynlegt sé að búa til áætlun um framtíðina vegna þess að leiklistin skipar orðið æ __ lega á síðustu árum og allur þessi vöxtur hjá sjálfstæðu leikhúsunum hefur orðið án þess að skerða hlut stóru leikhúsanna og við viljum geta boðið lágt miðaverð, en þá verðum við að starfa á sama starfs- grundvelli og hin leikhúsin, en það gerum við ekki í dag. Ég og fleiri höfum alltaf sagt að það eigi að reka opinber leik- stærri sess í menningarlifi ■■ *t * • okkar og að hlutverk IVIclOlir ClagSinS frjálsu leikhúsanna í leik- ------------------------ húsmenningunni hefur vaxið gríð- arlega á undanfómum árum. Við höfum orðið varir við velvilja en svörin hafa komið hægt. Þessi vöxt- ur í sjálfstæðu leikhúsunum hefur gert það að verkum að stóru leik- húsin tvö, sem njóta stórra opin- berra styrkja, sérstaklega Leikfélag Reykjavíkur, hafa verið að bjóða miðaverð sem er langt undir því sem eðlilegt getur talist og Leikfé- lagið verið með tilboð sem eru svo lág að enginn á hinum frjálsa markaði hefur möguleika á að gera slíkt hið sama,“ segir Þórarinn Ey- fjörð, formaður Bandalags sjálf- stæðu leikhúsanna, en bandalagið hefur farið fram á það við Sam- keppnisstofnun að það athugi hvort óeðlilegir viðskiptahættir eigi sér stað á leikhúsmarkaði. Þórarinn tekur fram að það sé vilji allra sem starfa í leiklistinni að geta boðið lágt miðaverð: „Kjami málsins er sá að leiklistin er list fjöldans og það sýnir sig best í því hve aðsókn hefur aukist gífur- hús með mikilli reisn en þegar þau eru farin að bjóða miðaverð langt undir því sem eðlilegt get- ur talist þá verðum við að bregðast við með einhverj- um hætti.“ Þórarinn segir þennan aukna áhuga íslendinga á leiklist vera, að hluta til, tilkominn vegna sjónvarps og kvikmyndahúsa. „Það er mín skoðun að þetta gríðarlega magn af erlendu afþreyingarefni, bæði i sjónvarpi, á myndböndum og kvikmyndahúsum, hafi skapað þau viðbrögð hjá almenningi að það kemur i leikhús til að fá íslenska leiklist og sjá íslenska listamenn til mótvægis við þessa erlendu froðu sem dembt er yfir okkur. Önnur ástæða er að sjálfstæðu leikhúsunum hefur oft tekist að búa til sýningar í mjög háum gæðaflokki.“ Þórarinn rekur sjáifur leikhús, íslenska leikhúsið: „Þetta er leik- hópur án fasts samastaðar og við sýnum ekki reglulega. Segja má að íslenska leikhúsið sé leikhús sem fer af stað í kringum hugmynd- ir. Ég sýni svo þegar tekist hefur að fjármagma það leik- rit sem ég hef áhuga á að sýna. í augnablikinu er ég aðeins með hugmyndir sem ég vinn að. Ég hef einnig að undanförnu setið við skriftir og segja má að skriftir taki orðið meiri tíma en áður.“ -HK Jónas Ingimundarson leikur um á morgun. Píanótónleikar endurteknir Á morgun endurtekur Jónas Ingimundarson pí- anóleikari einleiks- tónleika sína í Saln- um í Tónlistarhúsi Kópavogs vegna þess að margir urðu frá að hverfa og hefjast þeir kl. 16.00. Fyrir hlé leikur Jónas fyrstu og síðustu sónötu Beethovens. Sagt er að Beethoven hafi Tónleikar trúað píanóinu fyrir mörgum sínum gain. dýpstu tilfinningum og má segja að sónöt- ur hans fyrir það hljóðfæri séu eins konar ævisaga hans í tónum. Eftir hlé leikur Jónas valsana fjórtán eftir Chopin í tilefni af 150 ára ártíð tónskálds- ins. - ■ - -EVpoR. EVÞÓR,- Fjúkandi reiður maður Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki. Bjarni Haukur Þórsson leikur unga manninn sem ieitar að ástinni. Kossinn Bíóleikhúsið sýnir Kossinn eft- ir Hallgrím Helgason í Bíóborg- inni annað kvöld kl. 19. Kossinn er gamanleikur með rómantísku ívafl og fjallar um leit ungs manns að ástinni sinni þar sem kossinn kemur mjög við sögu. Verkið fjallar um veruleika ungs fólks í dag og gerist því á skemmtistöðum af ýmsum gerð- um, myndbandaleigu, líkams- ræktarstöð, auglýsingastofu, skyndibitastöðum, kaffihúsi, kvik- myndahúsi og heimilum sem flest- ir kannast við. Bjami Haukur Þórsson (Hellis- búinn) fer með---------------- aðalhlutverkið LeíkHÚS en aðnr leikar- ______________ ar eru Steinn Ármann Magnús- son, Þórhallur (Laddi) Sigurðsson, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Laufey Brá Jónsdóttir, Davið Þór Jónsson, Guðbjörg Thoroddsen og Sigurveig Jónsdóttir. Jóhann Öm Ólafsson, Berglind Petersen, Brynhildur Tinna Birgis- dóttir, Brynjar Örn Þorleifsson dansa og leika i sýningunni. Leik- stjóri er Jóhann Sigurðarson. Koss- inn er fyrsta verk Bíóleikhúsins. Bridge Nýkrýndir íslandsmeistarar yngri spilara, Páll Þórsson og Frí- mann Stefánsson, nældu sér í hrein- an topp í þessu spili í úrslitum ís- landsmótsins í tvímenningi sem fram fór um síðustu helgi. Það hef- ur stundum verið sagt að ungir spil- arar segi djarflegar á spilin sín en þeir sem eldri eru í hettunni. Þetta spil rennir stoðum undir þá kenn- ingu en djarfar sagnir verður að réttlæta með góðri spilamennsku. Páll og Frímann sátu í AV í spilinu og sagnir gengu þannig, austur gjaf- ari og AV á hættu: * 10964 * K7652 * G8 * 72 4 A D109 ■f Á109764 4 K104 N * D832 V ÁG4 * D52 * Á98 4 KG75 * 83 * K3 * DG653 Austur Suður Vestur Norður 1 * pass 1 4 pass 1 grand pass 2 4 pass 2 4 pass 2 grönd pass 3 4 pass 4 4 pass 5 lauf pass 5* pass 64 p/h Tveggja tígla sögn Páls var krafa og sagnir þróuðust fljótlega út í slemmuþreifingar eftir að Frímann hafði tekið undir tígullit félaga. Fjórir tíglar voru ásaspurning (RKCB) og frnim lauf lofuðu tveimur ásum og trompdrottningu. Slemman er ekki faUeg en á þó ýmsa mögu- leika. Trompið getur legið á hag- stæðan máta með engan tapslag og þó einn gjafaslag- ur sé á trompið þá getur hún unnist ef hjarta- kóngur liggur fyrir svíningu og þvingun er til staðar. Útspil norðurs var hjarta og Páll hleypti heim á ní- una. Næst var tígulásinn lagður nið- ur og síðan meiri tígli spilað á kóng suðurs. Suður spilaði áfram hjarta sem Páll tók á gosann í blindum. Næst voru teknir slagirnir á hálita- ásana og öllum tíglunum rennt í botn. I fjögurra spila endastöðu átti vestur eftir K104 í laufi og eitt tromp en blindur var með spaða- drottningu og Á98 í laufi. Einu laufi var hent í síðasta trompið og suöur gat ekki haldið valdi bæði á spaða- kóngnum og laufdrottningunni. ísak Örn Sigurösson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.