Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2000, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2000, Blaðsíða 33
53 ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2000 I>V Tilvera DV-MYNDIR S Þeir fiska sem róa Sigurður Björnsson trúbador hampar hér Forsetabikarnum svonefnda en bik- arinn sá eru sigurlaun þess sem fyrstur kemur í mark í árlegum kappróöri kajak- manna fyrir Bessastaöanes. Siguröi á hægri hönd er silfurverðlaunahafinn Gunnar Sæmundsson en Sævar Úlfars- son hlaut bronsverðlaunin. Gullbræður börðust til sigurs Bræöurnir Kjartan Róbertsson og Ingimundur Róbertsson kepptu á tveggja manna kajak í Bessastaöaróörínum og upp- skáru sigur og þennan forláta bikar auk gullverölaunapeninga. Ertþú naglfastur? Söngvakeppnin á næsta leiti: Stokkhólmur kallar - lendir ísland í 19. sæti? Nú fer að styttast í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem haldin verður i kúluhýsinu Globen í Stokkhólmi laugardaginn 13. maí. Á fostudagskvöldið kemur hefur ríkissjónvarpið kynningu á lögun- um 24 sem taka þátt í keppninni og verða leikin þrjú lög á hverju kvöldi fram að keppni. Fyrsta kvöldið verða leikin lögin frá ísrael, Hollandi og Bretlandi en íslenska lagið, sem heitir Tell me og er eftir Örlyg Smára en Einar Ágúst Víðisson og Telma Ágústsdóttir syngja, verður kynnt mánudaginn 8. maí ásamt lögunum frá Belgíu og Kýpur. Lagið bar sigur úr býtum í sérstakri forkeppni sem fór fram í sjónvarpsþættinum Stutt í spunann en það voru sjónvarpsáhorfendur sjálfir sem áttu kost á að velja fram- lag okkar að þessu sinni með síma- vali. Óhætt er að segja að útsetning lagsins Tell me hafi tekið miklum breytingum frá því það var flutt í Stutt í spunann og flestir virðast sammála um að þær hafi verið mjög til bóta enda hefur lagið þegar náð talsverðum vinsældum hérlendis. Keppnin í Stokkhólmi er vitan- lega sýnd í beinni útsendingu í sjón- varpinu og hefst dagskráin klukkan 19. Þess má geta að í fyrri söngvakeppnum hafa það verið söngkonur sem hafa farið með sigur af hólmi í sex skipti af hverjum tíu en pör í ríflega fimmtungi tilfella. Samkvæmt samantekt einnar af fjöl- mörgum heimasíðum á Netinu sem helgaðar er söngvakeppni munu Eistar vinna keppnina að þessu sinni en íslendingar lenda í 19. sæti miðað við tölfræði fyrri ára. Fyrst Selma, svo Einar og Teima Selma Björnsdóttir náði frábærum árangri í Söngvakeppni evrópskra sjón- varpsstööva /' fyrra og var aöeins hársbreidd frá fyrsta íslenska sigrínum í keppninni. í ár eru þaö Einar Ágúst Víöisson og Telma Ágústsdóttir sem keppa fyrir íslands hönd. Gatnamálastj órinn í Reykjavík E.BACKMAN AUQL ÝSINGASTOFA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.