Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2000, Blaðsíða 28
Girnilegur 115 g Áningarborgari, franskar,
súperdós, Piramidelle-súkkul.,
kr. 590.
Bæjarlind 18 - 200 Kópavogi
sími 564 2100
Netfang: midjan@mmedia.is
Opel Zafira
SYLVANIA
Nýr 7
manna
bíll
„Það þarf enginn að borga. Þetta er
bara íslensk hjálpsemi i verki. Ef ein-
hver er ábyrgur þá eru það fjölmiðl-
amir sem ráku fólk af stað til að
skoða Heklu í viðsjárverðu veðri.
Maður beið bara eftir að þeir hvettu
fólk til að fara ofan í sjálfan gíginn,“
sagði Heiðar Bjamdal, varðstjóri hjá
lögreglunni á Selfossi, í morgun. Þá
var fólk að ná í síðustu bilana sem
tepptust í Þrengslunum um helgina
^ en 56 bilar voru þar enn í nótt.
Sigurður Helgason hjá Umferðar-
ráði sagði í morgun að glannaleg um-
fjöllum íjölmiöla ætti mesta sök á því
hvernig fór í Þrengslunum: „Fólk var
hvatt til að fara af stað þó veðurspáin
væri ekki góð og svo var ekkert að sjá
nema sortann. Við bætist svo oftrú
fólks á tækjunum sem það er á en þau
em háð takmörkunum eins og ann-
að,“ sagði Sigurður Helgason hjá Um-
ferðarráði. Sjá nánar bls. 5.
-EIR
-----------------------------
Reykskynjari
vakti fólkið
Talið er að reykskynjari í íbúðar-
húsi við Seljalandsveg á ísafirði
hafl í nótt bjargað því að ekki fór
verr og jafnvel að um stórbruna
yrði að ræða.
Þrennt var í húsinu og vaknaði
fólkið við að reykskynjarinn lét í
sér heyra. Komst fólkið síðcm út um
glugga og kallaði eftir aðstoð. Var
þá kominn talsverður reykur og sót
í íbúðinni en ekki mikill eldur.
Slökkvilið og lögregla komu skjótt á
vettvang og gekk greiðlega að af-
greiða málið, m.a. að reykhreinsa
■W og ræsta húsið. -gk
Fjölmiðlum
að kenna
Þrengslin:
Formaðurinn
veðurtepptur
Ekkert varð af fundi þjóðminjaráðs
sem halda átti i gær vegna þess að for-
maður ráðsins, Gunnar Jóhann Birgis-
son, var veðurtepptur norður í landi.
„Hér er ailt við það sama og ég hef ekki
neinar fregnir," sagði Þór Magnússon
þjóðminjavörður. Fastlega hafði verið
gert ráð fyrir að til tiðinda drægi í Þjóð-
minjasafhsdeilunni á fúndi þjóðminja-
ráðs sem boðaður hafði verið í gær en
veðurguðimir slógu þeim tíðindum á
frest með því að leggja fannfergi í götu
formannsins á ieið hans heim. -EIR
GREIÐðLA V\Ð
HAMARSHÖGG?
Veðrið í dag:
Snjóar
vestanlands og
þykknar upp
fyrir austan
Suðaustan 10-15 m/s og skýjað
á Vesturlandi og fer að snjóa
síðdegis, en 5-6 m/s og þykknar
upp austanlands. Frost víða 2-7
stig, en frostlaust á útnesjum
vestanlands.
Veðrið í dag er á bls. 37.
ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000
Síðustu farþegarnir á samkeppnis-
ieiö íslanfsflugs í innanlandsflugi
koma til Reykjavikur í gærkvöld.
DV-myndir S
Of snemmt að
afskrifa Heklu
Gosvirkni í Heklu er lík þvi sem
verið hefur síðustu tvo sólarhring-
ana samkvæmt óróamælingum Veð-
urstofunnar en jarðeðlisfræðingar
hennar telja enn of snemmt að spá
um endalok gossins. Síðast þegar
gaus í Heklu, 1991, kraumaði í fjall-
inu í tvo mánuði áður en gosið logn-
aðist út af. -GAR
Olfusá stífluð
Mikill krapi og ísstífla myndaöist í Ölfusá hjá Selfossi í gær. Áin bólgnaði upp og var orðin bakkafull neðan Ölfusárbrúar seinni part-
inn. Ástæður þess að svona mikil hrönn safnast upp við Selfoss er kuldatíö undanfarið með mikilli ísmyndun. Hluti árinnar ruddi sig
um kvöldmatarleytið í gær en sá hluti stíflunnar færöist þá bara neðar í ána og eru orönar miklar hrannir i ánni í fossinum vestur af
Selfossbæjunum. Aftur safnaöist ís undir brúna við Selfoss seint í gærkvöld. Staðan var óbreytt í morgun. DV-mynd Njöröur
Vopnaður maður rændi verslunina Samkaup við Vesturberg:
Sló mann í höf-
uðið með hamri
- mikil ógæfa þessa unga manns segir fórnarlambið
Lögreglan í Reykjavík leitaði I
morgun ungs manns sem rændi
verslunina Samkaup við Vestur-
berg í Breiðholtshverfi skömmu
fyrir klukkan 22 í gærkvöldi. Mað-
m-inn komst undan með um 60
þúsund krónur í peningum.
Maðurinn kom grímuklæddur
inn í verslunina og að sögn af-
greiðslustúlkna, sem voru að
störfum, var hann mjög dökkur yf-
irlitum og er talinn vera innflytj-
andi þótt hann talaði íslensku.
Maðurinn sagði „uss“ við stúlk-
umar og lagði flngur að vörum
sér. Þá benti hann þeim á haniar
sem hann hafði í poka til að und-
irstrika að þær ættu ekki að hafa
hátt og afhenda sér peningana.
Stúlkumar afhentu honum pen-
ingana, en viðgerðarmaður sem
var að störfum innar í versluninni
og varð var við hvað fram fór,
gerði tilraun til að stöðva ræn-
ingjann. Þá tók ræninginn hins
vegar hamarinn úr pokanum og
sló með honum í höfuð viðgerðar-
Fjöldi lögreglumanna kom aö verslun
Samkaupa í nótt eftir að ræningi lét
greipar sópa og lamdi mann í höfuöiö
með hamri. DV-mynd KK
mannsins og komst að því loknu
undan. Viðgerðarmaðurinn
meiddist lítillega og leitaði sjálf-
ur aðstoðar á slysadeild. „Þetta
er mikil ógæfa þessa unga
manns sem ég vil ekki ræða
frekar," sagði Elvar Ríkharðs-
son viðgerðarmaður í morgun.
Verslunarstjóri í versluninni
sagði í morgun að þetta hefði
verið „mikið sjokk“ fyrir af-
greiðslustúlkumar en þær hafi
ekki sakað að öðru leyti.
Strax var ræningjanum veitt
eftirfor en hann virðist hafa flýtt
sér heldur mikið. í slóð hans
fannst lambhúshetta sem skýlt
hafði andliti hans, síðan peysa
og einnota hanskar, þá hamar-
inn og loks eitthvað af pening-
um skammt frá sundlauginni.
Maðurinn komst þó undan en
lögreglan taldi sig, vegna ná-
kvæmra lýsinga sem gefnar
voru, vita hver þarna hafi verið
á ferðinni og var hans leitað i
morgun. -gk
„Menn eru hræddir þegar einn
aðili ræður á markaðnum í innan-
landsflugi og óttast þá eðlilega
hærra verð og lakari þjónustu. Það
hefur enginn gott af því að vera
einn á markaðnum," sagði Guðjón
Hjörleifsson, bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum, í morgun um þá
ákvörðun íslandsflugs að hætta
samkeppni í innanlandsflugi og
segja upp 30 manns.
Guðjón sagði íslandsflug og Flug-
félag Islands hafa verið tiltölulega
jöfn í fluginu til Eyja og menn oft
furðað sig á þvi af hverju samvinna
félaganna hafi ekki verið meiri.
„Ferðir félaganna voru á svipuð-
um tíma og kannski voru 3-4 far-
þegar með hvorri vél. Um tíma gat
fólk hins vegar notað miða eins fé-
lags til að ferðast með hinu. Vakti
það mikla hrifningu en það hefði
verið hægt að dreifa ferðum betur
yfir daginn.“ -hlh
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Guðjón Hjörleifsson:
Ómar Benediktsson, framkvæmda-
stjóri íslandsflugs, og Gunnar Þor-
valdsson stjórnarformaöur: Boöberar
válegra tíðinda fyrir flugfarþega.
Menn eru ?
hræddir 4