Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2000, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2000, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2000 13 Utlönd Ingvar Helgason hf. Sævarhöfða 2 - Sími 525 8000 - Beinn sími 525 8070 Fax: 587 9577- www.ih.is - Véladeild - E-mail: veladeild@ih.is Vissir þú að við eigum mikið úrval notaðra búvéla? Mikil verðlækkun. Hafið samband við sölumenn okkar sem fyrst. Clinton gerir grín að sjálfum sér: Klippir út pappírsmyndir og horfir á þvottavélina Bandarískir íjölmiölamenn ausa nú lofl myndband með Bill Clinton Bandaríkjaforseta þar sem hann lýsir síðustu mánuðunum í Hvíta húsinu í Washington á gamansam- an hátt. Myndbandið sýndi Banda- ríkjaforseti við árlegan hátíðar- kvöldverð fyrir fréttaritara, stjóm- málamenn og ýmsa aðra fræga gesti í Hvíta húsinu um helgina. Ámyndbandinu er gert grín að því hversu erfítt forsetinn, sem elsk- ar sviðsljósið, á með að missa af allri athyglinni og afsala sér þeim völdum sem í starfi hans felast. Sýnt er hvernig hann reynir að hafa ofan af fyrir sér á meðan eiginkona hans, HUlary, er önnum kafm í eig- in kosningabaráttu í New York og dóttirin, Chelsea, er við háskóla- nám. Til þess að drepast ekki úr leið- indum á meðan hann er einn í Hvita húsinu klippir forsetinn út pappírsmyndir og horfir á þvotta- Gleymdi nestinu Clinton hleypur á eftir Hillary með nestið sem hún gleymdi. vélina vinna. Hann er sýndur hlaupa á eftir límósínu Hillary með nestið sem hún gleymdi. Og þegar A1 Gore varaforseti biður Clinton um að gera eitthvað í umhverfis- málum fer hann út og slær grasið og klippir runnana. Það var grínistinn Mark Katz sem hjálpaði Clinton að semja handritið. Samkvæmt nýjum skoðanakönn- unum eru Bandaríkjamenn nú leið- ir yfir því að Clinton skuli vera að yfirgefa Hvíta húsið. Fyrir ári voru Bandarikjamenn hundleiðir á for- setanum. Bretland: Leyniþjónustan njósnar um allan tölvupóst Breska leyniþjónustan MI5 er að koma sér upp kerfi sem á að fylgjast með öllum tölvupósti sem sendur er innanlands í Bretlandi og til og frá landinu. Njósnamiðstöðin á að vera komin í gagnið eftir um það bil ár, að því er fullyrt er í breska blaðinu Sunday Times. Bæði MI5 og breska lögreglan þurfa formlegt leyfi inn- anríkisráðuneytisins áður en þær geta lesið tölvupóst einstaklinga og samtaka. Neytendasamtökin í Bret- landi og fleiri samtök hafa áhyggjur af áætluninni. Notaðar búvélar á kostakjörum Góð dýna Fíladrottnlngin Boonma Komkham, sem er 31 árs, er hér vigtuð í keppninni um Fíladrottninguna í Taílandi. Komkham reyndist vera 162,5 kíló. Sú sem þótti sýna best þokka fílsins bar sigur úr býtum. Mun sigurvegarinn berjast fyrir málstað fílsins í Taílandi. Samningamaður ísraela: Trúir á myndun palestínsks ríkis Aðalsamningamaður ísraela, Oded Eran, lýsti þvi yfir í gær að lokaniðurstaða friðarviðræðnanna við Palestínumenn, sem nú fara fram, yrði myndun palestínsks rik- is. Yfirlýsingin kom ísraelskum ráðamönnum á óvart. Þeir gerðu lít- ið úr ummælum Erans en útilokuðu ekki að.palestinskt ríki yrði stofnað. „Forsætisráðherrann hefur beðið hann um að tjá sig ekki um mál sem ágreiningur ríkir um,“ sagði ísra- elskur embættismaður í gær sem ekki vildi láta nafns síns getið. Palestínumenn fögnuðu í gær yf- irlýsingu samningamannsins. Stefnt er að því að friðarviðræðum ísraela og Palestínumanna verði lokiö þann 13. september næstkom- andi. Sprinqdi 'princfdijna SNÚANLEG erÍA L átfceróla. FJOÐRUN pdammaclýr, pia TVÖFQLD FJÖÐR Góður nætursvefn er grundvallaratriði - og til að ná honum þarf góða dýnu! Norsku Jensen dýnurnar hafa verið framleiddar í yfir 50 ár. Þær eru með mismunandi fjaðrakjarna - og af hverri gerð er hægt að velja mismunandi stífleika. Mán. - Fös. 10:00 -18:00 • Laugard. 11:00 -16:00 * Sunnud. 13:00 -16:00 ™ ' HÚSGÖGN SíÖumúla 30 -Sími 568 6822 - œvintýri likust W

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.