Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2000, Qupperneq 30
30
FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 2000
Helgarblað_________________________________________________________________________________________________DV
Fjölskyldumál
af nafninu mínu
Þá eru páskarnir í nánd og efa-
laust flestir að komast í páskafrí,
nema auðvitað öll þau fjölmörgu
sem þurfa að standa vaktina á
einn eða annan hátt til þess að
við hin getum notið þess að borða
páskaeggin okkar áhyggjulaus.
Páskarnir eru mikil gleðihátíð,
vorið er að koma, náttúran að
vakna til lífsins. Þeirri upprisu
lifsins eftir langan vetur fagna
allir, á sama tíma og kristnir
menn, sem við íslendingar erum
flestir, fagna upprisu Jesú Krists.
Nú skýtur það ef til vill skökku
við að velta fyrir sér sorginni,
svona í miöri vorgleðinni, grill-
stemningunni, skíðafjörinu og
hinu almenna stuði sem ríkir um
allt land. Og þó. Því stuðið nær
„Nú skýtur það ef til vill
skökku við að velta fyrir
sér sorginni, svona í
miðri vorgleðinni, grill-
stemningunni, skíðafjör-
inu og hinu almenna
stuði sem ríkir um allt
land. Og þó. Því stuðið
nœr ekki til allra. “
hefur skilið eftir sig dúp sár.
En með stuðningi ástvina er
hægt að læra að lifa með sorginni
og finna lífi sínu nýjan farveg.
Við þekkjum öll einhvern sem
sorgin hefur sótt heim, hvort sem
það er nýlega eða fyrir einhverju
síðan. Kannski er það einhver
ættingja okkar, vinur eða kunn-
ingi. Og við skulum ekki gleyma
börnunum, því oft hefur þeirra
sorgum verið ýtt til hliðar vegna
þess að allir hafa svo miklar
áhyggjur af hinum fullorðnu.
Börnin syrgja líka á sinn hátt
og þurfa huggunar með. Hvernig
væri nú að taka sér tíma í miðju
páskafjörinu til þess að líta við
hjá þeim sem þannig er ástatt fyr-
ir og láta hann eða hana finna að
þér er ekki sama, að þú skilur og
vilt bjóða fram þína öxl, þinn
stuðning? það þarf ekki að kosta
þig mikinn tíma af páskafríinu
þínu. En heldurðu ekki að páska-
eggið þitt eigi eftir að bragðast
betur, ef þú veist að þú færðir sól-
argeisla inn í hjarta þar sem sorg-
in hafði knúið dyra?
Gleðilega páska.
- segir Heiðlóa Ásvaldsdóttir
sorgin kom í heimsókn
Þórhallur
Heimisson
skrifar um
fjölskyldumál
í HelgarblaO DV
ekki til allra. Það eru margir
sem af einhverjum ástæðum
eiga um sárt að binda, sem
hafa lent í því að sorgin kom
í heimsókn hjá þeim, annað-
hvort nýlega eða fyrir ein-
hverju síðan. Og þess vegna
gerir páskagleðin ekki ann-
að en að ýfa upp gömul
sár.
Sorgin á sér margar or-
sakir, en oft syrgjum við
eitthvað sem við höfum
misst, eitthvað eða ein-
hvern sem við söknum
og sjáum eftir og ekkert
getur komið í staðinn fyr-
ir. Sumir syrgja hjóna-
bandið sitt eða sambúðina
sem lenti í erfiðleikum og
endaði með upplausn. Aðrir
syrgja glataða heilsu og berjast
við heilsubrest, annaðhvort sinn
eigin eða einhverra sem eru þeim
nákomnir. Enn aðrir syrgja glöt-
uð tækifæri, glataða vináttu eða
hafa lent í fjárhagslegu basli sem
breytti aðstæðum þeirra og lífi til
hins verra. Og það er stór hóp-
urinn sem syrgir horfna ást-
vini, hvort sem þau hafa
misst einhvern sér nákom-
inn eftir langa og erfiða
baráttu við sjúkdóm eða
skyndilega af slysförum. Já,
þær eru margar ástæðurnar
sem valda því að sorgin
knýr á dyrnar. Við vildum
víst öll vera laus við þessa
heimsókn sorgarinnar,
hverjar svo sem ástæð-
urnar eru fyrir inn-
litinu. En það er
enginn sem
sleppur við
heimsókn
Þegar
Mannanöfn hafa löngum verið
vinsælt umræðuefni og ekki hefur
áhuginn minnkað eftir að manna-
nafnanefnd tók til starfa. Oft á tið-
um hefur fólk hneykslast á úr-
skurðum hennar á ólíkustu nöfn-
um - og ekki sjaldnar nafngiftun-
um sjálfum. Ekki lenda þó öll ný
nöfn í vandræðum hjá manna-
nafnanefnd. Fyrsta og eina
mennska heiðlóan mætti engri
mótstöðu - enda erfitt að hugsa sér
íslenskari nafngift.
Skírð Heiður Lóa
Heiðlóa Ásvaldsdóttir er 28 ára
gamall hjúkrunarfræðingur á
Landspítalanum: „Ég var skírð
Heiður Lóa í höfuðið á ömmu
minni Heiði Júlíusdóttur og Lóu
kunningjakonu móður minnar.
Pabbi vildi strax skella nöfnunum
tveimur saman og skíra mig Heið-
lóu en mömmu fannst það nú ekki
viðeigandi. Ég var þó kölluð Heið-
lóa upp frá þessu og hef ávallt
skrifað nafnið mitt þannig.“ Hún
er alin upp á Norðfirði og játar að
stundum hafi henni verið strítt
vegna nafnsins: „Ég lét það þó ekk-
ert á mig fá því ég hef ávallt verið
mjög stolt af nafninu mínu. Ég
varð heldur ekkert vör við að það
væri sérstaklega frábrugðið öðrum
nöfnum fyrr en ég flutti til Reykja-
víkur í nám.“ Nafninu breytti hún
svo formlega árið 1992.
Nafnaruglingur
Heiðlóa leggur áherslu á að
nafnið hafi þótt eðlilegt á Norðfirði
og það hafi fyrst verið eftir að hún
fór að umgangast ókunnuga í starfi
sinu á Landsspítalanum að fólk
hafi fariö að hvá við að heyra nafn
hennar. Hún segist hafa lent í
nokkrum sérstæðum aðstæðum
vegna nafnsins og lætur eina sögu
flakka í lokin: „Ég og Steinunn
starfssystir min vorum að huga að
öldruðum sjúklingi og kynntum
okkur auðvitað fyrir honum. Ekki
löngu síðar var hann spurður
hvaða hjúkrunarkonur hefðu sinnt
honum og svaraði hann þá hik-
andi: „Önnur hét örugglega Stein-
unn en hét hin virkilega Sól-
skríkja?““
-BÆN
Hafnarkirkja__________________________
Hornafjaröarbæ
Skírdagur 20. apríl kl. 11.00.
Prestur: sr. Gunnlaugur Stefánsson
Fermingarbörn:
Aöalbjörg Hrafnkelsdóttir, Austurbraut
17.
Einar Smári Þorsteinsson, Mánabraut 1.
Rnnur Smári Torfason, Smárabraut 13.
Lóa Hrönn Ingvaldsdóttir, Noröurbraut 8.
Óskar Davíð Sigurjónsson, Kirkjubraut
48.
Steindór Sigurjónsson, Silfurbraut 35.
Vilhjálmur Þór Ólafsson, Kirkjubraut 7.
Hallgrímskirkia_________________________
Annar í páskum 24. apríl kl. 11.
Prestar: sr. Jón Dalbú Hróbjartsson
og sr. Siguröur Pálsson.
Fermingarbörn:
Aeshatu Efúa Mensiwa-Mensah, Skúlag. 42.
Agnar Már Júlíusson, Laufásvegl 10.
Anton Heiöar Þórólfsson, Barónsstíg 59.
Ásdís Guðmundsdóttir, Þingholtsstr.35.
Baldur Snær Jónsson, Bakkageröi 8.
Fannar Levy Benediktss., Skólav.st. 29a.
Gunnar Skúlason, Barónsstlg 78.
Hafsteinn Rannversson, Bragagötu 25.
Jan Martin Martinsson, Njálsgötu 12a.
Jón Pétur Jónsson, Njálsgötu 49.
Lísa Hilmarsdóttir, Fannafold 95.
Magnús Friðriksson, Laufásvegi 11.
Olga Lára Jónsdóttir, Grettisgötu 61.
Rakel Rut Karlsdóttir, Grettisgötu 31.
Skúli Theódórs Ólafsson, Klapparstíg 10.
Steingrímur Gauti Ingólfsson, Smárag. 12.
Sylvía Björg Runólfsdóttir, Starengi 90.
Þórður Steinar Hreiðarsson, Baldursg.39.
Þórðlfur Freyr Þórsson, Gunnarsbraut 40.
Heiður Lóa breytti nafni sínu í Heiölóa en bendir reyndar á að um leiöréttingu hafi verið að ræða.
sorgarinncir einhvern tímann á
æfinni og suma heimsækir hún
svo oft að hún er eins og árviss
gestur.
Sorgin verður syrgjanda sjald-
an erfiðari en einmitt á þeim
stundum þegar gleðin og hátíðar-
stemningin rikir allt i kring, eins
og núna á páskum þegar vorfjör-
ið gagntekur að því er virðist
alla. Þá sækja að hugsanir um
liðna tíð, um þá gleði sem einu
sinni var og þá sorg sem nú er
komin í hennar stað. Á slíkum
stundum brýst jafnvel minn-
ingin um einhverja löngu
liðna heimsókn sorgarinn-
ar upp á yfirborðið,
minning sem syrgjand-
inn hafði bægt frá sér
lengi. Þá er gott að
eiga einhvern að
sem skilur mann og
styður, sem veit að
góður vinur getur
styrkt og huggað
og hleypt vorsól-
inni að þar sem
myrkur sorgar-
innar hefur ríkt.
Auðvitað losna
menn aldrei alveg
undan sorginni,
sérstaklega ef hún