Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2000, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 2000
Fréttir
Ármótsmálið dregur dilk á eftir sér:
Opinber rannsokn
- á farbanni. - Tamningamaður á Eyrarbakka kærir héraðsdýralækni
Landbúnaðarráðuneytið mun
fara fram á opinbera rannsókn á
því hvernig farbann á flutningi
dýra að og frá Ármóti á Rangárvöll-
um hefur verið haldið. Farbannið
var sett á í kjölfar þess að salmon-
ella fannst í nautgripum og hross-
um á Ármóti.
Þá hefur Skúli Steinsson, tamn-
ingamaður og kennari á Eyrar-
bakka, kært héraðsdýralækni fyrir
Halldóri Runólfssyni yfirdýra-
lækni. Ástæðuna segir hann þá að
héraðsdýralæknir hafi eyðilagt at-
vinnugrundvöll sinn með áburði
um að hann hafi brotið gegn far-
banninu.
Sonur Skúla, Steinn, hefur verið
ráðsmaður á Ármóti í vetur. í
kærubréfi sem Skúli sendi yfir-
dýralækni segir hann m.a. að
vegna afskipta héraðsdýralæknis
hafi minnstu munað að hann
missti starf sitt við kennslu í hesta-
mennsku i barnaskólanum á Eyr-
arbakka. Þá hafi hann orðið fyrir
miklum tekjumissi við tamningar,
þjálfun og sölu hrossa vegna þess
orðróms að hann hafi flutt hross
milli Ármóts og Eyrarbakka. Hið
rétta sé að sonur hans hafi komið
fyrir nokkru til Eyrarbakka, tekið
þar tvö hross sem hafi átt að fara í
úrtöku fyrir landsmót og flutt þau
að Ármóti. Til þessara flutninga
hafi hann notað hestakerru Skúla
og skilað henni tómri aftur eftir tvo
daga. Skúli álítur að ekki stafl
meiri smithætta af ferðum
kerrunnar frá Ármóti heldur en
venjulegum bíl.
Héraðsdýralæknir hefur farið
þess á leit við landbúnaðarráðu-
neytið að fram fari rannsókn á
meintum farbannsbrotum og mun
ráöuneytið verða við þvi. Skúli
sagðist í samtali við DV fagna því
að málið yrði rannsakað til hlítar
þannig að hið sanna kæmi í ljós.
„Héraðsdýralæknir hefur aldrei
sagt orð um þessi mál við mig,“
sagði hann. -JSS
Ný reglugerð
Dómsmálaráðu-
neytið hefur gefið
út nýja reglugerð
um leyfi til keppnis-
halds í akstursí-
þróttum. Hún birt-
ist í Stjómartíðind-
um á miðvikudag
og öðlast gildi við
birtingu. Allir akstursíþróttaklúbb-
ar geta nú sótt um leyfi til keppnis-
halds til sýslumanns á viðkomandi
stað en þurfa ekki að sækja um leyfi
í gegnum LÍA eins og hingað til.
Bæta skaðann
Veitustofnanir Reykjavíkur ætla
að koma til móts viö þá sem hafa
orðið fyrir tjóni vegna kísilútfell-
inga í heitu vatni frá Nesjavöllum.
RÚV greindi frá.
Ríkiö sýknað af kröfum iðnaðarmanna:
Fá bara fimm
prósent hækkun
- segir Héraðsdómur Reykjavíkur
DV-MYND HARI
Þjóöleikhúsiö 50 ára
Allt þetta leikár er helgaö hálfrar aldar afmæli Þjóöleikhússins. Eiginlegi af-
mælisdagurinn er í dag, 20. apríl. Nú eru nákvæmlega 50 ár liöin frá því aö
Þjóöleikhúsiö var opnað viö hátíölega athöfn meö fyrstu sýningu af
þremur hátíöarsýningum, Nýársnóttinni eftir Indriöa Einarsson.
Hinar sýningarnar tvær voru íslandsklukkan eftir Halldór Laxness
Borgarstarfsmenn fá aðstoð:
Börn slökkva elda
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
sýknað ríkið af kröfúm Iðnsveinafé-
lags Suðurnesja um að felldur yrði
úr gildi úrskuröur kaupskrámefnd-
ar varnarsvæða.
Iðnsveinarnir töldu að kaup-
skrárnefndin hefði ekki sinnt rann-
sóknarskyldu sinni og að hún hefði
lagt ólögmæt sjónarmið til grund-
vallar þeirri ákvörðun sinni frá 18.
desember 1998 að launataxtar félags-
manna iðnsveinafélagsins í störfum
hjá vamarliðinu skyldu hækka um
5%.
Iðnsveinafélagið taldi að miða
ætti laun félagsmanna sinna við
laun raflðnaðarmanna innan varn-
arsvæðisins, sem hafi þá veriö 27%
hærri en laun rafiðnaðarmanna
utan svæðisins, og til vara að miðað
yrði við launahækkanir sambæri-
Samkvæmt nýrri könnun
PricewaterhouseCoopers hefur for-
ysta Vísis.is á netmarkaðnum auk-
ist á síðustu mánuðum. Könnunin,
sem var unnin með 1.100 manna úr-
taki dagana í lok mars sl., sýnir að
Vísir.is er vinsælasta vefsvæðið
meðal íslenskra netverja.
Þegar spurt var hvaöa þrjú vef-
svæði menn heimsæktu helst
nefndu 55,9 prósent Vísi.is en í
könnun sem Gallup gerði í desem-
ber á síðasta ári var þessi tala
47,lprósent. Vinsældir Vísis.is hafa
því aukist um hartnær fimmtung.
Næst á eftir Visi.is í könnun PWC
kemur mbl.is, en það nefndu 53,8 af
hundraði þeirra sem aðgang hafa að
Netinu. í könnun Gallups nefndu
46,6 prósent mbl.is og hefur forysta
Vísis.is því aukist um 2,3 prósentu-
stig á þessum þremur mánuöum.
I þriðja sæti í marskönnun PWC
er leit.is, en 27,2 prósent nefndu
hana sem eitt af þeim þremur vef-
legra hópa utan vamarsvæðisins.
í dómi Héraösdóms Reykjavíkur
segir að kaupskrámefnd beri að
miða við sömu eða hliðstæð störf
utan vamarsvæða en ekki innan.
Nefndin hafi talið að hækkanir á al-
mennum markaði hafi numið áður-
nefndum 5% en hagfræðingur sem
iðnsveinamir höfðu fengið til að
meta hækkanirnar taldi þær hins
vegar hafa numið á bilinu 8 til 10%.
í úrskurði sínum hafði kaup-
skrámefndin miðað við störf í stór-
iðju utan varnarsvæða en það taldi
Iðnsveinafélag Suöumesja vera brot
á jafnræðisreglu stjórnarskrár og
stjórnsýsluréttar en héraðsdómur
sagði að það ekki hafa slík brot í fór
með sér að mismunandi starfshópar
hefðu mismunandi laun.
svæðum sem þeir sækja mest.
Leit.is sýnir langmesta aukningu
vinsælda milli kannanna, en tvöfalt
fleiri nefndu hana í mars en í des-
ember. Ýmis vefsvæði menntastofn-
ana og þjónustuaðila koma þar í
kjölfarið. í þessari marskönnun
PWC eru Veðurstofan og strik.is
undir sama hatti, en 4,8% netverja
nefna þau vefsvæði.
Athygli vekur að þriðjungi færri
nefndu símaskrána nú en í desem-
berkönnuninni og vefsvæði ýmissa
fyrirtækja í Netþjónustu fara úr 6,5
prósentum niður í 1,5.
„Þessar niðurstöður koma okkur
ekki á óvart og staðfesta þá tilfinn-
ingu sem viö höfum haft á undan-
fömum mánuðum. Auglýsendur
virðast einnig hafa trú á því að Vís-
ir sé í sókn því sala auglýsinga hef-
ur aukist vemlega," segir Þorvaldur
Jacobsen, framkvæmdastjóri Vís-
is.is, þegar DV innti hann eftir við-
brögðum við könnuninni.
Böm hjálpuðu til við að slökkva
sinueld í Fossvogsdalnum um
klukkan háifþrjú í gær.
Að sögn lögreglu höfðu einhver
önnur böm kveikt eldinn og þessi
hjálpuðu svo til við að slökkva
hann.
Bannað er að kveikja í sinu innan
Reykjavikurborgar, enda er sinueld-
ur hættulegur bæði fugla- og dýra-
lífi, sem og gróðri. Eins hafa
brennuvargamir sjaldnast stjóm á
eldinum og lítið þarf til þess að
hann fari úr böndunum.
Hefði haft möguleika
Ljóst er að ef lögreglan í Keflavík
hefði haft í höndunum þau úrræði
sem felast i frumvarpi dómsmála-
ráðherra um nálgunarbann hefði
hún haft mun betri möguleika á að
aftra Rúnari Bjarka Ríkharðssyni
frá því að hóta hinni 19 ára gömlu
Áslaugu Óladóttur sem hann hefur
nú játað að hafa myrt. Dagur
greindi frá
Nýtt met Haralds
HHaraldur Örn
pólfari gekk 22,1 km
á þriðjudag sem er
2,2 km lengra en
gamla metið hans.
Haraldur á nú 347
km eftir ófama á
pólinn.
Vísitala hækkar
Hagstofan hefur reiknað vísitölu
byggingarkostnaðar eftir verðlagi
um miðjan apríl 2000.
Vísitalan er 244,1 stig og hækkaði
um 2,0% frá fyrra mánuði. Hækkun
vísitölunnar síðastliðna þrjá mán-
uði samsvarar 9,5% hækkun á ári.
Jarðskjálfti í Henglinum
Jarðskjálftakippur með upptök í
Hengladölum varð skömmu fyrir átta
á þriðjudagskvöld og fannst hann lítil-
lega bæði í Hveragerði og í Reykjavík.
Nokkrir eftirskjálftar en minni fylgdu
skjálftanum. RÚV greindi frá.
Evróvisjóngifting
Tökulið evrópsku söngvakeppn-
innar, Evróvisjón, er hér á landi til
að vinna að kynningu keppninnar í
ár. Kynningarþemað mun vera gift-
ingar og munu þeir mynda ásatrú-
argiftingu sem haldin verður í dag í
Öskjuhlíðinni.
Fæðingarorlof styttist
Hópur kvenna hefur sent ráðherr-
um og þingmönnum bréf þar sem
vakin er athygli á því að nýtt frum-
varp um fæðingarorlof feli í raun í
sér styttingu á fæðingarorlofí
mæðra úr sex mánuðum í þrjá.
Fyrstur í Tyrklandi
Halldór Ásgrimsson utanríkisráð-
Fjölgað við rannsókn
Enn er verið að yfirheyra fólk í
sambandi við manndrápið í Keflavík.
Lögreglan 1 Reykjanesbæ hefur bætt
við einum starfsmanni til þess að
rannsaka málið en mikil vinna felst í
því að rannsaka svona máL sagði Þór-
ir Maronsson, yfirlögregluþjónn í
Reykjanesbæ. -SMK/hj
DV-MYND S
Börn slökkva sinueld
Þessi börn hjálpuöu borgarstarfsfólki viö aö slökkva sinueld sem kviknaöi í
Fossvogsdalnum í gærdag.
-GAR
Vísir.is eykur forystuna
- vinsældirnar jukust um 19 prósent