Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2000, Blaðsíða 8
8
Til væntanlegra frambjóðenda
í forsetakosningum 24. júní 2000
Yfirkjörstjóm Reykjavíkur kemur saman til fundar í Ráðhúsi
Reykjavíkur þriðjudaginn 16. maí 2000, kl. 16.00, til að gefa vottorð
um meðmælendur forsetaframboða skv. 4. gr. laga nr. 36/1945 um
framboð og kjör til forseta islands.
Þess er óskað að frambjóðendur, ef unnt er, skili meðmælendalistum
með nöfnum meðmælenda úr Reykjavík til trúnaðarmanns
yfirkjörstjómar, Gunnars Eydal, Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjamargötu
11, Reykjavík, föstudaginn 12. maí, svo unnt sé að undirbúa
vottorðsgjöf yfirkjörstjómar.Reykjavík 2. maí 2000
f.h. yfirkjörstjómar í Reykjavík
Jón Steinar Gunnlaugsson
fAuglýsing eftir
styrkumsóknum
Samstarfssjóður Nuuk-Reykjavík-Tórshavn
auglýsir eftir styrkumsóknum.
Reykjavíkurborg gerðist aðili að sjóði þessum á síðasta ári og nú er í
fyrsta sinn auglýst eftir styrkumsóknum hér á landi. Sjóðurinn hefur
að markmiði að efla skilning og samstarf milli þessara borga, íbúa þeirra,
samtaka og stjórnmálamanna. Sjóðurinn veitir fjárstyrki til verkefna
sem þjóna þessum markmiðum.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til verkefna sem
tengjast samskiptum milli bæjanna og efla tengsl þeirra með einhveijum
hætti, t.d. á sviði menningar, fræðslu eða íþrótta.
í umsókn skal lýsa fyrirhuguðum verkefnum ítarlega, fyrirkomulagi
þeirra, tímasetningu og kostnaði.
Skriflegri umsókn skaf beint til:
Samstarfssjóður Nuuk-Reykjavíkur-Tórshavn
b.t. Jón Bjömsson
Ráðhúsi Reykjavíkur
101 Reykjavík
ísland
Aðeins umsóknir sem hafa borist fyrir dagslok 26. maí nk. koma til
afgreiðslu. Ekki er um sérstök umsóknareyðublöð að ræða.
Æskilegt, en ekki nauðsynlegt, er að umsókn fylgi þýðing á dönsku eða
ensku.
Upplýsingar veitir Jón Bjömsson, Ráðhúsi Reykjavíkur, s. (354) 563
2000. Stjórn sjóðsins mun afgreiða umsóknir á fundi sínum í Reykjavík
í júní nk.
Reykjavík, 26. apríl 2000
Borgarstjórinn í Reykjavík
..það sem
fagmaðurinn
notar! j
úrval af múrfestingum
Verkfræ&ingar, tæknifræ&ingar, hönnuðir!
..þi& getiS sótt hönnunarforrit _ _.......___
fyrir múrfestingar á heimasi&u 'gjSgT:-
okkar sem er www.isol.is "
Ármútt 17, lOB Reyhjavih
síml: 533 1333 fax, 55B 0393
322
ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2000
DV
Viðskipti
DV-MYND DANÍEL ÓLAFSSON
Hugumstórir Borgfirðingar
Stefán Kalmansson, bæjarstjóri í Borgarbyggö, kynnir umhverfisstefnuna sem ber vott um mikla
framsýni í umhverfismálum.
Borgarbyggð í fararbroddi í umhverfismati með framtíðarsýn:
Fjölskylduvænt og
eftirsótt bæjarfélag
Umsjón: Viðskiptabla&ið
DV. BORGARBYGGD:
Dagur umhverfisins var haldinn
um allt land á þriðjudag. Þetta
mun vera í annað sinn sem sér-
stakur dagur er tileinkaður um-
hverfismálum samkvæmt ákvörð-
un ríkisstjórnarinnar. Borgar-
byggð hefur unnið að gerð um-
hverfisstefnu sem var kynnt á
Degi umhverfisins.
Auk þess voru af þessu tilefni
kynnt nokkur umhverfistengd
verkefni í íþróttahúsinu í Borgar-
nesi þar sem teikningar, kort og
ýmsar upplýsingar verða til sýnis
næstu daga. í umhverfisstefnu
Borgarbyggðar er tekið fram að
Borgarbyggð verði í fararbroddi
meðal íslenskra sveitarfélaga í
umhverfismati og verður fylgt í
hvívetna ákvæðum laga og reglu-
gerða um þennan málaflokk. Sjálf-
bær þróun verður höfð að leiðar-
ljósi við ákvarðanatöku. Með því
verði sveitarfélagið eftirsótt til bú-
setu sem fjölskylduvænt svæði
með heilnæmt og aðlaðandi um-
hverfi.
Sveitarfélagið og stofnanir þess
munu af fremsta megni leitast við
að nota endumýttar auðlindir í
starfsemi sinni. Þá er lögð áhersla
á verndun lífríkisins og varðveislu
líffræðilegrar íjölbreytni. Sérstök
áhersla verður lögð á að jarðgera
lífrænan úrgang sem fellur til í
sveitarfélaginu, Kappkostað verð-
ur að tryggja íbúum umhverfi til
búsetu og útivistar þar sem loft-
mengun og hávaðamengun er í
lágmarki, gætt verði þess að ljós-
mengun utan svæðis verði í lág-
marki. Þá verður komið á innra
eftirliti með vatnsveitu sveitaifé-
lagsins og vatnsverndarsvæði skil-
greind og varin. Á næstunni munu
ibúar Borgarbyggðar fá nýjar
plastsorptunnur sem leysa munu
af plastpokana og ný gámastöð
verður tekin í notkun í sumar.
-DVÓ
Skútuklöpp ehf.:
Saltfiskur er
sérgreinin
DV, FASKRÚÐSFIRÐI:
Skútuklöpp ehf., nýtt fiskvinnslu-
fyrirtæki, tók til starfa nýlega á Fá-
skrúðsfirði. Þar verður flakaður og
saltaður fiskur, auk þess sem fyrir-
tækið mun reka aðgerðarþjónustu.
Skútuklöpp ehf. er í 230 fermetra ný-
endurbyggðu húsnæði en þar var
áöur rekin skipasmíðastöð. Eigendur
eru Páll Óskarsson vinnuvélastjóri,
Grétar Amþórsson verkstjóri, Guðni
Ársælsson og Lukka ehf., útgerðarfyr-
irtæki á Stöðvarfirði. Starfsmenn
verða 3-5 í fyrstu en verður fjölgað
þegar fyrirtækinu vex fiskur um
hrygg. -ÆK
DV-MYND ÆGIR KRISTINS5UN
Mjór er mikils vísir
Á myndinni eru þeir Páll Óskarsson, Grétar Arnþórsson og Guöni Ársælsson,
eigendur fiskvinnslufyrirtækisins. Fyrirtækiö veitir strax nokkra atvinnu og
ætlunin er aö auka viö enda er mjór oft mikils vísir.
Vilja fá Íslandsbanka-FBA í Hólminn:
Bjóða lóð á besta
stað í bænum
dvTstykkishólmi:
A síðasta fundi bæjarstjórnar
Stykkishólms lögðu þeir Aðal-
steinn Þorsteinsson, Davíð
Sveinsson og Erling Garðar Jón-
asson fram tillögu um að bjóða ís-
landsbanka-FBA lóð á góðum stað
í bænum undir starfsemi sina í
Stykkishólmi.
I bréfi til Íslandsbanka-FBA er
bent á að vestra sé rúm fyrh slíkt
fyrirtæki, góðar samgöngur séu
til allra átta og bærinn reyndar í
landfræðilegri miðju hins vænt-
anlega norðvestur-kjördæmis. Á
Snæfellsnesi sé rekin öflug at-
vinnustarfsemi og sóknarfæri séu
á ýmsum sviðum, ekki síst með
tilkomu jarðhita sem menn hafa
nú uppgötvað sem heilsulind.
Bent er á öflug ferðaþjónustufyr-
irtæki, auk þess sem áform séu
uppi um stóra sumarhúsabyggð í
landi bæjarins. Enn hafa engin
svör borist frá Íslandsbanka-FBA
samkvæmt heimildum DV.
-DVÓ