Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2000, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000
7
py_____________________________________________________________Fréttir
Norðurpólsfararnir yfirgefa fósturjörðina:
Stöðug spenna á hverjum degi
- fimm norrænir leiðangrar stefna nú á pólinn
Ofurpóifararnir Haraldur Örn Ólafsson og Ingþór Bjarnason fóru yfir búnaö sinn í Reykjavík í gær.
„Við tökum einn dag í einu,“ seg-
ir Haraldur Öm Ólafsson sem á
morgun yfirgefur fósturjörðina
ásamt félaga sínum Ingþóri Bjarna-
syni en þeir hyggjast ganga á norð-
urpólinn og ætla að leggja upp frá
Ward Hunt-eyju 10. mars nk.
Kappamir hafa mikla reynslu af
göngu yfír ísbreiður, hafa meðal
annars gengið á Suðurpólinn og yfir
Grænlandsjökul, en hafa aldrei
gengið yfir hafís áður. Þeir munu
því verða í eina viku við æflngar í
smáþorpinu Iqaluit á sunnanverðu
Bafflnslandi áður en þeir íljúga til
Ward Hunt við norðanverðan
Ellesmereyju. „Þarna eru aðstæður
sem hvergi annars staðar eru
þannig að við þurfum að læra heil-
mikið sem hvergi er hægt að læra
nema á norðurpólnum," segir Har-
aldur Örn.
Fyrstu tvær vikurnar verstar
Gert er ráð fyrir að leiðangurs-
mennirnir nái takmarki sínu 10.
maí en þá munu þeir væntanlega
hafa lagt að baki um 1000 kílómetra
göngu í krákustigum og gegn ísreki
yfir norðurskautið. Á leiðinni
munu þeir glíma við margs kyns
hættur og fyrirstöður. Mesta ógnin
stafar af vökum í ísnum en helsti
farartálminn eru svokallaðir þrýsti-
hryggir sem myndast þegar haf-
staumar eða vindur ýtir ísnum að
landi. Þá vafra ísbirnir gjarnan um
ísbreiður norðursins og eru Harald-
ur og Ingþór með byssu meðferðis
til að verjast þeim.
„ísinn er á stanslausri hreyflngu
og það getur opnast vök undir fót-
um manns þannig að þetta verður
stöðug spenna á hverjum einasta
degi,“ segir Haraldur Örn bjart-
sýnn.
Haraldur og Ingþór munu ganga
á norðurpólinn án allrar utanað-
komandi aðstoðar en það hefur að-
eins verið gert fjórum sinnum áður,
og þarf hvor þeirra að draga sleða
sem vegur 110 kíló í upphafi ferðar.
Drátturinn léttist vitanlega eftir þvi
sem á líður og þá munu aðrar að-
stæðar sömuleiðis breytast þeim fé-
lögum í hag. ísinn verður sléttari og
greiðfærari þó vökum fjölgi að vísu,
myrkur víkur fyrir birtu og talsvert
dregur úr frostinu og það verður i
kringum 30 stig í stað 50 til 60 stiga
þegar lagt verður af stað.
„Það er því mikilvægast að fara
rólega fyrstu tvær vikurnar og slasa
sig ekki þá,“ segir Haraldur Öm
Á norðurpólnum þurfa leiðang-
ursmenn að finna heppilega
íspönnu fyrir flugvöll áður en þeir
panta sér flugvél frá Ward Hunt
eyju til að flytja sig til baka á fast
land.
Norrænt kapphlaup
Einsemd norðurskautsins verður
ekki alger þvi samtímis Ingþóri og
Haraldi stefna fjórir aðrir norrænir
leiðangrar á norðurpólinn. Tveir
Norðmenn lögðu af stað fyrir tíu
dögum frá Síberíu og ætla þeir að
ganga yfir pólinn og enda í Kanada.
Þeir hafa þegar þurft að fæla frá sér
ísbjörn. Frá Síberíu er nú líka að
leggja af stað leiðangur tveggja Svía
auk þess sem dönsk kona gengur
ein síns liðs þaðan á pólinn. Þetta
fólk ekki eins og fólk er flest ef svo
má segja. Einn Svíanna hjólaði til
að mynda heiman frá sér í Svíþjóð
til Mount Everest, gekk upp og nið-
ur fjallið og hjólaði síðan heim til
sín aftur.
Enn er ótalinn einn leiðangur því
tveir sænskir kappar munu leggja
af stað frá Ward Hunt-eyju sama
dag og íslendingarnir. Haraldur seg-
ir að þegar þeir Ingþór hafi nýlega
frétt af hinum leiðöngrunum hafi
þeir strax tekið þann pól í hæðina
að láta þá engin áhrif hafa á sínar
áætlanir. „Við ætlum alls ekki í
neina keppni við aðra heldur ein-
faldlega halda okkar striki að settu
marki - norðurpólnum," segir
hann. -GAR
Enn mokveiðist loðnan:
Kvótinn næst þó ekki allur
DV, Akureyri:
Enn saxast verulega á loðnukvót-
ann en í gærmorgun var eftir að
veiða um 346 þúsund tonn af útgefn-
um kvóta, og sennilega eftir 15-20
veiðidagar þar til loðnan verður
komin vestur fyrir land og búin að
hrygna og drepast að því loknu.
Frá áramótum er búið að veiða
um 460 þúsund tonn. Hins vegar
brást veiðin algjörlega á sumar- og
haustvertíð. Þá veiddust ekki nema
83 þúsund tonn. Menn telja það
nokkuð borðleggjandi að ekki takist
að veiða allan kvótann núna og er
ýmislegt sem veldur því. Afkasta-
geta loðnubræðsluverksmiðjanna er
t.d. ekki nægjanlega mikil og hafa
þær ekki undan ef mjög vel veiðist,
jafnvel ekki þótt sum stærstu skipin
stöðvist á næstunni vegna þess að
kvóti þeirra sé uppurinn. -gk
>.
Hvar er bíllinn minn? íbúar viö Steinahlíð á Akureyri þurftu að leita að bílun-
um sínum í gær. Það var hins vegar ekki nóg að finna bílana á kafi, gatan
sjálf var kolófær og snjórinn talsvert á annan metra. DV-mynd gk
Óveðrið:
Allt á kafi á Norðurlandi
Flóabandalagið
Sameiginlegur félagsfundur
um kjara- og samningamál
verður haldinn fimmtudaginn 2. mars í Tónlistarhúsinu Ými
- húsi Karlakórs Reykjavíkurvið Skógarhlíð 20 Reykjavík
Fundurinn hefst kl. 20.00
Fundarefni:
Staðan í viðræðum um nýjan kjarasamning
Félagar!
Fjölmennum og sýnum samstöðu um kjaramálin
DV, Akureyri:
Snjómagnið sem var á Norður-
landi tvöfaldaðist í veðrinu sem
skall yfir á sunnudag og slotaði
ekki fyrr en undir hádegi í gær.
Mikill skafrenningur var og
blinda, allir vegir urðu ófærir þar
til farið var að moka þá síðari
hluta dags í gær og í þéttbýli var
mikið vandræðaástand, t.d. á Ak-
ureyri. Ekki er kunnugt um að
nein alvarleg óhöpp hafi orðið
vegna veðursins.
Á Akureyri voru í gær svo til
allar húsagötur ófærar og bflar á
kafi inni í götunum eða á stæðum
við húsin, og ljóst er að geysilegt
verk bíður bæjarstarfsmanna
næstu dagana við að moka götur. í
gær var lögð höfuðáhersla á að
opna helstu götumar, t.d. þær sem
strætisvagnamir aka eftir og síðan
verður gengið á hinar götumar
næstu daga og þær ruddar. Ein-
hverjir gætu því lent í því að ná
ekki bílum sínum út úr snjónum
fyrr en síðar i vikunni. -gk
Efling-stéttarfélag
Verkalýðsfélagið Hlíf
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis