Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2000, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2000, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 2000 11 I>V Útlönd Poul Nyrup Rasmussen Danski forsætisráöherrann hefur lýst yfir stuöningi viö innanríkisráöherra sinn. Hann segir þó oröalag Jesper- sen hafa veriö svolítiö harkalegt. Ráðherra vill setja útlendinga á eyðieyju Innanríkisráðherra Danmerkur, Karen Jespersen, sætti í gær harðri gagnrýni á neyðarfundi stjómar- flokkanna fyrir ummæli sín um að setja útlendinga með afbrotaferil, er biðja um hæli i Danmörku, á eyði- eyju. Karen Jespersen hefur einnig lýst því yfir að hún sé andvíg því að Danmörk verði þjóðfélag fólks frá mörgum menningarheimum. Samkvæmt skoðanakönnun danska blaðsins B.T. styðja 80 pró- sent Dana tillögu ráðherrans um eyðieyjuna. 91 prósent er sammála Jespersen um Danmörk eigi ekki verða þjóðfélag fólks frá mörgmn menningarheimum. Hægri flokkur- inn Venstre og Danski þjóðarflokk- urinn vilja að Danmörk verði aldanskt þjóðfélag. Breska stjórnin tekur sér neyðarvald vegna mótmæla gegn háu eldsneytisverði: Blair lætur ekki undan kröfum mótmælenda Svona gerir maður ekki Þessi fulloröna kona i námuborginni Donetsk í Úkraínu neitaöi aö taka því meö þögninni aö yfírvöld skyldu hækka verö á þjónustu viö borgarana. Hún tók þátt í mótmælaaögeröum fyrir utan aösetur yfírvaldsins í borginni og lét lögregluþjónana gráa fyrir járnum heyra hvaö henni fannst um aögeröir yfírvalda. hreinsistöðvar og birgðageymslur í herkví. Eldsneytisskorturinn hefur breiðst út um allt Bretland og víða voru langar biöraðir við þær bens- ínstöðvar þar sem enn var eitthvað að hafa. Mótmælendumir ollu einnig um- ferðaröngþveiti á vegum úti með því að aka löturhægt. Breskir fjölmiðlar hafa greint frá því að sjúkrabílar séu sums staðar hættir að aka nema í neyðartilvik- um og á sjúkrahúsi í Wales þurfti að afboða nokkrar skurðaðgerðir. Mótmælaaðgerðirnar urðu til þess að Tony Blair varð að aflýsa kvöldverðarboði í Hull þar sem mót- mælendur höfðu lokað veginum að veitingahúsinu þar sem hann ætlaði að snæða með þingmönnum Verka- mannaflokksins. Frönsk stjómvöld, sem fara með forystuna í Evrópusambandinu um þessar mundir, hvöttu til þess í gær aö samgönguráðherrar ESB hittust til að ræða um hugsanlega samhæf- ingu eldsneytisverðs og opinbema áilaga. Olíuverð hélst enn mjög hátt í gær þrátt fyrir að olíuframleiðslu- ríkin hefðu um helgina ákveðið að auka framleiðsluna. Gíslunum á Filipps- eyjum var nauðgað DANSSKÓLI Siguröar Hákonarsonar Auöbrekku 17 - Kópavogi Breska stjómin hefur tekið sér neyðarvald til að glíma við sivax- andi eldsneytisskort vegna mót- mælaaðgerða flutningabílstjóra og bænda gegn háu verði. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, neitar að verða við kröf- um mótmælenda. Nýjustu aðgerðir stjómvalda benda til að til uppgjörs muni koma milli yfirvalda og mót- mælenda. Mótmæli af þessu tagi gegn háu eldsneytisverði eru afar fátið í Bretlandi og æsiblaðið The Sun kallaði þau „Eldsneytisupp- reisnina 2000“. Með neyðarvaldinu er stjómvöld- um heimilt að gripa til viðeigandi ráðstafana til að tryggja að elds- neyti, svo sem bensín, húshitunarol- ía og dísilolía, berist til þeirra sem nauðsynlega þurfa svo hægt sé að halda uppi nauðsynlegri þjónustu. Eldsneyti er á þrotum á þúsund- um bensinstöðva um allt Bretland vegna aðgerða flutningabílstjóranna og bændanna sem hafa sett olíu- Mótmæla háu eldsneytisveröi Breskir flutningabílstjórar og bændur hafa staðið fyrir miklum mótmælum gegn háu eldsneytisverði síöustu daga. Nú er svo komið að bensín og annað eldsneyti er víðast hvar á þrotum á breskum bensínstöövum. Finnski gíslinn Risto Vahanen, sem i gær kom til Líbýu ásamt þremur öðrum evrópskum gíslum, greindi frá því að konum í hópi gísl- anna hefði verið nauðgað. „Við ræddum það við konumar hvort viö ættum að segja frá þessu. Þær voru þeirrar skoðunar að heim- urinn ætti að fá vitneskju um þetta. Þetta var ef til vill það versta sem gerðist. Þetta kom í raun á óvart þar sem að öðru leyti var komið vel fram við okkur," sagði Vahanen í viðtali við finnska sjónvarpsstöð. Hann sagði karlmennina í hópi gíslanna ekki haft neinn möguleika á að verja konumar. „Allir vissu að yrðum við harð- skeyttir yrðu viðbrögðin enn harð- ari,“ útskýrði hann. Viö komuna til Libýu Vahanen sagði uppreisnarmenn hafa nauðgað konum í hópi gíslanna. Finnski gíslinn Seppo Fránti kvaðst hafa verið notaður sem skjöldur í skothríð 7. maí síðastlið- inn. Leiðtogi uppreisnarmanna hefði gripið í hönd hans og stillt honum upp fyrir framan sig. Finnamir voru í hópi 21 gísls sem rænt var frá ferðamannastaðnum Sipadan um páskana. Aðeins einn þessara gísla er enn í haldi. Á sunnudagskvöld var þremur mönnum rænt á svipaöan hátt á malasísku eyjunni Pandanan. Þeir hafa nú verið fluttir til filippseysku eyjunnar Jolo. Fjórir vopnaðir menn á tveimur hraðbátum réðust á hóp manna við ferðamannamiðstöð. Ellefu tókst að flýja. Annar hópur mannræningja ít- rekaði í gær hótun sína um að taka bandarískan gisl af lífí. fullorðinsfræðslan Matshæft eininganám: skólanám & fjarnám Krókhálsi 5a - 110 R. Sími/fax 557 1155 Netfang: f-f@islandia.is - Vefsíöa: www.peace.is/f-f Námskeið, grunnskólanám og fyrstu prófáfangar framhaldsskola allt árið: ÍSL, DAN, NOR, SÆN, ENS, ÞÝS, SPÆ, FRA, POR, RUS, STÆ, TÖL, EÐL, TÖLVUGRUNNUR Litlir hópar: Nám fyrír alla NÁMSAÐSTOÐ: öll stig Námskeiðin hefjast 18. september SCHOOL OF ICELANDIC 4 Week Intensive Courses All Year Phone/fax: 557 1155 - E-mail:f-f@islandia.is http://www.angelfire.com/biz/icelandiclanguage DAM ER ÍDRÓTT ^^^^mfyrir allai Aliir almennir dansar fyrir börn, unglinga og fullorðna. Gömlu dansarnir - Standard - Latin Byrjendur og framhald. • Kántry línudans • Salsa + Mambó * Merenge • Brúðarpör • Keppnispör, œfingar 2-3svar í viku • Erlendir gestakennarar • Einkatímar • Frábœrir kennarar og skemmtilegt andrúmsloft

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.