Dagblaðið Vísir - DV - 29.02.2000, Blaðsíða 20
32
Sviðsljós
ÞRIÐJUDAGUR 29. FEBRÚAR 2000
DV
Kjóllinn var bara
límdur á Lopez
Sérfræöingar hafa nú svipt hul-
unni af leyndardómi Grammy-
verölaunahátíðarinnar: Flegni
kjóllinn hennar Jenniferar Lopez
var hreinlega límdur á hana til að
ekki sæist nú meira i brjóstin á
henni en raunin' varð á á þessari
annars siðprúðu hátíð. Kjóllinn,
sem er frá italska tískuhúsinu
Versace, vakti óskipta athygli,
enda efnisrýr í meira lagi, þótt
síður væri. Viðstaddir voru á
einu máli um að Jenr.ifer Lopez
hefði sjaldan verið glæsilegri.
Nicolas Cage, kvikmyndaleikar-
inn með samanherptu kjálkana og
náfrændi Francis Fords Coppola,
og eiginkona hans, leikkonan Pat-
ricia Arquette, hafa ákveðið að
skilja. Reyndar hafa þau verið
skilin að borði og sæng frá því í
ársbyrjun 1996 en í hjónabandið
gengu þau í apríl 1995. Nikki og
Pat voru fyrst saman 1987 en leið-
ir skildu. Hún giftist og átti son og
hann átti líka son. Ástin blossaði
svo upp að nýju 1995. En sælan var
skammvinn, ekki nógu löng til að
úr yrði barn.
Charlize forfærir
Ben í bófamynd
Mamma leikkonunnar Charlize
Theron var ekki í nokkrum vafa
þegar hún hafði séð nýjustu
myndina sem dóttir hennar leik-
ur í, Hreindýraleikina. „Háskóla-
strákar eiga eftir að verða yflr sig
hrifnir af þér,“ sagði mamma. Og
ástæðan er ekki flókin: Charlize
tekur þátt í eldheitu ástaratriði
með hjartaknúsaranum Ben Af-
fleck. Sá leikur mann sem
nýsloppinn er úr fangelsi og hefur
ekki komist í námunda við kven-
mann í langan tíma. Atgangurinn
er líka eftir því. Reyndar fór leik-
stjórinn John Frankenheimer
fram á svolitla hráskinnsleik.
Nicolas Cage
skilur við frúna
Brooklyn litli 1 árs:
Afmælisveisla
Það myndu líklega margir telja
hættu á að Brooklyn litli Beckham
yrði dekurbarn, miðað við þær
gjafir sem foreldrarnir ausa yfir
hann. Og fyrsta afmælisveisla
drengsins verður ekki af verri
endanum. Ef marka má frásögn
breska blaðsins The Sun ætla
Victoria og David Beckham að
halda 1,5 milljóna króna
afmælisveislu þegar sá stutti verður
1 árs.
Kryddpían og fótboltakappinn hafa
leigt hluta lúxushótels fyrir
veisluna, ráðið trúða og boðið 100
manns. Meðal gestanna verða flestir
fótboltafélagar Beckhams sem
sennUega fá einnig að sjá sýningu
sirkusdýra afmælisbarninu til
heiðurs. Börnum í veislunni verður
boðið upp á hamborgara en
fuUorðnir geta valið um fjölda góðra
rétta. Þeir sem vilja geta gist á
milljónir
Ekkert verður til sparað þegar hald-
ið verður upp á afmæli sonar Victor-
iu og Davids Beckhams.
hótelinu á kostnað Victoriu og
Davids Beckhams. Þótt undarlegt
megi virðast er það haft eftir vini
hjónanna að veislan verði ekki
neinn meiri háttar viðburður
heldur bara róleg veisla fyrir
fjölskyldu og vini.
Sjálfur afmælisdagurinn verður
næstkomandi laugardag en þann
dag mun faðir Brooklyns litla keppa
með Manchester United gegn
Liverpool. Þess vegna verður
veislan haldin daginn eftir, á The
Cottons Hotel í bænum Knutsford.
Reyndar er David Beckham við
það að brotna niður þessa dagana.
Staðfest er að honum og Victoriu
hafi borist hótun um að Brooklyn
litli yrði tekinn af lifi. Fengu
foreldrarnir frægu senda mynd af
drengnum þar sem hann var sýndur
með skotsár á höfði. Foreldrar
Victoriu fengu svipaða hótun.
Orðrómur um
eitt barn í viðbót
Orðrómur er nú á kreiki í
Mónakó, París og Madrid um að
Karólina prinsessa af Mónakó og
Emst August prins af Hannover
eigi von á öðru barni sínu. Það
yrði þá fimmta barn Karólínu.
Athygli vakti á skíðastaðnum
Zurs í Austurríki á dögunum
hversu rólega prinsessan tók lifið.
Hún var þar með dóttur sína og
Ernsts, Alexöndru liUu, sem er sjö
mánaða. Klæðnaður prinsessunn-
ar vakti grun manna um að hún
væri barnshafandi og einnig það
að hún var ekki jafnáköf í skíða-
brekkunum og venjulega.
Þessi hressilegi ungi maður heitir JuJu Maravilha og var einn fjölmargra sem tóku þátt í hinni árlegu Carmen
Miranda skrúðgöngu í Rio de Janeiro í Brasilíu. Skrúðgangan markar upphaf kjötkveðjuvikunnar og allajafna taka
þátt í henni hundruð klæðskiptinga og samkynhneigðra í Rio. Skrúðgangan fer um hiö fræga Ipanemahverfi.
Lífverðirnir vilja
fá fyrirmæli
Llfverðirnir, sem gæta VU-
hjálms prins, hafa beðið yfirmenn
sinu um fyrirmæli um aðgerðir
vegna nýrra frétta um að sumir
vinir prinsins neyti kókíans. Einn
vina prinsins var um helgina sak-
aður um að hafa tekið kókaín í
veislu. Karl prins er áhyggjufuUur
vegna fíkniefnaneyslu vina prins-
ins og hefur farið fram á að hans
verði sérstaklega vel gætt þegar
hann er í helgarfríum frá skólan-
um. Um helgar er Vilhjálmur oft-
ast i London.
Litli prinsiim er
hjá afa og ömmu
Alexandra prinsessa og Niku-
lás litli sonur þeirra Jóakims
Danmerkurprins hafa það náðugt
þessa dagana austur í Hong Kong
þar sem afi og amma stjana við
litiu dúUuna sína. Fjölskyldan var
saman í nokkrar vikur austur þar
en þar kom að Jóakim þurfti að
snúa heim tU að taka við konung-
legum skyldustörfum. Hann
þurfti að gegna konungsembætt-
inu á meðan mamma drottning
var í heimsókn á Bretlandi. Frið-
rik ríkisarfi eru jú á Græniandi.