Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1999, Blaðsíða 4
4
Fréttir
Gremja vegna kaupa Flugleiða á danskri ferðaskrifstofu:
Hindra alla samkeppni
- hreint með ólíkindum, segir forstjóri Samvinnuferða
Vaxandi harka er nú í samkeppni
um sölu ferða til Danmerkur í kjöl-
far kaupa Flugleiða á hluta í dönsku
ferðaskrifstofunni Hekla Rejser.
Flugleiðir keyptu stóran hlut i
ferðaskrifstofunni í haust.
Samkvæmt heimildum blaðsins
var í undirbúningi að Samvinnu-
ferðir-Landsýn og íslandsflug
keyptu hluta í henni. Tilgangurinn
með þeim kaupum var að efla hana.
Málið var komið á rekspöl þegar
forráðamenn Flugleiða fréttu af því,
höfðu snör handtök og buðu
hærra verð heldur en Sam-
vinnuferðir og Islandsflug.
Samvinna var milli Hekla
Rejser, íslandsflugs og Sam-
vinnuferða um ferðir til
Kaupmannahafnar í fyrra.
Helgi Jóhannsson, forstjóri
Samvinnuferða, staðfesti
við DV að búið hefði verið
að gera samning um áfram-
haldandi samvinnu þessara
aðila næsta sumar. Flug-
Helgi Jóhanns-
son, forstjóri
Samvinnuferöa.
leiðir hefðu keypt skrifstof-
una og nú væri ljóst að ekki
yrði af þvi samstarfi því
Flugleiðir myndu ekki sam-
þykkja það.
„Þetta sýnir bara hversu
„heilbrigð" samkeppnin er
á íslandi," sagði Helgi. „Ef
ferðaskrifstofur eru í sam-
starfi sem ekki er þóknan-
legt Flugleiðum vinna þeir
skipulega að því að hindra
alla eðlilega samkeppni í
krafti stærðarinnar og stöðva þar
með alla hugsanlega samkeppni.
Það er einkennileg tilviljun að
áhugi Flugleiða á Hekla Rejser
skyldi aukast svona allt í einu. Ég
veit ekki hvort þetta er löglegt en
það er samkeppnisyfirvalda að fylgj-
ast með þessu. Það hlýtur að vera
óeðlilegt og óhagstætt fyrir íslenska
neytendur ef þetta er það sem koma
skal. Þessi þróun er hreint með ólík-
indum.“
-JSS
Hólar í Hjaltadal:
Forsetinn
fellur fyrir
hryssu
„Forsetinn fór um allt hesthúsið og
staldraði sérstaklega við hjá grárri,
stórri hryssu sem er í eigu eins nem-
andans héma. Það fór ekki á milli
mála að hann féll fyrir hryssunni þótt
hann hefði ekki fal-
ast eftir henni á
staðnum," sagði
Valgeir Bjamason,
yfirkennari á Hól-
um í Hjaltadal, um
heimsókn Ólafs
Ragnars Grímsson-
ar, forseta íslands, á
staðinn um síðast-
liðna helgi en þar
var forsetinn á ferð ásamt nánasta
starfsfólki sinu á forsetaskrifstofunni.
„Þau komu hingað í lítiili rútu og vom
að skoða landið í vetrarbúningi; engin
lögreglan og ekkert tilstand og það fór
ekki á milli mála að forsetinn var mjög
ánægður meö hrossin. Það fór ekki
fram hjá neinum sem fylgdist með að í
forsetanum hefur kviknað mikill
hestaáhugi,“ sagði Valgeir yfirkenn-
ari.
Samkvæmt heimildum DV telja þeir
sem til þekkja það aðeins spumingu
um tíma hvenær forsetinn fjárfestir í
sínu fyrsta hrossi. Sem kunnugt er hef-
ur hann oftlega bmgðið sér á hestbak
og á landsmóti hestamanna sem haldið
verður í Reykjavik á næsta ári er ráð-
gert að forsetinn ríði í fararbroddi í
2000 hesta hópreið umhverfis Rauða-
vatn. -EIR
Ólafur Ragnar
Grímsson.
Betur fór en á horföist í höröum árekstri á Reykjanesbraut á laugardagsmorguninn. DV-mynd HH
Harður árekstur á Reykjanesbraut:
Lærleggsbrotnaði og festist í flakinu
Umferðarslys varð á mótum
Reykjanesbrautar og Smiðjuvegar á
laugardagsmorguninn og þurfti að
kalla til tækjabíl slökkviliðsins.
Slysið varð skömmu fyrir hálfsjö
að morgni laugardagsins og var bif-
reiðinni ekið af talsverðu afli á
ljósastaur. Ökumaður var klemmd-
ur fastur í bílnum og þurfti að kalla
til tækjabíl til að klippa hann laus-
an. Samkvæmt upplýsingum frá
Sjúkrahúsi Reykjavíkur fór maður-
inn í aðgerð vegna lærleggsbrots en
að öðru leyti er líðan hans nokkuð
góð en bifreiðin er talin ónýt. -HKr.
Hefur útlitið með sér
Díigfafi
Imynd er orðið afar fyrirferðar-
mikið hugtak á öllum mögulegum
sviðum daglegs lífs. ímyndarfræð-
ingar sviðsetja hvers kyns uppá-
komur frá a til ö og menn opna
vart orðið munninn á opinberum
vettvangi án þess að þessir ímynd-
arfræðingar komi við sögu. Er svo
komið að fæstir skilja hvernig
nokkur gat náð árangri áður en
sjónhverfingarmeistarar ímyndar-
fræðanna komu til sögunnar. En
nú eru þeir allt í öllu. Vilji menn
ná árangri er vísasta leiðin að
gæta að ímyndinni.
Stjórnendur Karlakórs Reykja-
víkur setja markið hátt. Kórinn
æfir sig I nýju húsnæði og í und-
irbúningi er mikil ferð vestur um
haf. Til að tryggja að allt verði
eins og best verður á kosið þarf
kórinn ekki einasta að syngja vel
heldur þarf hann' að líta vel út.
Fara vel á sviði. Því eitt er að
heyra - annað að sjá. Og ef það
sem menn sjá fellur þeim ekki í
geð gæti það haft neikvæð áhrif á
hlustir tónleikagesta og stefnt
upplifun þeirra og tónleikunum
öllum í voða. Á kórtónleikum
Karlakórs Reykjavíkur verður
góður söngur og gott útlit að hald-
ast í hendur. Upphefjast í æðra veldi og valda
algleymi þeirra sem á hlýða.
Lítið verður úr alsælu tónleikagesta ef í
kórnum eru menn sem sprengja allar venjuleg-
ar viðmiðanir um holdafar og stela senunni í
orðsins fyllstu merkingu. Þungavigtarmenn í
kórnum virðast sammála um að við þetta verði
ekki unað. Þeir hafa því klifað á því að breyta
verði og bæta útlit kórsins. í framhaldinu
fengu feitustu kórfélagamir reisupassann. Og
það þrátt fyrir að hafa sungið athugasemda-
laust í kórnum í rúman áratug. Einn feiti karl-
inn segir söngprófið sem hann og aðrir feitir
karlar voru sendir í vera átyllu til að losna við
hann og hina feitu karlana. Söngprófið gefi
brottrekstrinum settlegra yfirbragð. Er ekki
annað að sjá en ímyndarfræðin séu nýtt til hins
ýtrasta.
Eftir að feitu klarlamir voru reknir voru
aðrir settir á skilorð. Ekki er að vita hvort þeir
bjarga sér með því að fara i megrun. En fyrst
söngur og útlit er ein órofa heild mundi öflugt
heilsuræktarátak óneitanlega gera stöðu þeirra
vænlegri og stórbæta útlit kórsins. Og kórinn
yrði væntanlega miklu betri fyrir vikið. Það er
ekkert launungarmál að félagar í Karlakór
Reykjavíkur vilja vera vel klæddir og líta vel
út. Því markmiði verður fylgt eftir af fullum
þunga. Fátt virðist því geta komið í veg fyrir að
karakór Reykjavíkur komi, sjái og sigri í Vest-
urheimi. Kórinn hefur útlitið með sér.
Dagfari.
MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 1999
sandkorn
Sög og Steingrímur
Það vantar ekki jólatilboðin í versl-
ununum þessa dagana. Allir eru með
einhver tilboð og, að eigin sögn, tilboð
sem vart er hægt að hafna. Eitt
skemmtilegasta tilboð-
ið er þó án efa hjá
þeim í Húsasmiðjunni
en þar blanda menn
saman margfrægri
handlagni Stein-
gríms Hermanns-
sonar, fyrrverandi
forsætisráðherra,
sem sagaði næstum
því af sér fingur
um árið, og ágætri bók um Stein-
grim sem kom út á dögunum. Útkom-
an er sú að ef menn kaupa Hitachi-
hjólsög í Húsasmiðjunni þá fá þeir
bókina um Denna í kaupbæti og
væntanlega leiðarvísi með söginni
svo þeir sagi ekki af sér finguma eins
og svo litlu munaði hjá Denna.
Góð staða
Ámi Gunnarsson, varaþingmaður
Framsóknarflokksins á Norðurlandi
vestra og fyrrum formaður ungliða-
hreyfingar flokksins og aðstoðarmað-
ur Páls Péturssonar fé-
lagsmálaráðherra, hef-
ur fengið nýtt starf.
Hann er orðinn fram-
kvæmdastjóri Fisk-
iðju Sauðárkróks
sem er í eigu Kaup-
félags Skagfirðinga.
Á Króknum eru
margir undrandi
vegna þessarar
ráðningar því þeir vita ekki til þess
að Fiskiðja Sauðárkróks hafi í frammi
neina starfsemi og Árni hafi því ekk-
ert að framkvæma sem framkvæmda-
stjóri. Hins vegar hefur verið bent á
að Fiskiðja Sauðárkróks eigi hlutabréf
í Fiskiðjunni Skagfiröingi og það geti
jú verið að hlutverk Árna verði að
gæta þessara hlutabréfa. Annars klóra
menn á Króknum sér bara í skallan-
um vegna ráðningarinnar.
Enga aumingja
Teitur Örlygsson, körfuboltamað-
ur í Njarðvik, er með albestu keppnis-
mönnum og er hið grimma augnaráð
hans í keppni víðfrægt. Fyrir leik
Njarðvíkinga og Kefl-
víkinga fyrir
nokkrum dögum var
Teitur spurður að því
hvort Njarðvíking-
amir, sem era án er-
lends leikmanns um
þessar mundir, ætl-
uðu ekki „að fá sér
kana“ og var
greinilegt að kappinn
var ekkert allt of hrifinn af því svona
fyrir fram. Hann sagði efnislega að
það væri ekkert vit í því að vera að
flytja hingað „einhverja aumingja"
frá útlöndum sem ekkert geti í körfu-
bolta og vísaði án efa til þess að
Njarðvíkingar hafa orðið að senda
þrjá bandaríska leikmenn heim í vet-
ur vegna þess hversu lélegir þeir
voru. Væri óskandi að forsvarsmenn
ýmissa félaga hugsuðu eins og Teitur
í þessu máli.
Villimennska
Ragnar Sverrisson, formaðm'
Kaupmannafélags Akureyrar, vandar
stórmörkuðum sem versla með jóla-
bækurnar ekki kveðjumar. í samtali
við Dag í síðustu viku
sagði Ragnar að í
raun og veru væri
ekki um neitt annað
að ræða en „viili-
mennsku" sem bitn-
aði á þeim sem
versluðu með bæk-
ur allt árið og
héldu því þeirri
þjónustu uppi. Ragnar sagði
auðvitað borguðu stórmarkaðimir
með bókunum en þeir næðu þeim
peningum til baka með sölu á annarri
vöru. Það fylgdi ekki sögunni hvort
Ragnar, sem verslar með herrafót af
miklum móði á Akureyri, hyggist fara
út í kjötsölu í framtíðinni.
Umsjón Gyifi Kristjánsson
Netfang: sandkorn @ff. is