Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2000, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2000, Qupperneq 30
42 MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2000 Andlát Sigurður O. Pétursson Sigurður 0. Pétursson, starfsmað- ur við útlánaeftirlit Landsbankans, Kambaseli 27, Reykjavík, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnudag- inn 9.1. sl. Útfor hans fer fram frá Seljakirkju í dag, mánudaginn 17.1. kl. 13.30. Starfsferill Sigurður fæddist í Reykjavík 2.7. 1949 og ólst þar upp í vesturbænum. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Haga- skólanum í Reykjavík 1966 og versl- unarnámskeiði frá VÍ 1967. Á námsárunum var Sigurður i sumarvinnu við gatnagerð hjá Reykjavíkurborg. Hann starfaði við Landsbankann 1968-73 og við Seðla- bankann 1973-78. Þá flutti hann og fjölskylda hans til Svíþjóðar þar sem hann starfaði viö Höganas- verksmiðjumar og síðan við Guil- fiber-verksmiðjumar. Siguröur og fjölskylda hans fluttu aftur heim til íslands 1981. Þá hóf hann aftur störf við Landsbankann þar sem hann starfaði til dauða- dags, síðast við útlánaeftirlit bank- ans frá 1988. Sigurður æfði og keppti með meistaraflokki Þróttar í knatt- spymu og handbolta í mörg ár, vann að ýmsum félagsmálum fyrir Þrótt og sat m.a. í Knattspymuráði Reykjavíkur fyrir hönd félagsins um árabil. Þá lék hann síðar með meistaraflokki Gróttu í handbolta og knattspymu um skeið. Fjölskylda Sigurður kvæntist 18.4. 1971 Önnu Kjartansdótt- ur, f. 4.11. 1949, fulltrúa í Þjónustuveri Landsbank- ans. Hún er dóttir Kjart- ans Magnússonar, f. 15.7. 1917, d. 3.12. 1998, kaup- manns í Reykjavík, og k.h., Guðrúnar H. Vil- hjálmsdóttur, f. 3.11. 1922, húsmóður og kennara. Synir Sigurðar og Önnu eru Kjartan Hauksson, f. 25.2. 1970, rekstrarhagfræðingur á Viðskipta- stofu Landsbankans, búsettur í Reykjavík og er kona hans Karina Pedersen, nemi i iðjuþjálfun, en dóttir hans og Huldu Karenar Auð- unsdóttur er Sara Rut, f. 18.12. 1996; Pétur Sigurðsson, f. 23.9. 1971, íþróttafræðingur, búsettur i Reykja- vík en kona hans er V. Harpa Sig- urðardóttir, BS í listmeðferðarfræði og eiga þau óskírðan son, f. 20.11. 1999; Gunnar Þór Sigurðsson, f. 8.6. 1980, nemi við Fjölbrautarskólann i Breiðholti. Foreldrar Sigurðar: Pétur Ottesen Jósafatsson, f. 22.7.1919, fyrrv. skrif- stofumaður í Reykjavfk, og Ágústa Ágústsdóttir, f. 12.8. 1920, d. 23.8. 1997, skrifstofumaður i Reykjavik. Ætt Pétur er sonur Jósafats, skrifstofumanns í Reykjavík Sigurðssonar, b. í Miðhúsum á Mýrum Brandssonar, b. í Foma- seli Sigurðssonar, í Ferjukoti Guðmundsson- ar. Móðir Sigurðar var Steinunn Sigurðardóttir, b. á ísleifsstöðum í Hraunhreppi Einarssonar. Móðir Jósafats var Halldóra Jónsdóttir frá Kirkjubóli í Hvítársíðu. Móðir Péturs var Sigríður, systir Jóns, pósts í Galtarholti, langafa Jó- hönnu blaðamanns og Þórarins tannlæknis Sigþórsbama. Sigríður var dóttir Jóns, b. í Galtarholti Jónssonar, og Þórunnar Kristófers- dóttur, bókbindara á Stórafjalli í Borgarhreppi, bróður Jakobs, pr. í Steinnesi, langafa Vigdísar Finn- bogadóttur. Kristófer var var sonur Finnboga, verslunarmanns í Reykjavík Bjömssonar, og Arndís- ar, systur Þuríðar, langömmu Mar- grétar, móður Þórunnar Elfu Magn- úsdóttur skáldkonu, móður Megas- ar. Önnur systir Amdísar var Þór- unn, langamma Guðríðar, ömmu Ara Guðmundssonar, fyrrv. starfs- mannastjóra Landsbankans og fyrrv. formanns ÍBR. Arndís var dóttir Teits, vefara við Innrétting- arnar í Reykjavík og ættfóður Vef- araættar Sveinssonar. Meðal systkina Ágústu var Ingólf- ur, raforkuverkfræðingur og rekstr- arstjóri Landsvirkjunar. Ágústa var dóttir Ágústs, fyrsta stöðvarstjóra Elliðaárstöðvarinnar og yfirvél- stjóra Rafmagnsveitu Reykjavíkur og Sogsvirkjunar Guðmundssonar, söðlasmiðs að Hamarlandi í Reyk- hólahreppi Bjömssonar, b. Guð- mundssonar. Móðir Guðmundar var Rannveig Snorradóttir. Móðir Ágústs var Ingunn Sigríður, systir Margrétar Guðrúnar, móður Jóns Auðuns dómprófasts og Auðar Auð- uns ráðherra. Ingunn Sigríður var dóttir Jóns, pr. á Gerðhömrum Jónssonar, pr. á Barði Jónssonar. Móðir Jóns á Geröhömrum var Guðrún Bjömsdóttir Ólsen, um- boðsmanns á Þingeyrum. Móðir Ingunnar Sigríðar var Sigríður Snorradóttir, b. á Klömbrum Jóns- sonar. Móðir Ágústu var Sigríður Páls- dóttir, sjómanns í Garði Sigurðsson- ar, og Guðfríðar Oddsdóttur. Sigurður O. Pétursson. Fréttir Ráðherrann misskilur okkur - förum ekki með rangt mál, segja Náttúruverndarsamtök íslands „Siv hefur misskilið ályktun okkar,“ segir Árni Finnsson, tals- maður Náttúravemdarsamtaka ís- lands, en Siv Friðleifsdóttir um- hverfisráðherra hefur gagnrýnt samtökin fyrir ómálefnalega um- ræðu og rangfærslur. „Við sögðum að hún færi gegn mati skipulagsstjóra en hún túlkar það sem við höfum sagt að hún fari gegn úrskurði hans. Það er ekki rétt og við sögðum það náttúrlega ekki,“ segir Árni. Hann telur að með því að staðfesta úrskurð skipulags- stjóra, sem veiti val um hvort vegstæðið verður valið, hafi hún í raun fært áhyrgðina á Árni Finnsson: „Siv v.alinu ^ veröur einfaldlega aö sam- sitja undir gagnrýni því gönguráð- hún hefur unniö til herra. hennar.“ „Þannig að hún þvær hendur sínar og i raun skipulagsstjóri líka,“ segir hann. „Þeir segja að með því að stað- festa úrskurð skipulagsstjóra og heimila val á milli Vatnaheiðar eða Kerlingarskarðs, og ef vegur yfir Vatnaheiði verði fyrir valinu, sé ég að brjóta gegn verndará- kvæðum í náttúruvemdarlögum. Það er alrangt og lágmarkskrafa að ég svari svona augljósum rang- færslum," segir Siv. Ámi segir að hins vegar ljóst að Siv brjóti gegn ákvæðum náttúru- vemdarlaga þar sem hluti Vatna- heiöar sé á náttúruminjaskrá. „Það gegnir nokkurri furðu að Siv sé að agnúast út í Náttúru- vemdarsamtök Islands út af svona máli. Hún verður einfaldlega að sitja undir gagnrýni því hún hefur unnið til hennar,“ segir Árni Finnsson. -GAR Sigurjón Björnsson, prófessor í sálarfræði: Ekki allt fengið með hlutabréfum „Það er greinilegt að það er mik- ið að breytast. Ný þjóð er að vaxa úr grasi og þetta er þjóð sem hugsar töluvert öðruvísi. Veraldleg gæði og vellíðan eru áberandi hugtök og mikil áhersla lögð á þau. í kjölfarið fylgir ágimdin; löngunin til skjót- fengins gróða. Þama er auðhyggjan komin ljóslifandi fyrir sjónum okk- ar og óvíst hvemig hún á eftir aö fara með okkur. Vissulega er þetta visst áhyggjuefni að við gleymum því sem mestu máli skiptir. En það er þróttmikil kynslóð að vaxa upp. Fólk er vel menntað í listum og fleiri góðum greinum. Það væri ósköp ánægjulegt að við gætum stillt okkur. Verðbréfaþjóðfélag Þetta er verðbréfaþjóðfélag sem sýnir sig t.d. að í umræðunni um gagnagrunninn er meira rætt um gróða en hvað sjálfur grunnurinn getur gert fyrir okkur. Ég held að þessi þróun haldi áfram. Það er margt gott við verðbréfamarkaðinn. Hann leiðir af sér meiri sparnað og það er meira lagt fyrir. Verðbólg- unni er þannig haldið niðri að ein- hverju leyti en verðbólgan bitnar yf- irleitt alltaf á þeim sem slst skyldi og eykur því ójöfnuðinn í þjóðfélag- inu. Framtíð íslendinga ræðst mikið af því hvemig stefnan verður i hin- um vestræna heimi. Við forum ekki einir eitt eða neitt. Við höfum meiri sjálfsbjargarviðleitni og fólk nýtir sér þá þjónustu sem i boði er. Við höfum ekki lengur hið masókíska viðhorf. Það sem verður að vera, viljugur skal hver bera. -hól Bíleigendur, athugið 20% r verðlækkun w á varahlutum 'varahlutir Hamarshöfða 1, sími 567 6744 Bjartari horfur í skinnaiðnaði DV, Akureyri: Nokkurs bjartsýnistóns gætti á aðalfundi Skinnaiðnaðar hf. á Akur- eyri þrátt fyrir erfitt gengi að und- anfömu. Þannig varð 134,4 milljóna króna tap á rekstrinum á síðasta rekstrarári og þar af nam tap á reglulegri starfsemi 125,7 milljónum króna, auk þess sem birgðir vora færðar niður um 8,7 milljónir til að mæta verðlækkun á mörkuðum fyr- ir fullunnin mokkaskinn. Gunnar Birgisson, stjórnarfor- maður fyrirtækisins, sagði að á ár- unum 1995-1997 hefði velta fyrir- tækisins verið rúmur milljarður króna, í fyrra 800 milljónir og núna tæpar 400 milljónir. í ljósi þess að tekið hefði verið á móti svipuðu magni af hráefni öll árin væri því ljóst að áhrifin vegna lækkandi verðs á mörkuðum fyrir cifurðir fé- lagsins væru stórkostleg. Bjami Jónasson, framkvæmda- stjóri fyrirtækisins, sagði að sl. rekstrarár hafi verið það erfiðasta í sögu félagsins en hann taldi betri tíma fram undan. „Markaðurinn hefur nú komist í jafnvægi á ný hvað varðar samhengi á milli verðs á fullunnum afurðum og hráefnis. Það hefur hins vegar tekið lengri tima að ná magninu upp í sölu á flíkum og þar með fullunnum skinnum," sagði Bjami. Hann sagði að undanfarið hefði mátt sjá batamerki á helstu mörk- uðum fyrirtækisins sem eru að mestu á Vesturlöndum. Hreyfing væri að komast á markaði í Asíu og jákvæð viðbrögð hefðu komið frá Kina en þar væri um nýjan markað að ræða. -gk DV Til hamingju með afmælið 17. janúar 75 ára Anna M. Danielsen, Gautlandi 3, Reykjavík. Guðný Þorsteinsdóttir, Efstaleiti 14, Reykjavík. Steingrímur Gíslason, Lyngheiði 22, Kópavogi. Theódór Haíldórsson, Langagerði 3, Reykjavík. 70 ára Einar J. Egilsson, Vogatungu 103, Kópavogi. Hann er að heiman á afmælisdaginn. Guðrún Jónasdóttir, Trönuhjalla 13, Kópavogi. Hilmar Valdimarsson, Uppsalavegi 13, Húsavík. Þorbjörg Valdimarsdóttir, Flóðatanga, Borgamesi. 60 ára Kjartan Gunnarsson penslagerðarmaður hjá Besta, Kópavogi, Borgarholtsbraut 70, Kópavogi. Eiginkona hans er Anna María Einarsdóttir. Þau eru að heiman á afmælisdaginn. Fjóla Ákadóttir, Sæbergi 15, Breiðdalsvík. Oddur Magnússon, Hlíðarvegi 21, Grundarfirði. Öm Guðmundsson, Mosarima 14, Reykjavík. 50 ára Auðbjörg Pálsdóttir, Kambastíg 6, Sauðárkróki. Bjöm Mikaelsson, Furuhlíð 1, Sauðárkróki. Chaluai Yuchangkoon, Hofgerði 8b, Vogum. Elin Vilhelmsdóttir, Grenimel 45; Reykjavík. Ragnar Ingólfsson, Hóli 2, Akureyri. Unnar Magnús Andrésson, Laufbrekku 2, Kópavogi. Öm Einarsson, Hæðargötu 6, Njarðvík. 40 ára Arnheiður Svala Stefánsdóttir, Engjaseli 55, Reykjavík. Ámi Sveinbjömsson, Hallgilsstöðum, Akureyri. Bjarni Hauksson, Laufási 8, Hellissandi. Dan Jens Brynjarsson, Ekrusíðu 1, Akureyri. Eyjólfur Þórir Eyjólfsson, Heiðarhjalla 21, Kópavogi. Halldór Egill Guðnason, Holtsbúð 23, Garðabæ. Hjörtur Leonard Jónsson, Ásgarði 53, Reykjavík. Rebecca S Gan, Hafnargötu 17, Grindavík. Þórunn Þ Sigmundsdóttir, Einbúablá 21, Egilsstöðum. Þyri Grétarsdóttir, Rauðalæk 11, Reykjavík. Itö* HAHOíiV M 03LYFJA Wk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.