Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2000, Síða 14
14
_____________________ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2000
Skoðun I>V
Til umhugsunar fyrir tölvuher Eflingar:
Konan og litla barnið hennar
Dagbjört Gunnarsdóttir nemi (Einar):
Já, það er svo mikil sól.
Auður Hallgrímsdóttir afgreiðsludama:
Já, sótin skín og ég er aö fara í frí.
Pagfari
Bára
skrifar:
Ég vil spyrja Halldór Björnsson,
formann Eflingar, hvort hann
treysti algjörlega öllum sínum her
af sérfræðingum og öllum tölvuút-
búnaðinum til að reikna út hvað
einstæð móðir þarf í laun til þess að
hún og barnið hennar lifi mann-
sæmandi lífi.
Húsaleiga 40 þúsund, matur 25
þúsund, rafmagn og hiti, kannski
sími og sjónvarp, 15 þúsund, enginn
bíll, en strætó 5 þúsund, fot 4 þús-
Þessi kona má ekki við
neinum aukaútgjöldum,
eins og tannviðgerðum eða
lœknisþjónustu hvað þá að
hún veiti sér eða barni sínu
nokkuð aukreitis.
und, leikskólagjald 10 þúsund. Þetta
er allt á lágu nótunum, en gerir
samt 99 þúsund krónur.
Þessi kona má ekki við neinum
aukaútgjöldum, eins og tannvið-
gerðum eða læknisþjónustu hvað þá
að hún veiti sér eða barni sínu
nokkuð aukreitis, til dæmis kemur
tónlistarskóli ekki til greina hvað
þá heldur íþróttir. Þessi móðir má
heldur ekki flytja oft, því það kostar
stórfé.
Ég býst ekki við að allur herskar-
inn af tölvum og tölvuspekingum
geti komist að niðurstöðu um þessa
konu og litla barnið hennar, því til
þess þarf mannlegt hjarta og sam-
kennd.
Finnst þér sumarið
vera komið?
Guörún Sveinbjörnsdóttir kennari:
Já, en þaö er svolítiö kalt enn þá.
Sigmar Hákonarson, 7 ára:
Já, ég er farinn aö spila fótbolta
úti og svona.
Sindri Már Erlingsson smiöur:
Já, þaö er kominn fiöringur í mann.
Garöar Viöarsson sjómaöur:
Já, veöriö er svo gott.
Sunnudagsbíltúrinn
Fjölskyldan á ferðalagi í góðum bíl við bestu aðstæður innan bíls sem utan. Hraðinn í umferðinni er orsök
flestra slysa - stærð bílsins skiptir þá litlu eða engu máli.
Imyndað öryggi í umferðinni
Mér blöskrar
óskammfeilni ým-
issa innflytjenda
bifreiða hér á
landi. Þeir koma
fram í fjölmiðlum
og fullyrða að stór-
ir bílar séu fjöl-
skylduvænni og
leiði til færri slysa
en minni bílar. Það
vita það allir sem
vilja vita að um-
ferðarslys verða hvort heldur menn
aka um á litlum eða stórum bíl. Þeir
sem vilja losna við umferðarslysin
aka gætilega og taka aksturinn sem
ábyrgðarstarf. Menn eiga ekki, í
hagnaðarskyni, að selja dýra bíla á
fólskum forsendum.
Slysin í umferðinni eru þvi miður
allt of mörg í okkar litla landi og
þegar hvert slys er krufið inn að
„Bíll er ekki leiktœki,
hann er nánast eins
og vopn ef hann er
misnotaður. “
beini kemur í ljós að það stafar af of
hröðum akstri, of lítilli varkámi
þess sem heldur um stýrið, of mik-
illi streitu í umferðinni. Okkur ís-
lendingum ætlar seint að lærast að
aka bíl eins og siðmenntað fólk. Að-
eins frumstæðustu þjóðir aka bílum
eins og við gerum.
Því miður hefur ökukennsla ekki
lagast mikið í áranna rás og nýleg
dæmi benda til að ungt fólk með ný
ökuskírteini í höndum sýni ekki þá
ábyrgð sem krefjast verður af hverj-
um einasta ökumanni og ekki síst
hinum yngstu sem nýlega eru búnir
að fá allan nauðsynlegan undirbún-
ing. Bíll er ekki leiktæki, hann er
nánast eins og vopn ef hann er mis-
notaður. Svo virðist sem öku-
kennsla markist oft meira af pen-
ingagræðgi en raunverulegum
metnaði fyrir því að útskrifa hæfa
ökumenn.
Á ferðum mínum um borgina sé ég
margt ljótt til ökumanna. Þeir fara
nánast ekkert eftir umferðarskiltum
og virða fæstir hraðamörk. Frekja og
dónaskapur veður uppi. Maður sér
unglinga sem hanga vel hálflr út um
glugga á bílum sem ekið er á fleygi-
ferð, þetta gerðist eitt kvöldið í síð-
ustu viku beint fyrir framan lög-
reglustöðina í Breiðholti. Lögreglan
þar eins og annars staðar er sofandi
og sést hvergi, skiptir sér af fáu og
tekur óbeinan þátt í hrakfórum okk-
ar í umferðinni með því að sinna
ekki skyldustörfum sínum en hangir
þess í stað inni á stöðvunum.
Jón Birgir
Pétursson
skrifar:
Þá vakna mussuliö og bomsudrengir
Víð gætum rétt ímyndað okkur þá skelf-
ingu ef einhverjum aumum trillukörlum
hefði verið hleypt í auðlindir hafsins. Þeir
hefðu örugglega glutrað þessum verðmæt-
um niður í tóma vitleysu.
Nú er öfundarliðið enn eina ferðina að
vakna upp á Alþingi. Kunnugir segja að
þetta gerist alltaf þegar líður að þinglokum.
Þá vakna mussulið og bomsudrengir upp af
vetrardvalanum og fara að kvarta.
Það viröist reyndar engu skipta yfir
hverju er verið að fárast, bara að orðaflaum-
urinn falli sæmilega að flokksstefnunni. Já,
flokksstefnu, vel á minnst - maður á ekki að
segja þetta ógrátandi. Hver veit t.d. hvemig
flokksstefna Vinstri grænna er, svo ekki sé
talað um Samfylkingar? Þetta lið hefur ekk-
ert vit á hagstjóm, peningum og hagræð-
ingu. Það getur til dæmis ekki með nokkru móti
komið því inn í sinn heimska haus að Landssími
íslands verður ekki seldur öðruvísi en í heilu
lagi. Það þarf bara ekkert að ræða það meir.
Rök virðast bara ekki duga á þetta grængula
bomsulið. Það heldur áfram að rövla og rífa kjaft
eins og ekkert sé sjálfsagðara. Steingrímur J. vill
ekki einu sinni selja draslið. Svo vilja aðrir fá
fyrir þetta dót morð fjár. Hvers eiga Þórarinn V.
og aðrir vinir mínir gjalda? Ég bara spyr!
Það er búið að vinna að því baki brotnu að
koma þessu í hendur á heiðvirðu fólki með vit á
peningum. Slíkt fólk er sko ekki aldeilis gripið
upp af götunni.
Það má nefna fleiri dæmi. Við gætum rétt
ímyndað okkur þá skelflngu ef einhveijum aum-
um triUukörlum hefði verið hleypt í auðlindir
hafsins. Þeir hefðu örugglega glutrað þessum
verðmætum niður í tóma vitleysu. Þá hefðu ekki
orðið til allir þeir nýju milljarðamæringar sem
við getum nú horft á með stolti, akandi um göt-
ur á almennilegum bílum - ekki einhverj-
um austantjaldsdruslum öllum til skamm-
ar.
Nei, loksins þegar íslensk þjóð er að öðl-
ast sjálfsvirðingu og komin með góða for-
ystusveit þá koma niðurrifsöflin skríðandi
úr hverju skoti.
Meira að segja Sverrir Hermannsson og
Addi Kitta Gauj láta eins og kjánar. Þetta
voru einu sinni miklir sómamenn með
fálkamerki nælt í jakkaboðung. Nú er engu
líkara en þeir hafi misst vitið. Sverrir
hundskammar Halldór okkar Ásgrímsson
úr ræðupúlti Alþingis. Svo leyfir hann sér að
ráðast á Þorstein Pálsson - sendiherra og sóma
íslands. Er maðurinn virkilega orðinn svona ut-
angátta? Getur verið að hann muni ekki eftir að
Þorsteinn er nú að gæta hagsmuna okkar í borg
Bretadrottningar. Ja, sveiattan.
Ég fæ ekki betur séð en þetta mussubomsulið
sé gjörsamlega búið aö ganga fram af Davíð okk-
ar Oddssyni. Maður er alveg hættur að heyra til
hans fyrir þessum bévaða hávaða og látum.
Hann virðist heldur ekki hafa geð í sér að láta
sjá sig lengur. - Eða fór hann kannski til
Kanarí...? _ n ,
VAgfAfc
Slæm þjónusta
í Glasgow
Hún er ekki til
að hrópa húrra
fyrir þjónustan
sem innt er af
hendi í nafni
Flugleiða á flug-
vellinum við Glas-
gow. Þar virðist
verktaki að nafni
Servis Air sinna
félaginu án þess
þó að starfsfólkið
sé vel upplýst um
Flugleiðir og þjónustu þess. Skosk
kona starfar á vegum þessa félags
við móttöku farþega og brottfarir.
Hún ber merki Flugleiða í barmin-
um en kveðst aðspurð ekki á launa-
skrá Flugleiða. Konan vann fyrir
Loftleiðir áður fyrr en skrifstofunni
í Glasgow var lokað fyrir 20 árum.
Farþegafjöldi í Glasgow hefur
margfaldast og þörfln á betri og víö-
tækari þjónustu hefur aukist. Það
er full þörf á að Flugleiðir íhugi að
nýju að ráða íslenska starfskrafta til
Glasgow og veita fína þjónustu eins
og i London. í Leifsstöð eru starf-
andi fjölmargir góðir kraftar sem
gætu annast vel um hag farþeganna
þegar þeir koma til Skotlands og
fara þaðan, fólk sem er rómað fyrir
lipurð og góða framkomu.
Var Leifur þá
norskur?
GG hringdi:
Jæja, var
Leifur svo
heppinn að
vera norsk-
ur? Ég er
með DV í
höndunum
og les að
Haraldur
kóngur í
Noregi hafi
fíallað mikið
um hetju-
dáðir Leifs
Eiríkssonar
vestur í Am-
eriku á fimmtudaginn. Hann hafi
hins vegar ekki nefnt á nafn að Leif-
ur hafi verið norskur. Nú telja Norð-
menn sem sé að lýðum sé ljóst að
Leifur hafi verið Norðmaður - það
þurfi einfaldlega ekki að taka það
fram!
Annars eiga íslendingar ekki til-
kall til Leifs heldur, hann var Græn-
lendingur, sonur islensks landnáms-
manns sem varð að flýja til Græn-
lands. En Norðmenn vita að ljúgi
þeir nógu oft og nógu víða þá tekst
þeim að gera landafundina á Vín-
landi að sínum afrekum og það hafa
þeir gert - óréttilega.
Leifur heppni
- þjóðerni enn
í lausu lofti.
Dómstóll
götunnar
Ama hrlngdi:
Maður er undrandi á því að í sam-
félagi fólks skuli annað eins gerast
og á Húsavík í vetur - að fólk taki
sig saman i múgsefíun vegna nauðg-
unarkæru, safni undirskriftum og
knýji á um sýknu ákærðs manns.
Vissulega er það alltaf álitamál hvað
er nauðgun og hvað ekki. Ekki þekki
ég málsforsendur og auðvitað finn ég
til með því unga fólki sem þama átti
í hlut. En það sem mér finnst ámæl-
isvert er þegar einshvers konar dóm-
stóll götunnar tekur að sér að ýta á
dómarana og reyna að hafa áhrif á
niðurstöður þeirra. Dómstólar eiga
að fá að starfa i friði án afskipta al-
mennings. Að á annað hundrað
manns í fámennu þorpi skuli taka
þátt í að gerast dómstóll götunnar
nær engri átt.
PV Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn I síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangiö:
gra@ff.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverholti 11, 105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.