Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2000, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 2000
Fréttir
Inga Dóra Guðmundsdóttir, einn vinsælasti bæjarfulltrúi í Nuuk:
Stolt af því að
vera íslendingur
- en ríkisborgararétturinn fauk fyrir kosningaréttinn
DV, Nuuk:
„Ég er stolt af því að vera Islend-
ingur. Það að ég afsalaði mér rikis-
borgararéttinum á íslandi réðst af
því að ég mátti hvorki kjósa né
bjóða mig fram í þingkosningum.
Framan af ætlaði ég aldrei að taka
upp danskan ríkisborgararétt og
bíða eftir grænlensku sjálfstæði.
Síðar hvarf ég frá þvi og ákvað að
sækja um danskan ríkisborgararétt
enda varð ég að gera það til að ná
áhrifum," segir Inga Dóra Guð-
mundsdóttir, bæjarfulltrúi í Nuuk.
Inga Dóra, sem er dóttir íslendings-
ins Guðmundar Thorsteinssonar og
Benediktu Thorsteinsson, fyrrum
ráðherra, hlaut næstflest atkvæði í
síðustu bæjarstjórnarkosningum
þar sem hún var kjörin fyrir Si-
umutflokkinn til setu í 17 manna
bæjarstjórn. í samræmi við styrk
sinn krafðist hún embættis vara-
bæjarstjóra en vegna ungs aldurs
varð hún að sætta sig við að vera
annar varabæjarstjóri.
„Félagar mínir töldu mig vera of
unga til að takast á hendur svo
mikla ábyrgð að vera varabæjar-
stjóri. Ég gaf mig þó ekki fyrr en
kosið var um málið í bæjarstjórn,"
segir Inga Dóra.
Hún tekur undir það sjónarmið
margra að samskipti íslendinga og
Grænlendinga séu of lítil. Mun
meira mætti gera til að tengja þjóð-
irnar tvær sterkari böndum.
„Það er margt sem við gætum
lært af hvor annarri. Þetta á við um
fiskveiðar og vinnslu. Ég tel þó mest
áríðandi að vinna meira saman á
menningarsviðinu. Grænlenskir
hópar fara mikið til íslands en það
vantar að íslendingar komi meira
til okkar. Þetta á sér þá skýringu að
það er dýrara fyrir íslendinga að
Inga Dóra Guðmundsdóttir er einn vinsælasti stjórnmálamaður á Grænlandi. DV-mynd Reynir
fara frá íslandi og hingað en fyrir
okkur að fara til íslands," segir hún.
Inga Dóra segir að hún hafi
sterkar taugar heim til íslands þar
sem hún bjó allt til 11 ára aldurs.
Hún hafi best fundið það þegar hún
var á 17. júní í Reykjavík.
„Það var gömul tilfinning sem
allt í einu vaknaði og ég fann hvað
var gott að vera íslendingur. Það
breytir því þó ekki að ég veit að
framtíð mín er á Grænlandi.
Inga Dóra Guðmundsdóttir er að-
eins 28 ára og hún er að margra
mati framtíðar-
stjórmálamaður.
Ófáir halda því
fram að hún eigi
eftir aö ná til
æðstu metorða í
grænlenskri
pólitík. En hvað
segir hún sjálf?
Er hún á leið-
inni á landsþing-
ið?
„Ég hef hugs-
að mikið um þau
mál. Ætli megi
ekki segja að ég
stefni 1 lands-
málin. Ég hef
mikinn metnað í
pólitík og sækist
eftir áhrifum. Ég
hef þó ekki lýst
því yfir enn að
ég taki þann
slag. Það eru
bæjarstjómar-
kosningar á
næsta ári og ég
er að hugsa
minn gang,“ seg-
ir Inga Dóra.
Hún segist vel
geta séð fyrir sér
að Grænlending-
ar verði sjálf-
stæðir. Það
muni þó kosta
tímabundnar
fórnir.
„Það hafa þeg-
ar verið stigin fyrstu skrefm. Við
erum að feta sömu slóð og Færey-
ingar með því að skoða hvaða laga-
setningar þarf til. Hvenær við fáum
sjálfstæði er aðeins spurning um
tíma,“ segir Inga Dóra.
-rt
Laugavegssamtökin mótmæla hækkunum á stöðumælagjöldum:
Atlaga að miðborg Reykjavíkur
- bílastæðavandi líka annars staðar, segir Ragna Óskarsdóttir
„Við mótmælum þessu harðlega
og erum að vona að þeir fresti
þessu. Kynning á þessu hefur ekki
verið næg og við vonumst eftir því
að í ljósi þessa bréfs frá okkur verði
þessu frestað," segir Ragna S. Ósk-
arsdóttir hjá Laugavegssamtökun-
um en samtökin sendu borgarráði
bréf í gær þar sem þau mótmæla
fyrirhuguðum hækkunum á stöðu-
mælagjöldum um allt að 200%.
„Borgarstjóri kynnti þetta fyrir ein-
hverjum kaupmönnum á fundi i
byrjun janúar. Það er ekki nægjan-
legt og þess vegna voru Laugavegs-
samtökin með fund 18. janúar þar
sem þessi mál voru kynnt,“ segir
Ragna. í bréfl Laugavegssamtak-
anna segir að óhófleg gjaldtaka af
viðskiptavinum miðborgarinnar
þjóni þeim eina tilgangi að skerða
samkeppnisstöðu miðborgarinnar
enn frekar og hækkunin sé hrein at-
laga að miðborg Reykjavíkur. Sam-
tökin eru ósátt við að byggingu bíla-
stæðahúsa eigi að fjármagna með
gjaldtöku af stöðumælum en áætl-
anir eru uppi um að reisa slík hús í
Kvosinni og við Hlemm. „Bygging
bilastæðahúsa er meðal annarra
þjóða sjálfstæð ákvörðun sem
grundvallast á arðsemi og faglegum
forsendum, eins og allar fram-
kvæmdir eiga að gera. Á þetta hefur
því miður skort í Reykjavík. Nægir
að benda á lélega nýtingu margra
bílastæðahúsa árum saman, þótt
einnig megi kenna um lélegum
rekstri og skorti á markaðsþekk-
ingu,“ segir í bréfinu.
„Það eru þó ákveðnir þættir i
þessu sem við erum sátt við, eins og
aukið frelsi í gjaldtíma og skiptingu
í þrjú gjaldsvæði, en við erum ekki
sátt við þessar miklu hækkanir á
einu bretti sem eru bæði í stöðu-
mælagjöldum og sektargjöldum. Þá
finnst okkur einnig of mikið gert úr
bílastæðavanda í miðborginni,
hann er líka annars staöar, eins og
í Kringlunni," segir Ragna.
-hdm
Engar athugasemdir gerðar í 17 ár:
Einar Kárason einn höfundur að Djöflaeyjunni
- segir Halldór Guðmundsson, útgáfustjóri Máls og menningar
„I tilefni af fréttum í DV að und-
anförnu um höfundarrétt að Þar
sem djöflaeyjan rís eftir Einar Kára-
son vill Mál og menning taka fram
að þessi bók var fyrst gefm út hjá
forlaginu fyrir 17 árum og síðan hef-
ur forlagið farið með útgáfurétt
hennar og annast samningamál um
hana hérlendis og erlendis,“ sagði
Halldór, Guðmundsson, útgáfustjóri
Máls og menningar, í samtali við
blaðið. „Hún hefur verið gefin út í
ótal útgáfum og aldrei hafa verið
gerðar nokkrar athuga-
semdir við það að Einar
Kárason sé höfundur henn-
ar. Það er óskUjanlegt að at-
hugasemdir skuli koma
fram nú, ekki síst vegna
þess að Þórarinn Óskar hef-
ur gegnum árin tekið að sér
ýmis viðvik fyrir Mál og
menningu og forlagið gaf út
eftir hann ljósmyndabók
fyrir áratug, fyrir orð Einars Kára-
sonar.“
Einar Kárason.
þess.“
Að
Viðvíkjandi frétt í DV í
gær um að Þórarinn Óskar
Þórarinsson færi fram á að
fá afhentar segulbandsspólur
með frásögn sinni sem hann
hygðist gefa út á geisladiski,
sagði HaUdór að forlaginu
væri ekki kunnugt um nein-
ar segulbandsupptökur:
„Þetta er skrifað verk og Ein-
ar Kárason er höfundur
lokum bætti Halldór Guð-
mundsson því við að ef aUir þeir sem
telja sig munnlega heimUdamenn að
íslenskum skáldsögum ætluðu að
gera tUkaU tU höfundarlauna þá vær-
um við komin út í mjög erfið mál.
„En mér vitanlega hafa forlaginu
aldrei borist neinar athugasemdir af
þessum sökum. Við höfum aldrei
heyrt frá neinum lögfræðingi um
þessi mál og heimUdamaður DV sjálf-
ur, sem hefur sem sagt unnið fyrir
forlagið nokkrum sinnum, hefur
aldrei nefnt þetta heldur." -SA
Stuttar fréttir x>v
Hátækniiðnaður
íslendingar eiga
að geta byggt upp
hátækniiðnað hér á
landi á sviði líf-
tækni, segir Bem-
harð Pálsson,
stjórnarformaður
Urðar, Verðandi,
Skuldar. Sjónvarpið greindi frá.
GSM í Namibíu
Namibía verður frá og með föstu-
degi 61. landið sem Síminn GSM hef-
ur gert reikisamning við. Þetta er
130. virki reikisamningur Símans
við erlent farsímafélag.
5 sóttu um
Fimm sóttu um embætti prests
meðal íslendinga í Svíþjóð með að-
setur í Gautaborg sem veitist frá 1.
mars: sr. Flóki Kristinsson, sr.
Hannes Bjömsson, sr. LUja Kristín
Þorsteinsdóttir, sr. Skúli Sigurður
Ólafsson og sr. Sigurður Amarsson.
Áfengi hækkar
Verð á áfengi breytist í dag. Bjór
hækkar að meðaltali um 1,75% og
annað áfengi að meðaltali um 0,65%.
Markadur í Kína?
Markaður fyrir sjávarafurðir og
iðnaðarvörur frá íslandi gæti verið að
opnast i Kína eftir að stjómvöld land-
anna náðu samkomulagi um að
lækka tollana í áföngum úr 25-30%
niður í 15-20%. Bylgjan greindi frá.
Kristján syngur
Kristján Jó-
hannsson er vænt-
anlegur heim tU ís-
lands í næstu viku
tU að syngja í upp-
færslu á Aidu í
LaugardalshöU. Þar
munu Sinfóníu-
hljómsveit íslands, Kór íslensku Óp-
erunnar, Karlakórinn Fóstbræður
og einsöngvarar syngja Aidu en þó
ekki í fullri, leikinni uppfærslu.
Mikil þátttaka
Mjög mikU þátttaka var í opnun-
ardagskrá Reykjavíkur menningar-
borgar Evrópu sem fram fór um
helgina.
Minnispeningur
Kristnihátíðamefnd var í gær
formlega afhentur minnispeningur
úr gulli sem Seðlabankinn gefúr út í
tUefni 1000 ára kristni á íslandi. Pen-
ingurinn verður löglegur gjaldmiðUl
að verðgUdi 10.000 krónur.
Lægri tekjur
Tekjur af útílutningi íslenskra
hesta hafa lækkað ár frá ári frá 1996.
Árið 1998 skUaði þessi útflutningur
aðeins 184 mUljónum samkvæmt
tollskýrslum. Mbl. greindi frá.
ístak byggir
ístak hf. verður verktaki við bygg-
ingu verslunarmiðstöðvarinnar
Smáralindar i Kópavogi. Mbl.
greindi frá.
Kúabændur hætta
Samkvæmt útreikningum Lands-
sambands kúabænda brá rúmlega
einn kúabóndi búi í hverri viku á síð-
asta ári. Mbl. greindi frá.
Mikil óánægja
Viðskiptaráð-
herra hélt í gær
fundi með formönn-
um bankaráðs og
aðalbankastjórum
Landsbanka og Bún-
aðarbanka. Ráð-
herra lýsti yfir mik-
Uli óánægju með ffamkvæmd verk-
lagsreglna um verðbréfaviðskipti
stjómenda og starfsmanna og hefur
óskað eftir greinargerðum bankaráða
Landsbanka og Búnaðarbanka um
hvemig af hálfu bankanna hafi verið
staðið að eigin viðskiptum stjómenda
og starfsmanna.
Pepsídrengurinn
„Það er aUt í lagi með drenginn.
Hann bónar og bónar og stendur sig
vel,“ sagði Friðbjöm Kristjánsson hjá
Bíiasölunni Evrópu um pepsídreng-
inn Bóas Kristjánsson sem hóf þar
störf fyrfr síðustu helgi eftir afdrifa-
r&an brottrekstur úr verslun 10-11
við Laugalæk. „Hann fær pepsí af og
tU og snúð á fóstudögum. Þetta er fyr-
irmyndarpUtur," sagði Friðbjöm í
Evrópu. -EIR/hdm/hlh