Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2000, Blaðsíða 16
16
ennmg
MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2000 L>V
Að vera eða ekki vera
Frá sýningu Særúnar Stefánsdóttur, gallerí@hlemmur.is.
galleri@hlemmur.is
er afbragðsviöbót við
sýningarstaðaflóruna
sem fyrir var
höfuðborgarsvæðinu
en það hefur verið
starfrækt siðan í haust.
Galleríið er í eigu
tveggja lista-kvenna,
Þóru Þóris-dóttur og
Valgerðar Guðlaugs-
dóttur og virðist rekið
á einni saman
hugsjóninni. Að
minnsta kosti kostar
salurinn sýn-endurna
ekki neitt og það
munar um minna fyrir
listamennina. Galleríið
er því tæplega
gróðafyrirtæki en fyrir
vikið geta þær stöllur
rekið skarpari
sýningastefnu þar sem
þær eru hvorki háðar
umsóknum né
leigutekjum. Þeim er í lófa lagið að bjóða til
sín þeim sem þær lystir.
Það sem af er hefur áherslan greinilega
verið lögð á að sýna verk ungra listamanna
sem ekki hafa náð öruggri fótfestu á hinni
hálu framabraut og vonandi að þeirri stefnu
verði haldið sem lengst. Ekki veitir af
slíkum sýningahúsum til mótvægis við
listasöfnin og gallerí á borð við 18 sem
einungis taka inn reynda og þekkta
listamenn. Það er í myndlistinni einsog
öðrum greinum að erfiðast er að ýta úr vör,
víðast hvar er krafíst „reynslu". Þó svo
galleríið á Hlemmi láti lítið yfir sér má segja
að þar fari fram fórnfúst brautryðjendastarf.
Ég get ekki látið hjá líða að minnast á
heimasíðuna, www/hlemmur.is, sem er bæði
einföld og aðgengileg og ólíkt mörgum
vefjum á Netinu koma upplýsingarnar fljótt
upp á skjáinn.
Tvíræðni
Nú stendur yfir í galleríinu sýning Særún-
ar Stefánsdóttur, „Hér“, en Særún er nýkom-
in heim úr tveggja ára mastersnámi í
Skotlandi. Á sýningunni eru tvö verk. í
fremri salnum er myndband með sjálfsmynd-
um af listakonunni sem mun vera tekið á
nokkuð löngu tímabili. Myndin er afar langt
frá því að vera í fókus og hægara sagt en gert
að greina hvað þar fer fram en samkvæmt
Myndlist
Áslaug Thorlacius
upplýsingum sem gefnar eru á sýningarstað
mun listakonan ýmist vera að borða frost-
pinna eða reykja. I innra herberginu er inn-
setning, sömuleiðis með sjálfsmyndum. Á
gólfinu miðju er all-
umfangsmikill pólý-
esterskýhnoðri með
ankannalegum hvít-
um blómum sem
mér skilst að séu
búin til úr sígarettu-
pappír og tóbaki og
e.t.v. einhverjum
aukaefnum. Ljós-
myndirnar eru tvær
og hallast þær upp
að veggnum niðri
við gólfið. Á þeim
heldur listakonan á
bangsanum sínum
og horfir upp í lins-
una því myndirnar
eru teknar ofan frá.
Sýning Særúnar
hefur nokkuð tví-
ræða merkingu.
Annars vegar má
lesa út úr henni lýs-
ingu á einhvers kon-
ar uppleystu vímuá-
standi og getur þá hvort tveggja komið til
greina að listakonan sé í vímunni þar sem
hún hefur flúið inn í ábyrgðarleysi bernsk-
unnar eða áhorfandinn sem stendur skýjum
ofar þarna inni á gólfi. En líka má sjá í henni
skírskotun einmitt til þessa ástands sem
blasir við ungu fólki sem er að hefja feril
sinn. Það að eiga að baki reynslu, jafnvel
langt nám, en standa samt algjörlega á byrj-
unarreit. Að vera og ekki vera í senn. Sak-
laust bamið mænir vamarlaust upp til
hinna fullorðnu með dótið sitt og sælgætið
en í sömu andrá er barnið fullorðin reykj-
andi manneskja sem reynt hefur sitt af
hverju.
Þetta er heiðarleg sýning sem gengur
ágætlega upp og í henni eru fleiri en eitt
sannleikskorn. Það má líka sjá í henni tölu-
verða íroníu í garð myndlistarheimsins,
ekki síst í því hvernig listakonan mænir upp
til áhorfenda, dómara sinna.
Hæfilega villimannsleg
Pálína Ámadóttir heitir ungur
fiðluleikari sem hefur verið í
framhaldsnámi erlendis og hefur
vakið töluverða athygli fyrir
mikla hæfíleika. Meðal annars
vann hún 3. verðlaun í alþjóð-
legu keppninni í Corpus Christi
fyrir ekki löngu síðan. Nú eru
góðir fiðluleikarar ófáir og sam-
keppnin hörð, og því verður að
teljast afburðaárangur að komast
í úrslit í alþjóðlegri keppni. En
Pálína mim hafa sýnt hvað í
henni bjó strax i námi í Tónlist-
arskólanum í Reykjavík og þvi
kemur velgengni hennar kannski
ekki svo mjög á óvart.
Pálína hélt tónleika ásamt
hinni kóresku Sooah Chae í Saln-
um í Kópavogi á laugardaginn
var. Efnisskráin var ekki af létt-
ari endanum, Capriccio eftir
danska rómantíkerinn Niels
Gade, Chacconnan fræga úr ein-
leikspartítu nr. 2 eftir Bach,
sónata nr. 2 eftir Prokofíev og
sónata i Es-dúr op. 18 eftir Ric-
hard Strauss.
Capriccio eftir Gade er virtu-
ósaverk þar sem rýkur úr
strengjum fiðlunnar. Innihaldið
er hins vegar fremur rýrt, allt
saman vel þekktar formúlur og
ekkert sem kemur á óvart.
Pálína virtist örlítið taugaóstyrk í byrjun en
náði sér fljótlega á strik og lék óaðfinnanlega
eftir það. Sömuleiðis skilaði Sooah Chae
sínu hlutverki með miklum sóma og var
heildarútkoman því hin ánægjulegasta.
Næst á efnisskránni var Chacconnan fyrr-
nefnda eftir Bach, griðarlega erfltt verk sem
gerir kröfur um afburðatækni og djúpan list-
rænan skilning. Pálina hafði tónsmíðina full-
komlega á valdi sínu, hver tónn var hreinn
og áreynslulaus og túlkunin svo mögnuð að
maöur gleymdi stað og stund. Stígandin var
svo hnitmiðuð og úthugsuð að maður fór
ósjálfrátt að leita að sætisólum til að spenna
sig fastan, og var þetta með því betra sem
imdirritaður hefur heyrt á fiðlutónleikum í
langan tíma.
Ekki síðri var sónata Prokofievs fyrir
Tónlist
Jónas Sen
fiðlu og píanó. Þetta er ótrúlega litríkt verk
og snilldarlega byggt upp, og gætir þar
áhrifa úr ýmsum áttum. Rússnesku þjóðlög-
in eru ekki langt undan en rödd píanósins
minnir stundum á verk Rachmaninoffs.
Flutningur þeirra Pálínu og Chae var stór-
brotinn og áhrifaríkur, túlkunin litrík og
hæfilega villimannsleg. Smáklúður átti sér
þó stað í byrjun þar sem fiðluleikarinn byrj-
aði á undan píanóleikaranum.
Síðast á efnisskránni var sónata op. 18 eft-
ir Richard Strauss, en hún heyrist ekki oft
hér á landi. Fýrir þá sem ekki vita var
Strauss uppi á árunum 1864 til 1949 og er
ekki sá sem Straussvalsarnir eru kenndir
við. Sónatan er samin árið 1887 í rómantísk-
um stíl og má segja að hún byrji þar sem
önnur rómantísk verk enda. Það eru há-
punktar meira og minna allan tímann, og
jafnvel rólegu kaflamir eru ekkert rólegir
því þeir eru svo útflúraðir. Það er eins og
Strauss hafi verið á sterum þegar hann
samdi verkið, og hafi gleymt að taka róandi
pillumar í leiðinni. En flutningur þeirra
Pálínu og Chae var hrein schnilld, upphaf-
inn og manískur og allar nótur á réttum
stað, og var þetta góður endir á frábærum
tónleikum.
Pálína Árnadóttir og Sooah Chae: Upphafinn og manískur flutningur. DV-mynd E.ÓI.
Fyrirlestur van Oord
Hollenski málarinn Johan van Oord flytur
fyrirlestur í stofú 024 í Listaháskóla íslands við
Laugamesveg í dag kl. 12.30, en sýning á verk-
um hans og þriggja annarra málara, Tuma
Magnússonar, Ninu Roos
og Claus Egemose, var opn-
uð á Kjarvalsstöðum á laug-
ardaginn. Verk þessara
málara allra vísa í hið
óhlutbundna málverk þar
sem stórir einlitir fletir eða
litaraðir ná yfir allt yfir-
borðið. Þau eiga það sam-
eiginlegt að vekja tilfinn-
ingu fyrir stöðugum víxlá-
hrifnm samdráttar og út-
þenslu.
Auk þess að vera málari kennh' Johan van
Oord við Rietveld Academy í Amsterdam. í fyr-
irlestrinum fjallar hann um námsár sín í
Hollandi á áttunda áratugnum og þau þjóðfé-
lagslegu og menningarlegu áhrif sem mótuðu
verk hans á þeim tíma. Um leið veltir hann fyr-
ir sér þróuninni og því hvemig listnemar velja
sér túlkunaraðferðir nú til dags og sýnir
skyggnur máh sínu til stuðnings.
Óperusýning verður til
Meðal fjölmargra áhugaverðra kvöldnám-
skeiða fyrir almenning hjá Endurmenntunar-
stofnun Háskóla íslands á útmánuðum er Óp-
emsýning verður til sem haldið er í samstarfi
við íslensku óperuna. Námskeiðið tengist beint
uppsetningu Óperunnar á Lukretía
svívirt (The Rape of Lucretia) eftir
Benjamin Britten sem frumsýnd
verður 4. febrúar.
Námskeiðið er í umsjón Bjama
Daníelssonar ópemstjóra (á mynd)
og þar verður fjallaö um höfundinn
og verkið, þátttakendur fá að
skyggnast bak við tjöldin í íslensku
óperunni og fylgjast með sköpun
sýningarinnar. Óperan ijallar um hið illa í
manninum og eyðileggingu hins göfuga og
fagra, og em bæði saga og tónlist í hæsta máta
áhrifarík.
Kennarar á námskeiðinu verða Bodo Igesz
leikstjóri og Gerrit Schuil hljómsveitarstjóri og
námskeiðið verður haldið 19.-29. janúar auk
þess sem farið verður á sýningu í febrúar.
Nánari upplýsingar fást í sima 525 4923 eða á
slóðinni http://www.endurmenntun.hi.is
Nýr tónlistarskóli
Nýr tónlistarskóli hefur tekið til starfa að
Gylfaflöt 5 í Grafarvogi undir heitinu Tónskóli
hörpunnar. Skólastjóri er Kjartan Eggertsson
sem hefúr stýrt tónlistarskólum víða um land í
tvo áratugi.
í Tónskóla höi-punnar verður kennt á blokk-
flautu, gítar, rafgítar, hljómborð, píanó, þver-
flautu, klarinett, trompet, fiðlu, harmoniku og
saxófón.
Aðeins eitt líf
Sigurbjöm Þorkelsson framkvæmdastjóri
hefur sent frá sér ljóðabókina Aðeins eitt líf.
Hann hefúr áður gefið út smásögur en þetta er
fyrsta ljóðabók hans. Hún geymir 80 ljóð sem
fjalla um lífið og tilveruna, Guð og eilífðina, og
er tileinkuð 2000 ára afmæli
Jesú Krists og 1000 ára afmæli
kristni í landinu. Formið er yf-
irleitt óhefðbundið, þó er nokk-
uð um rímuð kvæði með hátt-
bundinni hrynjandi en óstuðl-
uð. Dæmið hér á eftir heitir
„Lifsgæði":
Er lífiö fólgió í tölvum?
Tilbiójum viö sjónvarp?
Erum viö í sambandi
meö GSM símann við hendina?
Komumst við ekki öll
leiðar okkar í lifinu
á jeppanum góöa?
Ertu ekki meö stöö 2,
sýn og tengdur viö Internetiö?
Tíminn er naumur,
œtlaróu aö missa af einhverju?
Ertu ekki örugglega
meö réttu grœjurnar?
Lífiö dansar viö þig,
en kanntu aó dansa?
Höfundur gefur sjálfur út bókina.
\<ii iiif. citt lí
Umsjón