Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2000, Qupperneq 12
12
BIFREIÐASTILUNGAR
Utlönd
ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2000
DV
ifipmiNiAfl
Á K LÆ Ð I
SÍMI555 3986/897 6666
HJALLAHRAUNI 8
HAFNARFIRÐI
OPIÐ MÁNUDAGA -
FIMMTUDAGA13 -18
FÖSTUDAGA13 -16
í gerð einangrunarglers
fyrir íslenskar aðstæður.
Glerborgargler er framleitt undir
gæðaeftirliti Rannsóknastofriunar
bygging;iriðnaðarins.
Dalshrauni 5 220 Hafnaríirði Súni 565 0000
Dalbrekku 22, slml 544 5770.
^ar bústaðae/g^
Brunastigar, fyrir lífið,
kr. 4.8Ó0
Gas-viðvörunartæki,
kr. 5.800
Innbrotsfælitæki,
kr. 2.800
Vatnsþrýstibyssa
m/sápuhólfi,
kr. 2.800
Fjórhjól og jeppar,
12 voít.
Amerísk leiktæki,
sambyggð. Gott verð
Sól- og öryggisfilmur
á glerið,
300% sterkara
Blóðugar róstur í
Berlín og London
Tugir lögreglumanna og mótmæl-
enda særðust i átökum nýnasista og
andfasista í Berlín í gær á hátíðis-
degi verkalýðsins. Hundruð nýnas-
ista höfðu fengið leyfi til göngu í
gegnum borgarhlutann Hellersdorf í
Berlín. Þegar andfasistar kölluðu að
nýnasistar skyldu hafa sig á brott
brutust út átök milli fylkinganna.
Lögreglan skarst í leikinn en yflr 2
þúsund lögreglumenn voru á verði í
Hellersdorf. Yfir 200 manns voru
handteknir í kjölfar átakanna.
Lögreglan var með mikinn við-
búnað í Berlín og voru um 6 þúsund
lögreglumenn í viðbragðsstöðu í
borginni. Nýnasistarnir í Hellers-
dorf voru flestir á aldrinum 16 til 25
ára. Þeir báru borða með áletrun-
inni: „Þjóðverjar sitji fyrir við út-
hlutun starfa." Talsmaður nýnas-
ista sagði að þeir vildu leggja
áherslu á vanmátt Evrópusam-
bandsins til þess að sinna þörfum
Þýskalands.
Hörð átök urðu einnig í Hamborg
aðfaranótt 1. maí þegar mótmælend-
ur köstuðu grjóti í banka, brutu
rúður í verslunum og kveiktu í bh-
um.
I London barðist óeirðalögregla
við grímuklædda mótmælendur.
Níu lögreglumenn særðust í átökun-
um og fékk einn þeirra múrstein i
andlitið. Yfir 20 menn höfðu verið
handteknir í gærkvöld. Gerð var
árás á veitingastað McDonald’s og
flýði starfsfólkið i skelfingu. Um 5
þúsund óeirðalögreglumenn voru
kallaðir á vettvang.
Hundruð mótmælenda streymdu
í fjármálahverfi New York og
Chicago í Bandaríkjunum í gær og
mótmæltu Alþjóðagjaldeyrissjóðn-
um og Alþjóðabankanum.
Átök urðu milli mótmælenda og
lögreglu í Zúrich í Sviss í gær.
Beitti lögreglan táragasi og gúmmí-
kúlum gegn mótmælendum sem
brutu rúður og skemmdu bíla í sýn-
ingarsal BMW.
í Belgrad í Serbiu tóku þúsundir
þátt í mótmælagöngu. Kröfðust
göngumenn afsagnar Slobodans
Milosevics Júgóslavíuforseta. Sam-
tök óháðra stéttarfélaga sögðu for-
setann halda Serbum í einangrun
frá umheiminum. Vesturlönd beita
Serbíu viðskiptaþvingunum á með-
J3an Milosevic er við völd.
I Downingstræti
Óeiröalögregla í London setti upp vegatálma í Downingstræti. Um 200 manns fleygöu fiöskum um götuna í gær.
Hneyksli afstýrt:
Eiginkona borgarstjórans
er hætt við leik sinn
wmjmœrmm
Hnífjöfn barátta
Fréttin um að
borgarstjóri New
York, Rudolph
Giuliani, væri með
krabbamein, hefur
ekki haft áhrif á
stuðning kjósenda
við hann. Sam-
kvæmt skoðana-
könnun sem birt var í gær er enn
hnífjafnt á miUi Giulianis og Hill-
ary Clinton í baráttu þeirra um sæti
öldungadeildarþingmanns fyrir
New York. Hlýtur Hillary 46 prósent
atkvæða en Giuliani 44. Giuliani
ætlar að ákveða á næstu tveimur
vikum hvort hann býður sig fram.
Sprengt í Teheran
Nokkrum sprengjum var varpað
að opinberri byggingu í Teheran í
íran i gær. Fréttastofan IRNA sagði
að sex manns hefðu særst í
árásinni. Stjórnarandstöðusamtök-
in Mujahedin Khalq lýstu ábyrgð á
árásinni.
Mótmæli í Simbabve
Þúsundir stjómarandstæðinga í
Simbabve söfnuðust saman utan við
Harare, höfuðborg landsins, til
mótmæla gegn stjórn landsins. Of-
beldi gegn hvítum bændum er hald-
ið áfram þrátt fyrir tilmæli tals-
manna uppgjafahermanna um að
það verði stöðvað. Hvítir bændur
eru örvæntingarfullir vegna ákvörð-
unar Mugabe forseta um að reka þá
af búgörðum þeirra á næstu tíu dög-
um.
Kynnir sér utanríkismál
George Bush, forsetaframbjóð-
andi repúblikana,
eyðir nú miklum
tíma í aö kynna sér
utanríkismál sem
ekki hafa verið
hans sterkasta hlið.
Leiðbeinandi for-
setaframbjóðand-
ans er Condoleezza
Rice sem starfaði í þjóðaröryggis-
ráðinu í stjórnartíð Bush eldri.
Hún ræðir við Bush í klukkustund í
viku hverri um það sem efst er á
baugi. Auk þeirra tekur starfsmað-
ur vamarmálaráðuneytisins þátt í
viðræðunum.
Viöurkennir njósnir
Talsmaður dómstóls í Shiraz á ír-
an sagði i gær að einn hinna 13 gyð-
inga sem grunaðir eru um njósnir
hefði viðurkennt að hafa fengið
þjálfun hjá ísraelsku leyniþjónust-
unni Mossad.
Gíslar biðja um frelsi
Erlendu ferðamennimir sem eru
í gíslingu múslíma á Filippseyjum
báðu í gær um að þeir yrðu frelsað-
ir skjótt er þeir fengu heimsókn af
lækni og fréttamönnum. í gær til-
kynntu hennenn að þeir heföu
heyrt bamsraddir í jarðgöngum.
Talið er að þar sé annar hópur sem
mannræningjar hafa haldið í gísl-
ingu í 40 daga.
Donna Hanover, eiginkona borg-
arstjóra New York, Rudolphs Giuli-
anis, tilkynnti í gær að hún hefði
frestað leik í hinum umdeilda -gcun-
anleik, The vagina monologues.
Donna, sem er leikkona og sjón-
varpsfréttamaður, sagði í yfirlýs-
ingu í gær að hún hefði frestað þátt-
töku af persónulegum ástæðum.
Frumsýna á gamanleikinn á ný
þann 30. maí næstkomandi.
Giuliani tilkynnti á fimmtudag-
inn að hann væri með krabbamein í
blöðruhálskirtli. Donna tekur sjald-
an þátt í opinberum athöfnum með
eiginmanni sínum. Hún hefur ekk-
ert sést með honum opinberlega síð-
an kosningabarátta hans gegn Hill-
ary Clinton, forsetafrú Bandaríkj-
Eiginkonan hætti við
Rudolph Giuliani, borgarstjóri New
York.
anna, hófst. Hillary og Giuliani
sækjast bæði eftir sæti öldunga-
deildarþingmanns fyrir New York.
Borgarstjórinn hefur þó ekki til-
kynnt framboö sitt formlega.
Mikill titringur var í ráðhúsinu í
New York vegna væntanlegs leiks
borgarstjórafrúarinnar í leikritinu.
í því eru kynfæri kvenna nefnd yfir
hundrað sinnum og þykir það bein-
línis kennslustund í líffærafræði.
New York-búar voru farnir að
hlakka til að heyra borgarstjóra-
frúna segja ákveðin orð og stóðu í
biðröð eftir miðum.
Höfundur leikritsins, Eve Ensler,
er stuðningskona Hillary Clinton.
Þótti allt málið enn alvarlegra
vegna þeirrar staðreyndar.
Enn flokkur Haiders
Susanne Riess-Passer, sem í gær
tók formlega við formennsku Frels-
isflokksins í Austurríki af Jörg
Haider, sagði að flokkurinn væri
enn hans. Haldið yrði áfram á sömu
braut og hingað til.